Hefnendurnir

Hefnendurnir

Tv IS ↓ 239 episoder

Podcast by Hefnendurnir

Husk å besøke podkastens nettsted og støtte skaperen: hefnendurnir.castos.com

Forfatter

Hefnendurnir

Kategori

Tv

Podkastens nettsted

hefnendurnir.castos.com

Siste episode

23. okt 2026

Hvor kan du lytte?

Podkaster i appen Replaio Radio Kommer snart

Podkaster kommer snart til appen. Installer nå, og bli den første som ser en helt ny tilnærming til podkaster

Last ned på Google Play Installer gratis Android nesten 10 mill. nedlastinger · 4,8 i vurdering iOS snart

Episoder

215: Reyktu, Lína! Reyktu! 17.04.2026

Endur hefndarinnar fá Þorstein Joð til að finna góða þýðingu á Intellectual Property, reyna að éta hina ríku áður en þeir éta okkur, skammast útí loftbeyglaraþjófa og fagna komu Bullocks á grammið.

214: Takk, Jack Black 10.04.2026

Hefnendurnir fara enn og aftur í tiltölulega niðurstöðulaust umræðuferðalag um óumflýjanleika gervigreindarinnar, endurreista undraheima, ekki svo fantastic mr. fantastic og aldur Jasons Voorhees.

213: Sardínuskúffukakan 03.04.2026

Hulkleikur Dagsson og ÆvorMan Grímsson búa sig undir páskahret með því að etja saman eingyðistrú og fjölgyðistrú, lúffa fyrir erfiðleikum streymisveitusveltis og minnast lítilega á elskhuga gilmore mæðgna. 

212: Cpap Demon Hunters 27.03.2026

Öndunarvélarbræðurnir taka nauðsynlegt spjall um live action disney remake slop, líkamshrylling oflimaðs kónulóarmanns, gervigreind Orsons Wells, brottför Chuckys og hljómsveitina 30 seconds to ass. 

211: Snyderbromance 20.03.2026

Leikur Hulksins og Maður Ævorsins fara yfir afhendingar akademíunnar, vandræði vampýrubanans og grænbúningaleysi geimlögreglunnar. 

Hefnendurnir 210 - Patreon Games 13.03.2026

Hefnendurnir taka heljarstökk í þróunarsögu sinni og kynna til sögunnar nýja áskrifatrmöguleika! Hverjir halda þeir að þeir séu? Stöð tvö árið 1986? But seriously, folks. Tékkið á Patreon.com/hefnendurnir ef þið viljið gerast Neðanjarðarbúar. 

Hefnendurnir 209 - Guðinn sem kúkaði standandi 06.03.2026

Ævar hristir af sér veiru og ræðir við Hulla sinn um mennskar puntsvínstennur, dvínun treksins og sjö kraftmiklar framhaldsmyndir.

Hefnendurnir 208 - Gervigestur 27.02.2026

Hulli er aleinn því Ævar er veikur. En ekki örvænta! Hann promptaði til sín gestastjórnanda og saman ræða þau heima og geima. Bæði kjötheima og sæbergeima. 

Hefnendurnir 207 - Ungmenni í vísindavanda, sumarið 1985 20.02.2026

Hulli og Ævar spyrja hvorn annan alveg heilar tvær til þrjár spurningar um Gremlins, bera saman sjálfleikandi hasarhetjur og minnast hins villta vísindasumars áttumiðjunnar áður en þeir gefa Blossa þau props sem hann á skilið. 

Hefnendurnir 206 - Heilög Patreks Swayzla 13.02.2026

Hetjurnar okkar hætta við gerast guðir og gerast maðkar í staðinn er þeir fabúlera um stiklur súpuskálarinnar, hrauna yfir hraunara, troða vampýrum í kynsegin stafrófið og tuða stefnulaust um rómantík.

Hefnendurnir 205 - Rowdy minn Roddy 06.02.2026

Hefnendurnir hringhvolfa augunum yfir Herra Skepnu, velta vöngum yfir verkefnum Vin Diesels, hafa engin svör um hið rétta andlit Hobgoblins og syrgja bestu leikkonu í heimi. 

Hefnendurnir 204 - Þá var kátt í Höllinni 30.01.2026

Samdægurs síðasta þætti en samt viku síðar spjalla Hulli og Ævar enn frekar um stiklu Garps, spá í tilnefningar Óskars og syrgja mikilvægustu menningarstofnun mjóddarinnar. 

Hefnendurnir 203 - Geimhvolpur Skeletors 23.01.2026

Hetjurnar hringjast úr sitthvoru landshorninu og ræða bangera Webbers, illa lyktandi He-Man kalla, framhald Grænlands og grínskrínaða hobbita. 

Hefnendurnir 202 - Suck my fat one 16.01.2026

Hetjurnar okkar láta sig dreyma um útópískt rækjugúmbó, telja saman fjóra fræknustu fjarkana, melta möguleg marvelísk memberber og segja sjáumst við skrítnari hluti.

Hefnendurnir 201 - Gullna Glápan 2025 09.01.2026

ÆvorMan og Hulkleikur veita bíómyndum og sjónvarpsþáttum síðasta árs virtustu ímynduðu bransaverðlaunin landsins.

Hefnendurnir 200 - Close Encounters of the 200th Kind 12.12.2025

ÆvorMan og Hulkleikur halda uppá 200 þátta afmæli með jarðarbúum! Þeir ræða leðurblökur verkalýðsins, slaufuð sagnaskáld, gikkjagleði Hans Óla, partý á öðrum plánetum, sundhallarakyttur, disneydýrablöndur, þrífætta fimmtudaga, leiðinlegar ljósmyndadúkkur, greddu Svals, mennskar sjálfshjálpargeimverur, húðflúraða jólasveina, bennatvennur, sverð, sandala, seiðkarla og íþróttir.

Hefnendurnir 199 - Gormur Ex Machina 05.12.2025

Hetjurnar okkar jafna sig á spurningakeppnis-tráma, fara yfir best of lista sem einhver leikstjóri útí bæ gerði og undirbúa sig undir 200 þátta afmæli.

Hefnendurnir 198 - Udo er ævintýri 28.11.2025

Hetjurnar okkar syrgja Udo og Larry, skrifa ímyndað bréf til Tarantino og spyrja hvorn annan ofurhetjuspjörunum úr. 

Hefnendurnir 197 - Klikkaðar beitur 21.11.2025

Hulkleikur og Ævorman kryfja kveðju Indjána Jóns, brjálast yfir internetbrjáli, eru down with the Downton og mæla með morð-róbótum og róbóta-risaeðlum.

Hefnendurnir 196 - Muna að brjóta nabbann 14.11.2025

Hulli og Ævar baða sig í fortíðarþrá. Fyrst í fjarlægri VHS nostalgíu og svo í nýlegri gláps-upprifjun og komast að óvæntri niðurstöðu um besta marvel þáttinn.

HEFNENDURNIR 195 - The Return of the Saga Continues: The Next Chapter 07.11.2025

Ævor Man og Hulkleikur hafa engu gleymt og snúa aftur eins og ekkert hafi í skorist og tala um framtíð Star Wars, tilvistarkreppu Doctor Who og smekk Marge Simpson.

Hefnendurnir 194 - Hefndurminningar, þriðji hluti 02.12.2020

Hetjurnar okkar halda ótrauðar áfram í upprifjun sinni á tímans rás til að hita upp fyrir spánýja þætti á Storytel.

Hefnendurnir 193 - Hefndurminningar, annar hluti 20.11.2020

Hulkleikur og Ævorman halda áfram niður braut hefndurminninganna í undirbúningi fyrir hefndurkomu Hefnenda á Storytel. Hvað ætli þeir muni í þessum þætti?

Hefnendurnir 192 - Hefndurminningar, fyrsti hluti 17.11.2020

Reboot Hefnenda er handan hornsins og í tilefni þess minnast Hulli og Ævar sinna fyrstu ævintýra sem gerðust fyrir alveg aðeins meira en hálfum áratug síðan.

Hefnendurnir 191 - Kardebombubærinn 23.10.2020

Hulkleikur snýr aftur á klakann og Ævorman treður í hann hamborgurum og bláberjum. Þeir gera sitt besta til að sigrast á kjötsvimanum á meðan þeir ræða um skáskot Jada Pinkett-Smith, Rómarveldið Abrams og mögulegar stafsetningarvillur í víkingaleikjum, áður en Hulli egnir til slagsmála með feitri bombu um Kardemommubæinn.

Hør på podkasten Hefnendurnir i Replaio

Radio og podkaster i én app - gratis og uten registrering. Installer i dag, og ikke gå glipp av lanseringen

Last ned på Google Play

Replaio er ikke podkastutgiver; programnavn, omslag og lyd tilhører opphavspersonene og distribueres via offentlige RSS-feeder.