Lyfjastofnun

Hlaðvarp Lyfjastofnunar

Fjallað um lyf og lyfjanotkun frá ýmsum sjónarhóli

Bezoek zeker de website van de podcast en steun de maker: soundcloud.com

Auteur

Lyfjastofnun

Categorie

Health

Website van de podcast

soundcloud.com

Nieuwste aflevering

11 nov. 2024

Waar luisteren?

Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaar

Podcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts

Download het op Google Play Gratis installeren Android bijna 10 mln downloads · beoordeling 4,8 iOS binnenkort

Afleveringen

9. - Hlutverk Lyfjastofnunar - Rúna Hauksdóttir Hvannberg 01.11.2019

Þegar þetta hlaðvarp fer í loftið eru nákvæmlega 19 ár frá því að Lyfjastofnun hóf starfsemi. Af því tilefni er fjallað um hlutverk og starfsemi stofnunarinnar. Rætt við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg, forstjóra Lyfjastofnunar, sem segir frá ýmsum áskorunum í starfinu svo sem lyfjaskorti, eftirliti með lækningalækjum og Brexit. Einnig eru nefndar til sögunnar systur tvær frá Sjanghæ ! Umsj. Hanna G. S...

8. Netverslun með lyf – Sindri Kristjánsson 03.10.2019

Verslun og viðskipti á netinu færast í vöxt, og lyf eru seld þar eins og hver annar varningur. Og þó - því lyf eru ekki eins og hver annar varningur að því leyti að um framleiðslu þeirra, dreifingu og geymslu gilda strangari reglur en um flestar aðrar vörur. Allt er það með öryggi notandans í huga, því afleiðingar af notkun lyfs sem ekki hefur fengið vottun lyfjayfirvalda um ítrustu kröfur, geta v...

7. Samheitalyf – þau lúta sömu gæðakröfum og frumlyf - Rúnar Guðlaugsson 30.08.2019

Hefur þér verið boðið samheitalyf í apóteki og þú verið á báðum áttum ? Hér er skýrt hvað samheitalyf eru og að hvaða leyti þau eru frábrugðin frumlyfinu sem þau eru byggð á. –Rætt við Rúnar Guðlaugsson lyfjafræðing, sérfræðing á upplýsingadeild Lyfjastofnunar. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

6. Fylgiseðlar lyfja - uppáhaldslesningin þín ? - Jana Rós Reynisdóttir 26.07.2019

Öllum lyfjum sem eru á markaði fylgja upplýsingar fyrir notendur. Í pakkningum lyfja eru þannig prentaðir fylgiseðlar á blaði, en fylgiseðla má líka nálgast rafrænt á serlyfjaskra.is -En hvaða upplýsingar geymir fylgiseðillinn ? Jana Rós Reynisdóttir deildarstjóri hjá Lyfjastofnun fer yfir það og segir litla dæmisögu sem sýnir hve mikilvægt er að lesa fylgiseðilinn áður en byrjað er að nota lyfið....

5. Lyf við biti lúsmýs, geitungastungum og frjókornaofnæmi - Kolbeinn Guðmundsson 05.07.2019

Fjallað er um sumartengt ofnæmi og lyf við því. Lúsmý og viðbrögð við biti þess eru sérstaklega í sviðljósinu að gefnu tilefni, en einnig koma við sögu geitungar og frjókorn. -Rætt við Kolbein Guðmundsson, yfirlækni Lyfjastofnunar. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

4. Varasöm lyf í blóði ökumanna - Adam Erik Bauer 11.06.2019

Rætt við Adam Erik Bauer réttarefnafræðing og verkefnastjóra á Rannsóknastofu HÍ í lyfja- og eiturefnafræði. Hann hefur tekið saman niðurstöður rannsókna síðustu sex ára á blóðsýnum ökumanna sem reynst hafa verið undir áhrifum lyfja í akstri. Fjölgun slíkra tilvika er ógnvænleg. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

3. Lyfjaskortur er alþjóðlegt vandamál - Cathrine Klerck 28.05.2019

Umræða um lyfjaskort hefur verið talsvert áberandi í íslenskum fjölmiðlum síðustu misseri. Spurt hefur verið um ástæður og úrræði, og stundum látið að því liggja að um séríslenskan vanda sé að ræða. -Hér er rætt við Cathrine Klerck, teymisstjóra lyfjaskortsteymis hjá norsku lyfjastofnuninni, NOMA. Í máli hennar kemur fram að um alþjóðlegan vanda er að ræða. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

2. Lyfjaskil og förgun lyfja - Brynhildur Briem 11.04.2019

Fjallað um mikilvægi þess að skila afgangslyfjum til förgunar, og hverjir sjá um að taka á móti þeim og eyða. Einnig vangaveltur um hvort skilalyf geti eða hafi hugsanlega ratað á svarta markaðinn. Rætt við Brynhildi Briem deildarstjóra á eftirlitssviði Lyfjastofnunar. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

1. Bóluefni - Hrefna Guðmundsdóttir 27.03.2019

Hlaðvarp Lyfjastofnunar kynnt í samtali við Jönu Rós Reynisdóttur deildarstjóra upplýsingadeildar, og rætt við Hrefnu Guðmundsdóttur lyflækni og sérfræðing á Lyfjastofnun um bóluefni. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

Luister naar de podcast Hlaðvarp Lyfjastofnunar in Replaio

Radio en podcasts in één app - gratis en zonder account. Installeer vandaag nog en mis de lancering niet

Download het op Google Play

Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds