RÚV
Í ljósi sögunnar
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: www.ruv.is
Dove ascoltare?
I podcast nell'app Replaio Radio In arrivoI podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast
Episodi
Dauði Tasmaníutígursins 02.12.2016 38:43
Í þættinum er fjallað um sorgleg örlög Tasmaníutígursins, einstakrar rándýrategundar sem var einungis að finna á eyjunni Tasmaníu við Ástralíu. Varla leið öld frá því að Evrópumenn hófu landnám á Tasmaníu þar til tígurinn var útdauður, fórnarlamb ofveiða og rógburðar manna.
Flugslysið í Smólensk 25.11.2016 39:33
Í þættinum er fjallað um það þegar þota sem flutti Lech Kaczynski, forseta Póllands, og fleiri pólsk fyrirmenni fórst við lendingu í Smólensk í Rússlandi í apríl 2010. Allir um borð fórust og slysið varð pólsku þjóðinni mikið reiðarslag.
Daniel Ortega 18.11.2016 39:55
Í þættinum er fjallað um stormasama sögu Níkaragva í Mið-Ameríku og sér í lagi ævi og feril Daniels Ortega, sem nýverið var kjörinn forseti landsins í þriðja sinn, en hann var áður leiðtogi skæruliðahreyfingar Sandínista sem tók völdin í Níkaragva í byltingu árið 1979.
Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 1948 11.11.2016 38:09
Fjallað um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 1948, og ein óvæntustu kosningaúrslit bandarískrar stjórnmálasögu, þegar forsetinn Harry Truman kom öllum að óvörum og sigraði andstæðing sinn, Repúblikanann Thomas Dewey. Þátturinn var áður á dagskrá í febrúar.
Þjóðarmorðið í Namibíu 04.11.2016 38:08
Í þættinum er fjallað um fyrsta þjóðarmorð tuttugustu aldarinnar, þegar þýskir nýlenduherrar í því sem nú er Namibía í Suðvestur-Afríku réðust af fullum þunga að hirðingjaþjóð Hereróa sem hafði lítið gert þeim annað en að reyna að krefjast réttar síns gegn yfirgangi Þjóðverja. Tugþúsundum var þá útrýmt á þaulskipulagðan hátt af þýskum hermönnum, fólk látið veslast upp í skraufþurri eyðimörkinni eð...
Nárú 28.10.2016 40:07
Í þættinum er fjallað um eyjuna Nárú í Kyrrahafi, eitt minnsta sjálfstæða ríkis í heimi. Nárú fór á örfáum áratugum frá því að vera eitt ríkasta lands heims til gjaldþrots, og hefur verið í fréttum síðustu misseri vegna umdeildra flóttamannabúða sem eyjaskeggjar reka fyrir áströlsk stjórnvöld. Meðal þess sem einnig kemur við sögu í lygilegru sögu Nárú er fugladrit, bresk popphljómsveit, Leonardo d...
Bhumibol Taílandskonungur 21.10.2016 40:09
Í þættinum er fjallað um ævi Bhumibols Adulyadej, sem ríkti sem konungur Taílands í sjö áratugi, frá 1946 og allt þar til hann lést. Konungurinn var elskaður og dáður af þjóð sinni en ekki yfir það hafinn að blanda sér í stjórnmál Taílands, og ævisaga hans er samofin sögu Taílands síðustu áratugina.
Aleppó II 14.10.2016 40:07
Síðari þáttur af tveimur um sögu hinnar stríðshrjáðu borgar Aleppó í Sýrlandi. Í þessum þætti er sjónum beint að þeim rúmlega fjögur hundruð árum sem borgin var á valdi Tyrkjasoldáns. Það tímabil í sögu borgarinnar einkenndist lengi vel af uppgangi og friðsæld, en þegar tuttugasta öldin nálgaðist var friðurinn úti.
Aleppó 07.10.2016 38:35
Í þættinum er fjallað um sögu borgarinnar Aleppó í norðanverðu Sýrlandi, sem orðið hefur hvað verst úti í sýrlensku borgarastyrjöldinni. Aleppó hefur lengi verið viðskiptamiðstöð Sýrlands og er jafnframt meðal þeirra borga heims sem á sér lengsta sögu óslitinnar búsetu. Í gegnum aldirnar og árþúsundin hafa ótal innrásarherir og konungsríki komið og farið, en borgin alltaf verið á sínum stað.
Norður-Kórea II 30.09.2016 39:36
I þættinum er fjallað nánar um sögu Norður-Kóreu, stjórnarhætti stofnanda ríkisins Kim Il Sung sem og valdatíð sonar hans Kim Jong-il, en fljótlega eftir að hann tók við stjórninni varð hryllileg hungursneyð í Norður-Kóreu sem talið er að hafi orðið allt að þremur milljón manns að bana.
Kim Il-sung 23.09.2016 43:59
Í þættinum er fjallað um tildrög þess að Kóreuskaganum var skipt upp í Norður- og Suður-Kóreu, ævi fyrsta leiðtoga Norður-Kóreu, einræðisherrans Kim Il-sung, og upphaf kjarnorkuáætlunar norðurkóreska ríkisins.
Týndi Franklin-leiðangurinn 16.09.2016 40:00
Í þættinum er fjallað um leiðangur breska landkönnuðarins John Franklins í Norður-Íshaf í leit að norðvestursiglingaleiðinni. Franklin hvarf sporlaust á leiðinni og aldrei hefur fengist fullkomlega á hreint hvað varð af honum, tveimur skipum hans og 130 manna áhöf, en nýverið fannst annað skipa hans á botni við kanadíska heimskautaeyju.
Islam Karimov og Úsbekistan 09.09.2016 39:22
Í þættinum er fjallað sögu Úsbekistan á síðustu áratugum. Sagt er frá ævi og valdatíð Islams Karimovs, einræðisherrans miskunnarlausa sem nýlega féll frá, og var meðal annars alræmdur fyrir að láta sjóða andófsmenn lifandi, og sömuleiðis litríkri dóttur Karimovs, Gulnöru, sem var ríkasta kona Úsbekistan, dreymdi um að verða alþjóðleg poppstjórna, en lenti svo upp á kant við föður sinn og lenti í s...
Íslamska ríkið II 02.09.2016 38:42
Síðari þáttur af tveimur um sögu hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki, hafa á síðustu árum lagt undir sig landsvæði í Írak og Sýrlandi og staðið á bak við ótal hryðjuverk um heim allan. Í þessum síðari þætti er fjallað um það hvernig hópur hryðjuverkamanna í Írak notfærði sér upplausnina í grannríkinu Sýrlandi til að kveða sér hljóðs, og uppgang núverandi leiðtoga samtakanna, Abu...
Rætur Íslamska ríkisins 26.08.2016 41:11
Þátturinn er annar af tveimur um rætur og upphaf hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki og hafa á síðustu árum lagt undir sig landsvæði í Írak og Sýrlandi og staðið á bak við ótal hryðjuverk og ódæðisverk um heim allan. Í þessum fyrri þætti er farið yfir ævi og ferils Jórdaníumannsins miskunnarlausa Abu Musab Al-Zarqawi, sem notfærði sér ólguna í kjölfar innrásar Bandaríkjamanna í Í...
Raoul Wallenberg 12.08.2016 38:58
Í þættinum er fjallað um ráðgátuna um sænska stjórnarerindrekann Raoul Wallenberg sem bjargaði lífi þúsunda gyðinga í Búdapest í seinni heimsstyrjöld en hvarf svo sporlaust í stríðslok.
Stonewall 05.08.2016 40:42
Í þættinum er fjallað um atburð sem markaði vatnaskil í réttindabaráttu samkynhneigðra og hinsegin fólks í Bandaríkjunum og á heimsvísu, gestir á Stonewall Inn, næturklúbbi fyrir homma og hinsegin fólk í Greenwich Village í New York risu upp gegn lögreglumönnum sem ætluðu að loka staðnum, sumarið 1969.
Valdaránið í Grikklandi 1967 29.07.2016 40:05
Í skjóli nætur þann 21. apríl 1967 tóku nokkrir hægrisinnaðir herforingjar öll völd í Grikklandi í hendur sér, settu herlög, bönnuðu stjórnmálaflokka og allt andóf og fangelsuðu þúsundir manna. Herinn stjórnaði Grikklandi næstu sjö árin. Fjallað er um aðdraganda og ástæður valdaránsins, hlutskipti almennings á herstjórnarárunum, skammlífa uppreisn stúdenta í Aþenu og það sem að lokum varð herforin...
Indland og Pakistan II 15.07.2016 35:03
Seinni þáttur um skiptingu bresku nýlendunnar Indlands í tvö sjálfstæð ríki, Indland og Pakistan, árið 1947. Í þessum þætti er fjallað um eftirmál skiptingarinnar og hlutskipti almennra borgara í báðum nýju ríkjunum, en allt að fimmtán milljónir manna hröktust á flótta eftir skiptinguna og hundruð þúsunda féllu í átökum eða fórust á flóttanum. Lesarar: Bjarni Pétur Jónsson. Guðmundur Björn Þorbjör...
Indland og Pakistan 08.07.2016 39:23
Í þættinum er fjallað um skiptingu bresku nýlendunnar Indlands í tvö sjálfstæð ríki, Indland og Pakistan, árið 1947, aðdraganda skiptingarinnar og þær ómældu hörmungar sem þær höfðu í för með sér fyrir borgara beggja nýju ríkjanna. Lesari: Tryggvi Aðalbjörnsson.
Victoria Woodhull 01.07.2016 37:44
Í þættinum er fjallað um lygilega ævi baráttukonunnar Victoriu Woodhull, sem árið 1872 varð fyrsta konan til að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna, mörgum áratugum áður en bandarískar konur fengu kosningarétt. Hún var sömuleiðis með fyrstu kvenkyns verðbréfasölum á Wall Street, sjáandi, tugthúslimur, og boðberi frjálsra ásta löngu á undan sinni samtíð.
Rodrigo Duterte 10.06.2016 35:33
Í þættinum er fjallað um Rodrigo Duterte, nýkjörinn forseta Filippseyja, sem hefur verið kallaður „hinn filippeyski Donald Trump“ vegna stefnumála sinna og yfirlýsinga. Hann hefur meðal annars hvatt almenning til að myrða glæpamenn og er sakaður um stuðning við dauðasveitir.
Podcast simili
Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici