Fjölnir Gísla & Vilhelm Neto

Já OK

History IS ↓ 244 episodi

Já OK eru skemmtilegir hlaðvarpsþættir með Vilhelm Neto og Fjölni Gíslasyni þar sem þeir skoða alla skrýtnu hlutina sem einu sinni voru aðal málið á Íslandi en hafa síðan horfið. Það man enginn lengur eftir kaffibæti og beta spólum, er það nokkuð?

Autore

Fjölnir Gísla & Vilhelm Neto

Categoria

History

Ultimo episodio

15 ott 2026

Dove ascoltare?

I podcast nell'app Replaio Radio In arrivo

I podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast

Scaricala su Google Play Installala gratis Android quasi 10 mln di download · valutazione 4,8 iOS in arrivo

Episodi

Álfatrú 09.10.2019

Í þessum þætti af Já OK! spurja Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto hvorn annan hvort þeir trúi á álfasögur, fræðast svo um uppruna álfatrúarinnar og krifja til mergjar hvernig bílum álfar keyra á. Trúir þú á álfasögur?

Sædýrasafnið í Hafnarfirði 02.10.2019

Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um ákveðið dýrasafn í Hafnarfirði sem kennt var við sædýr, en þar gastu heldur betur séð fleiri dýr en bara sædýr. Ekki var æskilegt að klappa þeim þó það var stundum hægt með því að teygja sig inn fyrir girðinguna. Við kynnum Sædýrasafnið í Hafnarfirði.

Geimverur á Snæfellsjökli 25.09.2019

Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um stórmerkileg atburð sem skeði ekki, en margir héldu og spáðu að myndi ske. Erum við ein í heiminum? Eða eru aðrar vitsmunaverur á meðal okkar í alheiminum? Er bóndinn að segja satt? Og þurfa geimverur kannski mögulega að kaupa sér ný geimskip? Allt þetta í þessum þætti af Já OK! Geimverur á Snæfellsjökul!

Lató hagkerfið 18.09.2019

Í þessum þætti af Já OK! gera Fjölnir Stirði og Vilhelm Níski nokkrar hollustu armbeygjur, fá sér svo sykurskert skyr á meðan þeir fjalla um hollasta hagkerfið sem Íslands hefur átt!

Vímulaust Ísland 11.09.2019

Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um vímulaust Ísland árið 2002. Strákarnir tóku upp þáttinn í beinni í Endalausa útvarpinu.

Borðspil 04.09.2019

Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason (Eldarin - Wizard) og Vilhelm Neto (Half-Orc - Rogue) um nokkur vel valin íslensk borðspil og uppruna þeirra.

Sveitasíminn 28.08.2019

Þetta eru Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto, halló halló, í þessum þætti af Já OK! halló, fjöllum við um sveitasímann.

Þorskastríðin 21.08.2019

Í þessum þætti af Já OK! sigla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um Atlantshaf á lítilli trillu með Hauk Morthens í botni, tilbúnir með togvíraklippurnar til að verja landhelgina okkar. Bretar skulu passa sig!

Vistarbandið 14.08.2019

Í þessum þætti af Já OK! stíga Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto til nýaldar og reyna að leysa þá stóru stærfræðiþraut hvað eitt kúgildi var mikið. Ari á eina kú en Stína á sex kýr. Hversu margar kýr þarf Stína að gefa Ara til þess að hann geti borgað sig úr vistarbandinu?

Kanasjónvarpið 07.08.2019

Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um bzzz&%!#? We interrupt this program with a very special announcement all the way from RÚV where Fjölnir Gíslason and Vilhelm Neto will talk about the Armed Forces Radio and Television Service Keflavik or AFRTS Keflavik, aka Radio TFK, aka Kanasjónvarpið!

Bjarni Björnsson 31.07.2019

Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um Bjarna Björnsson...bíddu ha? hver?

Íslenzka 24.07.2019

Þeir húskarlar; Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto gera góð skil, íslenskri tungu og uppruna orðanna í kapítula þessum af þættinum Já OK!

Hnakkamenningin 17.07.2019

Í þessum þætti af Já OK! skella Sjomleh og Hómí í sig geli og strípum á meðan þeir fjalla um þann lífstíl sem við köllum hnakkamenningu. Þessi þáttur ætti að hljóma vel í öllum bassaboxum aftan í Hondu Civic bílum. Umts Umts Umts!

Borgarkringlan 10.07.2019

Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um uppruna kringlunar, verslunarkjarna fyrir bíla og koma með frábæra lausn á hvað skal gera við flugvöllinn í Reykjavík. Gleeeeðileg Jóóóól!

Hemmi Túkall 03.07.2019

Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um engan annan en Hemma Túkall, sem sópaði að sér smápeningum og miðað við menntun hans þá má segja að hann hafi tekið Bubba í bakaríið í túkallatogi.

Gamlar íslenskar íþróttir 26.06.2019

Í þessum þætti af Já OK! stíga Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto inn í hringinn, heilsast, koma saman, taka stöðu, taka tökum og glímast við gamlar íslenskar íþróttir.

Bjórlíki 19.06.2019

Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um bjórlíki, hið fræga bjórbann og snerta svo aðeins á því sorgaratviki þegar McDonalds hætti á Íslandi

Tímaflakkarinn 12.06.2019

Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um fyrsta íslenska tölvuleikinn og opna upp á gátt sinn innri tölvunörd. Bíbb búbb bíbb babb, insert disk...loading...loading

Kaffibætir 05.06.2019

Í þessum fyrsta þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um kaffibæti, en hann notuðu Íslendingar um árabil til að drýgja alvöru kaffi. Það var þó einn sem ekki var hrifinn af bætinum, sjálfur Halldór Kiljan Laxness.

Ascolta il podcast Já OK su Replaio

Radio e podcast in un'unica app - gratis e senza registrazione. Installala oggi e non perderti il lancio

Scaricala su Google Play

Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici