433.is
433.is
Hlaðvarpsveita 433.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Sóknin - Krísa á Hlíðarenda, Garðabæ og Eyjum 27.05.2019 30:15
6. umferð Pepsi Max-deildar karla lauk í gær en þar vann Breiðablik 0-1 sigur á Val. Skagamenn eru áfram á toppnum eftir sigur á Stjörnunni en FH og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli. Á laugardag vann KA góðan 2-0 sigur á slöku liði ÍBV en Grindavík sótti stig í Kórinn, gegn HK. Þá vann KR sigur á ungu liði Víkings.
90 mínútur með Ögmundi Kristinssyni 24.05.2019 46:34
Ögmundur Kristinsson hefur verið einn besti markvörður Íslands síðustu ár, hann hefur á fimm ára atvinnumannaferli leikið í Danmörku, Svíþjóð, Hollandi og nú Grikklandi. Ögmundur átti frábæra tíma í Grikklandi í vetur og er eftirsóttur biti. Hann hefur upplifað erfiða tíma á ferlinum líkt og flestir sem fara í atvinnumennsku, hann ræðir um allt sem hefur gengið á.
Sóknin: Leysir Ólafur Karl krísu Vals? - Stemmningsleysi í Garðabæ 21.05.2019 30:52
5 umferð Pepsi Max-deildar karla lauk í gær. Krísa Vals heldur áfram en liðið tapaði gegn frábæru FH liði. Grindavík vann öflugan sigur á Fylki og KR vann nauman sigur á HK. Á sunnudag vann ÍA toppslaginn gegn Breiðabliki, á sama tíma tapaði Stjarnan gegn KA á heimavelli. ÍBV og Víkingur gerðu svo 1-1 jafntefli í Eyjum.
Sóknin - Gary Martin, barnalegir FH-ingar og vesen í Eyjum 17.05.2019 34:40
4. umferð Pepsi Max-deildarinnar lauk í gær, Valur vann góðan sigur á Fylki og Grindavík hafði betur gegn KR. HK lagði ÍBV og Stjarnan vann góðan sigur á Víkingi. Blikar gerðu góða ferð á Akureyri og vann KA, þá tapaði FH á barnalegan hátt gegn ÍA. Bjarni Helgason, blaðamaður Morgunblaðsins gerir upp umferðina með okkur.
Sóknin - Gucci trefill og krísa Vals 13.05.2019 31:47
3. umferð Pepsi Max-deildar karla kláraðist í gær, uppgjör á henni og öllu því sem skiptir máli. Hrafn Norðdahl kíkti á okkur og fór yfir sviðið.
90 mínútur með Pálma Rafni 10.05.2019 57:14
Pálmi Rafn Pálmason hefur átt áhugaverðan feril, strákurinn frá Húsavík upplifði draumalífið í sjö ár. Hann hefur spilað fyrir KA, Val og KR. Hann hefur tvisvar upplifað það að félag hans í atvinnumennsku var á barmi gjaldþrots, hann er einn besti leikmaður í efstu deild á Íslandi frá aldamótum.
Sóknin - Uppgjör á 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar 07.05.2019 38:36
2. umferð Pepsi Max-deildar karla lauk í gær þegar tíu FH-ingar náðu í stig gegn Víkingi á útivelli. Valur tapaði á útivelli gegn KA en á sama tíma vann KR fínan sigur á ÍBV á heimavelli. Breiðablik og HK gerðu 2-2 jafntefli í Kórnum og Stjarnan náði aðeins í stig gegn Grindavík. Fylkir og ÍA gerðu 2-2 jafntefli í leik sínum í Lautinni. Lið umferðarinnar er hér að neðan. Gestur þáttarins er Bjarni...
90 mínútur með Arnari Þór Vðarssyni 03.05.2019 1:34:18
Arnar Þór Viðarsson átti magnaðan feril sem atvinnumaður, hann var elskaður og dáður hjá þeim félögum sem hann lék fyrir. Arnar hefur búið erlendis í 22 ár en er mættur aftur heim. Hann er nú þjálfari U21 árs landsliðsins og var í vikunni ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ.
90 mínútur með Ólafi Kristjánssyni 18.04.2019 26:02
Ólafur Kristjánsson er að hefja sitt annað tímabil með FH, þetta viðtal verður aðeins frábrugðið öðrum viðtölum í 90 mínútum. Við ræðum bara um FH og það sem Ólafur hefur verið að gera með liðið síðustu mánuði.
90 mínútur með Margréti Láru 11.04.2019 1:26:35
Margrét Lára Viðarsdóttir hefur átt magnaðan feril, hún er ein allra besta, ef ekki besta knattspyrnukona sem Ísland hefur átt. Margrét var barnastjarna, sem ólst upp í Vestmannaeyjum. Hún var einn besti leikmaður í heimi en meiðsli gerðu henni erfitt fyrir. Tölfræði hennar með kvennalandsliðinu er svo ótrúleg.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.