Thorarinn Hjartarson
Ein Pæling
Hlaðvarp
Author
Thorarinn Hjartarson
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 10, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#125 14. apríl - Ríkisstjórnin og Pomperipossa í Monismaniu 21.04.2026 45:40
Þórarinn ræðir um stöðu ríkisstjórnarinnar nú þegar brestir eru að myndast í Flokki fólksins, efnahagsstaða Íslands versnar og Kristrún Frostadóttir virðist hafa minni trú á ESB vegferð samstarfsflokks síns, Viðreisnar. Þetta er sett í samhengi við satíru Astrid Lindgren um Pomperipossa og nýtt slagorð Samfylkingarinnar um að ábyrgð einstaklingsins sé færð yfir á aðra. Til að fá þætti hlaðvarpsins...
#549 Einar Jóhannes Guðnason (M) - Borgarstjórnarkosningar 2026 17.04.2026 1:20:37
Þórarinn ræðir við Einar Jóhannes Guðnason, oddvita Miðflokksins í Kópavogsbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 16. maí næstkomandi. Í upphafi er rætt um spjaldtölvuvæðingu en Einar hefur miklar áhyggjur af því hvaða stefnu Kópavogsbær hefur tekið í þeim efnum en Einar telur að taka þurfi til í menntakerfinu og meðal annars snúa alfarið af braut skóla án aðgreiningar og endurvekja skóla...
#124 9. apríl - Er Flokkur Fólksins ESB flokkur? 16.04.2026 48:32
Þórarinn ræðir heilbrigðismál, stjórnmálin, ríkisstjórnina og Flokk fólksins. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur: 50...
#123 Vestfirðir, innviðir og verðmætasköpun 14.04.2026 54:31
Þórarinn ræðir um tengsl innviða og verðmætasköpunar. Rætt er sérstaklega um Vestfirði sem virðast fá afar litla athygli stjórnmálamanna í samanburði við þau verðmæti sem þaðan koma. Rætt er um heimspeki, lýðræði, stjórnmálin, bók Robert D. Kaplan sem heitir Waste Land, óvissu á alþjóðamálasviðinu, stýri- og spretthópa og margt fleira.
#548 Helgi Magnús Gunnarsson - Gunguskapur stjórnmálamanna hefur komið okkur á þennan stað 13.04.2026 1:39:39
Þórarinn ræðir við Helga Magnús Gunnarsson, fyrrum vararíkissaksóknara, um stjórnmálin, ESB, útlendingamál, Gaza, kynjamál og fleira. Helgi segir ástandið í útlendingamálum vera til komið vegna stjórnmálamanna sem ekki hafa staðið í lappirnar á undanförnum árum og afleiðingin sé sú að við höfum flutt inn fólk sem vilja ekki aðlagast samfélaginu. Hann segir að fólkið sem hingað er komið hóta embætt...
#547 Silja Sóley Birgisdóttir (J) - Borgarstjórnarkosningar 2026 11.04.2026 1:24:32
Þórarinn ræðir við Silju Sóley Birgisdóttur, oddvita Sósíalistaflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar í maí. Farið er um víðan völl og rætt um stöðu vinstrisins, húsnæðismál, erjur Sósíalistaflokksins frá því að flokkurinn klofnaði fyrir skömmu, félagslegt húsnæði, skólamál, borgarlínu og óhagnaðardrifin úrræði . Sóley telur að borgin geti hagrætt í rekstri samhliða því að bæta þjónustu við íbúan...
#122 Ísland og Pierre Poilievre 10.04.2026 40:01
Þórarinn ræðir um Ísland og Pierre Poilievre
#546 Kolbeinn H. Stefánsson - Fjölmenning er útilokandi 09.04.2026 1:14:08
Þórarinn ræðir við Kolbein H. Stefánsson um heimspekileg álitamál er varðar umræðuhefð. Kolbeinn telur íslenska samfélagsumræðu vera á skrýtnum stað og að hún eigi margt sameiginlegt við umræðu í Evrópu fyrir fáeinum árum síðan. Hann segir umræðustrúktúrinn vera hugsanaslævgandi og að áframhaldandi átakafælni kunni að leiða okkur í ógöngur. Einnig er rætt um útlendingamál í þessu samhengi og rætt...
#121 Útlendingamál - Umræður á Íslandi eins og í Svíþjóð 2015 07.04.2026 1:07:57
Þórarinn ræðir um útlendinga- og efnahagsmál. Í upphafi þáttar er rætt um stöðu efnahagsins og hvernig breyttur tónn stéttarfélaganna muni koma til með að breyta næstu kjarasamningslotu nú þegar ljóst er að forsendur kjarasamninga eru brostnar. Megináhersla þáttarins er þó á útlendingamál og þá þróun sem Þórarinn telur vera að eiga sér stað á Íslandi í ljósi atburða síðustu viku. Hann fjallar um u...
#545 Gummi Hafsteins - Bremsur á gervigreind geti þýtt bremsur á framþróun á Íslandi 06.04.2026 1:13:48
Þórarinn ræðir öðru sinni við Gumma Hafsteinsson en hann er frumkvöðull sem hefur starfað bæði hjá Google og Apple. Gummi segir ljóst að gervigreind muni valda straumhvörfum á heimsvísu og geta fyrirbærisins kemur honum sífellt meira á óvart. Hann segir skilning stjórnmálamanna vera lítinn en það komi í sjálfu sér ekki á óvart þar sem skilningur flestra sé takmarkaður einfaldlega vegna þess að óvi...
#544 Ragnar Freyr Ingvarsson - Sjálfstætt starfandi læknar þjónusta tvöfalt fleiri en læknar á opinberum heilsugæslum 04.04.2026 1:16:09
Þórarinn ræðir við Ragnar Frey Ingvarsson, formann Læknafélags Reykjavíkur, um stöðu heilbrigðismála á Íslandi. Ragnar telur opinberan heilbrigðisrekstur vera ósveigjanlegan og það sé ástæðan fyrir því að sama hversu miklu fé sé varið í þjónustuna sé sífellt aukin þörf á meiru. Hann segir opinberar heilsugæslustöðvar hitta tvöfalt færri sjúklinga en þær sem reknar eru í einkarekstri og því mikill...
#543 Brynjar Níelsson og Jón Gunnarsson - Vöruðu Ísraelar íslensk stjórnvöld við? 01.04.2026 1:31:20
Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson og Jón Gunnarsson. Í fyrstu er rætt um borgarstjórnarmálin en Brynjar hyggst ætla sér í framboð og telur mikilvægt að Reykjavíkurborg breyti sinni stefnu undir forystu nýs meirihluta. Spurt er hver beri ábyrgð á eyðimerkurgöngu Sjálfstæðisflokksins og hvort að til sé sá veruleiki að flokkurinn verði hið nýja varadekk Samfylkingarinnar í borgarstjórn. Einnig er r...
#120 24. mars - Munu aðildaviðræður skyggja á borgarstjórnarkosningar? 31.03.2026 57:41
Þórarinn ræðir um frumhlaup utanríkisráðherra í umræðum sínum um aðildaviðræður við Evrópusambandið og hvaða áhrif það mun hafa á borgarstjórnarskosningar sem fram fara 16. maí næstkomandi. Einnig er fjallað um síðastliðna tvo þætti Silfursins og farið yfir frammistöðu mismunandi oddvita þeirra flokka sem hafa fengið til þess tækifæri. Að því loknu er talað um húsnæðismál, lífskjör og fleira. Til...
#542 Þórður Pálsson - Mikilvægt að koma skólakerfinu í lag til að forða drengjum frá Manosphere 29.03.2026 1:21:26
Þórarinn ræðir við Þórð Pálsson enn á ný. Í upphafi þáttar er rætt um evrópuvegferð ríkisstjórnarinnar og það sett í samhengi við það hvort að Ísland eigi að taka upp aðra mynt. Þórður telur evruna vera sístu ástæðu þess að Ísland ætti að ganga í ESB og að betur færi á því að sleppa því að taka upp evru ef Ísland á annað borð færi inn í ESB. Hann setur þetta í samhengi við verðbólgu og lífskjör í...
#541 Hilmar Veigar Pétursson - Hugverkaiðnaðurinn á Íslandi er takmarkalaus 27.03.2026 1:29:21
Þórarinn ræðir við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóra CCP. Hilmar hefur áhyggjur af nýsköpunarumhverfi á Íslandi en telur samt sem áður að með einföldum ákvörðunum sé hægt að margfalda afköst hans. Hann segir að með núverandi ríkisstjórn hafi áherslurnar beyst sem hafi haft áhrif á menningu innan iðnaðarins. Hann segir að með lítilli breytingu á fyrirkomulagi lífeyrissjóða væri hægt að skapa nýja...
#119 19. mars - Fjármálaráðherra segir plön vera til einskis 26.03.2026 48:24
Þórarinn ræðir almannatryggingafrumvarpið, stjórnmálin, húsnæðismarkaðinn og varnaðarorð seðlabankastjóra. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið Heitirpottar.is...
#540 Andri Snær Magnason - Eitthvað annað er í raun hagfræði austurríska skólans 25.03.2026 1:09:54
Þórarinn ræðir við Andra Snæ Magnason, rithöfund með meiru. Í upphafi þáttar er rætt um tækni og samfélagsmiðla og það sett í samhengi við samskipti nútímans. Að því loknu er rætt um stjórnmálin, náttúruna, heilavírusa, áliðnað, eitthvað annað og margt fleira. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að gr...
#118 18. mars - Valkyrjur Almighty 24.03.2026 1:01:31
Þórarinn ræðir um stýrivaxtaákvörðun, ákvarðanir ríkisstjórnarinnar, stjórnmálin, lífið árið 2016, Róbert Guðfinsson, skattar stórfyrirtækja og afhverju það er ekki hagstætt að reka fyrirtæki á Íslandi. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samsta...
#539 Eldur Smári - Transmál og tjáningarfrelsi 22.03.2026 1:06:28
Þórarinn ræðir við Eld Smára Kristinsson, aktívísta sem talar um transmál, samkynhneigð og önnur sjónarmið en þau hefðbundnu sem haldið er á lofti í opinberri umræðu. Eldur telur íslenskt samfélag vera á rangri braut og berst fyrir því að opna á umræðu um annmarka núverandi stefnu í málefnum um hormónabælandi lyf fyrir transbörn. Hann hefur verið lengi í þessari baráttu en þeir sem eru honum ósamm...
#538 Elliði Vignisson - Er íslensk stjórnsýsla eins og Milgram tilraunin? 20.03.2026 1:32:47
Þórarinn ræðir við Elliða Vignisson, bæjarstjórann í Ölfusi. Í upphafi þáttar er rætt um hugarfar og stjórnsýslu. Elliði hefur náð miklum árangri í sínu sveitarfélagi en hann segir að hugarfar íbúa og stefna hafi ráðið miklu þar um. Rætt er um köllun, trúleysi, börn og samfélagið og þeirri spurningu varpað fram hvort sannleikur leynist í sögum Fjodor Dostojevskíj. Þar á eftir er rætt um stjórnsýsl...
#117 12. mars - Húsnæði eru ekki mannréttindi 19.03.2026 1:09:19
Þórarinn ræðir ungt fólk, húsnæðismál og fleira. Rætt er um skrif Þráins Eggertssonar, Heiðars Guðjónssonar, Thomas Sowell og Christopher Hitchens og þeirri spurningu varpað fram hvaða afleiddar afleiðingar hugarfarið um að húsnæði séu mannréttindi munu hafa á framtíðar kynslóðir og á félagsleg gildi íslensks samfélags. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.p...
#537 Stefán Einar Stefánsson - ESB og ósamrýmanlegir menningarheimar 18.03.2026 1:27:58
Þórarinn ræðir við Stefán Einar Stefánsson, blaðamann og þáttastjórnanda Spursmála sem hann heldur úti fyrir hönd Morgunblaðsins. Í upphafi þáttar er rætt um ítök ríkisvaldisins í öllu er varðar mannlegt líf. Hann telur jafnréttisstofu vera áþekka klerkastjórn Íran á sumum sviðum og að leggja ætti hana niður ásamt fjölmiðlanefnd. Auk þess er rætt um ESB en Stefán telur að innganga Íslands yrði óhe...
#116 10. mars 2026 - Ísland kýs um aðildarumsókn að ESB 17.03.2026 47:08
Þórarinn ræðir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um það að kjósa skuli 29. ágúst um áframhaldandi aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fisk...
#536 Hermann Guðmundsson - Ójöfnuður, óvissa og ESB 16.03.2026 1:07:30
Þórarinn ræðir við Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri og eigandi í bæði Kemi og Poulsen. Hermann telur umræðuna um ESB og efnahagsstöðu Íslands vera einkennilega en hann segir að Íslandi eigi ekki að ganga til liðs við Evrópusambandið. Í þættinum er rætt um elju og vinnusemi, ójöfnuð, hvernig það er að reka fyrritæki í núverandi efnahagsástandi, hlutabréfamarkaðinn, loftslagsmál og margt fleir...
#116 5. mars - Kjarasamningar munu bresta 12.03.2026 40:51
Þórarinn ræðir kjarasamninga, aukna örorku, olíuverð og fleira. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur: 500g - 7.500 ISK...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.