Sölvi Tryggvason
Sölvi Áskriftarþættir
Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir
Bezoek zeker de website van de podcast en steun de maker: solviaskrift1210105.libsyn.com
Auteur
Sölvi Tryggvason
Categorie
Website van de podcast
Nieuwste aflevering
27 sep. 2026
Waar luisteren?
Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaarPodcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts
Afleveringen
#37 Jónas Sig með Sölva Tryggva 15.12.2021 2:20:19
Jónas Sigurðsson varð vinsæll sem söngvari í ,,Sólstrandargæjunum", sem slógu í gegn með lagið ,,Rangur Maður" og sló síðan aftur í gegn mörgum árum síðar með lagið ,,Hafið er Svart". Það sem færri vita líklega um Jónas er að hann er afburðamaður í tölvuforritun og vann um árabil fyrir tölvurisann Microsoft. Þar var hann valinn í hóp efnilegasta fólks fyrirtækisins, en áður en það tók á flug var J...
#36 Einar Ágúst með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:43:31
Einar Ágúst Víðisson varð þjóðþekktur sem söngvari hljómsveitarinnar Skítamórals, sem var á sínum tíma vinsælasta band Íslands. Einar var á beinu brautinni sem tónlistarmaður, sjónvarps- og útvarpsmaður þegar það fór að halla verulega undir fæti. Hann missti öll tök á tilverunni, endaði í mjög slæmum félagsskap og fór á kaf í neyslu. Einar hefur gengið í gegnum hluti sem fæstir geta gert sér í hug...
#35 Ásgeir Brynjar Torfason með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:14:06
Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í viðskiptafræði og fulltrúi í fjármálaráði Íslands hefur um árabil stundað rannsóknir á peningamálum og doktorsgráða hans fjallar um alþjóðlega fjármálastarfsemi. Hér ræða Sölvi og Ásgeir um stöðu hagkerfisins á Íslandi og í heiminum öllum, fara yfir það hvað peningar raunverulega eru og það hvort við séum á leiðinni inn í algjörlega nýja tíma þar sem veruleikinn v...
#34 Jóhanna Guðrún með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:01:09
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir hefur verið þjóðþekkt síðan hún var aðeins 11 ára gömul, þegar fyrsta platan hennar kom út. Hún hefur síðan þá átt gífurlega farsælan feril og meðal annars náð besta árangri Íslands í lokakeppni Eurovision. Hér ræða hún og Sölvi um kostina og gallana við að vera barnastjarna, þátttökuna í Allir Geta Dansað, listina við að koma fram og gefa af sér og fjölmargt fleira.
#33 Bubbi Morthens með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:47:06
Bubbi Morthens er einn þekktasti tónlistarmaður Íslandssögunnar og eftir hann liggja nærri 50 hljómplötur. Hér ræða hann og Sölvi um ótrúlegan feril Bubba, nýja lífið í sveitinni, mikilvægi þess að halda sér í líkamlegu og andlegu formi, sögur af djamminu í den og margt margt fleira.
#32 Pálmi Gunnarsson með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:32:15
Pálmi Gunnarsson er einn dáðasti tónlistarmaður Íslandssögunnar. Maðurinn sem söng fyrstu orð Íslands í Eurovision á erlendri grundu þegar Gleðibankinn kom fyrir augu heimsbyggðarinnar. Hann segist sjálfur hafa farið langleiðina með að drepa sig á áfengisdrykkju og er þakklátur fyrir að hafa fengið annað líf. Hér fara Sölvi og Pálmi yfir magnaðan feril Pálma og ótrúlegt lífshlaup, sem hefur oft á...
#31 Steindi Jr. með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:34:55
Steinþór Hróar Steinþórsson, eða Steindi Jr. er orðinn eins konar nýrrar kynslóðar Laddi eða Hemmi Gunn. Hann hefur lengi verið einn af þekktari grínistum Íslands, en á einnig mjög vinsæl lög, leikstjórnarverkefni, handritaskrif og leiklistarframmistöðu á ferilskránni. Steindi hefur allt frá fyrsta degi sýnt mikinn metnað í öllum sínum verkefnum, eins og augljóslega má sjá. Hér ræða Steindi og Söl...
#30 Nadía Sif & Lára Clausen með Sölva Tryggva 15.12.2021 45:59
Lára Clausen og Nadía Sif Líndal eru umtöluðustu manneskjur Íslands, eftir að hafa hitt ensku landsliðsmennina Mason Greenwood og Phil Foden. Málið rataði á forsíður allra helstu fjölmiðla Bretlands á mánudaginn og síðan þá hefur áreitið á þær verið gríðarlegt. Hér mæta þær í sitt fyrsta viðtal á Íslandi eftir atburðina og segja söguna alla.
#29 Svala Björgvins með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:13:58
Svala Björgvinsdóttir var orðin stjórstjarna í poppbransanum á unga aldri. Siðan þá hefur hún tekið alls kyns beygjur á ferlinum, en alltaf haldið í ástríðuna fyrir að búa til tónlist. Hún þekkir ekkert annað en að eiga einn frægasta einstakling Íslands sem pabba og fékk músíkina nánast í vöggugjöf. Hér ræða Svala og Sölvi um magnaðan feril Svölu, ótrúleg augnablik á ferðalaginu og nýja kaflann í...
#28 Kjartan Guðbrandsson með Sölva Tryggva 15.12.2021 2:35:00
Kjartan Guðbrandsson einkaþjálfari er líklega eini Íslendingurinn sem hefur sigrað keppnir í kraftlyftingum, vaxtarækt aflraunum og fitness. Hann byrjaði að æfa með Jóni Páli Sigmarssyni, margföldum sterkasta manni heims, sem unglingur og var með honum á æfingunni þegar Jón Páll lét lífið. Kjartan fékk á því tímabili sinn skammt af dauðanum, þar sem hann missti fleiri nána vini og son sinn á aðein...
#27 Sigursteinn Másson með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:53:35
Sigursteinn Másson varð þjóðþekktur sem ungur fréttamaður á Stöð 2. Þá var hann óviss um kynhneigð sína og gekk í gegnum erfiða tíma tengda því. Síðar seig á ógæfuhliðina þegar Sigursteinn endaði á geðsjúkrahúsi í Danmörku eftir að hafa gengið nærri sér í umfjöllun um Balkanstríðið. Hér ræða Sigursteinn og Sölvi um ferilinn í fjölmiðlum, Sönn íslensk sakamál, Covid, stöðuna í heiminum og margt mar...
#26 María Birta með Sölva Tryggva 15.12.2021 2:16:23
María Birta Bjarnadóttir leikkona hefur gert ótrúlega margt þó að hún sé rétt rúmlega þrítug. 16 ára gömul var hún byrjuð með netverslun og 19 ára velti hún 10 milljónum á mánuði í versluninni Maniu á Laugavegi. Skömmu síðar var hún búin að vinna Edduverðlaunin sem leikkona og þá var ekki aftur snúð og hún flutti til Bandaríkjanna, þar sem hún vinnur nú að fjölmörgum verkefnum. Hér ræða María og S...
#25 Sólveig Eiríksdóttir með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:51:35
Sólveig Eiríksdóttir eða Solla er löngu orðin þjóðargersemi. Ferill þessarrar mögnuðu konu spannar áratugi og ótrúlega fjölbreytt svið. Hér ræða hún og Sölvi um feril Sollu sem bisness-kona, bókaútgáfuna hjá stærstu forlögum heims, ástríðuna fyrir matnum, matreiðsluna fyrir heimsfrægt fólk og dansinn sem hjálpaði henni út úr ,,burnouti".
#24 Ellý Ármanns með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:34:53
Ellý Ármannsdóttir varð þjóðþekkt þegar hún vann um árabil sem þula á Ríkissjónvarpinu. Þar kom strax í ljós að hún sker sig úr sama hvar hún kemur og sumt sem hún gerði sem þula þótti umdeilt. Síðan þá hefur Ellý unnið við ótal hluti, allt frá því að spá fyrir fólki yfir í að vera hóptímakennari í íþróttum. Hér ræða Sölvi og Ellý um tímabilin í fréttunum, spádómana, leiðir til þess að stíga út úr...
#23 Ingó Veðurguð með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:44:13
Ingólfur Þórarinsson kom inn á sjónarsvið íslensku tónlistarsenunnar eftir að hann keppti í Idolinu. En áður en hann keppti þar hafði hann stofnað hljómsveitina Veðurguðirnir og hringt í nánast alla veitingastaði landsbyggðarinnar og beðið um að fá að mæta til að spila með bandinu sínu. Eftir Idolið fór allt af stað og síðan þá er varla nokkur íslenskur tónlistarmaður sem hefur ,,giggað" jafn oft....
#22 Mikael Torfason með Sölva Tryggva 15.12.2021 2:22:55
Mikael Torfason er einn reyndasti fjölmiðlamaður Íslands, sem hefur í gegnum tíðina ritstýrt 3 af stærstu dagblöðum landsins. Hann breytti landslagi rithöfunda sem ungur maður þegar hann skrifaði bókina ,,Falskan Fugl", þar sem fjallað var um hluti sem aldrei höfðu áður birst í bókum á Íslandi. Mikael hefur alla tíð elskað ritmálið og nú býr hann í Vínarborg, þar sem hann vinnur þessa dagana mest...
#21 Óttar Guðmundsson með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:39:42
Óttar Guðmundsson geðlæknir hefur í áraraðir starfað við að aðstoða fólk með geðsjúkdóma, fíknivanda og fleira. Eftir hann liggur fjöldi bóka, allt frá Ævisögu Megasar yfir í ,,Hetjur og Hugarvíl", þar sem Óttar skoðar geðsdjúkdóma og persónuleikaraskanir helstu hetjanna úr Íslendingasögunum. Óttar hefur auk þess verið yfir kynleiðréttingarteymi landsspítalans frá því það var stofnað. Hér ræða han...
#20 Gunni & Halli Nelson með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:26:55
Gunnar Nelson er eini Íslendingurinn sem hefur algjörlega lifað af keppni í bardagaíþróttum um árabil. Hann komst ungur í fremstu röð og fékk samning á UFC, þar sem aðeins allra öflugustu bardagamenn heims keppa. Faðir hans Haraldur Dean Nelson hefur stutt við bakið á vegferð sonarins frá fyrsta degi og er jafnframt umboðsmaður hans. Hér ræða þeir feðgar við Sölva um hæðirnar og lægðirnar í UFC, s...
#19 HæHæ með Sölva Tryggva 15.12.2021 57:22
Vinirnir Helgi Jean Claessen og Hjálmar Örn Jóhannsson hafa í áraraðir verið að gera grínefni saman, en á löngum köflum gekk það brösulega. Hjálmar fór að vinna á leikskóla og Helgi fór í jakkaföt og vildi verða bissnessmaður. En dropinn holar steininn og í dag eru þeir í fullri vinnu við að gera grínefni, bæði í Hlaðvarpinu Hæhæ og Hjálmar fer í gervi Hvítvínskonunnar nær daglega. Hér ræða þeir S...
#18 Björgvin Páll með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:26:43
Björgvin Páll Gústafsson er einn litríkasti íþróttamaður síðari ára á Íslandi. Á stórmótum hefur hann vakið athygli fyrir Víkingalegt útlit og brjálæðislega framgöngu á vellinum. Sölvi skrifaði bók um Björgvin fyrir ári síðan og hér ræða þeir saman um ferilinn, barnæskuna, leiðir Björgvins til bata úr andlegu og líkamlegu hruni og margt margt fleira.
#16 Guðlaugur Victor með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:27:59
Guðlaugur Victor Pálsson fékk samning hjá Liverpool aðeins 17 ára gamall og var einn efnilegasti leikmaður sem sést hafði lengi á Íslandi. En æska hans var erfiðari en hjá flestum. Í dag er hann orðinn fastamaður í landsliðinu og hefur verið fyrirliði síðustu tveggja liða sem hann hefur spilað með. Hér ræða hann og Sölvi um hæðirnar, lægðirnar, rasisma, drauminn um að fara á stórmót með Íslandi og...
#15 Ólafur Stefánsson með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:24:42
Ólafur Stefánsson er löngu orðinn þjóðargersemi. Einn besti handboltamaður allra tíma, sem kom heim með silfurverðlaun frá Olympíuleikunum í Peking. Hèr ræða hann og Sölvi um ad viðhalda barninu í sér, mikilvægi þess að elta draumana og þora að vera ,,skrýtni kallinn".
#14 Kristín Sif með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:39:47
Kristín Sif Björgvinsdóttir útvarpskona er magnaður einstaklingur. Sem ung kona vann hún á Falklandseyjum, þar sem hún ferðaðist med herflugvélum. Eftir að hafa misst manninn sinn á hræðilegan hátt hefur hún komist á verðlaunapall á Norðurlandamóti í boxi og verið valinn iðkandi ársins í Crossfit Reykjavík. Hér fara hún og Sölvi yfir allt þetta og margt margt fleira.
#13 Erpur Eyvindarson með Sölva Tryggva 15.12.2021 2:17:42
Það er óhætt að kalla Erp Eyvindarson guðföður íslensku rappsenunnar. Maðurinn sem hefur alltaf farið eigin leiðir og gert það sem honum sýnist mætir hér í viðtal til Sölva þar sem þeir ræða allt frá anarkisma og ferðalögum, yfir í partý, tónlist og tilgang lífsins.
#12 Rúrik Gíslason með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:34:42
Rúrik Gíslason hefur í gegnum árin verið lykilmaður gullkynslóðarinnar í fótbolta. Á HM 2018 varð hann heimsfrægur á einni nóttu. Hér ræða hann og Sölvi um HM, Instagram ævintýrið, móðurmissi Rúriks, álit annarra og margt fleira.
Vergelijkbare podcasts
Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds