Austurbrú

Austurland

Society IS ↓ 74 episodes

Hlaðvarp á vegum Austurbrúar þar sem fjallað er um ýmis málefni tengd austfirsku samfélagi og verkefnum stofnunarinnar.

Author

Austurbrú

Category

Society

Podcast website

austurbru.is

Latest episode

Jul 2, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

23 – Uppbygging á Seyðisfirði 03.12.2021

Atvinnulífið á Seyðisfirði stóð frammi fyrir fordæmalausum og fjölþættum vanda í kjölfar hamfaranna í desember 2020 og í framhaldinu fór af stað verkefni innan Austurbrúar sem kallast Uppbygging á Seyðisfirði og í þess nafni hefur verið veitt ýmis konar ráðgjöf síðustu mánuði auk þess sem hvatasjóður var settur á laggirnar. Honum er m.a. ætlað að... Read more »

22 – Menningarverðlaun SSA 25.11.2021

Guðmundur R. Gíslason, tónlistarmaður frá Neskaupstað, hlaut menningarverðlaun Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) sem tilkynnt var um á haustþingi sambandsins er haldið var 19. nóvember. Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum á Austurlandi fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar. Í þættinum ræðir Guðmundur um þýðingu verðlaunanna, mikilvægi opinbers stuðni...

21 – Svæðisskipulag Austurlands 24.11.2021

Föstudaginn 19. nóvember fór fram haustþing Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Á því voru mættir til leiks hópur kjörinna fulltrúa hjá sveitarfélögunum á Austurlandi og á þinginu bar hæst umræða um svonefnt svæðisskipulag á Austurlandi sem unnið hefur verið að síðustu misseri. Í þættinum ræðir Stefán Bogi Sveinsson, formaður svæðisskipulagsnefndar Austurbrúar, um tilgang vinnunnar og markmið......

20 – Matarmót II 05.10.2021

Föstudaginn 1. október var haldið Matarmót matarauðs Austurlands í Valaskjálf, Egilsstöðum. Þar var var margt um manninn og greinilegt að gróskan í matvælageiranum á Austurlandi er mikil þessa stundina. Í þættinum heyrum við viðtöl við austfirska frumkvöðla í matargerð, veitingamenn og aðra góða gesti sem mættu á Matarmótið. Umsjón og spyrill: Jón Knútur Ásmundsson.

19 – Nordic food in tourism 22.09.2021

Þann 30. september heldur Nordic food in tourism lokaráðstefnu sína í Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum og kynnir afrakstur þriggja ára vinnu við að kortleggja stöðu norrænnar matargerðar og framtíðar í sjálfbærri matarferðaþjónustu. Ráðstefnan er hluti af dagskrá matarhátíðarinnar Okkur að góðu sem fer fram á Austurlandi dagana 30. september til 2. október. Viðmælandi í þættinum... Read more »

18 – Matarmót I 06.09.2021

Matargerð er á miklu flugi á Austurlandi og í landshlutanum er að finna fjölbreytt úrval veitingastaða og framleiðenda sem vinna með staðbundin hráefni. Af þessari ástæðu er blásið til Matarmóts Matarauðs Austurlands sem haldið verður þann 1. október í Valaskjálf, Egilsstöðum. Matarmótið er hluti af glæsilegri dagskrá dagana 30. september til 2. október sem gerir... Read more »

17 – Hacking Austurland 31.08.2021

Í þessum þættu er fjallað um lausnamótið Hacking Austurland sem fer fram dagana 30. september til 2. október 2021 í Neskaupstað. Gestir þáttarins eru Arnfríður Eide Hafþórsdóttir hjá Austurbrú og Svava Björk Ólafsdóttir hjá Hacking Hekla. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.

16 – Our future – AUSTURLAND 10.12.2020

Daniel Byström at Design Nation, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir at Iceland Tourism Cluster Initiative and María Hjálmarsdóttir at Austurbrú discuss OUR FUTURE, a digital open talk that will be held 14. December at 1 PM – 2:30 PM. A fresh and open-minded conversation for uncertain times! This episode is hosted by Jón Knútur Ásmundsson.

15 – Fögur framtíð í Fljótsdal 06.11.2020

Austubrú hefur umsjón með verkefninu Fögur framtíð í Fljótsdal. Markmið þess er efling byggðar í Fljótsdal. Rætt er við Ásdísi Helgu Bjarnadóttur sem stýrir verkefninu. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.

14 – Íslenskunám fyrir útlendinga 05.11.2020

Austurbrú hefur um árabil sinnt kennslu fyrir útlendinga í landshlutanum og hafa fleiri hundruð manns farið í gegnum tungumálanám hjá okkur. Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir og Berglind Einarsdóttir hjá Austurbrú sögðu frá verkefninu. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.

13 – BRAS – menningarhátíð barna og ungmenna 25.09.2020

Í september og október stendur yfir á Austurlandi BRAS – menningarhátíð barna og ungmenna. Hátíðin hefur fest sig í sessi en þetta er í þriðja sinn sem hún er haldin. Yfirskriftin að þessu sinni er:  „Réttur til áhrifa“ og byggir hún á 12. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttinn til að láta skoðanir sínar í... Read more »

12 – Uppbyggingarsjóður Austurlands 16.09.2020

Nýverið auglýsti Uppbyggingarsjóður Austurlands eftir umsóknum en Austurbrú hefur umsjón með sjóðnum. Í þættinum er rætt við Signýju Ormarsdóttur, yfirverkefnastjóra hjá Austurbrú, um þýðingu sjóðsins fyrir austfirskt samfélag og þá er rætt við Tinnu Halldórsdóttur, verkefnastjóra Uppbyggingarsjóðsins, um umsóknarferlið og helstu einkenni góðrar umsóknar. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.

11 – Loftbrú 11.09.2020

Loftbrú var hleypt af stokkunum í vikunni. Það þýðir að rúmlega 60 þúsund landsmenn sem búa fjarri höfuðborginni geta nú fengið innanlandsflug til Reykjavíkur niðurgreitt af ríkinu um 40 prósent. Austurbrú átti talsverða aðkomu að verkefninu og í þessum þætti segir Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar, frá aðdraganda þess og þeim væntingum sem hún hefur... Read more »

10 – SparAustur 02.09.2020

Austurbrú keypti nýverið appið SparAustur og réð Auðun Braga Kjartansson, frumkvöðul og höfund þess, til starfa. Appið veitir notendum vildarkjör hjá veitingastöðum, verslunum og þjónustuaðilum á Austurlandi. Í þessum tíunda hlaðvarpsþætti Austurland hlaðvarp ræða Jónína Brynjólfsdóttir, Kristjana Louise Friðbjarnardóttir og Jón Knútur Ásmundsson við Auðun um tilgang og markmið SparAusturs og hvað...

09 – Er Austurland fjölmenningarsamfélag? II 24.06.2020

Þriðjudaginn 23. júní 2020 stóð Austurbrú fyrir málþingi í Egilsbúð, Neskaupstað, um málefni fólks af erlendum uppruna. Í þessum þætti koma fram:Wala Abu Libdeh, íbúi af erlendum uppruna (00:24); Zane Brikovska, ráðgjafi hjá Alþjóðastofu Akureyrarbæjar (10:18); Davíð Þór Jónsson, prestur við Laugarneskirkju (29:50). Seinni þáttur af tveimur.    

08 – Er Austurland fjölmenningarsamfélag? I 24.06.2020

Þriðjudaginn 23.6.20 stóð Austurbrú fyrir málþingi í Neskaupstað um málefni fólks af erlendum uppruna. Í þessum þætti koma fram: Jóna Á. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar (0:00:25); Tinna Halldórsdóttir, félagsfræðingur hjá Austurbrú (0:06:40); Linda D. Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Fjölmenningarsetri (00:26:10); Gosia Libera, íbúi af erlendum uppruna (00:40:30); Markus Meckl, prófess...

07 – Heimamenn heimsækja Austurland 09.06.2020

Hjá Austurbrú hafa nokkrir starfsmenn það hlutverk að kynna Austurland fyrir ferðamönnum. Í kjölfar heimsfaraldurs er ljóst að íslenskir ferðamenn verða áberandi í sumar og það kallar á annars konar markaðssetningu. Í þessum þætti segja þau Jónína Brynjólfsdóttir, Páll Guðmundur Ásgeirsson og María Hjálmarsdóttir frá því hvernig Austurland er kynnt landsmönnum og ekki síst fyrir... Read more &#187...

06 – Fjölmenning I 08.06.2020

Í þessum þætti er talað við Markus Meckl, prófessor við Háskólann á Akureyri. Hann hefur stundað rannsóknir á stöðu innflytjenda á landsbyggðinni og verður einn fyrirlesara á málþingi um stöðu fólks af erlendum uppruna á Austurlandi sem Austurbrú mun standa fyrir þann 23. júní næstkomandi í Egilsbúð í Neskaupstað. Samtalið fer fram á ensku. Umsjón:... Read more »

05 – Líf og heilsa 27.05.2020

Í þessum þætti er fjallað um Evrópuverkefnið og námskeiðið Líf og heilsa. Hrönn Grímsdóttir og Jón Knútur Ásmundsson hjá Austurbrú ræða við Bylgju Borgþórsdóttur hjá sveitarfélaginu Fljótsdalshéraði og Ragnhildi Tryggvadóttur frá Neskaupstað. Þátturinn var tekinn upp 27. maí 2020.

04 – Menning og Covid 13.05.2020

Í þessum þætti er fjallað um áhrif kórónaheimsfaraldurs á menningarstarf á Austurlandi. Starfsmenn Austurbrúar, þau Signý Ormarsdóttir og Jón Knútur Ásmundsson, ræða við Ragnheiði Ásvaldsdóttur hjá Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs og Unu Sigurðardóttur hjá Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði. Þátturinn var tekinn upp 13. maí 2020.

03 – Vorverkin 05.05.2020

Í þessum þætti verður fjallað um vorverkin því nú er lag að breyta og bæta! Þau María Hjálmarsdóttir, Páll Guðmundur Ásgeirsson og Jón Knútur Ásmundsson, starfsmenn Austurbrúar, ræða áfangastaðaáætlun, göngustígagerð, úrbótagöngur og ýmislegt fleira. Sævar Guðjónsson, ferðaþjónustubóndi á Eskifirði, er sérstakur gestur.

02 – Brothættar byggðir 24.04.2020

Borgarfjörður eystri er eitt þeirra byggðalaga sem tekur þátt í verkefninu Brothættar byggðir. Austurbrú hefur umsjón með því á Austurlandi og verkefnastjóri þess er Alda Marín Kristinsdóttir. Starfsmenn Austurbrúar, þau Kristjana Louise Friðbjarnardóttir, Jónína Brynjólfsdóttir og Jón Knútur Ásmundsson, ræddu við Öldu um framgang verkefnisins.

01 – Austurbrú á tímum Covid 03.04.2020

Starfsmenn Austurbrúar, þau Jóna Árný Þórðardóttir, María Hjálmarsdóttir og Jón Knútur Ásmundsson fjalla m.a. um áhrif kórónaveirufaraldursins á starfsemi Austurbrúar síðustu vikurnar. Díana Mjöll Sveinsdóttir hjá Tanna Travel er sérstakur gestur.

00 – Kynning 02.04.2020

Starfsmenn Austurbrúar, þau Esther Ösp, María, Kristjana og Jón Knútur segja frá Austurlandi hlaðvarpi, markmiðum þess og tilgangi.

Listen to the Austurland podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.