RÚV Hlaðvörp
Af stað
Þættir þar sem sagt er frá ýmsum stöðum um allt land. Stöðum sem eiga sér sérstakt pláss í hjörtum viðmælenda. Þetta er önnur þáttaröðin af þessum persónulegu ferðaþáttum. Fyrstu þáttaröðina má finna í Spilara Rúv og má nálgast í heild sinni með því að smella hér. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Laugafell 23.06.2026 14:58
Einar Hjartarson segir frá Laugafelli upp af Eyjafjarðardölum, en Einar er formaður skálanefndar í Laugafelli. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Vatnsendahverfið 23.06.2026 15:05
Lilja Sigurðardóttir rithöfundur segir frá Vatnsendahverfinu í Kópavogi, en Lilja er búsett í Kópavogi auk þess sem hún er bæjarlistamaður Kópavogs 2023. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Stokkseyri 23.06.2026 14:57
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir segir frá Stokkseyri og Stokkseyrarfjöru, þar sem hún dvaldist mikið sem barn. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hornvík 23.06.2026 15:38
Páll Ásgeir Ásgeirsson segir frá Hornvík á Hornströndum, en hann hefur skrifað ítarlega ferðabók um Hornstrandir ásamt konu sinni Rósu Sigrúnu Jónsdóttur. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Svínanes 08.08.2025 15:06
Sigurlaugur Ingólfsson, sagn- og fornleifafræðingur, segir frá jörðinni Svínanesi á sunnanverðum Vestfjörðum. Jörðin er komin í eyði en þar bjuggu forfeður hans áður, kynslóð fram af kynslóð. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Möðrudalur á Fjöllum 07.08.2025 15:19
Urður Snædal, þýðandi og prófarkarlesari, segir frá minningum sínum úr Möðrudal á Fjöllum. Þar dvaldist hún ótalmörg sumur frá því hún var barn og foreldrar hennar ráku vegasjoppuna Fjallakaffi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Spákonufell 06.08.2025 15:35
Magnús B. Jónsson, fyrrverandi sveitarstjóri á Skagaströnd, segir frá Spákonufelli sem er einn af hans eftirlætisstöðum og hefur mikið gildi fyrir alla Skagstrendinga. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Laugavegur í Reykjavík 05.08.2025 15:46
Kristinn Schram, dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands, segir frá Laugaveginum í Reykjavík og hvernig sú gata hefur verið miðpunkturinn í lífi hans og fjölskyldunnar í gegnum áratugina. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Húsin á Djúpavogi 04.08.2025 15:17
Þorbjörg Sandholt skólastjóri á Djúpavogi, Obba eins og hún er alltaf kölluð, hugleiðir um sinn eftirlætisstað og spyr sig hvað gerir staði að uppáhaldi. Hún segir sérstaklega frá garðinum við hús ömmu sinnar í Grænuhlíð. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Bæjarskersfjara 01.08.2025 15:18
Bylgja Baldursdóttir, skólastjóri í Sandgerðisskóla, segir frá tengslum sínum við Bæjarskersfjöruna í heimabæ sínum Sandgerði. Þar hefur hún átt margar góðar stundir og iðkar þar sjósund af kappi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Ólafsdalur í Gilsfirði 31.07.2025 15:12
Steinþór Logi Arnarsson, sauðfjárbóndi á Stórholti í Dölum og formaður Samtaka ungra bænda, segir frá Ólafsdal í Gilsfirði. Staðurinn á sér merka landbúnaðarsögu auk þess að vera sumarbeitarland fjárins á Stórholti. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Víkur 30.07.2025 15:26
Áskell Heiðar Ásgeirsson, lektor við ferðamáladeild Háskólans á Hólum, segir frá stað í grennd við heimaslóðir hans á Borgarfirði eystri, sem heimafólk kallar Víkur en er einnig þekktur sem Víknaslóðir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Herjólfsdalur 29.07.2025 14:42
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum segir frá Herjólfsdal. Þaðan á hún margar góðar minningar úr bernsku og ekki síst frá Þjóðhátíð. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Svínavatn 28.07.2025 15:24
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, kynjafræðingur og sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks, segir frá Svínavatni í Austur-Húnavatnssýslu sem er í grennd við bæinn þar sem hún ólst upp. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Birkitréð í garðinum heima 25.07.2025 13:58
Örn Eldjárn tónlistarmaður rifjar upp minningar sínar tengdar gömlu birkitré sem stendur í garðinum á æskuheimili hans að Tjörn í Svarfaðardal. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Strandir 24.07.2025 15:24
Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, segir frá tengingum sínum við Strandir og hvernig þær hafa fengið hana til að hægja á sér og horfa inn á við. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Kollumúli í Lónsöræfum 23.07.2025 14:07
Gunnlaugur Róbertsson, verkfræðingur sem býr á Höfn í Hornafirði, segir frá gönguleiðinni inn að Kollumúla í Lónsöræfum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hólar í Hjaltadal 22.07.2025 15:19
Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, dregur upp mynd af Hólum í Hjaltadal. Staðurinn hefur haft mikil áhrif á líf hennar alveg frá því að hún var að alast upp í Skagafirði. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Langisandur 21.07.2025 14:44
Andrea Þórunn Björnsdóttir, amma Andrea eins og hún er oftast kölluð, hefur búið á Akranesi frá því hún var 23 ára. Hún segir frá Langasandi þar sem hún fer reglulega í heilsubótargöngu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Kirkjuhvammur 18.07.2025 15:19
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri í Húnaþingi vestra, segir frá Kirkjuhvammi ofan við Hvammstanga. Staðurinn er mikilvægur í hugum íbúa og þaðan á Unnur margar minningar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Einkunnir 17.07.2025 15:10
Gísli Einarsson fjölmiðlamaður lýsir fólkvanginum í Einkunnum, sem er uppáhaldsstaður hjá honum og fjölskyldunni, skammt fyrir ofan Borgarnes. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Drekagil 16.07.2025 15:50
Rakel Hinriksdóttir, fjölmiðla- og listakona og formaður Sunn: samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi, segir frá upplifun sinni af hálendinu þegar hún var skálavörður í Drekagili, austan Dyngjufjalla. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Heimsendi í Skaftá 15.07.2025 14:43
Katrín Gunnarsdóttir, forstöðumaður Kirkjubæjarstofu, segir frá gönguleiðinni niður að Heimsendaskerjum í Skaftá. Þangað fer hún til að sækja sér orku og hreinsa hugann. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Selskógur 14.07.2025 15:14
Þorgeir Arason, sóknarprestur í Egilsstaðaprestakalli, segir frá Selskógi sem er útivistarparadís í grennd við Egilsstaði. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Húsin við Hagatorg 11.07.2025 15:23
Bogi Ágústsson, fjölmiðlamaður, segir frá byggingum og húsum við Hagatorg í Vesturbænum í Reykjavík. Torgið myndar umgjörð um marga þá staði sem skiptu hann miklu máli í uppvextinum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.