Podcaststöðin

Mótorvarpið

Bragi Þórðarson fjallar um allt mótorsport á fjórum hjólum og fær til sín góða gesti, bæði fyrrum og núverandi keppendur ásamt öðrum mótorsport-fræðingum.

Bezoek zeker de website van de podcast en steun de maker: podcasters.spotify.com

Auteur

Podcaststöðin

Categorie

Sports

Website van de podcast

podcasters.spotify.com

Nieuwste aflevering

8 jul. 2026

Waar luisteren?

Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaar

Podcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts

Download het op Google Play Gratis installeren Android bijna 10 mln downloads · beoordeling 4,8 iOS binnenkort

Afleveringen

#36 Sögustund - Gunnar Pálmi Pétursson 08.07.2020

Torfærukappinn Gunnar Pálmi hefur alls unnið 4 titla og hafði frá miklu að segja enda spannar torfæruferillinn rúm 20 ár.

#35 Rallý - Daníel Sigurðarson 01.07.2020

Danni hefur verið að keppa í ralli frá árinu 1998 og er einn besti ökumaður landsins. Hann á fjölda titla og gerði meðal annars gott mót í Bretlandi fyrir um 10 árum síðan.

#34 Kvartmíla - Ingólfur Arnarson 24.06.2020

Bragi fékk formann Kvartmíluklúbbsins í spjall, Ingólf Arnarson. Ingó vann einnig fyrstu umferð Íslandsmótsins í Kvartmílu í OF flokki.

#33 Drift - Jón Þór og Úlfar Bjarki 17.06.2020

Bragi talar um Drift við þá Jón Þór Hermannsson og Úlfar Bjarka Stefánsson en Jón vann fyrstu umferð Íslandsmótsins og Úlfar endaði þriðji.

#32 Rallýcross og Rallý - Vikar Karl Sigurjónsson 10.06.2020

Vikar gerði sér lítið fyrir og keppti bæði í ralli og rallýcrossi um sömu helgi. Hann fer yfir litríka mótorsporthelgi með Braga.

#31 Rallý - Gunnar Karl Jóhannesson 03.06.2020

Bragi talar við Gunnar Karl rallökumann og fara þeir fyrir feril hans bæði hér heima og í Bretlandi ásamt því að hita upp fyrir Suðurnesjarallið 2020.

#30 Torfæra - Ási Frændi 29.05.2020

Ásmundur Ingjaldsson hefur keppt í torfæru síðustliðin tvo ár og stefnir á titil í ár. Hann fer yfir ferilinn með Braga ásamt mörgu öðru.

#29 Rallýcross og Torfæra - Palli Rolla 25.05.2020

Páll Skjóldal Jónsson, betur þekktur í mótorsportinu sem Palli Rolla fór yfir ferill sinn í akstursíþróttum með Braga.

#28 Torfæra - Aron Ingi Svansson 17.05.2020

Bragi talar við Aron Inga um komandi tímabil í torfærunni sem og síðustu ár. Aron keppir á Stormi, sem í fyrra var eini bíllinn í keppni sem er ekki með V8 mótor.

#27 Torfæra - Danni Thunder og Mæja 11.05.2020

Torfæruhjónin Daníel Gunnar Ingimundarson og María Antonía Jónasdóttir fara yfir rúmlega 20 ára torfæruferilinn.

#26 Sögustund - Baldur Jónsson 07.05.2020

Þrefaldi Íslandsmeistarinn í ralli, Baldur Jónsson, talar við Braga um litríkan feril sinn og hvernig það sé að vera fæddur inn í ''rallfjölskyldu''.

#25 Sögustund - Pétur Bakari 27.04.2020

Bragi fékk Pétur S. Pétursson, betur þekktan sem Pétur Bakara, í spjall og fóru þeir félagar yfir tæplega 20 ára feril Péturs í torfæru, kvartmílu, rallýcrossi og ralli.

#24 Sögustund - Sigurður Bragi Guðmundsson 22.04.2020

Bragi fær nafna sinn í spjall þar sem þeir fara gaumgæfilega yfir magnaðann 35 ára feril Sigurðs Braga í rallinu.

#23 Rallý - Gummi Hösk og Halldór Vilberg 08.04.2020

Bragi fékk rallkappana Guðmund Höskuldsson og Halldór Vilberg Ómarsson í spjall bæði um rallý og tölvuleikjarallý. Þeir félagar stofnuðu hópinn 'Skítugt Rall' þar sem keppt er í tölvuleiknum Dirt Rally. Við biðjumst velvirðingar á að hljóðgæðin eru ekki alveg uppá sitt besta til að byrja með vegna tæknilegra örðugleika

#22 Torfæra - Jakob Cecil Hafsteinsson 25.03.2020

Bragi og Jakob fara víða við í torfærusögunni. Tala meðal annars um hvaða torfærubílar hafa verið flottastir og ljótastir, hvaða ár var það skemmtilegasta í torfærunni og margt fleira.

#21 Sögustund - Páll Pálsson 18.03.2020

Bragi fékk til sín margfaldan Íslandsmeistara í rallýcrossi og torfæru, Pál Pálsson. Þeir fara yfir feril Páls og skyggnast bakvið tjöldin í hvernig er að keppa í rallýcrossi og torfæru.

#20 Sögustund - Ásgeir og Bragi 07.03.2020

Bragi fær til sýn þreföldu Íslandsmeistarana í ralli þá Ásgeir Sigurðsson og Braga Guðmundsson. Þeir keyptu til landsins Metro 6R4 rallýbíl sem átti eftir að gjörbreyta ralli á Íslandi.

#19 Konur í Mótorsporti 04.03.2020

Bragi fékk til sín þrjár eðal konur sem allar hafa gert það gott í Mótorsporti á einn eða annan hátt. Þær Ásta Sigurðardóttir, Eva Arnet og Hanna Rún Ragnarsdóttir tala um hvernig hægt sé að auka áhuga kvenfólks á akstursíþróttum.

#18 Sögustund - Hjörtur og Ísak 28.02.2020

Rallkapparnir Hjörtur Pálmi Jónsson og Ísak Guðjónsson fara yfir litríkan feril sinn á svokölluðu gullaldartímabili ralls á Íslandi.

#17 Torfæra - Guðbjörn Grímsson 26.02.2020

Bragi fékk til sín í spjall Íslandsmeistarann í torfæru frá árinu 1987, Guðbjörn Grímsson. Bubbi hefur unnið hörðum höndum bakvið tjöldin í torfærunni bæði á Íslandi og erlendis.

#16 Sögustund - Árni Kópsson 20.02.2020

Bragi fékk hinn eina sanna Árna Kópsson torfærukappa í spjall. Árna þarf ekki að kynna fyrir áhugafólki um mótorsport, hann vann þrjá Íslandsmeistaratitla í röð á tímabili sem torfæran var ein vinsælasta íþrótt þjóðarinnar.

#15 Torfæra - Þór Þormar Pálsson 13.02.2020

Bragi fékk ríkjandi Íslandsmeistara í sérútbúna flokknum í torfæru í spjall. Bragi og Þór Þormar fara yfir síðasta tímabil og spá í spilin fyrir sumarip 2020.

#14 Sögustund - Páll Halldór og Jóhannes (JóPal) 09.02.2020

Bragi fær til sín Íslandsmeistarana í ralli frá árinu 1998 í spjall. Í þættinu ræða þeir Páll og Jóhannes um gullaldartímabilið svokallaða í rallinu í kringum aldamótin og margt fleira.

#13 Formúla 1 - Kristján Einar Kristjánsson 31.01.2020

Bragi og Kristján fara yfir 2019 tímabilið í Formúlu 1 og rýna í hvað gæti gerst árið 2020.

#12 WRC hringborðið - Monte Carlo 26.01.2020

Bragi setti saman draumalið WRC áhugamanna á Íslandi. Rallkapparnir Borgar Ólafsson, Magnús Ragnarsson og Hlöðver Baldursson tala um fyrstu umferð heimsmeistarakeppninnar í ralli sem fram fór helgina 23. til 26. Janúar.

Luister naar de podcast Mótorvarpið in Replaio

Radio en podcasts in één app - gratis en zonder account. Installeer vandaag nog en mis de lancering niet

Download het op Google Play

Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds