Sölvi Tryggvason

Sölvi Áskriftarþættir

Education IS ↓ 486 episodi

Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir

Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: solviaskrift1210105.libsyn.com

Autore

Sölvi Tryggvason

Categoria

Education

Ultimo episodio

27 set 2026

Dove ascoltare?

I podcast nell'app Replaio Radio In arrivo

I podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast

Scaricala su Google Play Installala gratis Android quasi 10 mln di download · valutazione 4,8 iOS in arrivo

Episodi

#214 Gísli Gíslason með Sölva Tryggva 10.09.2023

Gísli Gíslason athafnamaður hefur átt ótrúlega viðburðaríkt líf. Maðurinn sem kom með Teslu til Íslands, hefur ferðast til 70 landa og er á leiðinni upp í geim. Í þættinum ræða Sölvi og Gísli um magnað lífshlaup Gísla, frumkvöðladrifkraftinn, hamingjuríkt líf og margt margt fleira.  

#213 Páll Magnússon með Sölva Tryggva 03.09.2023

Páll Magnússon er einn reyndasti fjölmðlamaður Íslandssögunnar. Í þættinum ræða Sölvi og Páll um magnaðan feril Páls, sögur í gegnum tíðina, stöðu fjölmiðla, baráttuna við Bakkus og margt fleira.

#212 Þór Guðnason með Sölva Tryggva 29.08.2023

Þór Guðnason hefur unnið við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í áratugi. Í þessum þætti ræða Sölvi og Þór um heilsu, stöðuna í samfélaginu, rétttrúnaðinn, hugvíkkandi efni, kerfið og fleira.

#211 Birkir Vagn með Sölva Tryggva 27.08.2023

Birkir Vagn Ómarsson er einkaþjálfari og íþróttafræðingur. Í þættinum ræða Sölvi og Birkir um heilsu, samfélagsmál, Covid-tímabilið, feril Birkis og margt fleira.

#210 Arnar Þór með Sölva Tryggva 20.08.2023

Arnar Þór Jónsson er lögfræðingur og varþingmaður sem hefur vakið athygli fyrir hugrekki og að hiksta ekki við að tala um mál sem aðrir snerta ekki á. Í þættinum ræða Arnar og Sölvi um fasisma, frelsi, hlutverk ríkisins, mikilvægi hugrekkis og margt fleira.

#209 Magnús Skjöld með Sölva Tryggva 13.08.2023

Magnús Árni Skjöld Magnússon er stjórnmálafræðingur og háskólakennari. Í þættinum ræða Magnús og Sölvi um það hvernig Magnús endaði sem yogakennari í Kabúl í Afghanistan, nýja bók Magnúsar, samfélagsmál og margt fleira.

#208 Sigursteinn Másson með Sölva Tryggva 07.08.2023

Sigursteinn Másson varð þjóðþekktur sem ungur fréttamaður á Stöð 2. Í þættinum ræða Sölvi og Sigursteinn um feril Sigursteins, Sönn íslensk sakamál, íslenskt samfélag og margt fleira.

#206 Sebastian Prentice með Sölva Tryggva 25.07.2023

Sebastian Prentice er 25 ára gamall íþróttamaður sem varð að þroskast mjög hratt vegna fjölskylduaðstæðna. Hann á og rekur líkamsræktarstöð í Cape Town í Suður Afríku. Nýlega hljóp hann 100km utanvegahlaup og tók 180 kílógrömm í bekkpressu á sama tíma, sem er afrek sem aðeins örfáir jarðarbúar gætu leikið eftir. Í þættinum ræða Sölvi og Sebastian um heilsu, hugarfar, samfélagsmál og margt fleira.

#205 Óskar Hallgrímsson með Sölva Tryggva 23.07.2023

Óskar Hallgrímsson er ljósmyndari og listamaður sem á einum degi varð stríðsfréttaritari Íslands í Úkraínu. Hann og konan hans búa í höfuðborg Úkraínu og ákváðu að vera áfram í borginni þegar stríðið byrjaði. Í þættinum ræða Sölvi og Óskar um ótrulega hluti sem Óskar hefur upplifað eftir að hafa farið á verstu svæðin í stríðinu og í gegnum tímann síðan stríðið byrjaði, sögu Óskars og margt fleira.

#204 Bogi Ágústsson með Sölva Tryggva 19.07.2023

  Bogi Ágústsson er líklega þekktasti fjölmiðlamaður Íslands eftir áratugi á skjám landsmanna. Í áður óbirtum þætti ræða Sölvi og Bogi um magnaðan feril Boga, stöðuna á fjölmiðlum nútímans, samfélagsmál og margt fleira

#203 Sorelle Amore með Sölva Tryggva 16.07.2023

Sorelle Amore er ung ævintýrakona sem hefur með mikilli elju og dugnaði náð milljónum fylgjenda á samfélagsmiðlum. Hún fæddist í Ástralíu en ákvað að kaupa sér flugmiða aðra leið til Íslands. Í þættinum ræða Sölvi og Sorelle um ótrúlega vegferð Sorelle, ævintýrin í gegnum tíðina, leiðir til að elta draumana og fylgja ástríðunni og margt margt fleira.

#202 Gummi Kíró með Sölva Tryggva 09.07.2023

Guðmundur Birkir Pálmason eða Gummi Kíró hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og byrjaði snemma að nota óhefðbundnar leiðir til að auglýsa störf sín. Í þættinum ræða Sölvi og Gummi um heilsu, álit annarra, samfélagsmiðla og margt margt fleira.

#201 Aron Can með Sölva Tryggva 05.07.2023

Aron Can varð stjarna í íslensku tónlistarlífi sem unglingur og eftir það var ekki aftur snúið. Í áður óbirtum þætti ræða Sölvi og Aron um feril Arons, tónlistarlífið, mikilvægi þess að fylgja ástríðunni og margt fleira.

#200 Sigmundur Ernir með Sölva Tryggva 02.07.2023

Sigmundur Ernir Rúnarsson er einn reyndasti fjölmiðlamaður Íslands og hefur ritstýrt fjölda miðla á áratugalöngum ferli. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmundur um fjölmiðlun nútímans, helstu samfélagsmál, þöggun, framtíð fjölmiðlunar og margt fleira.

#199 Sölvi og Sigurjón Ernir 27.06.2023

Sigurjón Ernir er ofuhlaupari og sérfræðingur í heilsu. Hann settist niður með Sölva og þeir skiptu um hlutverk, þar sem Sigurjón spyr Sölva út í heilsu, bókina ,,Á Eigin Skinni", daglega rútínu og margt fleira.

#198 Gunnar Smári með Sölva Tryggva 25.06.2023

Gunnar Smári Egilsson er þrautreyndur blaðamaður, ristjóri og samfélagsrýnir. Í þættinum stikla Sölvi og Gunnar Smári á stóru um stöðuna í samfélaginu, menningarstríðið, stéttskiptingu og margt fleira.

#197 Hafþór Júlíus með Sölva Tryggva 21.06.2023

Hafþór Júlíus Björnsson er aflraunamaður, leikari og samfélagsmiðlastjarna um allan heim. Í áður óbirtum þætti ræða Sölvi og Hafþór um feril Hafþórs, Game of Thrones, aflraunirnar og margt fleira.

#196 Sara Páls snýr aftur 18.06.2023

Sara Pálsdóttir er lögfræðingur, sem nú starfar nær eingöngu sem dáleiðari. Sara var langt leidd í fíkn, verkjum og sjálfshatri þegar hún fann leiðina út og  eftir það var ekki aftur snúið. Sara snýr aftur til Sölva og fara þau yfir allt frá leiðum til að bæta andlega heilsu yfir í sögu Söru og samfélagsmál.

#195 Kalli Snæ snýr aftur 14.06.2023

Guðmundur Karl Snæbjörnsson er þrautreyndur læknir sem var útskúfað í faraldrinum fyrir að tala gegn línu stjórnvalda. Honum var hótað kærum og fangelsisvist af hinu opinbera og segir læknum hafa verið bannað að fara eftir sannfæringu sinni. Í þættinum ræða Sölvi og Guðmundur um stöðuna í samfélaginu, hvað við getum lært af faraldrinum og næstu skref.

#194 Þorbjörg Hafsteinsdóttir með Sölva Tryggva 11.06.2023

Þorbjörg Hafsteinsdóttir er hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í öllu sem snýr að heilsu. Bækur hennar hafa vakið athygli víða um heim og Þorbjörg var vel á undan sinni samtíð í mörgu sem hún fjallar um í bókunum. Í þættinum ræða Sölvi og Þorbjörg um lífshlaup Þorbjargar, heilsu, samfélagsmál og fleira.

#193 Götustrákar með Sölva Tryggva 06.06.2023

Bjarki Viðarsson og Aron Mímir Gylfason eru götustrákar. Þeir hafa báðir komið til baka inn í lífið eftir áralanga neyslu og vilja nú láta gott af sér leiða. Í þættinum ræða Sölvi og götustrákar um lífshlaup strákanna, skilaboð samfélagsins, tilganginn og margt fleira.

#192 Guðrún Bergmann snýr aftur 04.06.2023

Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki og margt fleira. Í þættinum fara Sölvi og Guðrún yfir samfélagsmál, heilsu, fjölmiðla, samsæriskenningar og fleira.

#191 Ben Brown með Sölva Tryggva 30.05.2023

Benjamin Brown er frumkvöðull sem hefur farið eigin leiðir í lífinu. Hann náði hratt nærri milljón fylgjendum á samfélagsmiðlum, en var settur í bann fyrir að gagnrýna aðgerðir í heimsfaraldrinum. Í þættinum ræða Sölvi og Ben um karlmennsku, hugrekki, breytingarnar í heiminum og margt fleira.

#190 Ólafur Halldórsson með Sölva Tryggva 28.05.2023

Ólafur Halldórsson gjörbeytti lífi sínu eftir bakpokaferðalag um Afríku sem endaði með því að hann stofnaði munaðarleysingjaheimili í Kenýa. Hann hafði í áraraðir ferðast um allan heim í leit að bestu fíkniefnum veraldar, meðal annars í Marokkó,Indlandi og Pakistan. Á ótrúlegan hátt náði hann að komast til baka úr neyslunni og í dag er líf hans helgað starfinu í Afríku.

#189 Gunnar Wium með Sölva Tryggva 21.05.2023

Gunnar Wium kennari og hlaðvarpsstjórnandi hefur marga fjöruna sopið. Allt frá mikilli neyslu sem sendi hann alveg á botninn yfir í andlega vakningu. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um stórmerkilega sögu Gunnars, lyfjafyrirtækin, hugvíkkandi efni, stöðu samfélagsins og margt fleira.

Ascolta il podcast Sölvi Áskriftarþættir su Replaio

Radio e podcast in un'unica app - gratis e senza registrazione. Installala oggi e non perderti il lancio

Scaricala su Google Play

Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici