433.is

433.is

Sports IS ↓ 260 episodes

Hlaðvarpsveita 433.is

Author

433.is

Category

Sports

Podcast website

www.433.is

Latest episode

Jul 3, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Íþróttavikan: Áramótaþáttur með Kristjáni Óla 26.12.2025

Helgi Fannar og Kristján Óli gera upp íþróttaárið 2025.

Íþróttavikan: Sævar Þór ræðir sports business og Hörður Snævar gerir upp vikuna 19.12.2025

Þáttur dagsins er að mestu helgaður viðskiptahlið íþróttanna og til að ræða þau mál mætir Sævar Þór Sveinsson, sem heldur úti síðunni Utanvallar.is. Í lok þáttar er Hörður Snævar Jónsson þá á línunni og fer hann yfir helstu fréttir úr vikunni sem er að líð.

Íþróttavikan: Stefán Pálsson fer um víðan völl 12.12.2025

Stefán Pálsson, sagnfræðingur og knattspyrnuáhugamaður með meiru, er gestur Helga Fannars í Íþróttavikunni þennan föstudaginn. Mohamed Salah, fjaðrafok í kringum Hlíðarenda og hrun Luton á skömmum tíma. Þetta og fleira í þættinum.

Íþróttavikan: Steve Dagskrá gerir upp vikuna og Maggi Már fer yfir sviðið 05.12.2025

Það er þétt dagskrá í Íþróttavikunni þennan föstudaginn. Í fyrri hluta þáttar fær Helgi þá Andra Geir Gunnarsson og Vilhjálm Frey Hallsson, þáttastjórnendur hins geysivinsæla hlaðvarps Steve Dagskrá, í heimsókn. Þeir ræða helstu fréttir úr vikunni, leikina í enska boltanum og fleira til. Síðasta hálftímann eða svo er Magnús Már Einarsson, þjálfari karlaliðs Aftureldingar, í setti. Hann fer yfir tí...

Íþróttavikan: Halldór Árnason 28.11.2025

Halldór Árnason er gestur Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni þennan föstudaginn. Halldór ræðir tíma sinn hjá Breiðabliki og endanlokin þar, en fer einnig yfir helstu leiki og fréttir í vikunni. Hörður Snævar Jónsson er þá á línunni í lok þáttar. Hann var staddur á Old Trafford í upphafi vikunnar þegar Manchester United sýndi sína verstu frammistöðu í langan tíma.

Íþróttavikan: Landsleikirnir gerðir upp með Kjartani Henry og horft til Englands fyrir þétta helgi 21.11.2025

Gestur Helga Fannars Sigurðssonar í þættinum er Kjartan Henry Finnbogason. Karlalandsliðið, Heimir Hallgrímsson, enski boltinn og fleira er á dagskrá.

Íþróttavikan: Keli og Viktor Unnar gera upp landsleikinn - Fínasta frammistaða en á sunnudaginn er allt undir 13.11.2025

Hrafnkell Freyr Ágústsson og Viktor Unnar Illugason eru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni í þetta skiptið. Landsleikurinn gegn Aserbaísjan er ítarlega gerður upp og horft er í komandi leik gegn Úkraínu. Þá er farið í helstu fréttir liðinnar viku.

Íþróttavikan: Bjarni Helga og Elvar Geir - Landsliðsval og dramatík á bak við tjöldin í íslenska boltanum 07.11.2025

Bjarni Helgason, íþróttablaðamaður á Morgunblaðinu, og Elvar Geir Magnússon, ritstjóri Fótbolta.net, fóru yfir viðburðaríka fréttaviku.

Íþróttavikan: Rúnar Kristins gerir upp tímabilið og skorar á KSÍ 31.10.2025

Rúnar Kristinsson, þjálfari karlaliðs Fram, er gestur Helga Fannars þessa vikuna. Gerir hann upp tímabilið og horfir fram veginn. Hörður Snævar Jónsson fer þá yfir helstu fréttir vikunnar í síðari hluta þáttarins.

Íþróttvikan: Edda Sif og Gunni Birgis gera upp þétta fréttaviku - Matti Villa fer yfir ákvörðun sína 24.10.2025

Edda Sif Pálsdóttir og Gunnar Birgisson, íþróttafréttamenn á RÚV, eru gestir Helga Fannars þessa vikuna, sem var ansi þétt er íþróttafréttir varðar. Þá er Matthías Vilhjálmsson í viðtali í síðasta hluta þáttarins, en hann er að leggja skóna á hilluna eftir leik Víkings við Val á morgun.

Íþróttavikan: Adda Baldurs í heimsókn og Freysi á línunni frá Bergen 17.10.2025

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir er gestur Helga Fannars í fyrri hluta þáttarins. Þar er farið yfir íslensku landsliðin, Bestu deildirnar og fleira til. Í seinni hlutanum er Freyr Alexandersson, þjálfari SK Brann, í ítarlegu viðtali frá Noregi.

Íþróttavikan: Gylfi Þór ræðir um landsliðið og Íslandsmeistara Víkings 13.10.2025

Gylfi Þór Sigurðsson, besti landsliðsmaður í sögu Íslands, varð Íslandsmeistari með Víking fyrir rúmri viku síðan. Hann segir pressuna sem hann setti á sjálfan sig hafa verið þess virði og að síðustu dagar hafi verið ótrúlega skemmtilegir. Gylfi yfirgaf Val í febrúar með nokkrum látum, hann vildi burt og Víkingar voru reiðubúnir að borga metfé fyrir Gylfa. Hann stendur nú uppi sem Íslandsmeistari...

Íþróttavikan: Chess After Dark 10.10.2025

Gestir Helga Fannars þessa vikuna eru Birkir Karl Sigurðsson og Leifur Þorsteinsson, stjórnendur hins geysivinsæla hlaðvarps Chess After Dark. Það er hitað upp fyrir mikilvæga leiki íslenska karlalandsliðsins, íslenska boltann, helstu fréttir og margt fleira.

Íþróttavikan: Tommi Steindórs gerir upp viðburðaríka viku og Arnar Gunnlaugs ræðir val sitt 02.10.2025

Útvarpsmaðurinn Tómas Steindórsson er gestur Helga Fannars. Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson er á línunni í lok þáttar.

Íþróttavikan: Þjálfarastöður losna hér og þar - Víkingur getur klárað titilinn í kvöld 29.09.2025

Mánudagsútgáfa af Íþróttavikunni þar sem farið er yfir helgina og horft í vikuna sem framundan er. 

Íþróttavikan: Spenna á toppi og botni þeirrar Bestu - Sævar Atli á línunni frá Frakklandi 26.09.2025

Helgi Fannar Sigurðsson og Hörður Snævar Jónsson gera upp vikuna og horfa í framhaldið í boltanum. Sævar Atli Magnússon, landsliðsmaður og leikmaður Brann, er þá á línunni og ræðir fyrstu mánuðina í Noregi, Evrópuævintýri og fleira til.

Íþróttavikan: Jói Skúli 19.09.2025

Jói Skúli gerði upp vikuna og Biggi ÍTF ræddi gul spjöld og leikbönn.

Íþróttavikan: Guðjón Pétur Lýðsson 12.09.2025

Gestur Helga í þættinum er Guðjón Pétur Lýðsson.

Íþróttavikan: Kári Árna og Jóhann Páll - landsleikir og fréttir vikunnar 04.09.2025

Gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni eru þeir Kári Árnason og Jóhann Páll Ástvaldsson íþróttafréttamaður á RÚV.

EM kvenna: Bjarni Helga 08.07.2025

Helgi Fannar og Bjarni Helgason á Morgunblaðinu ræða vonbrigði Íslands á EM, framhaldið og framtíð Þorsteins Halldórssonar í þjálfarastólnum

EM kvenna: Jörundur Áki 04.07.2025

Jörundur Áki, yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ, í spjalli hjá Helga Fannari á hóteli landsliðsins. EM umfjöllun 433.is er í boði Jóa útherja, Lengjunnar og Símans.

EM kvenna: Aron Guðmundsson fer yfir sviðið í Thun 01.07.2025

433.is er á EM í Sviss, þar sem íslenska kvennalandsliðið hefur leik á morgun gegn Finnlandi. Nú er kominn út hlaðvarpsþáttur þar sem farið er yfir fyrstu dagana hér í Sviss, stemninguna í íslenska liðinu, leikina framundan og margt fleira. Gestur þáttarins er Aron Guðmundsson, fréttamaður Sýnar og Vísis.

EM kvenna: Ásgerður Stefanía Baldursdóttir 26.06.2025

Upphitun fyrir EM kvenna í Sviss þar sem Helgi Fannar fær fótboltasérfræðinginn Ásgerði Stefaníu eða Öddu í hlaðvarpssettið.

Íþróttavikan: Rúnar Kárason 30.05.2025

Handboltamaðurinn Rúnar Kárason er gestur Helga og Kela í þættinum.

Íþróttavikan: Rúnar Ingi - Karfan, Besta og enski 23.05.2025

Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari körfuboltaliðs Njarðvíkur er gestur þáttarins.

Listen to the 433.is podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.