Tal

Boltinn lýgur ekki

Sports IS ↓ 100 episodes

Körfuboltaþátturinn Boltinn Lýgur Ekki, sem hefur verið leiðandi í körfuboltaumfjöllun á Íslandi, er kominn á Suðurlandsbrautina, heimili körfuboltans á Íslandi. Fjallað er um móður allra íþrótta á hispurslausan hátt. Íslenski boltinn í aðalhlutverki en NBA verður á sínum stað ásamt heitum tökum og góðum gestum. Það eru Véfréttin sjálf, Sigurður Orri og Tommi Steindórs sem stýra þættinum sem er í þráðbeinni á X977 alla fimmtudaga frá 16-18.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: boltinnlygurekki.podbean.com

Author

Tal

Category

Sports

Latest episode

May 16, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Boltinn Lýgur Ekki - NBA, úrslitakeppnin og orð skulu standa 14.04.2022

BLE bræður í feiknastuði þennan Skírdaginn. Allir í fríi og þá fara þeir að vinna.  Fyrsti hálftíminn er helgaður NBA, umspilið, úrslitakeppnin, All NBA liðin og fleira.  Svo er komið að Íslenska boltanum. Allar seríurnar teknar fyrir, 1. deildin líka og úrslitin þar sem eru að hefjast. Aðeins farið yfir þjálfarakapalinn sem er í uppsiglingu. Hringdum í tvo Keflvíkinga til þess að tékka á stöðunni...

Boltinn Lýgur Ekki - Verðlaun fyrir tímabilið, hringt í Dósina og greining á fyrstu umferðinni 07.04.2022

BLE bræður fengu þann Eldfima og Þann Höggþunga til sín til þess að veita verðlaun fyrir tímabilið í alls konar flokkum.  -Leikmaður ársins í öllum deildum -Búðingur ársins -Ekkiferð ársins -Móment ársins -Skita ársins -Svissneskur vasahnífur ársins -Sneypuför ársins -Takk en nei takk ársins  og miklu fleiri flokkar.  í fyrri klukkutímanum var hringt í Dósina eftir frækinn sigur í 2. deildinni og...

Boltinn Lýgur Ekki - Úrslitakeppnisbomba BLE, kúst og fæjó á Króknum og rekinn úr Vesturbænum 04.04.2022

BLE bræður í það miklum ham að það var hent í aukaþátt.  Úrslitakeppnisbomban á sínum stað. Hver verður X-factorinn í einvígjunum? Hver verður búðingur? Hver verður óvænta stjarnan? Allt þetta og svo marg fleira í þætti dagsins. 

Boltinn Lýgur Ekki - Coach K, Unnsteins under the lights, hringt til Spánar og lokaumferðin í Subway 31.03.2022

BLE bræðir ferskir a fimmtudegi.  Í þessum þætti: -Hringt í Rúnar Inga Erlingsson, sérfræðing í háskolaboltanum vestanhafs en þar fara fram undanúrslit um helgina.  -Sá Slæmi fer yfir neðri deildirnar.  -Gunnar Birgisson um frabært gengi Tindastóls og framtíðina.  -Spáð fyrir um lokaumferðina, BLEðill og lofað upp í ermar

All time lið Grindavíkur, BLE bræður í Skagafjörð og það verður úrslitakeppnis-Vorkvöld í Vesturbænum 24.03.2022

BLE bræður voru í fáránlegu stuði þennan fimmtudaginn.  Fyrsta hálftíman fóru þeir yfir úrslitakeppni neðri deildanna og NBA deildina. Mun Sá Slæmi verða dósaður eins og allir aðrir í vetur eða verður þetta 2007 Patriots tímabil hjá Dósinni og Ármann? Fengu svo til sín frábæran gest til þess að velja besta Grindavíkurlið sögunnar, sjálfan Egil Birgisson. Fimm leikstöður, sjötti maður, handklæðavei...

Boltinn Lýgur Ekki - Máté rífur þögnina og Þór Þorlákshöfn orðnir þrefaldir meistarar 17.03.2022

BLE bræður voru í góðu skapi þennan fimmtudaginn. Byrjuðu á því að fara yfir fjögurra tíma leikdag Sigga í Smáranum áður en NBA deildin var tekin föstum tökum sem endaði í Who he play for?. Síðan kom Máté Dalmay, þjálfari Hauka, sem tryggði sér sæti í deild þeirra bestu á mánudaginn og fóru þeir saman í gegnum íslenska boltann og Tommi hringdi óvænt í Ísak Mána Wiium og bað hann afsökunnar á köldu...

Boltinn Lýgur Ekki - Simmons snýr aftur, KR í krísu og Stólar á stríki 10.03.2022

BLE í miklu stuði þennan fimmtudaginn.  NBA deildin á sviðið fyrsta hálftímann eða svo. Fyrst farið í heimkomu Ben Simmons til Philadelphia og hvort að Jokic sé búinn að tryggja sér MVP styttuna. Þá spilaðir Tommi leikinn: Who he play for?  Svo er farið í íslenska boltann, allar deildir en með mestum fókus á Subwaydeild karla. Er Mate Dalmay búinn að vinna BLE deildina? Er KR að missa af úrslitake...

Boltinn Lýgur Ekki - Hinn umdeildi Brynjar Karl, BLEinkunnir fyrir landsleiki og íslenski boltinn. 03.03.2022

BLE bræður fengu hinn umdeilda þjálfara Brynjar Karl Sigurðsson í spjall í fyrri hlutanum. KKÍ, aðferðir og ásakanir.  Í síðari hlutanum kom Steinar Aronsson, Sá Slæmi, og sama gáfu þeir einkunnir fyrir landsleikina sem voru á dögunum, fóru aðeins í 1. deildina, slúðruðu um efstu deild og spáðu í umferðina sem er að fara af stað. 

Boltinn Lýgur Ekki - #FyrirLoga, stóra landsliðsdraftið og hringt í beinni 24.02.2022

Tommi Steindórs, sá raunverulegi, stóð vaktina fyrir hönd BLE bræðra þennan fimmtudag. Hann var þó ekki einn því hann fékk lærifaðirinn, þann eldfima, Davíð Eld ritstjóra karfan.is og sá höggþungi, Heiðar Snær Magnússon, fyrrum fyrirliði Græna Drekans mætti einnig. Þeir fóru yfir landsliðið, brottrekstur Danna frá Grindavík, rönkuðu stuðningsmannasveitir, dröftuðu þrjú all time landsliðið, fóru yf...

Boltinn Lýgur Ekki - Landsliðsvalið, kýlt í gegnum rúðu og öskrandi Fannar Ólafs 22.02.2022

BLE bræður hittust í fyrsta skipti í langan tíma á mánudegi. Fóru yfir komandi landsliðsverkefni, völdu nýjan og endurbættan landsliðshóp og svo var það íslenski boltinn. 

Boltinn Lýgur Ekki - Jón Arnór, slagsmál á Selfossi og BLEðill 17.02.2022

BLE bræður hressir að vanda í dag. Garðar Örn Arnarson mætti í Fiskabúrið og fór yfir þættina um Jón Arnór en fyrsti þáttur fór í loftið í gær á Stöð 2 Sport. Bræðurnir fóru fyrir neðri deildir áður en Siggi þurfti að fara í sjónvarpið en þá mætti Þvottakörfubróðirinn Heiðar Snær Magnússon í hús ásamt hinum eldfima, Davíð Eldi ritstjóra karfan.is. Þeir fóru yfir Subway deildina og hnoðuðu að lokum...

Boltinn Lýgur Ekki - Top 5 efnilegustu leikmenn landsins 10.02.2022

Góður andi yfir BLE bræðrum þennan fimmtudaginn. Byrjuðu á því að hringja Hrafn Kristjánsson, þjálfara Álftaness og veikasta Lakers aðdáanda landsins og fóru yfir þau vandamál sem Lakers glíma við þessa stundina og trade deadlineið var aldrei langt undan. Sá slæmi mætti stuttu síðar og þar var farið yfir íslenska boltann í 90 mínútur á extra slæman hátt. Slæmi fékk heimavinnu, sagði okkur frá top...

Boltinn Lýgur Ekki - Ógeðslega leiðinlegir Keflvíkingar, faglegir Njarðvíkingar og útlendingahersveit í Vesturbænum 03.02.2022

BLE bræður ferskir á fimmtudegi. Fóru fyrst yfir NBA deildina þar sem Tommi spilaði leikinn "Who he play for?"  Svo var vaðið í íslensku neðri deildirnar. Hvað er að gerast á Bessastöðum?  Svo átti Subwaydeild karla hug BLE bræðra. Vörutalning fyrir öll liðin og Tommi gaf hverju liði prósentu á hversu líkleg þau væru til þess að landa þeim stóra.

Boltinn Lýgur Ekki - Besta ÍR lið allra tíma, neðri deildir og Njarðvík verður ekki Íslandsmeistari 27.01.2022

BLE bræður í fádæma stuði á fimmtudegi. Fyrsti hálftíminn fór í neðri deildir, bras á Álftanesi og stórleik föstudagsins í BLE deildinni Magnús Þór Jónsson, formaður kennarasambandsins og ÍR-ingur mætti svo og valdi fyrir BLE bræður besta ÍR lið allra tíma.

Boltinn Lýgur Ekki - Búnir að gefast upp á Stjörnunni, Westbrook á bekkinn og Dósin hlær að 2. deildinni 20.01.2022

BLE bræður voru í fádæma stuði í þætti dagsins.  NBA átti hug og hjarta þáttarins fyrsta klukkutímann. Vanvirðing við MVP deildarinnar, Embiid skorar 50 á hálftíma og Russell Westbrook var sendur á bekkinn.  Véfréttin tók Tomma í smá leik. Who he play for? Íslenski boltinn var í aðalhlutverki síðari klukkutímann. Strákarnir byrjuðu á að hringja í Dósina, sem er að valta yfir 2. deildina, fóru aðei...

Boltinn Lýgur Ekki - Tindastóll special: Hljómsveit Geirmundar Valtýs keypti Pétur Guðmunds 13.01.2022

Véfréttin á Tenerife þannig að sá raunverulegi var við stjórnvöllinn í nýjasta BLE. Hann fékk þann slæma (Steinar Aronsson, leikmaður Leiknis) og þann eldfima (Davíð Eldur, ristjóri karfan.is) til þess að fara yfir fréttir vikunnar og slúður áður en Stofustóllinn sjálfur, Eiki hljóðmaður, mætti og gerði þetta að enn einu Tindastólshlaðvarpinu. Hann ásamt hinum faglega Gunnari Birgissyni völdu síða...

Boltinn Lýgur Ekki - Project nothing í Hveragerði og argentískur tangó í Þorlákshöfn 10.01.2022

BLE bræður voru í góðum fílíng á sunnudagskvöldi.  Fóru yfir Subwaydeildina, 1. deildina og neðstu deildirnar. Norðurlandsslagurinn, Richotti lék á alls oddi í Þorlákshöfn, Hamar virðist hafa gefist upp og á Egilsstöðum eru menn að drilla.  Gasað stanslaust þangað til að Óli Dóri rak BLE bræður út úr stúdíóinu. 

Boltinn Lýgur Ekki - Hringt í Martin Hermannsson og notaðu bara PCR próf til að fresta leik. 06.01.2022

BLE bræður mættir til leiks á nýju ári.  Fóru fyrst yfir NBA deildina þar sem Lance Stephenson er mættur til leiks á ný sem og Kyrie Irving. Tóku svo smá snúning á frestunaráráttu körfuknattleikssambandsins.  Hringdu svo til Valencia þar sem Martin Hermannsson sat fyrir svörum um lífið, boltann og tilveruna á Spáni.  Síðasti klukkutíminn fór í íslenska boltann. Farið yfir félagaskiptin sem áttu sé...

Boltinn Lýgur Ekki - Stungið á KKÍ kýli, Hrannar í Hamri, pínulítill Hjalti 30.12.2021

BLE veitti alls konar verðlaun í áramótabombunni. Leikmaður ársins, vesen ársins, ummæli ársins, lið ársins, 4+1 söknuður ársins og miklu fleira. Sá slæmi í heimsókn í fiskabúrinu og sá lét í sér heyra. BLE þorir að snerta á hlutum sem aðrir koma ekki nálægt.

Boltinn Lýgur Ekki - Jólabomba BLE, hringt í BLE fjölskylduna og eru KR titlarnir með *? 23.12.2021

BLE bræður hafa sjaldan verið betri. Jólin eru að koma og bæði Véfréttin og Sá Raunverulegi voru í jólaskapi. NBA, neðri deildir, símtöl í sagnfræðinginn, þann Hundtrygga og G. Birgis. En fyrst og fremst jólagleði.

Boltinn Lýgur Ekki - Er búið að reka Baldur frá Tindastól? 20.12.2021

BLEverjar voru í miklu jólaskapi eftir þessa síðustu aðventuhelgi. Síðasta umferðin í Subwaydeild Karla fyrir jól búinn og því gott að fara aðeins yfir hlutina.  Þá er skjálfti í Skagafirðinum. Fréttir um stöðu Baldurs sem aðalþjálfara Tindastóls hafa flogið fjöllum hærra. 360° greining á ástandinu fyrir norðan.  BLE, þorir þegar aðrir þegja. 

Boltinn Lýgur Ekki - Hópuppsögn Véfréttarinnar og all time lið Blika 16.12.2021

BLE bræður voru í sannkölluðu jólastuði í dag. Fóru fyrst yfir NBA þar sem þeir fóru m.a yfir bestu in game troðslur allra tíma og svo kom Hrafnkell Freyr Ágústsson (Kötturinn) í heimsókn. Hann hlustaði á Véfréttina reka einn leikmann úr hverju liði í Subway deild karla áður en hann þuldi síðan upp all time lið Blika.

Boltinn Lýgur Ekki - Árni Helga velur sitt all time KR lið og niðurlæging í Hafnarfirði 09.12.2021

BLE í beinni úr Fiskabúri X977. Fyrsti hálftíminn fór í NBA spjall áður en Árni Helgason mætti og fór yfir all time lið KR. Síðan vækluðu þeir bræður neðri deildirnar áður en spáð var í komandi umferð Subway.

Boltinn Lýgur Ekki - Pínulitlir Þórsarar og galið rifrildi í Grindavík 06.12.2021

BLE bræður hittust á heimavelli Rikka G, FM957 stúdíóinu, byrjuðu á rísandi sjónvarpsferli Sigga, fréttum vikunnar og fóru yfir liðna umferð í Subway deild karla auk þess að fara aðeins í neðri delldir.

Boltinn Lýgur Ekki - Olíulaus togari og leikmaður svitnar fjórum lítrum í leik 02.12.2021

BLE bræður voru í þráðbeinni úr Fiskabúrinu þennan fimmtudaginn. Farið var yfir víðan völl og góðir gestir komu í heimsókn, sá slæmi (Steinar Aronsson) og sá loftslagskvíðni (Guðmundur Auðunn)

Listen to the Boltinn lýgur ekki podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.