Thorarinn Hjartarson
Ein Pæling
Hlaðvarp
Author
Thorarinn Hjartarson
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 10, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#515 Guðlaugur Þór Þórðarson - Íslendingar þeir einu sem gæta hagsmuna Íslands 23.01.2026 1:07:57
Þórarinn ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson, fyrrum ráðherra, um alþjóðastjórnmálin. Fjallað er um hagsmunagæslu Íslendinga í nýjum veruleika, varnarmál, fágætismálma, hagsmunir Íslands í samhengi við hagsmuni til Vesturs og Austurs, skuggabann og margt fleira. Upptaka 15. janúar 2026. Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus...
#514 Pétur Marteinsson - Nýja Samfylkingin, woke-ið og prófkjör 21.01.2026 1:10:36
Þórarinn ræðir við Pétur Marteinsson, frumkvöðul og kaffihúsaeiganda, en hann stefnir nú á að demba sér í stjórnmál og ætlar sér í prófkjör þar sem hann stefnir á að verða oddvit Samfylkingarinnar í næstkomandi borgarstjórnarkosningum. Þar mun hann etja kappi við Heiðu Björg Hilmisdóttur, núverandi borgarstjóra. Spjallið fer um víðan völl en auk þess að ræða það sem hann telur að betur megi fara í...
#513 Agnar Tómas Möller og Björn Jón Bragason - Alþjóðastjórnmál valda kerfisvillu hjá vinstrimönnum 20.01.2026 1:19:26
Þórarinn ræðir við Agnas Tómar Möller og Björn Jón Bragason um alþjóðastjórnmál og menningu. Rætt er um samfélagslega lofttæmið sem lengi hefur verið við lýði og hvaða áskoranir muni leita á okkar borð á næstunni. Fjallað er um Grænland, Bandaríkin, sögulegt samhengi og hvort að lífskjör á Íslandi séu afleiðing handahófskenndra atburða. Þá er einnig farið yfir það hvað áhrif lestur og nám hefur áh...
#512 Kolbeinn H. Stefánsson og Jökull Sólberg - Verður framtíðin duct-tape-uð? 18.01.2026 1:05:07
Þórarinn ræðir við Kolbein H. Stefánsson, kennara við félagsfræðideild háskóla Íslands, og Jökul Sólberg, frumkvöðul og sósíalista. Kastljósinu er beint að alþjóðastjórnmálunum og er rætt um það hvaðan uppspretta nýju strauma heimsvaldastefnunnar er að finna. Fjallað er um Venezuela, þjóðernishyggju, peningastefnu Evrópu, Þorgerði Katrínu, Rússland og Úkraínu. - Eru til jákvæðar hliðar þjóðernishy...
#511 Guðmundur Fylkisson - Rauði krossinn vann gegn störfum Guðmundar 16.01.2026 1:21:41
Þórarinn ræðir við Guðmund Fylkisson, lögreglumann sem hefur gerst frægur við einstaklega gott lag á því að aðstoða börn í neyslu. Hann telur skaðaminnkandi úrræði vera skaðræðisfyrirbæri og segir Rauða krossinn hafa staðið í vegi fyrir því að hann gæti aðstoðað börn í neyð. Hann segir að skaðaminnkandi úrræði í samfloti við eiturlyfjabílinn sé ekki farsæl lausn fyrir börn í neyslu. Guðmundur tel...
#510 Omar Rondon - Allir ættu að samgleðjast Venezuelabúum 13.01.2026 1:01:12
Þórarinn ræðir við Omar Rondon en hann er flóttamaður frá Venezuela. Omar telur að allir ættu að samgleðjast Venezuelabúum nú þegar Nicolás Maduro hefur verið steypt af stóli og situr nú í bandarísku fangelsi í New York. Hann segir að Venezuelabúum sé sama um það hvernig olíunni verði ráðstafað nú þegar Bandaríkjamenn segjast vilja stýra landinu einfaldlega vegna þess að um langt skeið hafi íbúar...
#509 Hilmar Freyr Gunnarsson - Afhverju getur maður ekki byggt eigið heimili? 08.01.2026 1:03:24
Þórarinn ræðir við Hilmar Frey Gunnarsson, húsasmíðameistara, um húsnæðismál, stjórnsýsluna, Grindavík og fleira. Hilmar telur að kerfið sporni við því að fólk geti byggt eigið heimili og að það sé nær ómögulegt miðað við áherslur stjórnvalda. Fjallað er um þetta í samhengi við aðgerðir stjórnvalda í Grindavík og hugmyndafræðilegan ágreining sem fylgir náttúruhamförum og frelsi íbúa til þess að sn...
#508 Ómar Annisius - Hryðjuverkaógn minni en samt til staðar á Íslandi 30.12.2025 1:18:43
Þórarinn ræðir við Ómar Annisius er fyrrum sérstaveitarmaður en starfar nú sem aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Þetta er í annað skiptið sem Ómar mætir en nú telja bæði Ómar og Þórarinn að staðan hafi breyst töluvert frá því að þeir ræddu saman síðast. Rætt er um breytt kerfi á landamærunum sem er til þess ætlað að tryggja öryggi betur gagnvart þeim borgurum sem koma...
#507 Stefán Máni - Slaufunarmenningin eins og í skáldsögu Kafka 28.12.2025 1:08:33
Þórarinn ræðir við Stefán Mána, rithöfund með meiru. Fjallað er um list, listamannalaun, faraldursárin, Kafka, slaufunarmenningu, hagsmunagæslu stjórnmálamanna, umburðarlyndi, GÍsla Martein og afhverju það er verið að reyna að slaufa Stefáni. - Eru jólin hundaflauta? - Afhverju er verið að reyna að slaufa Stefáni Mána? - Afhverju er Stefáni Mána ekki boðið í Gísla Martein? Þessum spurningum er sva...
#506 Jónas Már Torfason - Hversu lengi yrði Íslendingur að aðlagast í Afghanistan? 26.12.2025 1:14:19
Þórarinn ræðir við Jónas Már Torfason, lögfræðing, sem hyggur mögulega á stjórnmálaferil. Jónas er Samfylkingarmaður með sterkar skoðanir og ófeiminn við að tjá þær. Hann telur útlendingamál vera málaflokk sem mikilvægt sé að taka á og að skiljanlegt sé að ónotatilfinning fylgi auknum innflutningi fólks með ólíkan menningabakgrunn. Hann er hrifinn af Paul Collier, hagfræðingi sem meðal annars hefu...
#505 Dóri DNA - Afhverju tekst vinstrinu ekki að farma áru? 23.12.2025 1:09:51
Þórarinn ræðir við Dóra DNA um samfélagið. Dóri hefur áhyggjur af leiðtogaleysi vinstrimanna en að timburmenn vinstrimanna eftir rétttrúnaðarárin muni leiða að lokum til góðs. Þá snúa umræðurnar einnig að kvíða, gervigreindar, samfélagsmiðla og ljótum húsum. - Afhverju á vinstrið ekki leiðtoga? - Þurfa hús alltaf að vera ljót? - Leiðir aukin notkun samfélagsmiðla til kvíða eða kvíði til aukinnar s...
#504 Valmar Väljaots - Slaufun Glerárkirkju minni á uppvaxtarárin í Sovétríkjunum 22.12.2025 1:11:21
Þórarinn ræðir við Valmar Väljaots, fyrrum organista Glerárkirkju um atvik sem leiddi til þess að Valmar hætti störfum í kirkjunni. Málið hófst þegar umræður áttu sér stað um kynfræðslu Siggu Daggar í Glerárkirkju þar sem mörgum blöskraði það hvernig kynfræðslan átti sér stað. - Afhverju minna slaufanir á Sovíetríkin? - Er eðlilegt að setja typpa og píkumyndir upp á vegg í kirkjum? - Afhverju fæk...
#503 Bergur Ebbi - Ekkert jafn öflugt og ný kynslóð með skoðanir 19.12.2025 1:21:51
Þórarinn ræðir við Berg Ebba Benediktsson, frumkvöðul, hugsuð og uppistandara um fjármál og framtíðina. Bergur Ebbi er í samfloti með fleirum að kynna nýjung á fjármálamarkaði sem nefnist Spesía. Hugmyndin er ný lausn sem auðveldar fólki að fjárfesta í erlendum eignasöfnum. Þar að auki er rætt um lífeyrissjóðina, bankana, tækninýjungar og áhrif þeirra á fjármála- og efnahagsmál, gervigreind og mar...
#502 Árni Helgason - Aftenging 17.12.2025 1:11:55
Þórarinn ræðir við Árna Helgason um nýja bók sem Árni skrifaði. Bókin er skáldsaga sem snertir á hinum einkennilega nútíma þar sem sítenging breytir samskiptum, tjáskiptum og öllu öðru sem við kemur samfélaginu. Auk bókarinnar er rætt um Covid, samfélagsmiðla, stjórnmálin, Sjálfstæðisflokkinn, nútímastjórnmálamanninn, fjölmiðla og RÚV. - Hvernig er hinn ideal-stjórnmálamaður? - Hvað varð um "ég tr...
#501 Þórður Pálsson - Blómaskeið Evrópu var ekki undir ESB 15.12.2025 1:16:36
Þórarinn ræðir við Þórð Pálsson um stöðuna í efnahagskerfinu og ESB. Þórður telur að líkur séu á því að húsnæðisverð muni lækka og að blikur séu almennt á lofti á ýmsum sviðum, eins og hættumerkjum í tölum um atvinnuleysi. Þórður hefur miklar efasemdir gagnvart Evrópusambandinu og telur ófýsilegt að Ísland gangi þar inn. Hann segir blómaskeið Evrópu ekki hafa verið á tímum Evrópusambandsins og að...
#500 Heiðar Guðjónsson - Að útfasa jarðefnaeldsneyti í dag myndi færa lífskjör hundrað ár aftur í tímann 13.12.2025 1:20:53
Þáttur 500 skákar fram Heiðari Guðjónssyni, frumkvöðli sem nú hyggur á olíuævnitýri á Drekasvæðinu. Rætt er um sögulegt samhengi þess að sækja olíu á þessu svæði og hvernig vegferðin hefur litið út hingað til. Einnig er fjallað um pólitískar takmarkanir, orkuskiptin, öryggismál, menningarleg áhrif, hugarfarsbreytingu, lýðræðið, orkumál Evrópu og margt fleira. Eftir drjúgar samræður um þessi mál f...
#499 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir - Við verðum að opna augun 11.12.2025 1:09:55
Þórarinn ræðir við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um útlendingamál, stjórnmálin á Íslandi, jafnrétti kynjanna, heiðursmorð, hælisleitendur, myndir af árásarrifflum, Helga Magnús, Úlfar Lúðvíksson, vopnaburð unglinga og ESB. Þorbjörg segir að gagnrýni um útlendingastefnu ríkisstjórnarinnar sé vanstillt og að þau skref sem tekin hafa verið hafi alltaf verið á stefnu ríkisstjórnarflokkanna. - Á a...
#498 Arndís Anna K. Gunnarsdóttir - Orðræða dómsmálaráðherra ástæða hræðslu við flóttafólk 09.12.2025 1:22:19
Þórarinn ræðir við Arndísi Önnu Kristínar- Gunnarsdóttur um flóttafólk, landamærin og skipulagða afbrotahópa. Arndís telur að alið sé á ótta með því að blanda þessum atriðum saman og að dómsmálaráðherra hafi aukið tortryggni gagnvart erlendu fólki með sinni orðræðu. Hún segir að fleiri stjórnmálamenn á borð við Snorra Másson hafi skaðað stöðu flóttafólks og að í praktík sé hann að tala fyrir dauð...
#497 Kolbeinn H. Stefánsson - Vinstrið flutti inn menningarstríðið 07.12.2025 1:11:57
Þórarinn ræðir við Kolbein H. Stefánsson, kennara við félagsfræðadeild Háskóla Íslands um stefnu, menningu og áhrif akademíunnar á Íslandi. Fjallað er um hvernig akademísk umræða hefur tekið breytingum undanfarin ár í kjölfar mikillar bómullarvæðingar þar sem beinskeyttar umræður voru kveðnar í kútinn til þess að þóknast þeim sem telja slík orðaskipti vera of hvöss. Kolbeinn segir þetta hafa veri...
