Sölvi Tryggvason

Sölvi Áskriftarþættir

Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir

Husk å besøke podkastens nettsted og støtte skaperen: solviaskrift1210105.libsyn.com

Forfatter

Sölvi Tryggvason

Kategori

Education

Podkastens nettsted

solviaskrift1210105.libsyn.com

Siste episode

11. okt 2026

Hvor kan du lytte?

Podkaster i appen Replaio Radio Kommer snart

Podkaster kommer snart til appen. Installer nå, og bli den første som ser en helt ny tilnærming til podkaster

Last ned på Google Play Installer gratis Android nesten 10 mill. nedlastinger · 4,8 i vurdering iOS snart

Episoder

#40 Ásgeir Andri með Sölva Tryggva 15.12.2021

Ásgeir Andri Guðmundsson er stórmerkilegur maður sem hefur farið óhefðbundnar leiðir í lífinu. Fyrir tvítugt var hann orðinn rótari hjá stærstu sveitaballaböndum Íslands og hoppaði fulla ferð inn í lífsstílinn sem því fylgir. Síðar menntaði hann sig sem áhættuleikari á Florída, þar sem honum var kennt að kveikja í sér og hoppa fram af byggingum. Helgarferðin til Danmerkur sem varð að veitingastaða...

#39 Jónína Ben með Sölva Tryggva 15.12.2021

Jónína Benediktsdóttir er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í podcasti Sölva. Jónína, sem hefur oft verið verulega umdeild á Íslandi, var ung orðinn viðskiptakona í Svíþjóð, þar sem hún fékk alls kyns verðlaun fyrir frumkvöðlastarfsemi sína í líkamsrækt og rekstri líkamsræktarstöðva. Sölvi skrifaði ævisögu Jónínu og það vantar því ekki umræðuefnin. Tímabilin með Jóni Páli, íslenskt viðskiptalíf, b...

#38 Björn Stefánsson með Sölva Tryggva 15.12.2021

Björn Stefánsson var ungur orðinn einn hæfileikaríkasti trommuleikari sem Ísland hefur átt. Hann varð svo lykilmaður í hljómsveitinni Mínus, sem náði talsverðum hæðum erlendis á sínum tíma. Um þrítugt skipti Bjössi svo alveg um takt og fór í leiklistarnám í Danmörku og hefur síðan getið sér mjög gott orð sem leikari. Hér fara Sölvi og Björn yfir Mínus-tímabilið, sem var æði skrautlegt á köflum, ás...

#37 Jónas Sig með Sölva Tryggva 15.12.2021

Jónas Sigurðsson varð vinsæll sem söngvari í ,,Sólstrandargæjunum", sem slógu í gegn með lagið ,,Rangur Maður" og sló síðan aftur í gegn mörgum árum síðar með lagið ,,Hafið er Svart". Það sem færri vita líklega um Jónas er að hann er afburðamaður í tölvuforritun og vann um árabil fyrir tölvurisann Microsoft. Þar var hann valinn í hóp efnilegasta fólks fyrirtækisins, en áður en það tók á flug var J...

#36 Einar Ágúst með Sölva Tryggva 15.12.2021

Einar Ágúst Víðisson varð þjóðþekktur sem söngvari hljómsveitarinnar Skítamórals, sem var á sínum tíma vinsælasta band Íslands. Einar var á beinu brautinni sem tónlistarmaður, sjónvarps- og útvarpsmaður þegar það fór að halla verulega undir fæti. Hann missti öll tök á tilverunni, endaði í mjög slæmum félagsskap og fór á kaf í neyslu. Einar hefur gengið í gegnum hluti sem fæstir geta gert sér í hug...

#35 Ásgeir Brynjar Torfason með Sölva Tryggva 15.12.2021

Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í viðskiptafræði og fulltrúi í fjármálaráði Íslands hefur um árabil stundað rannsóknir á peningamálum og doktorsgráða hans fjallar um alþjóðlega fjármálastarfsemi. Hér ræða Sölvi og Ásgeir um stöðu hagkerfisins á Íslandi og í heiminum öllum, fara yfir það hvað peningar raunverulega eru og það hvort við séum á leiðinni inn í algjörlega nýja tíma þar sem veruleikinn v...

#34 Jóhanna Guðrún með Sölva Tryggva 15.12.2021

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir hefur verið þjóðþekkt síðan hún var aðeins 11 ára gömul, þegar fyrsta platan hennar kom út. Hún hefur síðan þá átt gífurlega farsælan feril og meðal annars náð besta árangri Íslands í lokakeppni Eurovision. Hér ræða hún og Sölvi um kostina og gallana við að vera barnastjarna, þátttökuna í Allir Geta Dansað, listina við að koma fram og gefa af sér og fjölmargt fleira.

#33 Bubbi Morthens með Sölva Tryggva 15.12.2021

Bubbi Morthens er einn þekktasti tónlistarmaður Íslandssögunnar og eftir hann liggja nærri 50 hljómplötur. Hér ræða hann og Sölvi um ótrúlegan feril Bubba, nýja lífið í sveitinni, mikilvægi þess að halda sér í líkamlegu og andlegu formi, sögur af djamminu í den og margt margt fleira.

#32 Pálmi Gunnarsson með Sölva Tryggva 15.12.2021

Pálmi Gunnarsson er einn dáðasti tónlistarmaður Íslandssögunnar. Maðurinn sem söng fyrstu orð Íslands í Eurovision á erlendri grundu þegar Gleðibankinn kom fyrir augu heimsbyggðarinnar. Hann segist sjálfur hafa farið langleiðina með að drepa sig á áfengisdrykkju og er þakklátur fyrir að hafa fengið annað líf. Hér fara Sölvi og Pálmi yfir magnaðan feril Pálma og ótrúlegt lífshlaup, sem hefur oft á...

#31 Steindi Jr. með Sölva Tryggva 15.12.2021

Steinþór Hróar Steinþórsson, eða Steindi Jr. er orðinn eins konar nýrrar kynslóðar Laddi eða Hemmi Gunn. Hann hefur lengi verið einn af þekktari grínistum Íslands, en á einnig mjög vinsæl lög, leikstjórnarverkefni, handritaskrif og leiklistarframmistöðu á ferilskránni. Steindi hefur allt frá fyrsta degi sýnt mikinn metnað í öllum sínum verkefnum, eins og augljóslega má sjá. Hér ræða Steindi og Söl...

#30 Nadía Sif & Lára Clausen með Sölva Tryggva 15.12.2021

Lára Clausen og Nadía Sif Líndal eru umtöluðustu manneskjur Íslands, eftir að hafa hitt ensku landsliðsmennina Mason Greenwood og Phil Foden. Málið rataði á forsíður allra helstu fjölmiðla Bretlands á mánudaginn og síðan þá hefur áreitið á þær verið gríðarlegt. Hér mæta þær í sitt fyrsta viðtal á Íslandi eftir atburðina og segja söguna alla.

#29 Svala Björgvins með Sölva Tryggva 15.12.2021

Svala Björgvinsdóttir var orðin stjórstjarna í poppbransanum á unga aldri. Siðan þá hefur hún tekið alls kyns beygjur á ferlinum, en alltaf haldið í ástríðuna fyrir að búa til tónlist. Hún þekkir ekkert annað en að eiga einn frægasta einstakling Íslands sem pabba og fékk músíkina nánast í vöggugjöf. Hér ræða Svala og Sölvi um magnaðan feril Svölu, ótrúleg augnablik á ferðalaginu og nýja kaflann í...

#28 Kjartan Guðbrandsson með Sölva Tryggva 15.12.2021

Kjartan Guðbrandsson einkaþjálfari er líklega eini Íslendingurinn sem hefur sigrað keppnir í kraftlyftingum, vaxtarækt aflraunum og fitness. Hann byrjaði að æfa með Jóni Páli Sigmarssyni, margföldum sterkasta manni heims, sem unglingur og var með honum á æfingunni þegar Jón Páll lét lífið. Kjartan fékk á því tímabili sinn skammt af dauðanum, þar sem hann missti fleiri nána vini og son sinn á aðein...

#27 Sigursteinn Másson með Sölva Tryggva 15.12.2021

Sigursteinn Másson varð þjóðþekktur sem ungur fréttamaður á Stöð 2. Þá var hann óviss um kynhneigð sína og gekk í gegnum erfiða tíma tengda því. Síðar seig á ógæfuhliðina þegar Sigursteinn endaði á geðsjúkrahúsi í Danmörku eftir að hafa gengið nærri sér í umfjöllun um Balkanstríðið. Hér ræða Sigursteinn og Sölvi um ferilinn í fjölmiðlum, Sönn íslensk sakamál, Covid, stöðuna í heiminum og margt mar...

#26 María Birta með Sölva Tryggva 15.12.2021

María Birta Bjarnadóttir leikkona hefur gert ótrúlega margt þó að hún sé rétt rúmlega þrítug. 16 ára gömul var hún byrjuð með netverslun og 19 ára velti hún 10 milljónum á mánuði í versluninni Maniu á Laugavegi. Skömmu síðar var hún búin að vinna Edduverðlaunin sem leikkona og þá var ekki aftur snúð og hún flutti til Bandaríkjanna, þar sem hún vinnur nú að fjölmörgum verkefnum. Hér ræða María og S...

#25 Sólveig Eiríksdóttir með Sölva Tryggva 15.12.2021

Sólveig Eiríksdóttir eða Solla er löngu orðin þjóðargersemi. Ferill þessarrar mögnuðu konu spannar áratugi og ótrúlega fjölbreytt svið. Hér ræða hún og Sölvi um feril Sollu sem bisness-kona, bókaútgáfuna hjá stærstu forlögum heims, ástríðuna fyrir matnum, matreiðsluna fyrir heimsfrægt fólk og dansinn sem hjálpaði henni út úr ,,burnouti".

#24 Ellý Ármanns með Sölva Tryggva 15.12.2021

Ellý Ármannsdóttir varð þjóðþekkt þegar hún vann um árabil sem þula á Ríkissjónvarpinu. Þar kom strax í ljós að hún sker sig úr sama hvar hún kemur og sumt sem hún gerði sem þula þótti umdeilt. Síðan þá hefur Ellý unnið við ótal hluti, allt frá því að spá fyrir fólki yfir í að vera hóptímakennari í íþróttum. Hér ræða Sölvi og Ellý um tímabilin í fréttunum, spádómana, leiðir til þess að stíga út úr...

#23 Ingó Veðurguð með Sölva Tryggva 15.12.2021

Ingólfur Þórarinsson kom inn á sjónarsvið íslensku tónlistarsenunnar eftir að hann keppti í Idolinu. En áður en hann keppti þar hafði hann stofnað hljómsveitina Veðurguðirnir og hringt í nánast alla veitingastaði landsbyggðarinnar og beðið um að fá að mæta til að spila með bandinu sínu. Eftir Idolið fór allt af stað og síðan þá er varla nokkur íslenskur tónlistarmaður sem hefur ,,giggað" jafn oft....

#22 Mikael Torfason með Sölva Tryggva 15.12.2021

Mikael Torfason er einn reyndasti fjölmiðlamaður Íslands, sem hefur í gegnum tíðina ritstýrt 3 af stærstu dagblöðum landsins. Hann breytti landslagi rithöfunda sem ungur maður þegar hann skrifaði bókina ,,Falskan Fugl", þar sem fjallað var um hluti sem aldrei höfðu áður birst í bókum á Íslandi. Mikael hefur alla tíð elskað ritmálið og nú býr hann í Vínarborg, þar sem hann vinnur þessa dagana mest...

#21 Óttar Guðmundsson með Sölva Tryggva 15.12.2021

Óttar Guðmundsson geðlæknir hefur í áraraðir starfað við að aðstoða fólk með geðsjúkdóma, fíknivanda og fleira. Eftir hann liggur fjöldi bóka, allt frá Ævisögu Megasar yfir í ,,Hetjur og Hugarvíl", þar sem Óttar skoðar geðsdjúkdóma og persónuleikaraskanir helstu hetjanna úr Íslendingasögunum. Óttar hefur auk þess verið yfir kynleiðréttingarteymi landsspítalans frá því það var stofnað. Hér ræða han...

#20 Gunni & Halli Nelson með Sölva Tryggva 15.12.2021

Gunnar Nelson er eini Íslendingurinn sem hefur algjörlega lifað af keppni í bardagaíþróttum um árabil. Hann komst ungur í fremstu röð og fékk samning á UFC, þar sem aðeins allra öflugustu bardagamenn heims keppa. Faðir hans Haraldur Dean Nelson hefur stutt við bakið á vegferð sonarins frá fyrsta degi og er jafnframt umboðsmaður hans. Hér ræða þeir feðgar við Sölva um hæðirnar og lægðirnar í UFC, s...

#19 HæHæ með Sölva Tryggva 15.12.2021

Vinirnir Helgi Jean Claessen og Hjálmar Örn Jóhannsson hafa í áraraðir verið að gera grínefni saman, en á löngum köflum gekk það brösulega. Hjálmar fór að vinna á leikskóla og Helgi fór í jakkaföt og vildi verða bissnessmaður. En dropinn holar steininn og í dag eru þeir í fullri vinnu við að gera grínefni, bæði í Hlaðvarpinu Hæhæ og Hjálmar fer í gervi Hvítvínskonunnar nær daglega. Hér ræða þeir S...

#18 Björgvin Páll með Sölva Tryggva 15.12.2021

Björgvin Páll Gústafsson er einn litríkasti íþróttamaður síðari ára á Íslandi. Á stórmótum hefur hann vakið athygli fyrir Víkingalegt útlit og brjálæðislega framgöngu á vellinum. Sölvi skrifaði bók um Björgvin fyrir ári síðan og hér ræða þeir saman um ferilinn, barnæskuna, leiðir Björgvins til bata úr andlegu og líkamlegu hruni og margt margt fleira.

#16 Guðlaugur Victor með Sölva Tryggva 15.12.2021

Guðlaugur Victor Pálsson fékk samning hjá Liverpool aðeins 17 ára gamall og var einn efnilegasti leikmaður sem sést hafði lengi á Íslandi. En æska hans var erfiðari en hjá flestum. Í dag er hann orðinn fastamaður í landsliðinu og hefur verið fyrirliði síðustu tveggja liða sem hann hefur spilað með. Hér ræða hann og Sölvi um hæðirnar, lægðirnar, rasisma, drauminn um að fara á stórmót með Íslandi og...

#15 Ólafur Stefánsson með Sölva Tryggva 15.12.2021

Ólafur Stefánsson er löngu orðinn þjóðargersemi. Einn besti handboltamaður allra tíma, sem kom heim með silfurverðlaun frá Olympíuleikunum í Peking. Hèr ræða hann og Sölvi um ad viðhalda barninu í sér, mikilvægi þess að elta draumana og þora að vera ,,skrýtni kallinn".

Hør på podkasten Sölvi Áskriftarþættir i Replaio

Radio og podkaster i én app - gratis og uten registrering. Installer i dag, og ikke gå glipp av lanseringen

Last ned på Google Play

Replaio er ikke podkastutgiver; programnavn, omslag og lyd tilhører opphavspersonene og distribueres via offentlige RSS-feeder.