Thorarinn Hjartarson
Ein Pæling
Hlaðvarp
Author
Thorarinn Hjartarson
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 10, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#181 Afglöp íslenskra stjórnvalda og endurvinnslufyrirtækja (með Bjartmari Oddi Þey Alexanderssyni) 24.10.2022 28:44
www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Bjartmar Odd Þey Alexandersson um lýgilega samantekt Bjartmars í Stundinni um endurvinnslumál á Íslandi. Rætt er um glerendurvinnslu, Úrvinnslusjóð, plastið í Svíþjóð og tregðu af hálfu iðnaðarins gagnvart upplýsingaöflun blaðamanna.
#180 Allt mun verða dýrara (með Birni Berg Gunnarssyni) 21.10.2022 31:03
Þórarinn ræðir efnahagshorfur við Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóra greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka. www.patreon.com/einpaeling
#179 Stjórnmálaspjall með Ólafi Þ. Harðarsyni 14.10.2022 18:42
Stutt upptaka með Ólafi Þ. Harðarsyni en mixerinn gaf upp öndina og restin af upptökunni eyðilagðist. Á þeim stutta tíma er rætt um framtíðarhorfur í stjórnmálunum og hryðjuverkamálið.
#178 Forvirkar rannsóknarheimildir og skotvopn lögreglumanna (með Margréti Valdimarsdóttur) 11.10.2022 38:39
Þórarinn ræðir við Margréti Valdimarsdóttur í þriðja sinn. Að þessu sinni er rætt um forvirkar rannsóknarheimildir, vopnaburð lögreglu, rafbyssur, ACAB og Thin Blue Line hugmyndafræðin og lagaleg viðbrögð í kjölfar hryðjuverkaógnar.
#177 Stéttarfélagafrelsi (með Óla Birni Kárasyni) 07.10.2022 38:32
Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mun á næstu dögum leggja fram tillögu um breytingu á aðild launþega að stéttarfélögum. Hér er rætt við Óla Björn um stéttarfélög, vanþekkingu fólks á réttindum sínum, stjórnmálamenningu, frumvarp Jóns Gunnarssonar um auknar rannsóknarheimildir lögreglumanna, hugmyndafræði og margt fleira.
#176 "The Fight for the Truth should be for the Fight for the Truth. Period." (with Gad Saad) 02.10.2022 1:01:13
Gad Saad is an evolutionary biologist who focuses on consumer behavior. In this conversation Tóti and Gad discuss various topics. Including academic culture, universal truths and postmodernism which is the focus of his book, the Parasitic mind. In the latter half the conversation moves towards Gad's clash with Sam Harris. To support this work: www.patreon.com/einpaeling
#175 Leikhús og rétttrúnaður (með Jakobi Bjarnari Grétarssyni) 28.09.2022 33:38
www.patreon.com/einpaeling Þórarinn fær til sín góðvin þáttarins hann Jakob Bjarnar Grétarsson. Að þessu sinni er rætt um leikrit sem sætti mikilli gagnrýni nýverið og nefnist Sem á himni. Var það gagnrýnt fyrir að hafa sýnt fötluðum lítilsvirðingu og ekki vera nægilega nærgætin í sinni túlkun á þessu sænska leikriti.
#174 Hver verður stefna Samfylkingarinnar undir stjórn Kristrúnar Frostadóttur? (með Kristrúnu Frostadóttur) 24.09.2022 41:22
Kristrún Frostadóttir kemur í heimsókn í hlaðvarpið til þess að ræða sínar áherslur ef hún verður kjörin formaður Samfylkginarinnar en hún bauð sig nýlega fram til þess að sinna því hlutverki.
#173 Hver er staða Íslands í loftslags- og orkumálum? (með Guðlaugi Þór Þórðarsyni) 22.09.2022 58:28
Guðlaugur Þór er Umhverfis, orku- og loftslagsráðherra og situr á Alþingi fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Guðlaug um áhrif stríðsins á orkumál, hvort að Íslands sé í stöðu til þess að selja orku erlendis, loftslagsmarkmið og fleira.
#172 Will British Banter save Free Speech? (with Konstantin Kisin) 18.09.2022 1:09:47
Tóti speaks with Konstantin Kisin about his new book; An Immigrants Love Letter to the West. Konstantin is a comedian and a host of the increasingly popular podcast Triggernometry. The conversation covers a wide range of topics, including fatherlessness and the breakdown of the family structure, gratitude, Western culture, free speech, the mainstream media, and Konstantin's experience growing up i...
#171 Sósíalismi og kapítalismi (með Tjörva Schiöth) 13.09.2022 33:11
Þórarinn ræðir við Tjörva Schiöth um hvort sé betra efnahagskerfi fyrir Ísland, sósíalismi eða kapítalismi.
#170 Ef markmiðið er að komast að sannleikanum þá hlýtur að vera í lagi að ræða hlutina (með Sigurði Má Sigurðssyni) 02.09.2022 34:37
Sigurður Már er meðstofnandi Arcade.is en hann og Þórarinn störfuðu áður saman við dyragæslu sem meðal annars er rætt um í hlaðvarpinu. Farið er um víðan völl. Rætt er um sjálfsímynd ungs fólks og samfélagsmiðla, neikvæðni, hvort það sé hægt að skíta upp á bak og koma til baka, djammmenning og hnífaárásir, tjáningafrelsi og fleira.
#169 Það er auðveldara að banna frelsi heldur en að leyfa það (með Hildi Sverrisdóttur) 26.08.2022 41:10
Hildur Sverrisdóttir situr á Alþingi fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Hildi um frelsi. Sérstaklega er beint sjónum að stöðu valdhafa, hvað það þýðir að vera hægri manneskja, íhald, faraldurinn, notkun nikotínpúða og áfengi í verslanir.
#168 Stjórnvöld skapa starfsumhverfi, ekki verðmæti (með Heiðari Guðjónssyni) 20.08.2022 56:28
www.patreon.com/einpaeling Heiðar Guðjónsson er fráfarandi forstjóri fjölmiðlasamsteypunnar Sýnar, sem rekur meðal annars Vodafone, Stöð 2, Vísi og Bylgjuna. Hann hefur verið umsvifamikill á ýmsum sviðum atvinnulífsins, bæði á Íslandi og víða annars staðar. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Heiðar um fyrirtækjarekstur á Íslandi, hvatastýringu, hvernig það er að reka fjölmiðil, aðkomu stjórnvald...
#167 Hvaða flokk kýs peltor gröfukarlinn? (með Árna Helgasyni) 16.08.2022 51:47
Er Brynjar Níels hinn nýji almannatengill? Hafa Hjörvar Hafliða og FM95Blö meiri áhrif á íslenska menningu heldur en fólkið á Twitter? Brugðust stjórnvöld rétt við í veirufaraldrinum? Hvaða flokk kýs hinn þögli meirihluti? Árni Helgason, fyrrum hlaðvarpsstjórnandi Hismisins, lögmaður og fleira, reynir ásamt Þórarni Hjartarsyni að svara þessum spurningum og fjölmörgum öðrum.
#166 Ekki ólíklegt að húsnæðisverð taki dýfu (með Má Wolfgang Mixa) 13.08.2022 43:37
Már Wolfgang Mixa, lektor í fjármálum við Háskóla Íslands, komst nýlega í fréttirnar þegar hann tjáði fjölmiðlum að það myndi ekki koma honum á óvart ef að húsnæðisverð myndi koma til með að taka dýfu á næstunni. Í þessu hlaðvarpi er rætt um hvað hafi áhrif á fasteignaverð, ástæður þess afhverju Már telur að það muni koma til með að taka dýfu, leigumarkaðinn, kjaraviðræður, hrunið og fleira.
#165 Samfélagsmiðlar eru tvíeggja sverð (með Kristínu Sif) 10.08.2022 53:53
www.patreon.com/einpaeling Kristín Sif er útvarpskona, áhrifavaldur, afrekskona í hnefaleikum og margt fleira. Í þessu hlaðvarpi er rætt um áhrif samfélagsmiðla á sálarlíf ungs fólks og áhrifavalda. Farið er yfir hvort að þetta sé óumflýjanlegur veruleiki barnanna okkar, hvernig maður getur komist hjá því að vera stanslaust tengdur, breytt samskiptamynstur og margt fleira.
#164 Ósættið er þessi íslenska öfund - Sjávarútvegskerfið, Samherjamálið og eignarhald (með Vilhjálmi Árnasyni) 07.08.2022 39:09
Vilhjálmur Árnason er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann telur sjávarútvegskerfið vera mikilvæga stoð í íslensku samfélagi og að gagnrýni á það byggist helst á öfund þeirra sem að keyptu ekki kvóta eða seldu hann snemma. Í þessum þætti er rætt um réttlæti, Samherjamálið, milliverðlagningu, uppbyggingu kerfisins, hugmyndafræði og margt fleira.
#163 Er þess virði að niðurgreiða landbúnað? (með Þórarni Inga Péturssyni) 04.08.2022 37:35
Þórarinn Ingi þingmaður Framsóknarflokksins mætir í annað skipti í hlaðvarpið. Að þessu sinni er rætt um niðurgreiðslu í landbúnaði, stöðu fæðuöryggis í heiminum vegna innrásarinnar, samráð, hugmyndafræði og margt fleira.
#162 Hvaða áhrif hafa samfélagsmiðlar á ungt fólk? (með Bjarna Kristni Gunnarssyni) 31.07.2022 36:58
Bjarni Kristinn Gunnarsson er sálfræðingur sem að hefur tjáð sig um áhrif samfélagsmiðla á ungt fólk. Í þessu hlaðvarpi spyr Þórarinn Bjarna úr spjörunum um framtíðarhorfur í þessum efnum, hvað sé hægt að gera til þess að sporna við vanlíðan og kvíða ungs fólks og hvers vegna þessir geðheilsukvillar hafa aukist undanfarin ár.
#161 Afhverju líður okkur illa? (með Þorsteini Guðmundssyni) 29.07.2022 40:43
Þorsteinn Guðmundsson er klínískur sálfræðingur en margir muna eflaust eftir honum úr sjónvarpsþáttunum sívinsælu Fóstbræðrum. Þórarinn ræðir við Þorstein um vanlíðan, áföll, kvíða, samskipti foreldra, reiða foreldra og margt fleira. Að lokum spyr Þórarinn Þorstein hver sé hans uppáhalds stikla í Fósbræðrum.
#160 Takmarkaðar auðlindir og afleiddar afleiðingar (með Bergþóri Ólasyni) 23.07.2022 52:57
Þórarinn ræðir við Bergþór Ólason þingmann Miðflokksins. Rætt er um stöðu Miðflokksins, innflytjendamál, orkumál og menningu.
#159 Leiðtogakosningar Íhaldsflokksins í Bretlandi - Rauði múrinn, ESB og hugmyndafræði (með Hirti J. Guðmundssyni 19.07.2022 53:50
Hjörtur J. Guðmundsson er alþjóðastjórnmálafræðingur sem hefur undanfarið skrifað pistla um leiðtogakosningar Íhaldsflokksins í Bretlandi á ýmsum vettvöngum. Í þættinum er rætt um þessar snörpu en mikilvægu kosningar en kjörinn leiðtogi verður sjálfkrafa forsætisráðherra Bretlands. Farið er stuttlega yfir sögu leiðtogavals Íhaldsflokksins, rætt um Brexit, ESB, "Rauða Múrinn" í norðri og fleira.
#158 Er að koma kreppa? Húsnæði, hrávörur og aðföng (með Ólafi Margeirssyni) 17.07.2022 46:50
Ólafur Margeirsson snýr aftur í þáttinn. Ólafur er með doktorsgráðu í hagfræði og fjallar mikið um húsnæðismál á Íslandi á Patreon reikningi sínum. Að þessu sinni er rætt stöðu efnahagsmála í víðu samhengi. Rætt er um áform ríkisstjórnarinnar að byggja 35.000 nýjar íbúðir á næstu 10 árum sem nú virðist vera möguleiki þrátt fyrir að það hafi talist ómögulegt þegar að Sósíalistaflokkurinn lagði það...
#157 Skortur á aðhaldi gegn spillingu á Íslandi - Getuleysi eða viljaleysi? (með Atla Thor Fanndal) 14.07.2022 1:01:47
Atli Thor Fanndal er framkvæmdarstjóri samtakanna Transparency International sem að berjast gegn spillingu. Í hlaðvarpinu er meðal annars rætt um spillingu á Íslandi, Samherjamálið, Íslandsbankasöluna, hvort spilling sé öðruvísi á Íslandi en annarsstaðar, stöðu stjórnmálaflokkanna í þeim efnum, og þá sérstaklega Sjálfstæðisflokksins.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.