RÚV

Í ljósi sögunnar

Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.

Husk å besøke podkastens nettsted og støtte skaperen: www.ruv.is

Forfatter

RÚV

Kategori

Society

Podkastens nettsted

www.ruv.is

Siste episode

2. okt 2026

Hvor kan du lytte?

Podkaster i appen Replaio Radio Kommer snart

Podkaster kommer snart til appen. Installer nå, og bli den første som ser en helt ny tilnærming til podkaster

Last ned på Google Play Installer gratis Android nesten 10 mill. nedlastinger · 4,8 i vurdering iOS snart

Episoder

Anita Bryant og Save Our Children í Flórída 15.09.2023

Í þættinum er fjallað um baráttu bandarísku söngkonunnar Anitu Bryant gegn réttindum hinsegin fólks í Flórída á ofanverðum áttunda áratug síðustu aldar.

Valdaránið í Chile 1973 08.09.2023

Í þættinum er fjallað um valdarán hersins í Chile fyrir hálfri öld, 11. september 1973, og endalok forsetatíðar sósíalistans Salvadors Allende.

Valdaránið í Chile 1973 08.09.2023

Í þættinum er fjallað um valdarán hersins í Chile fyrir hálfri öld, 11. september 1973, og endalok forsetatíðar sósíalistans Salvadors Allende.

Madagaskar II 26.05.2023

Síðari þáttur um sögu Madagaskar og valdatíð drottningarinnar Ranavalonu á 19. öld, sem sögð er hafa verið grimmlynd og blóðþyrst en varðist af hörku tilraunum evrópsku nýlenduveldanna til að leggja ríki hennar undir sig. Umsjón: Vera Illugadóttir.

Madagaskar 12.05.2023

Í þættinum er fjallað um sögu Madagaskar frá landnámi eyjunnar og fram á valdatíð drottningarinnar Ranavalonu á 19. öld, sem sögð er hafa verið grimmlynd og blóðþyrst.

Madagaskar 12.05.2023

Í þættinum er fjallað um sögu Madagaskar frá landnámi eyjunnar og fram á valdatíð drottningarinnar Ranavalonu á 19. öld, sem sögð er hafa verið grimmlynd og blóðþyrst.

Hvarf Emanuelu Orlandi 28.04.2023

Í þættinum er fjallað um eitt alræmdasta mannhvarfsmál í sögu Ítalíu, hvarf hinnar fimmtán ára gömlu Emanuelu Orlandi í Rómaborg í júní 1983. Emanuela var búsett í Vatíkaninu og lífseigar kenningar eru um að hvarf hennar kunni að tengjast öflum í kaþólsku kirkjunni, alþjóðapólitík eða skipulagðri glæpastarfsemi.

Borpallurinn Alexander Kielland 21.04.2023

Í þættinum er fjallað um eitt mannskæðasta slys í sögu Noregs. Í illviðri 27. mars 1980 hvolfdi olíuborpallinum Alexander Kielland á Norðursjó og 123 menn fórust.

Raunir Ödu Blackjack II 24.03.2023

Síðari þáttur um Ödu Blackjack, unga Inúítakonu sem endaði alein á eyðiey á norðurhjara eftir að hafa slegist í för með leiðangri á vegum landkönnuðarins Vilhjálms Stefánssonar 1921.

Raunir Ödu Blackjack 17.03.2023

Í þættinum er fjallað um Ödu Blackjack, unga Inúítakonu sem slóst í för með leiðangri á vegum landkönnuðarins Vilhjálms Stefánssonar til Wrangel-eyju á norðurhjara 1921.

Gullæðið í Kaliforníu II 17.02.2023

Síðari þáttur um gullæðið mikla sem hófst í Kaliforníu árið 1848. Í þessum þætti er fjallað um straum gullgrafara og annarra landnema til Kaliforníu og hryllilega meðferð þeirra á frumbyggjum landsins.

Gullæðið í Kaliforníu I 10.02.2023

Fyrsti þáttur um gullæðið mikla sem braust út í Kaliforníu árið 1848.

Gullæðið í Kaliforníu I 10.02.2023

Fyrsti þáttur um gullæðið mikla sem braust út í Kaliforníu árið 1848.

Vermeer-falsarinn 03.02.2023

Í þættinum er fjallað um hollenska listamanninn Han van Meegeren, sem falsaði verk eftir landa sinn, 17. aldar-meistarann Johannes Vermeer, á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar. Van Meegeren blekkti helstu listaspekúlanta Hollands og seldi falsanir sínar fyrir himinháar fjárhæðir, en upp komst um hann að lokum.

Bólusótt í Birmingham 20.01.2023

Í þættinum er fjallað um dularfullt tilfelli bólusóttar sem upp kom í Birmingham á Englandi haustið 1978, þegar talið var að búið væri að útrýma bólusótt á heimsvísu.

Kjarnorkukafbáturinn Kúrsk 13.01.2023

Í þættinum er fjallað um rússneska kjarnorkukafbátinn Kúrsk, sem sökk í Barentshafi í ágúst 2000, og tilraunir Rússlands og erlendra ríkja til að bjarga áhöfn hans af hafsbotni í tæka tíð.

Louis Le Prince og upphaf kvikmyndatækninnar II 06.01.2023

Síðari þáttur um franska uppfinningamanninn Louis Le Prince, sem þróaði eina fyrstu kvikmyndavélina en hvarf á dularfullan hátt árið 1890. Í síðari þætti er fjallað um leitina að Le Prince og grunsemdir eiginkonu hans um hver bæri ábyrgð á hvarfi hans.

Louis Le Prince og upphaf kvikmyndatækninnar I 30.12.2022

Í þættinum er fjallað um ævi og störf Louis Le Prince, fransks uppfinningamanns sem starfaði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Le Prince var brautryðjandi á sviði kvikmyndaupptökutækni, en hvarf á dularfullan hátt áður en hann gat kynnt heimsbyggðinni afrakstur vinnu sinnar.

Kjarnorkutilraunir á Marshall-eyjum 16.12.2022

Í þættinum er fjallað um sögu Marshall-eyja í Kyrrahafi. Bandaríkjamenn gerðu fjölda tilrauna með kjarnorkusprengjur á eyjunum á árum kalda stríðsins. Eyjaskeggjar voru fluttir burt af heimilum sínum vegna tilraunanna en þó urðu margir fyrir heilsufarslegu tjóni vegna geislavirkni.

Hør på podkasten Í ljósi sögunnar i Replaio

Radio og podkaster i én app - gratis og uten registrering. Installer i dag, og ikke gå glipp av lanseringen

Last ned på Google Play

Replaio er ikke podkastutgiver; programnavn, omslag og lyd tilhører opphavspersonene og distribueres via offentlige RSS-feeder.