Sölvi Tryggvason
Sölvi Áskriftarþættir
Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir
Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: solviaskrift1210105.libsyn.com
Autore
Sölvi Tryggvason
Categoria
Sito del podcast
Ultimo episodio
27 set 2026
Dove ascoltare?
I podcast nell'app Replaio Radio In arrivoI podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast
Episodi
#113 Guðni Ágústsson með Sölva Tryggva 16.08.2022 57:41
Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva. Eftir áratugi á þingi og setu í ráðherrastól er Guðni nú kappsamur um að njóta lífsins. Í þættinum ræðir hann um störfin á þinginu, umræðuna í samfélaginu, bætta heilsu og margt fleira.
#112 Ellý Ármanns snýr aftur 10.08.2022 1:23:42
Ellý Ármannsdóttir varð þjóðþekkt eftir að hafa starfað sem þula á Ríkissjónvarpinu um árabil. Hún er óhrædd við að segja skoðanir sínar og fer vægast sagt sínar eigin leiðir í lífinu. Í þættinum ræðir hún um hamingjuna, stöðuna í samfélaginu, mikilvægi þess að standa með sjálfum sér og margt fleira.
#111 Númi Snær Katrínarson með Sölva Tryggva 10.08.2022 2:14:44
Númi Katrínarson er þrautreyndur íþróttamaður og þjálfari, sem á og rekur líkamsræktarstöðina Granda 101. Númi á stórmerkilega sögu og hefur sterkar skoðanir á alls kyns hlutum. Í þættinum er farið yfir menntakerfið, tilgang í lífinu, markmið og ótalmargt fleira
#110 Sara Odds með Sölva Tryggva 10.08.2022 1:55:18
Margrét Sara Oddsdóttir, oftast kölluð Sara Odds, er menntaður lögfræðingur, sem starfar nú sem markþjálfi. Sara hefur tekið margar U-beygjur í lífinu og hikstar ekki við að skipta um takt og vettvang ef ástríðan kallar á það. Í þættinum fara Sara og Sölvi yfir leiðir til að finna ástríðuna í lífinu, elta hjartað og margt fleira
#109 Haraldur Erlendsson snýr aftur 10.08.2022 1:05:14
https://solvitryggva.is/ Haraldur Erlendsson er þrautreyndur geðlæknir sem vann um árabil í Bretlandi. Í þættinum ræða Sölvi og Haraldur um geðheilsu þjóðarinnar eftir Covid, trú og trúarbrögð, líf eftir dauðann og ýmislegt fleira.
#108 Hannes Hólmsteinn með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:38:00
Hannes Hólmsteinn hefur undanfarna áratugi verið einn umdeildasti Íslendingurinn, enda óhræddur við að segja skoðanir sínar. Í þættinum ræða Sölvi og Hannes um hugmyndafræði í stjórnmálum, hægrið og vinstrið, rétttrúnaðinn, ferðalögin til Brasilíu og margt fleira.
#106 Davíð Oddgeirs með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:30:40
Davíð Arnar Oddgeirsson er ungur maður sem gengið í gegnum margt á sinni stuttu ævi. Kynferðisofbeldi, alvarlegt einelti og fleira neyddu Davíð í mikla innri vinnu, sem skilaði sér í hlutum sem hann vill deila með fólki. Í þættinum ræða Davíð og Sölvi um magnaða sögu Davíðs, upplýsingar sem hann hefur fengið til sín úr ýmsum áttum, Covid tímabilið, DNA, breytingar í heiminum og margt margt fleira.
#105 Baldur Freyr með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:16:25
Baldur Freyr Einarsson ólst upp við hrottalegar aðstæður, þar sem harkalegt ofbeldi og neysla voru daglegt brauð. Baldur fór snemma af leið í lífinu og varð sjálfur ofbeldismaður, sem endaði með því að hann varð manni að bana og sat í fangelsi fyrir verknaðinn. Baldur hefur í áraraðir unnið við að hjálpa fólki sem villst hefur af braut í lífinu. Í þættinum ræða Sölvi og Baldur um æsku Baldurs, atv...
#104 Kristín Sigurðardóttir með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:31:10
Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðlæknir vann í áraraðir við bráðalækningar bæði á Íslandi og erlendis. Í þættinum ræða Sölvi og Kristín um lækningar og heilsu, mikilvægi heildrænna lækninga með heilsueflingu og forvörnum mætist, lyklana að því að finna gleði og ástríðu og margt fleira.
#103 Áslaug Arna með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:15:22
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir varð næstyngsti ráðherra Íslandssögunnar þegar hún tók við embætti dómsmálaráðherra. Hún hefur undanfarið verið í eldlínunni í umræðunni, en segist sjálf ekki kippa sér mikið upp við stóryrði margra í hennar garð. Í þættinum ræða Sölvi og Áslaug um grundvallaratriði í stjórnmálum, tímana þegar Áslaug vann á sjónum og í lögreglunni og margt fleira.
#102 Óttar Guðmundsson snýr aftur 01.01.2022 1:34:33
Óttar Guðmundsson geðlæknir snýr aftur í podcastið. Óttar hefur í áraraðir starfað við að aðstoða fólk með geðsjúkdóma, fíknivanda og fleira. Eftir hann liggur fjöldi bóka, allt frá Ævisögu Megasar yfir í ,,Hetjur og Hugarvíl", þar sem Óttar skoðar geðsjúkdóma og persónuleikaraskanir helstu hetjanna úr Íslendingasögunum.
#101 Óli Stef snýr aftur 01.01.2022 1:47:58
Ólafur Stefánsson snýr aftur í Podcastið. Ólafur er löngu orðinn þjóðargersemi. Einn besti handboltamaður allra tíma, sem kom heim með silfurverðlaun frá Olympíuleikunum í Peking. Í þættinum ræða hann og Sölvi um mikilvægi þess að elta draumana, ferðalög Ólafs í lífinu og margt margt fleira.
#100 Tommi á Búllunni 01.01.2022 1:58:58
Tómas Andrés Tómasson er löngu orðin goðsögn í íslensku viðskipta- og veitingalífi. Tommi hefur verið samofin íslenskri matarmenningu í nærri 50 ár, eða allt frá því hann seldi meira en 300 þúsund hamborgara á einu ári eftir stofnun Tommaborgara. Í þættinum fara Sölvi og Tommi yfir lygilegan feril Tómasar, sem spannar allt frá 22 króna hamborgurum á Tommaborgurum yfir í eignarhald á Hard Rock, Búl...
#99 Donna Cruz með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:00:23
Donna Cruz flutti fjögurra ára gömul til Íslands frá Filippseyjum. Hún sló nýlega í gegn fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Agnes Joy, þar sem hún fór með eitt af aðalhlutverkunum. Í þættinum ræða Sölvi og Donna um leiklistina, samfélagsmiðla, falinn rasisma á Íslandi og margt fleira.
#98 Gunnar Smári með Sölva Tryggva 01.01.2022 2:03:10
Gunnar Smári Egilsson er þrautreyndur blaðamaður, útgefandi og ritstjóri, sem hefur unnið við fjölmiðla í áratugi, en hefur nú fært sig á vettvang stjórnmálanna. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um feril Gunnars Smára, íslenska fjölmiðla í gegnum tíðina, samfélagsgerðina, fátækt á Íslandi og margt fleira.
#97 Kári Stefáns snýr aftur 01.01.2022 1:39:26
Kári Stefánsson snýr aftur í Podcastið. Í þættinum fara Kári og Sölvi yfir Covid tímabilið, hve lengi er hægt að halda áfram að grípa inn í líf fólks, mikilvægi þess að óvinsælar raddir fái að heyrast og margt fleira.
#96 Ásgeir Kolbeins með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:33:58
Ásgeir Kolbeinsson var um árabil einn þekktasti útvarpsmaður Íslands og hélt jafnframt úti einum langlífasta sjónvarpsþætti landsins. Hann sneri sér síðar að viðskiptum og varð eigandi vinsælla veitinga- og skemmtistaða í miðbænum. Í þættinum ræða Ásgeir og Sölvi um feril Ásgeirs, fjölmiðla, viðskipti, ástríðu í lífinu og margt fleira.
#95 Pétur Guðmundssson með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:12:25
Pétur Kristján Guðmundsson, kvikmyndagerðarmaður er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Pétur, sem var mikill útivistargarpur, lamaðist í slysi í Austurríki fyrir 10 árum. Hann neitaði að gefast upp, þrátt fyrir að læknar hafi sagt honum að hann myndi aldrei geta staðið upp aftur. Stóra áfallið hjá Pétri var ekki slysið sjálft, heldur þegar hann áttaði sig á því 2-3 árum síðar að hann...
#94 Héðinn Unnsteinsson með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:53:57
Héðinn Unnsteinsson, sérfræðingur í forsætisráðuneytinu og formaður Geðhjálpar er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Héðinn, sem starfaði um árabil hjá Alþjóða Heilbrigðisstofnunninni, hefur síðastliðin 25 ár unnið að geðheilbrigðismálum. Í þættinum ræða Héðinn og Sölvi um geðlækningar, mannlegt eðli, baráttu Héðins við geðhvarfasýki og margt margt fleira.
#93 Svanhildur Hólm með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:41:33
Svanhildur Hólm Valsdóttir er ein reyndasta fjölmiðlakona Íslands og starfaði um árabil við þáttagerð og ritstjórn á bæði RÚV og Stöð 2. Í þættinum ræða Sölvi og Svanhildur um feril Svanhildar, stöðuna í íslenskum fjölmiðlum, störfin í stjórnmálum og margt fleira.
#92 Jón Ásgeir með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:45:28
Jón Ásgeir Jóhannesson er einn þekktasti viðskiptamaður Íslandssögunnar. Á árunum fyrir hrun var Baugur Group fyrirtæki hans með meira en 50 þúsund starfsmenn. Svo kom hrunið, og allt það sem á eftir fylgdi. Í þættinum ræða Sölvi og Jón um feril Jóns, eitt hatrammasta tímabil Íslandssögunnar, dómsmálin, seinni hálfleik og margt fleira.
#91 Róbert Wessman með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:37:07
Róbert Wessman er stofnandi Alvotech og Alvogen. Í þættinum ræða Sölvi og Róbert um feril Róberts, hjólreiðar, alvarlegt slys sem Róbert varð fyrir, eftirmálana af því, Covid tímabilið og margt margt fleira.
#90 Einar Hansberg með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:08:53
Einar Hansberg er stórmerkilegur maður sem hefur slegið fleiri en eitt heimsmet í þágu góðra málefna. Nýjasta metið var að lyfta meira en 520 tonnum í réttstöðulyftu á einum sólarhring. 500 kílómetra róður, sund í tvo sólarhringa samfleytt og sitthvað fleira er einnig á afrekaskrá Einars, sem sjálfur segist ofur venjulegur maður, sem vill leggja sitt að mörkum til að gera heiminn aðeins betri.
#89 Haraldur Erlendsson með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:34:10
Haraldur Erlendsson er þrautreyndur geðlæknir sem starfaði um árabil í Bretlandi og síðar sem forstjóri Heilsustofnunar í Hveragerði. Í þættinum ræða Sölvi og Haraldur um hugvíkkandi efni, sem Haraldur segir stærstu byltingu í sögu geðlæknisfræðinnar. Þá fara þeir líka yfir stöðu læknisfræðinnar árið 2021, lífsstílssjúkdóma og margt fleira.
#88 Erna Kristín með Sölva Tryggva 01.01.2022 1:14:09
Erna Kristín Stefánsdóttir er guðfræðingur og samfélagsmiðlastjarna sem hefur vakið mikla athygli fyrir skrif sín um líkamsímynd. Hún hefur undanfarið rætt við mikinn fjölda barna og unglinga og ætlar að halda því áfram. Í þættinum fara Sölvi og Erna yfir sögu Ernu, kosti og galla samfélagsmiðla og margt margt fleira.
Podcast simili
Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici