Ási
Betri helmingurinn með Ása
Ási spjallar á léttu nótunum við skemmtilegt fólk og þeirra betri helming.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#101 - Ásgeir Kolbeins & Hera Gísla 29.03.2023 1:47:40
Athafnamaðurinn og fyrrum fjölmiðlamaðurinn Ásgeir Kolbeinsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi heilsu markþjálfanum Heru Gísladóttur. Ásgeir hóf sinn starfsferil ungur á FM957 og hefur hann í gegnum tíðina séð um hina ýmsu útvarps og sjónvarpsþætti áður en hann vatt sér útí viðskiptalífið en rak hann um langt skeið skemmtistaðinn Austur en í dag á hann og re...
#100 - Theodór Francis & Katrín 22.03.2023 1:54:28
Ég átti eitt áhugaverðasta og semmtilegasta spjall sem ég hef átt lengi við pararáðgjafann Theodór Francis Birgisson og hans Betri helming félagsráðgjafann Katrínu Katrínardóttur. Theodór eða Teddi eins og hann er oftast kallaður er einn eiganda fjölskyldu og áfallamiðstöðvarinnar Lausnarinnar og er hann einn allra vinsælasti pararáðgjafi landsins en hefur hann hjálpað fjöldanum öllum af pörum í g...
#99 - Villi Naglbítur og Saga Sig 16.03.2023 1:33:06
Naglbíturinn, leikarinn, rithöfundurinn og dagskrárgerðarmaðurinn Vilhelm Anton Jónsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum Betri helmingi ljósmyndaranum, leikstjóranum og listakonunni Sögu Sigurðardóttur. Vilhelm eða Villi Naglbítur eins og margir þekkja hann, hefur komið víða við á sínum ferli en er hann alveg einstaklega fjölhæfur maður. Þetta hófst allt hjá honum með hljóm...
#98 - Aðalsteinn Kjartans og Elísabet Erlends 08.03.2023 1:38:19
Fjölmiðlamaðurinn Aðalsteinn Kjartansson mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi Elísabetu Erlendsdóttur, yfir rjúkandi heitri eðlu, eða skarfi eins og þau kalla þetta. Aðalsteinn byrjaði ungur í fjölmiðlabransanum eða aðeins 20 ára gamall hjá DV og hefur hann eins og hann sagði sjálfur ekki unnið aðra vinnu síðan. Hann hefur þó komið víða við í fjölmiðla...
#97 - Þórhildur Sunna & Rafal 01.03.2023 1:26:35
Þingkflokksformaður Pírata og stjórnmálakonan Þórhildur Sunna Ævarsdóttir mætti til mín í áhugavert og virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi Rafal Orpel. Þórhildur gekk í lið með Pírötum árið 2016 en var þó hikandi hvort pólitík væri raunverulega fyrir hana og tók sinn tíma í að hugsa sig um, hún ákvað þó að láta til leiðast og hefur hún setið inná þingi allar götur síðan eða í u...
#96 - Þorsteinn V. & Hulda Tölgyes 22.02.2023 1:42:49
Hlaðvarpsstjarnan, kynjafræðingurinn og aktívistinn Þorsteinn V. Einarsson, eða Steini í Karlmennskunni eins og margir þekkja hann, mætti til mín ásamt sínum Betri helmingi sálfræðingnum og aktívistanum Huldu Jónsdóttur Tölgyes. Steini er menntaður kynjafræðingur en heldur hann úti fræðslu instagram-reikningnum vinsæla “Karlmennskan” ásamt því að stjórna hlaðvarpi undir sama nafni með það að markm...
#95 - Heiða & Elli 15.02.2023 1:46:32
Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir eða Heidi Ola eins og margir kannast við hana og hennar betri helmingur garðyrkju og ævintýramaðurinn Erlendur Kristjánsson mættu til mín í einlægt og skemmtilegt spjall nú á dögunum. Heiða var á sínum tíma margfaldur model fitness meistari, hélt úti matarbloggi og þjálfaði í WorldClass en er hún þessa daganna í fæðingarorlofi á milli þess sem hún býr til húsgögn af ýmsu...
#94 - Andri Iceland & Tanit 08.02.2023 2:17:35
Vellíðunar, heilsu og kuldaþálfarinn Vilhjálmur Andri Einarsson eða Andri Iceland eins og hann er gjarnan kallaður mætti til mín ásamt sínum betri helmingi Tanit Karolys í virkilega áhugavert og skemmtilegt spjall. Andri umbreytti lífi sínu þegar hann kynntist aðferðarfræðinni Wim hof eftir langa baráttu við streitu og vanlíðan en hann lenti ungur í slysi sem hafði mikil áhrif á líf hans. Í dag re...
#93 - Rafn Franklín & Karen Gylfa 01.02.2023 1:29:12
Þjálfarinn og heilsusérfræðingurinn Rafn Franklín Hrafnsson mætti til mín ásamt sínum betri helmingi, þjálfaranum og markaðsdrottningunni Kareni Ósk Gylfadóttur í mjög áhugavert og skemmtilegt spjall. Rafn var nánast alinn upp í innan veggja líkamsræktarinnar og hefur áhugi hans á hreyfingu og heilsu verið ríkjandi allt frá barnæsku en í dag er hann starfandi þjálfari, næringarráðgjafi og fyrirles...
#92 - Friðrik & Álfrún 25.01.2023 1:39:13
Þáttur vikunnar er stórskemmtilegur þó ég segi sjálfur frá en fékk ég til mín listahjónin Friðrik Friðriksson og Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur sem bæði hafa getið sér gott orð sem leikarar & leikstjórar. Friðrik hefur komið víða við innan leiklistargeirans en var hann lengi fastráðinn við Þjóðleikhúsið, þar sem hann lék bæði og leikstýrði. Árið 2016 tók hann svo stöðu framkvæmdastjóra Trjarnarbí...
#91 - Ólafía Þórunn & Thomas 18.01.2023 1:35:20
Atvinnukylfingurinn & golfledgendið Ólafía Þórunn Kristinsdóttir mætti til mín í stórskemmtilegt spjall um lífið og tilveruna ásamt sínum betri helmingi Thomas Bojanowski. Ólafía er einn okkar allra besti kylfingur og hefur afrekað ótrúlega hluti inná golfvellinum en meðal annars hefur hún spilað á mörgum stærstu golfmótum heims og komst til að mynda tvisvar inná LPGA mótaröðina. Í dag hefur h...
#90 - Viktor Karl & Jónína Þórdís 11.01.2023 1:33:40
Fótboltamaðurinn, íslandsmeistarinn og frumkvöðullinn Viktor Karl Einarsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi, lögfræðingnum og frumkvöðlunum Jónínu Þórdísi Karlsdóttur. Viktor fór ungur út í atvinnumennsku í fótbolta og spilaði með með Jong AZ í hollandi og IFK Värnamo í Svíþjóð áður en hann kom svo aftur heim í Kópavoginn og er í dag einn af lykilmönnum ísla...
#89 - Andrea Röfn & Arnór Ingvi 04.01.2023 1:27:28
Fótbolta og landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason mætti til mín í skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi fyrirsætunni og bloggaranum Andreu Röfn Jónasdóttur. Arnór Ingvi hefur verið atvinnumaður í fótbolta síðan 2012 og spilað hjá liðum víðsvegar um heiminn meðal annars í Boston, Noregi, Grikklandi, Austurríki og Svíþjóð þar sem hann spilar nú með félaginu Norrköpping. Ásamt þessu spilar...
#88 - Guðmundur Felix & Sylwia 28.12.2022 1:32:46
Gleðilega hátíð kæru hlustendur. Mig langar að byrja á því að benda á að þáttur dagsins er á ensku en í þetta skiptið átti ég eitt áhugaverðasta spjall frá upphafi við Guðmund Felix Grétarsson og hans betri helming Sylwiu Nowakowska. Guðmundur hefur vakið mikla athygli undanfarin ár vegna aðgerðar sem hann gekkst undir og ekki síður fyrir sitt einstaklega jákvæða hugarfar, en sem ungur maður lenti...
#87 - Helga Margrét & Bergur 21.12.2022 1:39:34
Íþróttafrétta og Dagskrárgerðarkonan Helga Margrét Höskuldsdóttir mætti til mín ásamt sínum betri helmingi tónlistarmanninum og trommaranum Bergi Einari Dagbjartssyni í stórskemmtilegt spjall. Helga Margrét hefur komið víða við í fjölmiðlum en allt hófst þetta á RÚV-Núll fyrir fimm árum síðan en hefur hún síðan þá tekið að sér fjölbreytt verkefni innan RÚV bæði í útvarpi og sjónvarpi. Undanfarið h...
#86 - Birnir & Vaka Njáls 14.12.2022 1:26:04
Tónlistarmaðurinn og rapparinn Birnir Sigurðarson mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi Vöku Njálsdóttur. Birnir hefur verið virkilega áberandi undanfarin ár en skaust hann hratt uppá stjörnuhimininn árið 2016 og hefur síðan þá verið einn atkvæðamesti tónlistarmaðurinn innan síns sviðs með lögum á borð við Já ég veit og Spurningar svo dæmi séu tekin. Va...
#84 - Margrét Maack & Tommi Steindórs 30.11.2022 1:26:56
Burlesque drottningin og fyrrum fjölmiðlakonan Margrét Erla Maack mætti í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum Betri Helmingi útvarpsmanninum Tómasi Steindórssyni. Margrét er sannkölluð fjöllistakona en er hún einna þekktust fyrir Burlesque sýningar sínar og kemur hún fram við hin ýmsu tilefni, veislustýrir, kennir á námskeiðum og er meðlimur í Sirkus Íslands en áður fyrr starfaði hún í fjölmi...
#83 - Guðrún Árný & Sveinbjörn 23.11.2022 1:42:09
Söngkonan Guðrún Árný Karlsdóttir mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helming, Sveinbirni Enokssyni. Það eru komin ansi mörg ár síðan Guðrún Árný söng sig inní hug og hjörtu íslendinga en var hún til að mynda partur af Frostrósum sem voru ómissandi í kringum hátíðarnar á sínum tíma, en gaf hún einmitt nýverið út splunkunýtt jólalag sem heitir “Desember”. Sveinbjörn er bí...
#82 - Edda Falak & Kristján Helgi 16.11.2022 1:16:30
Hlaðvarpsstjarnan, áhrifavaldurinn, íþróttakonan og nú síðast rithöfundurinn Edda Falak og hennar betri helmingur, bardagakappinn Kristján Helgi Hafliðason eru gestir vikunnar í Betri helmingnum. Edda hefur verið áberandi undanfarin misseri fyrir hlaðvarpið sitt Eigin konur þar sem hún vekur athygli & opnar umræðuna á erfiðum málefnum, en þar fær hún til sín viðmælendur sem deila með henni rey...
#81 - Snærós Sindra & Freyr Rögnvalds 09.11.2022 1:56:02
Fjölmiðla og dagskrárgerðarkonan Snærós Sindradóttir og hennar betri helmingur blaðamaðurinn Freyr Rögnvaldsson eru gestir þáttarins þessa vikuna. Snærós vaknar með þjóðinni eldsnemma alla virka morgna á Rúv en hefur hún einmitt stjórnað þar morgunþætti rásar tvö undanfarið árið en gegndi hún áður hinum ýmsu störfum innan Rúv, þar á meðal sem verkefnastjýra Ungrúv. Freyr hefur verið í blaðamennsku...
#80 - Einar Stef & Sólbjört 02.11.2022 1:18:22
Tónlistarmaðurinn Einar Stefánsson og dansarinn og leiklistarneminn Sólbjört Sigurðardóttir eru viðmælendur Betri helmingsins þessa vikuna. Einar hefur gert garðinn frægann sem gimpið í hljómsveitinni Höturum sem kepptu eftirminnilega í Eurovision árið 2019 og vöktu þeir gríðarlega athygli og ekki síst Einar í sínu hlutverki innan hljómsveitarinnar. Einar er einnig einn þriggja meðlima í hljómsvei...
#79 - Davíð Þór & Þórunn Gréta 26.10.2022 1:49:01
Séra Davíð Þór Jónsson og hans Betri helmingur Þórunn Gréta Sigurðardóttir eru viðmælendur vikunar í Betri helmingnum. Davíð Þór hefur komið víða við á sínum starfsferli en var hann meðal annars annar Radíusbræðra sem nutu gríðarlegra vinsælda á tíunda áratugnum, gegndi ritstjórn, þýddi bæði leikrit og sjónvarpsþætti, stjórnaði Gettu betur en hefur hann verið sóknarprestur Laugarnseskirkju síðan 2...
#78 - Gylfi Einars & Karitas María 19.10.2022 1:14:10
Gylfi Einarsson fyrrum atvinnumaður í fótbolta og spark-spekingur með meiru kom til mín í stórskemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi, ofurþjálfaranum vinsæla Karitas Maríu Lárusdóttur. Gylfi er eins og fyrr segir fyrrum atvinnumaður í fótbolta en spilaði hann á sínum ferli fyrir klúbba á borð við Lilleström, Brann og Leeds. Í dag rekur Gylfi fyrirtækið Iceland Tax free og bregður reglulega...
#77 - Jói G & Guðrún Kaldal 12.10.2022 1:33:02
Leikarinn Jóhann G Jóhannsson mætti til mín ásamt sínum betri helmingi framkvæmdastjóranum Guðrúnu Kaldal í einlægt og skemmtilegt spjall nú á dögunum. Jóhann eða Jói eins og hann er alltaf kallaður hefur á sínum ferli sem leikari komið víða við en hófst leiklistarferill hans í sjónvarpsþáttunum vinsælu um Nonna og Manna eftir samnefndum bókum, þá aðeins 14 ára gamall. Hann hefur bæði unnið mikið...
#76 - Helena Sverris & Finnur Atli 05.10.2022 1:17:35
Körfuboltaparið Helena Sverrisdóttir og Finnur Atli Magnússon kíktu við hjá mér í virkilega áhugavert og skemmtilegt spjall fyrir skemmstu. Helena er ein okkar allra fremsta körfuboltakona fyrr og síðar en hefur hún spilað mikilvæga rullu hjá sínum félagsliðum sem og með landsliðinu. Hún er ein fárra íslenskra kvenna sem farið hefur út í atvinnumennsku í körfubolta og spilaði hún meðal annars í Sl...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.