Hljóðkirkjan

Svörtu tungurnar

Spilahópurinn Svörtu tungurnar talar um spunaspil. Þátturinn er tekinn upp í hvert skipti áður en við setjumst við spil í Svörtuloftum.

Bezoek zeker de website van de podcast en steun de maker: svortutungurnar.podbean.com

Auteur

Hljóðkirkjan

Categorie

Leisure

Website van de podcast

svortutungurnar.podbean.com

Nieuwste aflevering

3 okt. 2026

Waar luisteren?

Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaar

Podcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts

Download het op Google Play Gratis installeren Android bijna 10 mln downloads · beoordeling 4,8 iOS binnenkort

Afleveringen

#0075 Siðareglur spunaspila 08.02.2025

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg   Hvernig á að haga sér við spilaborðið? Hver eru mörkin milli frjáls spuna og siðahafta? Er allt í boði? Eða eru einhverjar óskrifaðar reglur sem verður að fylgja svo spilakvöldið leysist ekki upp í grát og gnístan tanna? Í þessu innslagi ræða Svörtu Tungurnar um hvaða lögmál eru í gildi þegar spila skal spunaspil, utan regluverks spilsins sjálfs. Hvað...

#0074 Tækniklikk eða ekki 02.02.2025

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg   Í þættinum í dag er rætt um ævintýri sem hafa af einhverjum ástæðum horfið út í kosmósið. Eru langhleypur sem við höfum spilað sem við hættum að spila af einhverri ástæðu og við söknum, spiluðum við einhleypur sem hefðu átt skilið að verða að langhleypu. Við ræðum þetta allt og fleirra. ps. eins og titilinn gefur til kynna þá voru smá tæknileg vandamál...

#0073 Tónlist eða ekki tónlist 19.01.2025

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg   Hversu mikilvægt er að hafa tónlist á spilakvöldum, getur tónlist vera truflandi eða er hún nauðsynlegur hluti af því að skapa stemmningu.  Hvaða tónlist á maður að hafa og í hvaða formi, erum við að tala um vínilplötu, playlista sem einhver úti heimi bjó til á spotify eða á maður að nýta sér sérstök öpp.   Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar...

#KD13 Spil | Köldudyr – Lifandi upptaka á Malbygg – seinni hluti 11.01.2025

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Hér kemur seinni hluti af lifandi spilinu á Malbygg Taproom, sem tekin var upp fyrir áhorfendur 3. Des síðastliðinn.    Stjórnandi – Björn Friðrik Stormur – Hannes Gísli Berg – Hjörtur Grettir Axelsson – Snæbjörn Rikki Dan – Tryggvi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

#0072 Útsláttarkeppni Klassanna - Úrslit 04.01.2025

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg   Það er komið að úrslitum Klassastríðs, útsláttarkeppni Klassanna í Drekum og Dýflissum! Við berum saman gagnsemi, skemmtilegheit, spuna- og bardagahæfni  sem og kynþokka hvers klassa – en aðeins ein stétt stendur uppi sem sigurvegari. Hver er sterkastur, liprastur og hæfastur þegar allt er lagt undir? Eða skiptir kannski bara máli hvað er mest kúl.   Í...

#KD12 Spil | Köldudyr – Lifandi upptaka á Malbygg – fyrri hluti 28.12.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Hér kemur fyrri hluti af lifandi spilinu á Malbygg Taproom, sem tekin var upp fyrir áhorfendur 3. Des síðastliðinn.    Stjórnandi – Björn Friðrik Stormur – Hannes Gísli Berg – Hjörtur Grettir Axelsson – Snæbjörn Rikki Dan – Tryggvi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

#0071 Útsláttarkeppni Klassanna - Undanúrslit 21.12.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg   Það er komið að undanúrslitum Klassastríðs, útsláttarkeppni Klassanna í Drekum og Dýflissum! Reyndar er um það bil helmingurinn af þættinum blaður um allt og ekkert, en það er bara eins og það er.  Við berum saman gagnsemi, skemmtilegheit, spuna- og bardagahæfni  sem og kynþokka hvers klassa – en aðeins ein stétt stendur uppi sem sigurvegari. Hver er s...

#0070 Útsláttarkeppni Klassanna - fjórðungsúrslit 14.12.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg   Eftir góða pásu frá fyrstu tveimur umferðum þá er loks komið að fjórðungsúrslitum Klassastríðs, útsláttarkeppni Klassanna í Drekum og Dýflissum. Við berum saman gagnsemi, skemmtilegheit, spuna- og bardagahæfni hvers klassa – en aðeins ein stétt stendur uppi sem sigurvegari. Hver er sterkastur, liprastur og hæfastur þegar allt er lagt undir? Eða skiptir...

#0069 Einhleypa 2 – Á vegum úti – Seta 3 07.12.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Leikstjóri – Bibbi Spilarar : Hannes, Hjörtur og Bjössi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

#0068 Einhleypa 2 – Á vegum úti – Seta 2 30.11.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Leikstjóri – Bibbi Spilarar : Hannes, Hjörtur og Bjössi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

#KD11 Spil | Köldudyr – Seta 11: Nema hvað? 23.11.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Stjórnandi – Björn Friðrik Stormur – Hannes Gísli Berg – Hjörtur Grettir Axelsson – Snæbjörn Rikki Dan – Tryggvi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

#0067 Einhleypa 2 – Á vegum úti – Seta 1 16.11.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Leikstjóri – Bibbi Spilarar : Hannes, Hjörtur og Björn Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

#KD10 Spil | Köldudyr – Seta 10: Mótvindur stríðsins 09.11.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Stjórnandi – Björn Friðrik Stormur – Hannes Gísli Berg – Hjörtur Grettir Axelsson – Snæbjörn Rikki Dan – Tryggvi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

#0066 Einfalt eða flókið 02.11.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg   Eiga spil að vera auðskiljanleg og létt svo hægt sé að setjast niður um leið og hefja leika, eða er betra að þau séu margslungið völundarhús af möguleikum þar sem hægt er að sökkva sér í hafdýpi af valkostum? Í þessum þætti ræða Svörtu tungurnar um flækjustig spunaspila. Hversu þykk á reglubókin að vera? Eiga reglur spilsins að rúmast á einni blaðsíðu...

#KD09 Spil | Köldudyr – Seta 9: Finnur og Alexander 26.10.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Stjórnandi – Björn Friðrik Stormur – Hannes Gísli Berg – Hjörtur Grettir Axelsson – Snæbjörn Rikki Dan – Tryggvi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar

#0065 Aukaþáttur! Upprifjun fyrir Köldudyr 23.10.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg   Það styttist í næsta innlegg af spilaþætti okkar "Köldudyr"! Í þessum þætti hinsvegar gera Svörtu Tungurnar (ó)heiðarlega tilraun til að rifja upp atburði sögunnar fram að þessu. Við reynum að krafla okkur fram úr helstu persónum sem fram hafa komið og átta okkur á því hvar við erum staddir og hvert förinni er heitið, svo hlustendur verði ekki algerleg...

#0064 Einn bolti tvær kleinur og einn sprunginn vindill 19.10.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg   Hvaða ævintýri hafið þið spilað? Eru margar ósagðar sögur við þitt spilaborð? Náum við alltaf að klára þau ævintýri sem við leggjum af stað með? Og hvers vegna hljómar íslenskt útvarpsfólk alltaf eins? Í þessum þætti efna Svörtu Tungurnar gefin loforð. Við fjöllum um svaðilfarir okkar í geimævintýrinu "Geimlæknar án landamæra" sem fjallað var einnig um...

#0063 Útsláttarkeppni Klassanna - Önnur umferð 12.10.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg   Eftir æsispennandi fyrstu umferð þá er komið að annari umferð í Klassastríði, útsláttarkeppni Klassanna í Drekum og Dýflissum. Við berum saman gagnsemi, skemmtilegheit, spuna- og bardagahæfni hvers klassa – en aðeins ein stétt stendur uppi sem sigurvegari. Hver er sterkastur, liprastur og hæfastur þegar allt er lagt undir? Eða skiptir kannski bara máli...

#0062 Lífsleikni og spunaspil 05.10.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg   Hvað er málið með Dani? Hvernig virkar spilið Rýtingar í rökkri, eða "Blades in the Dark"? Hverjir eru með ADHD og hverjir ekki? Og er eitthvað vit í því að vera endalaust að spila eitthvað svona spunaspil? Í þessum þætti fara Svörtu Tungurnar yfir víðan völl en tekst þó á endanum að fjalla lauslega um hvað það er sem við mögulega getum lært af því að...

#0061 [lagfærður] Útsláttarkeppni Klassanna - Fyrsta umferð 28.09.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg   Það er komið að því, við hellum okkur í Klassastríð, útsláttarkeppni Klassanna í Drekum og Dýflissum. Við berum saman gagnsemi, skemmtilegheit, spuna- og bardagahæfni hvers klassa – en aðeins ein stétt stendur uppi sem sigurvegari. Hver er sterkastur, liprastur og hæfastur þegar allt er lagt undir? Eða skiptir kannski bara máli hvað er mest kúl.   Í fy...

#0060 Blindsker í helvíti - Spilaskýrsla um Fiasco 21.09.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg   Eins og strengd voru heit um, þá fylgir hér umfjöllun um spilakvöld okkar þar sem tekist var á við spilið "Fiasco", spunaspil án stjórnenda - með íslensku ívafi. Fiasco er spunaspil þar sem hópurinn sameinast um að vefja saman sögu útfrá vissum atriðum, og við tókum okkur til og sköpuðum ískaldan íslenskan veruleika til að smíða okkar ævintýri. Förum v...

#0059 Players Handbook 2024 með Reglubókaklúbbnum 19.09.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg   Það er glæný reglubók á leiðinni. Uppfærð og endurbætt handbók fyrir spilara D&D. Eða er hún kannski ekki svo endurbætt? Er bara gamla góða best, eða var þar eitthvað sem þurfti að laga? Vantar reglur um hvernig maður prjónar peysu? Eða er bara verið að flækja hlutina? Og hversu mikil gæði eru í pappírnum í nýju bókinni?   Við fáum góða gesti úr Re...

#0058 Spila eða ekki spila 07.09.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Hvers vegna spilum við? Ef maður fer djúpt í það hvað þetta hobbý og hvað það er ekki, hvað er það sem dregur okkur að borðinu? Hvers vegna er þetta skemmtilegt og nærandi, er það losun eða veruleikaflótti? Við erum djúpir þessa vikuna og ræðum þessi mál og annað.   Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.faceb...

#0057 Baksögur 31.08.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Fyrsti þátturinn eftir sumarfrí og allir eru mega ferskir og úthvíldir! Í þessum þætti þá ræðum við um baksögu persóna í spunaspilum, á maður að skrifa 10 blaðsíðna baksögu um allt og ekkert eða er betra að spinna hana bara á staðnum. Við ræðum um það og förum yfir hvað er framundan hjá Svörtu tungunum.   Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar sko...

#0056 2014 eða 2024 24.08.2024

Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Í þessum aukaþætti, sem átti að vera síðasti þáttur fyrir sumarfrí en endaði á að vera fyrsti þáttur eftir sumarfrí, þá ræða Hilmir og Lúlli um nýju útfærsluna á D&D. Ath, þátturinn var tekinn upp fyrir útgáfu Players Handbook. Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar  – M...

Luister naar de podcast Svörtu tungurnar in Replaio

Radio en podcasts in één app - gratis en zonder account. Installeer vandaag nog en mis de lancering niet

Download het op Google Play

Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds