RÚV

Í ljósi sögunnar

Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.

Auteur

RÚV

Categorie

Society

Website van de podcast

www.ruv.is

Nieuwste aflevering

26 jun. 2026

Waar luisteren?

Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaar

Podcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts

Download het op Google Play Gratis installeren Android bijna 10 mln downloads · beoordeling 4,8 iOS binnenkort

Afleveringen

Shackleton á Endurance 06.12.2024

Fjórði þáttur um breska heimskautakönnuðinn Ernest Shackleton. Í þessum þætti leggur hann af stað í þriðja leiðangur sinn til suðurskautslandsins.

Shackleton næstum á suðurpólnum 29.11.2024

Þriðji þáttur um ævintýri breska heimskautakönnuðarins Ernest Shackletons. Í þessum þætti er fjallað um seinni hluta Nimrod-leiðangursins á suðurpólinn og næstu skref Shackletons á ferlinum.

Shackleton á Nimrod 22.11.2024

Annar þáttur um ævi breska heimskautakönnuðarins Ernest Shackletons. Í þessum þætti er fjallað um fyrsta sjálfstæða leiðangur hans á Suðurskautslandið með skipinu Nimrod 1907-1908.

Shackleton á Discovery 15.11.2024

Í þættinum er fjallað um breska heimskautakönnuðinn Ernest Shackleton og fyrstu ferð hans á suðurskautslandið um borð í rannsóknarskipinu Discovery, 1901-1903.

Japanskir Bandaríkjamenn í síðari heimsstyrjöld 08.11.2024

Eftir árás japanska hersins á bandarísku flotastöðina Pearl Harbor árið 1941 voru nærri 120 þúsund Bandaríkjamenn af japönskum ættum gerðir brottrækir af heimilum sínum á vesturströnd Bandaríkjanna, og sendir í fangabúðir þar sem þeir dvöldu nær öll stríðsárin. Fæstir fanganna höfðu nokkuð til saka unnið annað en að eiga ættir að rekja til óvinaríkisins Japan, og stór hluti þeirra voru bandarískir...

Sally Clark II 01.11.2024

Síðari þáttur um Sally Clark, breska konu var árið 1998 ákærð fyrir að hafa myrt tvo syni sína þegar þeir voru einungis um tveggja og þriggja mánaða gamlir, en hafð var fyrir röngum sökum.

Sally Clark I 25.10.2024

Í þættinum er fjallað um alræmt breskt dómsmál. Sally Clark var árið 1998 ákærð fyrir að hafa myrt tvo syni sína þegar þeir voru einungis um tveggja og þriggja mánaða gamlir.

Frederick Cook og skandallinn á norðurpólnum II 18.10.2024

Annar þáttur um bandaríska landkönnuðinn Frederick Cook, sem 1909 tilkynnti að hann hefði fyrstur manna komist á norðurpólnum. Í þessum þætti er fjallað um efasemdir sem fljótt vöknuðu eftir komu Cooks til Kaupmannahafnar í september 1909 og deilu hans við annan mögulegan norðurpólfara.

Frederick Cook og skandallinn á norðurpólnum 11.10.2024

Í þættinum er fjallað um bandaríska landkönnuðinn Frederick Cook, sem 1909 tilkynnti að hann hefði fyrstur manna komist á norðurpólnum. Í þessum þætti er fjallað um komu Cooks til Kaupmannahafnar í september 1909 og spennuna sem greip um sig í dönsku höfuðborginni yfir afreki hans.

Kamala Harris II 04.10.2024

Annar þáttur um ævi bandarísku stjórnmálakonunnar Kamölu Harris. Í þessum þætti er fjallað um námsár hennar og upphaf á ferli hennar sem saksóknari.

Kamala Harris I 27.09.2024

Fyrsti þáttur um ævi bandarísku stjórnmálakonunnar Kamölu Harris. Í þessum þætti er fjallað um ættir Harris á Indlandi og Jamaíku og fyrstu árin í ævi hennar.

Gíslatakan í Beslan II 13.09.2024

Síðari þáttur um gíslatökuna í barnaskóla í Beslan í Norður-Ossetíu í Rússlandi í septemberbyrjun 2004.

Gíslatakan í Beslan I 06.09.2024

Í þættinum er fjallað um gíslatöku í barnaskóla í bænum Beslan í Norður-Ossetíu í Rússlandi í septemberbyrjun árið 2004.

Andrew Wakefield II 07.06.2024

Síðari þáttur um Bretann Andrew Wakefield, sem árið 1998 kom af stað kenningu um að tengsl væru milli bóluefnisins MMR og einhverfu í börnum. Kenningarnar reyndust ekki eiga við rök að styðjast en urðu lífseigar meðal andstæðinga bólusetninga.

Andrew Wakefield og MMR I 31.05.2024

Þátturinn fjallar um breskan lækni, Andrew Wakefield, sem árið 1998 kom af stað kenningu um að tengsl væru milli bóluefnisins MMR og einhverfu í börnum. Kenningarnar reyndust ekki eiga við rök að styðjast en urðu lífseigar meðal andstæðinga bólusetninga.

Páskaeyja V 03.05.2024

Lokaþáttur um sögu Páskaeyju eða Rapa Nui í Kyrrahafi.

Páskaeyja IV 19.04.2024

Fjórði þáttur um sögu Páskaeyju á Kyrrahafi. Í þessum þætti er fjallað um tilraunir útlendinga til að gera eyjuna að stóru sauðfjárbúi og endalok sjálfstæðis eyjaskeggja í lok nítjándu aldar. Þáttarmynd: ljósmyndir af Páskeyingum, teknar af skipverjum á bandaríska skipinu USS Mohican 1886.

Páskaeyja III 12.04.2024

Í þættinum er haldið áfram umfjöllun um sögu Páskaeyju í Kyrrahafi. Í þessum þætti er fjallað um tilraunir evrópskra trúboða til að koma sér fyrir á eyjunni og kristna íbúa hennar, og franskan ævintýramann sem hafði önnur áform um framtíð eyjunnar.

Páskaeyja II 05.04.2024

Í þættinum er áfram fjallað um sögu Páskaeyju á sunnanverðu Kyrrahafi, sér í lagi þær hörmungar sem íbúar eyjunnar þurftu að þola á nítjándu öld.

Páskaeyja 22.03.2024

Í þættinum er fjallað um afskekkta smáeyju í sunnanverðu Kyrrahafi, sem evrópskir sæfarar nefndu Páskaeyju.

Matthew Shepard 15.03.2024

Í þættinum er fjallað um morðið á Matthew Shepard, samkynhneigðum ungum manni í Wyoming í Bandaríkjunum 1998, og áhrif þess á réttindabaráttu hinsegin fólks vestanhafs.

Galdrafár í Salem V 08.03.2024

Fimmti og síðasti þáttur um galdrafárið mikla í Salem og nærsveitum á Nýja Englandi sem hófst 1692.

Galdrafár í Salem IV 01.03.2024

Fjórði þáttur um galdrafárið mikla í Salem og nærsveitum á Nýja Englandi 1692.

Galdrafár í Salem III 23.02.2024

Í þættinum er haldið áfram að fjalla um galdrafárið mikla sem braust út á Nýja Englandi 1692.

Galdrafár í Salem II 16.02.2024

Í þættinum er áfram fjallað um undarlega atburði sem gerðust í Salem-þorpi á Nýja Englandi seint á 17. öld. Nokkrar ungar stúlkur kenndu sér undarlegra meina og sökuðu konur í þorpinu um að beita þær galdri, og úr varð eitt alræmdasta galdrafár í sögu Norður-Ameríku. Í þessum þætti er fjallað um ásakanir á hendur nýjum nornum í Salem.

Luister naar de podcast Í ljósi sögunnar in Replaio

Radio en podcasts in één app - gratis en zonder account. Installeer vandaag nog en mis de lancering niet

Download het op Google Play

Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds