Sölvi Tryggvason
Sölvi Áskriftarþættir
Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir
Bezoek zeker de website van de podcast en steun de maker: solviaskrift1210105.libsyn.com
Auteur
Sölvi Tryggvason
Categorie
Website van de podcast
Nieuwste aflevering
27 sep. 2026
Waar luisteren?
Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaarPodcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts
Afleveringen
#265 Jón Gnarr með Sölva Tryggva 14.04.2024 1:10:38
Jón Gnarr hefur víða komið við og á stórmerkilegt lífshlaup. Utanveltu í skóla og hélt að allar dyr væru lokaðar, en svo fann hann leiklistina og grínið. Eftir fjölmörg farsæl ár skipti hann svo um takt og fór í stjórnmál og varð á endanum borgarstjóri. Nú gefur hann kost á sér á Bessastaði. Í þættinum fara Sölvi og Jón yfir magnaðan feril Jóns, grín, stjórnmál, forsetaembættið og margt fleira.
#264 Gummi Emil snýr aftur 09.04.2024 1:09:05
Guðmundur Emil Jóhannsson er einkaþjálfari og heilsufrömuður sem er ástríðufullur um allt sem snýr að heilsu. Gummi Emil hefur vakið mikla athygli fyrir myndbönd sín á samfélagsmiðlum, þar sem hann fer oft ótroðnar slóðir og leggur línurnar fyrir heilsusamlegan lífsstíl.
#263 Ívar Orri með Sölva Tryggva (Hluti 2) 09.04.2024 1:02:35
Ívar Orri Ómarsson er frumkvöðull og rekstarmaður sem hefur undanfarið vakið mikla athygli fyrir boðskap sinn um heilbrigðan lífsstíl á samfélagsmiðlum. Hann segir sjálfur að þegar hann greindist með sykursýki hafi hann fengið andlega vakningu og gjörbreytt lífi sínu. Í þættinum ræða Sölvi og Ívar um sögu Ívars, heilbrigðan lífsstíl og heilsu, hugrekki, karlmennsku, blekkingar í kerfinu og margt f...
#262 Ívar Orri með Sölva Tryggva (Hluti 1) 07.04.2024 50:29
Ívar Orri Ómarsson er frumkvöðull og rekstarmaður sem hefur undanfarið vakið mikla athygli fyrir boðskap sinn um heilbrigðan lífsstíl á samfélagsmiðlum. Hann segir sjálfur að þegar hann greindist með sykursýki hafi hann fengið andlega vakningu og gjörbreytt lífi sínu. Í þættinum ræða Sölvi og Ívar um sögu Ívars, heilbrigðan lífsstíl og heilsu, hugrekki, karlmennsku, blekkingar í kerfinu og margt f...
#261 Arnar Þór með Sölva Tryggva 01.04.2024 1:01:50
Arnar Þór Jónsson er lögfræðingur sem nýlega bauð sig fram til forseta. Hann hefur á undanförnum árum ekki hikstað við að tala um mál sem flestir þora ekki að snerta á. Í þættinum ræða Arnar og Sölvi um frelsi, forsetaemættið, stöðu ríkisins, mikilvægi hugrekkis og margt fleira.
#260 Árni Pétur með Sölva Tryggva 24.03.2024 1:19:31
Árni Pétur Guðjónsson er leikari og leiðsögumaður sem hefur átt viðburðarríkt lífshlaup. Í þættinum ræða Sölvi og Árni um stórmerkilega sögu Árna, árin í kommúnum, leiklistina, réttrúnað og margt fleira.
#259 Kristján Gilbert með Sölva Tryggva 17.03.2024 1:02:13
Kristján Gilbert er yogakennari, húðflúrari og markþjálfi sem fer sínar eigin leiðir í lífinu. Í þættinum ræða Sölvi og Kristján um Matrixið, faldar leiðir til heilsueflingar, samsæriskenningar, hugvíkkandi efni og margt fleira.
#258 Frosti og Sölvi 13.03.2024 1:43:02
Áður óbirtur þáttur þar sem Sölvi mætir til Frosta og þeir ræða á mannamáli um slaufunarmenningu, bók Sölva, viðtalið við Pútín, samfélagsmál og fleira.
#257 Gunnar Ársæll með Sölva Tryggva 10.03.2024 1:25:06
Gunnar Ársæll Ársælsson er fyrrverandi afreksmaður í sundi og keppandi í vaxtarrækt. Hann lýsir í þættinum mögnuðu lífshlaupi, tímum á ystu nöf notkun efna og svo lygilegu ferli andlegrar vakningar þar sem fólkið í kringum hann var sannfært um að hann væri að missa vitið.
#255 Kristín Sigurðardóttir með Sölva Tryggva 03.03.2024 56:48
Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðlæknir vann í áraraðir við bráðalækningar bæði á Íslandi og erlendis, en rekur nú fyrirtækið ,,Á heildina litið". Í þættinum ræða Sölvi og Kristín um lækningar og heilsu, mikilvægi heildrænna lækninga, lyklana að því að finna gleði og ástríðu og margt fleira.
#254 Ásgeir Kolbeins með Sölva Tryggva 25.02.2024 1:33:32
Ásgeir Kolbeinsson var um árabil einn þekktasti útvarpsmaður Íslands og hélt jafnframt úti einum langlífasta sjónvarpsþætti landsins. Hann sneri sér síðar að viðskiptum og varð eigandi vinsælla veitinga- og skemmtistaða í miðbænum. Í þættinum ræða Ásgeir og Sölvi um feril Ásgeirs, fjölmiðla, viðskipti, stjörnuspeki og margt fleira.
#253 Nicolai Engelbrecht snýr aftur 20.02.2024 1:17:34
Nicolai Engelbrecht var í áraraðir fastur í verstu glæpagengjum Danmerkur, þar sem hann var á tímabili nær dauða en lífi með stórhættulega menn á eftir sér. En eftir að hafa náð botninum fann hann leiðina út. Hann ferðaðist í kjölfarið víðs vegar um heiminn og lærði öndun, bardagalistir, hugleiðslu og margt fleira af fólki í öllum heimsálfum. Í dag kennir hann bæði föngum og öðru fólki allar þær a...
#252 Arnór Sveinsson með Sölva Tryggva 18.02.2024 1:15:51
Arnór Sveinsson er sérfræðingur í öndunar- og kuldaþjálfun sem hefur undanfarin ár eingöngu unnið við að aðstoða fólk við að koma taugakerfinu og líkamanum í betra stand. Arnór skipti algerlega um takt í lífinu eftir að hafa misst frænda sinn og náinn vin í hræðilegu slysi. Hann hafði í áraraðir verið sjómaður og djammaði mikið á milli túra. En eftir slysið leitaði hann á önnur mið og ferðaðist ví...
#250 Davíð Bergmann með Sölva Tryggva 11.02.2024 1:07:31
Davíð Bergmann hefur í áratugi starfað með börnum og unglingum í vanda og brennur fyrir málaflokkinn. Honum var sjálfum hafnað af skólakerfinu og segist sjá sjálfan sig í krökkunum sem hann vinnur með. Í þættinum ræða Sölvi og Davíð um sögu Davíðs, afbrot, undirheima, leiðir til úrbóta og margt fleira.
#249 Guðrún Bergmann með Sölva Tryggva 06.02.2024 1:03:01
Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki, skrifa fjölda bóka og margt fleira. Í þættinum ræða Sölvi og Guðrún um heilsu, samfélagsmál, fjölmiðla, samsæriskenningar og margt fleira.
#248 Gunnlaugur Guðmundsson með Sölva Tryggva 04.02.2024 1:36:47
Gunnlaugur Guðmundsson er reyndasti stjörnuspekingur Íslands og á magnaða sögu. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um stjörnuspeki, hvað er að gerast í heiminum, árin þar sem Gunnlaugur flakkaði um og leitaði að tilgangnum og margt fleira.
#247 Gunnar Wiium - Frelsandi að vera berrassaður 31.01.2024 1:39:51
Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður semi hefur víða komið við. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, neyslu, græðgi, hugvíkkandi efni, naktar gufuferðir og margt margt fleira.
#246 Kristján Gíslason - Ég klökkna enn þegar ég hugsa um þau 28.01.2024 1:29:58
Eftir að hafa selt fyrirtæki sem hann byggði upp ákvað Kristján Gíslason að tími ævintýranna væri runninn upp. Árið 2014 fór hann hringinn í kringum hnöttinn á mótorhjóli einn síns liðs. Síðan þá hefur hann farið einn yfir alla Afríku, farið í syðstu hluta Suður-Ameríku og margt fleira. Í þættinum fer Kristján yfir ótrúlegar sögur af ævintýrum sínum á mótorhjólinu, hvað hann hefur lært af því að s...
#245 Brynjar Níelsson með Sölva Tryggva 23.01.2024 1:15:31
Brynjar Níelsson er lögfræðingur og fyrrverandi þingmaður. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um umsvif ríkisins, stóra bróður, innflytjendamál, réttrúnað og margt margt fleira.
#244 Sveinn Kjartansson með Sölva Tryggva 22.01.2024 1:06:36
Sveinn Kjartansson matreiðslumeistari greindist með HIV veiruna á fyrri hluta níunda áratugarins. Hann lýsir því í þættinum hvernig var að ganga með þessa handsprengju innanklæða á tíma þar sem útskúfunin var algjör. Neyslunni sem kom í kjölfarið og endaði á að fara með hann alla leið á botninn og svo upprisunni og fegurðinni í lífi hans í dag.
#243 Heimir Hannesson með Sölva Tryggva 16.01.2024 1:20:49
Heimir Hannesson er blaðamaður og frumkvöðull sem talar tæpitungulaust. Í þættinum ræða Sölvi og Heimir um fjölmiðla, stjórnmál, stöðuna í samfélaginu, ferðalög og margt fleira.
#242 Haraldur Erlendsson með Sölva Tryggva 15.01.2024 1:24:48
Haraldur Erlendsson er þrautreyndur geðlæknir sem starfaði um árabil í Bretlandi og síðar sem forstjóri Heilsustofnunar í Hveragerði. Í þættinum ræða Sölvi og Haraldur um fjórða valdið, hugvíkkandi efni, lífsstílssjúkdóma, stöðuna í samfélaginu og margt fleira.
#241 Sölvi hjá götustrákum 10.01.2024 1:20:54
Áður óbirtur þáttur þar sem Sölvi mætir í viðtal hjá Götustrákum og fer yfir ferilinn, slaufunina og margt fleira.
Vergelijkbare podcasts
Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds