Rauðu djöflarnir

Djöflavarpið

Sports IS ↓ 123 episodes

Rauðu djöflarnir fjalla um Manchester United frá hinum ýmsu hliðum. Þið finnið okkur á Facebook, Twitter og raududjoflarnir.is

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.raududjoflarnir.is

Author

Rauðu djöflarnir

Category

Sports

Podcast website

www.raududjoflarnir.is

Latest episode

Oct 28, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Djöflavarpið 47. þáttur 04.02.2018

Maggi, Björn og Halldór settust niður og fóru yfir síðustu leiki og þá aðallega Tottenham og Huddersfield. Einnig tókum við fyrir frammistöður og framtíðarstöðu Alexis Sánchez og sitthvað fleira. Endilega takið þátt í athugasemdum

46. þáttur – Halló Alexis, bless Mikki 18.01.2018

Maggi, Tryggvi, Björn og Halldór settust niður og fóru yfir sigrana gegn Derby County í FA bikarnum og gegn Stoke City í deildinni. Yfirvofandi skiptum Arsenal og Manchester United á þeim Henrikh Mkhitaryan og Alexis Sanchez voru gerð góð skil og einnig tókum við spurningar frá hlustendum og lesendum. Endilega takið þátt með kommentum og reynym að ná upp skemmtilegri umræðu.

Djöflavarpið 45. þáttur 04.01.2018

Maggi, Björn og Halldór settust niður með nýliðanum Friðriki og fóru yfir síðustu mánuði hjá Manchester United frá jafnteflinu gegn Liverpool til sigursins gegn Everton. Einnig voru nokkrir leikmenn liðsins teknir fyrir. Við biðjumst velvirðingar vegna hljóðtruflana í þættinum. Undirritaður er þegar að leita að lausnum til að koma veg fyrir að þetta gerist aftur.

44. þáttur – Hitað upp fyrir Liverpool (Baráttan um Ísland) 13.10.2017

Maggi, Björn og Halldór settust niður og fóru yfir síðustu leiki United. Eðlilega var aðalumræðefnið stórleikur helgarinnar gegn Liverpool.

43. þáttur – Fellaini arftaki Pauls Pogba? 21.09.2017

Maggi, Björn, Kristófer og Halldór settust niður og fóru vel yfir síðustu leiki United. Einnig var komið inná meiðslin hjá Paul Pogba og leikina framundan.

42. þáttur – Zlatan snýr aftur 20.08.2017

Maggi, Björn og Halldór settust niður og ræddu stórsigrana gegn West Ham og Swansea. Einnig var komið inná endurkomu Zlatan Ibrahimovic sem gæti jafnvel gerst í þessari viku. Svo svöruðu þeir spurningunni hvort einhver leikmaður muni bætast í hópinn í þessum glugga.

41. þáttur – Sumarkaupin rædd og hitað upp fyrir Real Madrid 02.08.2017

Maggi, Björn, Halldór, og Tryggvi settust niður og ræddu kaup sumarsins. Einnig var hitað upp fyrir leikinn gegn Real Madrid og rætt um hvaða leikmenn gætu komið áður en glugginn lokar.

40. þáttur – Lukaku að verða leikmaður Manchester United? 07.07.2017

Maggi, Halldór, og Tryggvi settust niður og ræddu kaupin á Romelo Lukaku og brottför Wayne Rooney til Everton. Einnig var rætt um Nemanja Matic og Ivan Perisic og hvaða kaup muni eiginlega fylgja í kjölfarið.

39. þáttur – Victor Lindelöf, Cristiano Ronaldo og enginn kvennabolti 22.06.2017

Maggi, Halldór, og Björn Friðgeir settust niður og ræddu kaupin á Victor Lindelöf, söluna á Adnan Januzaj, mögulega brottför Chris Smalling ásamt uppgjöri á Ronaldo slúðrinu sem lifði ekki heila viku og af hverju ósköpunum Manchester United er ekki með kvennalið.

38. þáttur – Alvaro Morata eða Andrea Belotti 08.06.2017

Maggi, Halldór, Tryggvi og Björn Friðgeir settust niður og ræddu leikmannaslúður og fréttir því tengdu. Antoine Griezmann, Alvaro Morata og David de Gea voru ræddir ásamt öðrum.

Podkast Rauðu djöflanna – 37. þáttur 01.06.2017

Maggi, Halldór, Tryggvi og Björn Friðgeir settust niður og ræddu sigurinn gegn Ajax í Evrópudeildinni. Einnig var farið yfir mat ritstjórnar á leikmannahópnum sem sést hér fyrir neðan og farið yfir slúður síðustu daga.

Podkast Rauðu djöflanna – 36. þáttur 23.05.2017

Maggi, Halldór, Tryggvi og Björn Friðgeir settust niður og ræddu mikilvægasta leik tímabilsins. Einnig ræddum við um Antoine Griezmann og Bernardo Silva orðrómana sem eru háværir um þessar mundir.

Podkast Rauðu djöflanna – 35. þáttur 12.05.2017

Maggi, Halldór og Björn Friðgeir settust niður og ræddu seinni leikinn gegn Celta Vigo. Einnig ræddum við José Mourinho og lauslega um leikina framundan.

Podkast Rauðu djöflanna – 34. þáttur 28.04.2017

Maggi, Halldór, Tryggvi Páll settust niður og ræddu jafntefli Manchester-liðanna í gær, dagskránna framundan og æsispennandi undanúrslitaviðureign okkar manna við Celta Vigo.

Podkast Rauðu djöflanna – 33. þáttur 04.04.2017

Maggi, Halldór, Tryggvi Páll og Björn Friðgeir settust niður og ræddu hvað sé í gangi með Luke Shaw, hvað sé að frétta fyrir framan mark andstæðinganna, spáðu í spilin varðandi möguleg leikmannakaup í sumar og svöruðu spurningum lesenda.

Podkast Rauðu djöflanna – 32. þáttur 14.03.2017

Maggi, Halldór, Tryggvi Páll og Sigurjón settust niður og ræddu málefni líðandi stundar.

Podkast Rauðu djöflanna – 31. þáttur 06.02.2017

Maggi, Björn Friðgeir og Tryggvi Páll settust niður til að ræða frammistöðu United síðustu vikurnar, framtíð Wayne Rooney, stöðu Anthony Martial og Luke Shaw og möguleikana á því að næla í Meistaradeildarsæti.

Podkast Rauðu djöflanna – 30. þáttur 08.01.2017

Maggi, Halldór, Björn Friðgeir og Sigurjón komu saman að þessu sinni og ræddu spilamennsku United undanfarið, stöðuna hjá Morgan Schneiderlin og leikinn framundan gegn Liverpool.

Podkast Rauðu djöflanna – 29. þáttur 18.11.2016

Maggi, Runólfur, Björn Friðgeir og Sigurjón settust niður ræddu málefni líðandi stundar, til dæmis leikinn gegn Arsenal, leikmenn eins og Rooney, Carrick og Memphis, og þau orð sem Mourinho hefur látið falla undanfarið um hugarfar ákveðinna leikmanna. Smávægileg mistök urðu í upptöku á þessu podkasti sem gerir það að verkum að hljóðgæði eru örlítið lakari en gengur og gerist. Við biðjumst velvirði...

Podkast Rauðu djöflanna – 28. þáttur 14.10.2016

Þeir Maggi, Tryggvi Páll, Halldór Marteins, Björn Friðgeir og Sigurjón settust niður með Kristjáni Atla hjá kop.is og spjölluðu um leikinn gegn Liverpool á mánudaginn.

Podkast Rauðu djöflanna – 27. þáttur 26.09.2016

Þeir Maggi, Tryggvi Páll og Halldór Marteins og Björn Friðgeir settust niður og tóku upp 27. podkast Rauðu djöflanna. Spjallað var um spilamennsku liðsins undanfarið sem hefur verið kaflaskipt. Tekinn var snúningur á þriggja leikja taphrinu liðsins og svo sigrinum gegn Leiceister um helgina. Þá var framtíð Rooney, Mata og Blind krufin til mergjar ásamt ýmsu öðru.

Podkast Rauðu djöflanna – 26. þáttur 06.09.2016

Þeir Maggi, Tryggvi Páll og Halldór Marteins, settust niður og tóku upp 26. podkast Rauðu djöflanna. Spjallað var að sjálfsögðu um spilamennsku liðsins undanfarið og svo var hitað upp fyrir stórleikinn gegn City um helgina, svo fátt eitt sé nefnt.

Keppnistímabilið 2016-17 – Spekingar spá 12.08.2016

Síðan Rauðu djöflarnir fóru fyrst í loftið hefur ritstjórnin líklega aldrei verið jafn spennt fyrir komandi tímabili. Við byrjum þessa upphitun fyrir tímabilið með 25. þætti podkasts Rauðu djöflanna. Maggi, Björn, Sigurjón, Tryggvi Páll, og Halldór Marteins settust niður og rýndu í José, nýju leikmennina og hin liðin Við spáðum fyrir um lokastöðuna eins og í fyrra og vonum að í þetta sinn standi l...

Podkast Rauðu djöflanna – 24. þáttur 25.07.2016

Loksins komu þeir saman! Maggi, Björn, Sigurjón, Tryggvi Páll, Elvar Örn og svo nýjasti meðlimur ritstjórnar, Halldór Marteins, settust niður og tóku upp 24. podkast Rauðu djöflanna. Farið var yfir víðan völl í þessum þætti; síðasta tímabil, Paul Pogba, Jose Mourinho, nýju mennirnir og margt annað.

Podkast Rauðu djöflanna – 23. þáttur 16.05.2016

Þeir Tryggvi Páll, Maggi, Björn, Sigurjón og Runólfur mættu til leiks í 23. þættinum af podkasti Rauðu djöflanna. Rætt var um það sem gerðist á Old Trafford í gær auk þess sem við tókum léttan snúning á Louis van Gaal, tímabilinu og hvað gerist mögulega í sumar. Tæknin var þó eitthvað að stríða okkur í þetta sinn en upptakan klikkaði á lokasprettinum og því er þátturinn styttri en vanalega.

Listen to the Djöflavarpið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.