#496 Jóhann Páll Jóhannsson - Mun ekki standa í vegi fyrir rannsóknum á olíuleit á Drekasvæðinu 06.12.2025 1:09:31
Þórarinn ræðir við Jóhann Pál Jóhannsson, orku-, umhverfis- og loftslagsráðherra um orkumál, Drekasvæðið og útlendingamál. Í upphafi er rætt um efnahagsmál og hvernig ríkisstjórnin hyggst takast á við kólnandi hagkerfi. Rætt er um virkjanakosti og hvernig Jóhann sér fyrir sér að takast á við flókið regluverk í virkjanakostum. Í kjölfarið er rætt um loftslagsaðgerðir og fyrirhugaða olíuleit Heiðars...
#493 Unnar Stefán Sigurðsson - Skólastjóri Háaleitisskóla við Ásbrú 04.12.2025 1:14:38
Þórarinn ræðir við Unnar Stefán Sigurðsson, skólastjóra Háaleitisskóla í Reykjanesbæ. Unnar hefur getið sér gott orðspor fyrir sérstaklega góðan árangur við skólann sem staðsettur er á Ásbrú. Í þættinum ræðir hann áskoranir sem fylgir því að taka á móti fólki með ólíkan menningarbakgrunn og hvaða undirstöður þurfa að vera fyrir hendi til þess að taka vel á móti fólki sem hingað leitar. Unnar segir...
#495 Einar Þorsteinsson - "Ég vil mynda borgarstjórn til hægri" 02.12.2025 1:07:50
Þórarinn ræðir við Einar Þorsteinsson, fyrrum borgarstjóra og borgarfulltrúa Framsóknarflokksins. Einar ætlar sér að leiða Framsókn aftur í næstu borgarstjórnarkosningum og segist vilja leiða borgarstjórn til hægri. Í þættinum er rætt um samning sameinuðu þjóðanna við þjónustu við fatlað fólk, stjórnmálin á Íslandi, kulnun, fjármál borgarinnar, menntamál, móttökudeildir fyirr börn með erlendan bak...
#494 Arna Lára Jónsdóttir - Tilefni til bjartsýni í efnhagslífinu 01.12.2025 1:00:26
Þórarinn ræðir við Örnu Láru Jónsdóttur sem er alþingismaður Samfylkingarinnar og formaður viðskipta- og efnahagsnefndar. Í upphafi þáttar er rætt um stöðu Íslands og efnahagskerfið. Arna Lára telur of mikla svartsýni einkenna umræðuna og að hægt sé að horfa björtum augum til framtíðar þrátt fyrir áskoranir sem hún segir vera tímabundnar. Fjallað er um húsnæðispakkkann, kólnun hagkerfisins, hlutd...
#492 Stefán Atli Rúnarsson - Gervigreind - Útópía eða dystópía? 29.11.2025 1:04:46
Þórarinn ræðir við Stefán Atla Rúnarsson en hann heldur námskeið um hvernig best megi aðlaga persónulegt líf að gervigreind og hámarka afköst. Rætt er um ýmis mál er varðar gervigreind, þar á meðal hvernig maður gefur gervigreind fyrirmæli, dómsdagsspár, börn og gervigreind, hvort að Ísland geti orðið leiðandi á sviði gervigreindar og hvort að hún muni koma til með að taka yfir. Til að fá þætti hl...
#491 Þorsteinn Víglundsson - Ríkisafskipti á húsnæðismarkaði eru of mikil 29.11.2025 1:11:27
Þórarinn ræðir við Þorstein Víglundsson, fyrrum ráðherra og núverandi forstjóri eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf. Rætt er um húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar en Þorsteinn hefur verið opinberlega gagnrýninn á þá stefnubreytingu sem ríkisstjórnin hefur tekið með honum. Hann telur það óeðlilegt hvernig forgangsröðun sveitarfélaga hefur verið gagnvart úthlutunum lóða og segir að opinber afskipti le...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.