Handkastið
Handkastið
Podcast by Handkastið
Auteur
Handkastið
Categorie
Website van de podcast
Nieuwste aflevering
9 jul. 2026
Waar luisteren?
Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaarPodcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts
Afleveringen
Séffinn og Óli Stef ræða boltann - Eru of margir í landsliðssósu fasa? 17.01.2025 1:17:03
Sérfræðingurinn fékk besta handboltamann sögunnar til sín og farið var yfir boltann. Stöðu íslenska landsliðsins, hvað þarf að gerast til að landsliðið nái árangri og allt þar á milli. Í lok þáttar fengu hlustendur að spyrja Óla misáhugaverðar spurningar.
HM vegferðin hafin - Skyldusigur hjá Strákunum Okkar 16.01.2025 50:30
Stymmi Klippari, Andri Geir og Stefán Rafn mættu í stúdíó og gerðu upp landsleikinn gegn Grænhöfðaeyjum. Vegferðin á HM er hafin og leiðin hefur aldrei verið greiðari!
Leiðin er greið - Það er raunhæft að Ísland fari í undanúrslit 15.01.2025 44:07
Sérfræðingurinn settist við hljóðnemann tók upp tólið og heyrði í þremur góðum mönnum rétt áður en strákarnir okkar hefja leik á HM í Þjóðaríþróttinni. Gunnar Birgisson var á línunni frá Zagreb, Kristján Andrésson fyrrum landsliðsþjálfari Svía og sérfræðingur ViaPlay í Svíþjóð var á línunni frá Eskilstuna og Logi Geirsson sérfræðingur í HM stofunni var á línunni úr penthouse íbúðinni í Reykjavík.
Handbragð Snorra farið að sjást og tilheyrir "íslenska geðveikin" fortíðinni? 12.01.2025 1:15:37
Stymmi Klippari, Arnar Sveinn og Jói Skúli settust niður á ræddu landsleik Íslands og Svíþjóðar. Teddi Ponza var á línunni. Er íslenska geðveikin horfin sökum breyttra tíma og hvað er til ráða? Evrópuævintýri Vals og Hauka halda áfram og Olísdeild kvenna hélt áfram í gær.
Jákvæð teikn á lofti - Dóri DNA finnur lyktina af málmi 09.01.2025 1:06:08
Sérfræðingurinn, Klipparinn og Dóri DNA fóru yfir fyrsta æfingaleik Íslands í aðdraganda HM sem framundan er. Jafntefli gegn gríðarlega sterku liði Svíþjóðar. Logi Geirsson var einnig á símalínunni og fór yfir leikinn.
10 dagar í HM - Farið yfir leiðina að gullinu 05.01.2025 1:39:37
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gísli Freyr Valdórsson fóru yfir leiðina að gullinu hjá Strákunum okkar á HM sem framundan er. Gísli Freyr er formaður handknattleiksdeildar Fram og þáttastjórnandi Þjóðmála. Í þættinum valdi hann handboltalið stjórnmálamanna og kvenna og ræddi nýja ríkisstjórn og hvað við megum búast við af ríkisstjórninni í íþróttamálum.
Áramótaterta Handkastsins 30.12.2024 1:48:40
Árið 2024 var gert upp í sannkölluðum maraþonþætti. Frábært handboltaár að baki og mikil bjartsýni rýkir í mönnum fyrir 2025.
Snorri Steinn fer yfir ferilinn - Fyrirliði 19 ára - lygilegur tími hjá AG og vondi maðurinn í Frakklandi 27.12.2024 2:06:41
Sérfræðingurinn settist niður með Snorra Steini Guðjónssyni og fór yfir leikmannaferilinn. Allt frá yngri flokkunum í Val og þar til hann kom aftur heim til Vals sem spilandi þjálfari út á við. Stórmótin með landsliðinu, sigrarnir og vonbrigðin. Ótrúlegur tími hans í AG þar sem Kasi Jesper dældi peningum í liðið og hugarfarsbreytingin í Frakklandi þar sem hann ákvað loks að fara skora fleiri handb...
Aron Kristjánsson fer yfir tímann sinn með íslenska landsliðið og Bahrain 24.12.2024 1:12:58
Sérfræðingurinn settist niður með Aroni Kristjánssyni þjálfari Bahrain. Aron þjálfaði íslenska landsliðið árin 2012-2016. Farið var yfir tíma Arons með íslenska landsliðið, tíma sinn með Bahrain auk þess sem spáð var í spilin fyrir HM sem framundan er.
Snorri búinn að velja 18 manna hóp og Final four (næstum) klárt 19.12.2024 1:09:18
Snorri búinn að velja 18 manna hóp og Final four (næstum) klárt
Lítið um varnir og nýliðar í basli 13.12.2024 1:05:10
Síðasta umferðin fyrir jólin í Olísdeild karla gerð upp að undanskildum tveim leikjum. Styttist í stórmót og hvenær spilar FH í bikarnum?
Hvar eru landsliðstreyjurnar og Spiideo vélarnar sem lofað var? 11.12.2024 1:03:42
Sérfræðingurinn og Ponzan fóru um víðan völl í þættinum. Hvar er hægt að kaupa landsliðstreyjurnar og afhverju er HK - Fjölnir ekki sjónvarpsleikur? Hvar eru allar Spiideo vélarnar sem HSÍ keypti fyrir tímabilið og talað var um að myndu auka gæði sjónvarpsútsendingana í Handboltapassanum með fleiri sjónarhornum? Hvaða landsliðsmaður má alls ekki detta út fyrir HM og fær Svenni Jó. tækifærið á HM?...
Markvarslan við frostmark hjá Val og FH-ingar sýna engin þreytumerki 05.12.2024 59:15
Olísdeild karla gerð upp með Geira Sly og EuroBella. Kærumál Stjörnunnar komið á fullt og Meistraradeild Evrópu var á sínum stað.
EM kvenna krufið og enn eitt kærumálið 04.12.2024 1:09:05
Sérfræðingurinn, Klipparinn og Ragnheiður Júlíusdóttir fara yfir EM kvenna. Hverjar gætu hætt og hverjar eru næstar inn? Hverjar gætu farið út og er eitthvað betra að fara út? Spáð var í spilin fyrir 13.umferð Olís-deildar karla sem hefst annað kvöld.
Stelpurnar okkar hófu leik á EM og heimatilbúið VAR í Kórnum! 29.11.2024 1:09:47
Strákarnir gerðu upp 12.umferð í Olísdeildinni. Stelpurnar okkar hófu leik á EM gegn Hollendingum. Það var af nægu að taka í leikjum kvöldsins. Meistaradeildin var á sínum stað og Handkastið kíkti á kosningarnar.
HK nennir ekki vestur og sjáum við íslenskt lið í Evrópu að ári? 27.11.2024 48:24
Sérfræðingurinn og Stymmi Klippari fóru yfir það allra helsta í handboltanum þessa dagana. Stelpurnar okkar eru að hefja leik. Evrópa er búin þetta árið og rosalega umferð í Olísdeildinni framundan!
Þoka yfir Heimaey og Handboltapassinn heillar í kuldanum 22.11.2024 1:16:06
11.umferð Olísdeildar karla fór fram í kvöld og gerðu strákarnir hana upp. Fyrri umferðin er búin og hvernig standa liðin eftir hana? Stelpurnar okkar voru á ferðinn í Basel í kvöld. Meistaradeildin er komin aftur af stað eftir landsleikjahlé og hvað er að gerast í Magdeburg?
Kristófer eyðilagði Evrópudraum Valsmanna og Eyjamenn inná borði aganefndar 20.11.2024 1:01:16
Evrópudraumur Vals og FH er úr sögunni þetta tímabilið en Evrópan er galopin hjá kvennaliðum Vals og Hauka. Powaraid bikarinn kominn á fullt og nóg að gera hjá aganefnd HSÍ. Strákarnir fóru aftur til fortíðar og spáðu í 11.umferð Olísdeildar karla.
Finnur HSÍ pennann fyrir EM Kvenna og engin sjóriða hjá Fram 14.11.2024 1:07:22
Stymmi, Andri og Ásgeir fóru yfir 10.umferð Olísdeildar karla. Farið var yfir blaðamannafund HSÍ og Olísdeild kvenna var einnig á dagskrá.
Landsliðstuð vol.2 - Mike kominn með nóg og kallar eftir breytingum 13.11.2024 1:29:04
Sérfræðingurinn, Stymmi klippari og Mikael Nikulásson héldu áfram að kryfja landsliðsmálin. Við ætluðum að fara ræða EM kvennalandsliðshópinn en það var því miður ekki hægt. Hitað var upp fyrir næstu umferðir í Olís-deild kvenna og karla. Mike er síðan kominn með nóg af Handboltapassanum og kallar eftir standard.
Landsliðstuð eftir tvo skyldusigra - Frammistaðan alltílæ ekki gott 10.11.2024 1:10:53
Sérfræðingurinn fékk til sín þjálfarateymi Fram, Einar Jónsson og Harald Þorvarðarson til að fara yfir landsliðsvikuna - tvo sigurleiki Íslands gegn Bosníu og Georgíu í undankeppni EM 2026. Einnig var farið yfir úrslitin í 8.umferð Olís-deildar kvenna og rætt um frammistöðu Fram í Olís-deild karla.
Strákarnir okkar mæta til leiks eftir hálfs árs bið 06.11.2024 51:40
Ferðalagið á EM 2026 hefst í kvöld þegar strákarnir taka á móti Bosníu. Landsliðsumræða - Olís-deildirnar og Stymmi fer yfir Handborgarann á Grill-inu.
Halldór Jóhann trylltur og Halldór Stefán áttavilltur - Háspennu umferð að baki 01.11.2024 1:03:33
Stymmi Klippari og Benni Grétars gerðu 9 umferð Olísdeildar Karla upp. Kaldi Brugghús leikmaður umferðarinnar valinn og Skita umferðarinnar á sínum stað. Farið yfir úrslit í Olísdeild kvenna og eru línur í Meistaradeildinni farnar að skýrast?
Getum borið höfuðið hátt - Arnar Pétursson ánægður eftir vonbrigðin í Tékklandi 30.10.2024 59:55
Íslensku félögin geta borið höfuðið hátt eftir frammistöðu sína í Evrópudeildinni í vikunni. Það styttist í EM kvenna og íslenska kvennalandsliðið vann sterkt landslið Pólverja tvívegis um helgina. Arnar Pétursson landsliðsþjálfari var í símaviðtali þar sem farið var yfir sviðið. Einnig spáði hann í spilin fyrir 9.umferðina í Olís-deild karla.
Titillinn í Mosó í vor? Egilshöllin er meira en bara popp og keila 25.10.2024 1:13:57
Strákarnir fóru yfir 8.umferð í Olísdeild Karla, Kaldi leikmaður umferðarinnar var valinn og Skitan var ekki langt undan. Farið var yfir úrslitin í Meistaradeild Evrópu og margt fleira.
Vergelijkbare podcasts
Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds