RÚV

Í ljósi sögunnar

Society IS ↓ 446 episodi

Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.

Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: www.ruv.is

Autore

RÚV

Categoria

Society

Sito del podcast

www.ruv.is

Ultimo episodio

25 set 2026

Dove ascoltare?

I podcast nell'app Replaio Radio In arrivo

I podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast

Scaricala su Google Play Installala gratis Android quasi 10 mln di download · valutazione 4,8 iOS in arrivo

Episodi

Gíslataka í leikhúsi í Moskvu 27.10.2017

Fimmtán ár eru um þessar mundir frá því að téténskir hryðjuverkamenn tóku um 900 manns í gíslingu í leikhúsi í Moskvu. Í þættinum er atburðarásinni þessa októberdaga í Moskvu 2002 lýst. Umsátri um leikhúsið lauk með harmleik og dauða meira en hundrað gísla, og enn í dag er spurningum ósvarað um málið.

Gíslataka í leikhúsi í Moskvu 27.10.2017

Fimmtán ár eru um þessar mundir frá því að téténskir hryðjuverkamenn tóku um 900 manns í gíslingu í leikhúsi í Moskvu. Í þættinum er atburðarásinni þessa októberdaga í Moskvu 2002 lýst. Umsátri um leikhúsið lauk með harmleik og dauða meira en hundrað gísla, og enn í dag er spurningum ósvarað um málið.

Xi Jinping 20.10.2017

Í þættinum er fjallað um ævi eins valdamesta manns heims, Xi Jinping, formanns kínverska kommúnistaflokksins og forseta Kína. Xi var af kommúnískum aðalsættum en varði þó táningsárum sínum við erfiðisvinnu í helli í afskekktri sveit.

Kúrdar í Írak 13.10.2017

Í þættinum er fjallað um baráttu Kúrda í Írak fyrir sjálfstæðu ríki. Kúrdískir uppreisnarmenn háðu tvö mannskæð stríð við írösk stjórnvöld á sjöunda og áttunda áratug 20. aldar, en það voru jafnframt miklir umbrotatímar í sögu Íraks.

Port Arthur-fjöldamorðin og skotvopn í Ástralíu 06.10.2017

Í þættinum er fjallað um fjöldamorðin í Port Arthur í Ástralíu árið 1996, þegar ungur maður myrti 35 og særði fjölda manns í mannskæðustu skotárás í ástralskri sögu. Morðin urðu til þess að áströlsk stjórnvöld settu stranga skotvopnalöggjöf og gerðu hundruð þúsunda öflugra skotvopna upptæk, aðgerðir sem stundum eru nefndar sem möguleg fyrirmynd að herðingu skotvopnalaga í Bandaríkjunum. Þátturinn...

Min Kóreudrottning 29.09.2017

Í þættinum er fjallað um tildrög þess að Kórea varð japönsk nýlenda í upphafi tuttugustu aldar og endalok hins aldagamla kóreska konungsríkis. Þar kemur við sögu síðasta drottning Kóreu, Min, ein merkilegasta kona kóreskrar sögu, sem komst til valda í karllægu ríki með bæði kænsku og hörku, reyndi að standa uppi í hárinu á Japönum en galt að lokum fyrir með lífi sínu. Umsjón: Vera Illugadóttir.

Saga risapöndunnar II 22.09.2017

Síðari þáttur af tveimur um sögu pandabjarna. Í þessum þætti er meðal annars fjallað um einn frægasta pandabjörn tuttugustu aldar, Chi-Chi, sem flæktist inn í kalda stríðið, heimsókn Richards Nixon Bandaríkjaforseta til Kína og pandabirnina sem komu í kjölfarið til Bandaríkjanna.

Saga risapöndunnar 15.09.2017

Í þættinum er fjallað um eitt umtalaðasta dýr dýraríkisins, hinn svarthvíta pandabjörn. Í þessum fyrri þætti af tveimur um sögu pöndunnar er fjallað meðal annars um það þegar vestrænir menn komust fyrst í kynni við pöndur, fyrsta pönduæðið, þegar bandarísk kona veiddi fyrst Vesturlandabúa lifandi pönduhún og fór með hann til New York, svo og fyrstu dæmi þess að pöndur væru fluttar milli landa í pó...

Stofnun Norður-Kóreu 08.09.2017

Í þættinum er fjallað um tildrög þess að Kóreuskaganum var skipt upp í Norður- og Suður-Kóreu eftir seinni heimsstyrjöld, ævi fyrsta leiðtoga Norður-Kóreu, einræðisherrans Kim Il-Sung, og upphaf kjarnorkuáætlunar norðurkóreska ríkisins. Þátturinn var áður á dagskrá í september 2016.

Angela Merkel 01.09.2017

Í þættinum er fjallað um einn áhrifamesta stjórnmálamann samtímans, Angelu Merkel Þýskalandskanslara. Sagt er frá uppvexti hennar sem prestsdóttir í Austur-Þýskalandi, ferli í eðlisfræðirannsóknum, kynni af leyniþjónustunni Stasi og undraverðs uppgangs hennar í pólitík eftir fall Berlínarmúrsins.

Bandarískir nasistar 25.08.2017

Í þættinum er fjallað um Þýsk-bandaríska bandalagið, nasistasamtök sem starfrækt voru af Bandaríkjamönnum af þýskum ættum á árunum fyrir seinni heimsstyrjöld, með þýska nasistaflokkinn sem fyrirmynd.

Bandarískir nasistar 25.08.2017

Í þættinum er fjallað um Þýsk-bandaríska bandalagið, nasistasamtök sem starfrækt voru af Bandaríkjamönnum af þýskum ættum á árunum fyrir seinni heimsstyrjöld, með þýska nasistaflokkinn sem fyrirmynd.

Farúk Egyptalandskonungur 18.08.2017

Sumarið 1952 rændu herforingjar, með Gamal Abdúl Nasser í broddi fylkingar, völdum í Egyptalandi. Þeir steyptu þá af stóli konungi landsins, Farúk. Farúk er í dag helst minnst fyrir yfirgengilega eyðslusemi, fjárhættuspil, kvennafar og ofát. Hann lifði hátt bæði sem konungur, og í útlegð í Evrópu á síðustu árum ævinnar, og át sig á endanum í hel.

11.08.2017
04.08.2017
04.08.2017
28.07.2017
28.07.2017
21.07.2017
14.07.2017
07.07.2017
30.06.2017
Taiping-uppreisnin 23.06.2017

Í þættinum er fjallað um Taiping-uppreisnina í Kína um miðja nítjándu öld, þegar maður sem taldi sig son Guðs leiddi milljón manna her gegn Kínakeisara, með þeim afleiðingum að minnsta kosti tuttugu milljón manns týndu lífi.

Hundar í kapphlaupi við dauðann 16.06.2017

Veturinn 1924-1925 ógnaði barnaveikifaraldur afskekktri byggð í Norður-Alaska. Byrgðir bæjarlæknisins af mótefni við barnaveiki voru fljótt á þrotum, og aðeins ein leið fær til að flytja meira mótefni til bæjarins: með hundasleða. Á nokkrum janúardögum unnu hugdjarfir menn og hundar því ótrúlegt afrek og fluttu viðkvæmt mótefnið þúsund kílómetra leið í nístingskulda og kafaldsbyl.

Sex daga stríðið 09.06.2017

Í þættinum er fjallað um sex daga stríð Ísraels og Egyptalands og annarra Arabaríkja í júní 1967, fyrir hálfri öld.

Ascolta il podcast Í ljósi sögunnar su Replaio

Radio e podcast in un'unica app - gratis e senza registrazione. Installala oggi e non perderti il lancio

Scaricala su Google Play

Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici