Sölvi Tryggvason
Sölvi Áskriftarþættir
Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir
Forfatter
Sölvi Tryggvason
Kategori
Podkastens nettsted
Siste episode
5. jul 2026
Hvor kan du lytte?
Podkaster i appen Replaio Radio Kommer snartPodkaster kommer snart til appen. Installer nå, og bli den første som ser en helt ny tilnærming til podkaster
Episoder
#123 Guðrún Bergmann með Sölva Tryggva (hluti2) 09.09.2022 44:40
Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki og fleira. Í þættinum er farið yfir magnaða sögu Guðrúnar, heilsu, upplýsingar, fjölmiðla og fleira.
#122 Guðrún Bergmann með Sölva Tryggva (hluti1) 08.09.2022 41:24
Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki og fleira. Í þættinum er farið yfir magnaða sögu Guðrúnar, heilsu, upplýsingar, fjölmiðla og fleira
#121 Siggi Stormur með Sölva Tryggva 05.09.2022 58:41
Sigurður Þ. Ragnarsson hefur um árabil verið á skjám landsmanna og er löngu orðin goðsögn í íslenskum fjölmiðlaheimi. Í þættinum segir Siggi Stormur sögur af ferlinum í fjölmiðlum og stjórnmálum, ræðir opinskátt um skammdegisþunglyndi sem hann glímir við og baráttu sonar hans, sem hefur verið meira og minna í 9 mánuði á spítala.
#120 Siggi Stormur með Sölva Tryggva 05.09.2022 39:37
Sigurður Þ. Ragnarsson hefur um árabil verið á skjám landsmanna og er löngu orðin goðsögn í íslenskum fjölmiðlaheimi. Í þættinum segir Siggi Stormur sögur af ferlinum í fjölmiðlum og stjórnmálum, ræðir opinskátt um skammdegisþunglyndi sem hann glímir við og baráttu sonar hans, sem hefur verið meira og minna í 9 mánuði á spítala.
#119 Arnar Þór með Sölva Tryggva 31.08.2022 1:25:53
Arnar Þór Jónsson lögfræðingur hefur vakið athygli fyrir að vera óhræddur við að tjá óvinsælar skoðanir í fjölmiðlum undanfarin ár. Í þættinum ræða Sölvi og Arnar um hlutverk ríkisins, mikilvægi þess að vera hugrakkur, hjarðhegðun og margt fleira.
#118 Nökkvi Fjalar með Sölva Tryggva 29.08.2022 1:18:56
Nökkvi Fjalar Orrason vakti ungur athygli með Áttunni og hefur verið í sviðsljósinu síðan. Hann býr nú í London, þar sem hann rekur fyrirtæki sitt. Í þættinum ræða Sölvi og Nökkvi um markmið, gildi, leiðir til að standa með sjálfum sér, hugrekki og margt fleira.
#117 Kalli Snæ með Sölva Tryggva 24.08.2022 1:37:27
Guðmundur Karl Snæbjörnsson er þrautreyndur læknir sem stendur fast á sannfæringu sinni. Honum var hótað kærum og fangelsisvist af hinu opinbera í faraldrinum og segir læknum bannað að fara eftir sannfæringu sinni. Í þættinum ræða Sölvi og Guðmundur um stöðuna í samfélaginu, hvað við getum lært af faraldrinum og hvað þarf helst að óttast.
#116 Ögmundur Jónasson með Sölva Tryggva 22.08.2022 1:16:45
Ögmundur Jónasson var um árabil andlit vinstri manna á Íslandi. Hann var þingmaður og ráðherra um árabil og starfaði einnig lengi við fjölmiðla. Í þættinum ræðir hann um ferilinn, stöðu fjölmiðla og stjórnmála, Covid tímabilið, upplýsingaóreiðu og margt fleira.
#115 Ásdís Rán með Sölva Tryggva 19.08.2022 56:53
Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir hefur verið ein umtalaðasta manneskja Íslands um árabil. Eftir að hafa skotist upp á sjónarsviðið ung að aldri hefur Ásdís meira og minna verið í sviðsljósinu. Í þættinum ræða Sölvi og Ásdís um árin í Búlgaríu, dularfulla milljarðamæringinn sem hvarf, sögur úr fyrirsætubransanum og margt fleira.
#114 Eva Hauksdóttir með Sölva Tryggva 17.08.2022 1:24:40
Eva Hauksdóttir lögfræðingur hefur vakið mikla athygli fyrir vaska framgöngu í fjölmiðlum undanfarin ár. Hún hikstar ekki við að segja skoðanir sínar óháð tíðarandanum í samfélaginu. Í þættinum ræða Sölvi og Eva um hjarðhegðun, fjölmiðla, dómstóla og réttarkerfið og margt fleira.
#113 Guðni Ágústsson með Sölva Tryggva 16.08.2022 57:41
Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva. Eftir áratugi á þingi og setu í ráðherrastól er Guðni nú kappsamur um að njóta lífsins. Í þættinum ræðir hann um störfin á þinginu, umræðuna í samfélaginu, bætta heilsu og margt fleira.
#112 Ellý Ármanns snýr aftur 10.08.2022 1:23:42
Ellý Ármannsdóttir varð þjóðþekkt eftir að hafa starfað sem þula á Ríkissjónvarpinu um árabil. Hún er óhrædd við að segja skoðanir sínar og fer vægast sagt sínar eigin leiðir í lífinu. Í þættinum ræðir hún um hamingjuna, stöðuna í samfélaginu, mikilvægi þess að standa með sjálfum sér og margt fleira.
#111 Númi Snær Katrínarson með Sölva Tryggva 10.08.2022 2:14:44
Númi Katrínarson er þrautreyndur íþróttamaður og þjálfari, sem á og rekur líkamsræktarstöðina Granda 101. Númi á stórmerkilega sögu og hefur sterkar skoðanir á alls kyns hlutum. Í þættinum er farið yfir menntakerfið, tilgang í lífinu, markmið og ótalmargt fleira
#110 Sara Odds með Sölva Tryggva 10.08.2022 1:55:18
Margrét Sara Oddsdóttir, oftast kölluð Sara Odds, er menntaður lögfræðingur, sem starfar nú sem markþjálfi. Sara hefur tekið margar U-beygjur í lífinu og hikstar ekki við að skipta um takt og vettvang ef ástríðan kallar á það. Í þættinum fara Sara og Sölvi yfir leiðir til að finna ástríðuna í lífinu, elta hjartað og margt fleira
#109 Haraldur Erlendsson snýr aftur 10.08.2022 1:05:14
https://solvitryggva.is/ Haraldur Erlendsson er þrautreyndur geðlæknir sem vann um árabil í Bretlandi. Í þættinum ræða Sölvi og Haraldur um geðheilsu þjóðarinnar eftir Covid, trú og trúarbrögð, líf eftir dauðann og ýmislegt fleira.
#108 Hannes Hólmsteinn með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:38:00
Hannes Hólmsteinn hefur undanfarna áratugi verið einn umdeildasti Íslendingurinn, enda óhræddur við að segja skoðanir sínar. Í þættinum ræða Sölvi og Hannes um hugmyndafræði í stjórnmálum, hægrið og vinstrið, rétttrúnaðinn, ferðalögin til Brasilíu og margt fleira.
#106 Davíð Oddgeirs með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:30:40
Davíð Arnar Oddgeirsson er ungur maður sem gengið í gegnum margt á sinni stuttu ævi. Kynferðisofbeldi, alvarlegt einelti og fleira neyddu Davíð í mikla innri vinnu, sem skilaði sér í hlutum sem hann vill deila með fólki. Í þættinum ræða Davíð og Sölvi um magnaða sögu Davíðs, upplýsingar sem hann hefur fengið til sín úr ýmsum áttum, Covid tímabilið, DNA, breytingar í heiminum og margt margt fleira.
#105 Baldur Freyr með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:16:25
Baldur Freyr Einarsson ólst upp við hrottalegar aðstæður, þar sem harkalegt ofbeldi og neysla voru daglegt brauð. Baldur fór snemma af leið í lífinu og varð sjálfur ofbeldismaður, sem endaði með því að hann varð manni að bana og sat í fangelsi fyrir verknaðinn. Baldur hefur í áraraðir unnið við að hjálpa fólki sem villst hefur af braut í lífinu. Í þættinum ræða Sölvi og Baldur um æsku Baldurs, atv...
#104 Kristín Sigurðardóttir með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:31:10
Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðlæknir vann í áraraðir við bráðalækningar bæði á Íslandi og erlendis. Í þættinum ræða Sölvi og Kristín um lækningar og heilsu, mikilvægi heildrænna lækninga með heilsueflingu og forvörnum mætist, lyklana að því að finna gleði og ástríðu og margt fleira.
#103 Áslaug Arna með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:15:22
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir varð næstyngsti ráðherra Íslandssögunnar þegar hún tók við embætti dómsmálaráðherra. Hún hefur undanfarið verið í eldlínunni í umræðunni, en segist sjálf ekki kippa sér mikið upp við stóryrði margra í hennar garð. Í þættinum ræða Sölvi og Áslaug um grundvallaratriði í stjórnmálum, tímana þegar Áslaug vann á sjónum og í lögreglunni og margt fleira.
#102 Óttar Guðmundsson snýr aftur 01.01.2022 1:34:33
Óttar Guðmundsson geðlæknir snýr aftur í podcastið. Óttar hefur í áraraðir starfað við að aðstoða fólk með geðsjúkdóma, fíknivanda og fleira. Eftir hann liggur fjöldi bóka, allt frá Ævisögu Megasar yfir í ,,Hetjur og Hugarvíl", þar sem Óttar skoðar geðsjúkdóma og persónuleikaraskanir helstu hetjanna úr Íslendingasögunum.
#101 Óli Stef snýr aftur 01.01.2022 1:47:58
Ólafur Stefánsson snýr aftur í Podcastið. Ólafur er löngu orðinn þjóðargersemi. Einn besti handboltamaður allra tíma, sem kom heim með silfurverðlaun frá Olympíuleikunum í Peking. Í þættinum ræða hann og Sölvi um mikilvægi þess að elta draumana, ferðalög Ólafs í lífinu og margt margt fleira.
#100 Tommi á Búllunni 01.01.2022 1:58:58
Tómas Andrés Tómasson er löngu orðin goðsögn í íslensku viðskipta- og veitingalífi. Tommi hefur verið samofin íslenskri matarmenningu í nærri 50 ár, eða allt frá því hann seldi meira en 300 þúsund hamborgara á einu ári eftir stofnun Tommaborgara. Í þættinum fara Sölvi og Tommi yfir lygilegan feril Tómasar, sem spannar allt frá 22 króna hamborgurum á Tommaborgurum yfir í eignarhald á Hard Rock, Búl...
#99 Donna Cruz með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:00:23
Donna Cruz flutti fjögurra ára gömul til Íslands frá Filippseyjum. Hún sló nýlega í gegn fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Agnes Joy, þar sem hún fór með eitt af aðalhlutverkunum. Í þættinum ræða Sölvi og Donna um leiklistina, samfélagsmiðla, falinn rasisma á Íslandi og margt fleira.
#98 Gunnar Smári með Sölva Tryggva 01.01.2022 2:03:10
Gunnar Smári Egilsson er þrautreyndur blaðamaður, útgefandi og ritstjóri, sem hefur unnið við fjölmiðla í áratugi, en hefur nú fært sig á vettvang stjórnmálanna. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um feril Gunnars Smára, íslenska fjölmiðla í gegnum tíðina, samfélagsgerðina, fátækt á Íslandi og margt fleira.
Lignende podkaster
Replaio er ikke podkastutgiver; programnavn, omslag og lyd tilhører opphavspersonene og distribueres via offentlige RSS-feeder.