Helgi Ómars
Helgaspjallið
Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is
Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: soundcloud.com
Dove ascoltare?
I podcast nell'app Replaio Radio In arrivoI podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast
Episodi
Þáttur 27 - Helgaspjallið 3.0 - Sjálfsvinna 101 með Röggu Nagla 27.01.2020 49:57
Í þessum þætti förum við Ragga Nagli yfir sjálfsvinnuna, hvar hægt er að byrja, hver eru skrefin, hvenær er maður tilbúinn, og svo framvegis. Á mannamáli förum við yfir bæði persónuleg og eigin skref og einnig frá augum fagaðila, en eins og við vitum er Ragga Nagli sálfræðingur með fleiri en eina gráðu í þeim sálmum. Þessi þáttur er í boði Smáralindar - Instagram: @helgiomarsson @ragganagli trendn...
Þáttur 26 - Helgaspjallið 3.0 - Sara María Forynja snýr aftur 14.01.2020 1:20:34
Í þessum magnaða þætti kemur Sara María Forynja aftur, mörgum til mikillar ánægju en hún vakti ótrúlega mikla athygli í fyrri þætti hér á Helgaspjallinu. Við förum útí meðvirkni og hvernig hún leggur sig og hvernig hún kemur í ýmsum stærðum og gerðum. Við ræðum yoga, núvitund og hún blastar mindblowing hugmyndum um tálsýn. Þessi þáttur ætti að gagnast öllum og er algjört konfekt fyrir eyrun fyrir...
Þáttur 25 - Helgaspjallið 3.0 - Uppgjör 2019 Helga Ómars & Röggu Nagla 31.12.2019 1:24:47
Þennan þátt af Helgaspjallinu mætti kalla “Kryddsíld Helga Ómars með Röggu Nagla. Hér gera Helgi og Ragga árið 2019 upp með að horfa til baka á hvaða erfiðleika þau hafa yfirstigið, hverjir voru sigrarnir á árinu, hvaða lærdóm drógu þau af bæði áskorunum og velgengni. Helgi talar um missi, sorg, sambandserfiðleika, samskipti við vinnufélaga og margt fleira. Ragga talar um samskiptavanda í fjölskyl...
Þáttur 24 - Helgaspjallið 3.0 - Eva Laufey Kjaran 24.11.2019 1:21:06
Eva Laufey er landsmönnum vel kunnug og ég var svo heppinn að fá hana til mín í spjall sem veitti mér ótrúlega mikinn innblástur. Okkur tókst að ræða hin endalausu mál. Við ræðum meðal annars um unglingsárin, föðurmissi sem hún gekk í gegnum, ásamt fósturmissi, hvað það kenndi henni og sorgarferlið. Við ræðum einnig hugmyndina um orðið 'Ofurkona', hennar upplifun um kulnun ásamt því að hún deilir...
Þáttur 24 - Helgaspjallið 3.0 - GDRN / Guðrún Eyfjörð 27.10.2019 1:08:10
Tónlistarkonan og gæðasprengjan GDRN kemur til mín og eigum við okkar fyrsta spjall saman. Við ræðum allt frá reynslum unglingsáranna, kvíða og hvernig maður vinnur með honum. Tölum einnig um galdra á bakvið að ganga yfir gangbraut og hvaða skref Guðrún tók til að komast á þann stað sem hún er í dag. Besta ráð sem hún hefur fengið kom hjá Bubba Morthens, hvar hún fann blissið sitt og upplifun henn...
Þáttur 23 - Helgaspjallið 3.0 - Erna Hrund 20.10.2019 1:14:22
Við kynnumst Ernu Hrund Hermannsdóttir, förðunarmúngúl og vörumerkjastjóra Ölgerðarinnar betur. Hún hefur oftar en einu sinni í gegnum tíðina talað um mál sem hafa skapað mjög miklar eftirtektir, bæði þegar hún bloggaði á Trendnet.is og svo sannarlega í þessu spjalli sem við áttum saman. Við ræðum góð en einnig erfið menntaskóla ár og hvernig tímarnir hafa breyst. Hún opnar sig um nauðgun sem hún...
Þáttur 22 - Helgaspjallið 3.0 - Jóhanna Guðrún 13.10.2019 1:10:39
Það þarf ekki að kynna Jóhönnu Guðrúnu en við ræðum allt frá barnastjörnu tímabilinu og upp að deginum í dag. Móðurhlutverkið ásamt því að fara yfir í feminisman, pressu nútímasamfélagsins, lífsstílinn og spirtúal hliðina.
Þáttur 21 - Helgaspjallið 2.0 - Sölvi Tryggva 16.06.2019 1:14:22
Í þessum þætti ræðum við reynslu Sölva af niðurbroti, kvíða og kulnun sem hann einnig skrifar í nýrri bók sinni Á Eigin Skinni. Niðurbrot Sölva var árið 2007 og við förum yfir hvernig eftirköstin er og hvernig maður rís upp frá slíku. Einnig ræðum við almenna heilsu, að framkvæma og ná í tilfinningu og hvernig þekkingin kemur með reynslu. Við ræðum almennt um heilsu, líkamlega og andlega, hreyfing...
Þáttur 20 - Helgaspjallið 2.0 - Hildur Sif Hauks 31.03.2019 1:13:20
Hildur Sif Hauksdóttir er gestur þáttarins, en hún er bloggari á Trendnet ásamt því að vera mikill heilsugúru en hún borðar aðeins plöntufæði og ég forvitnast örlítið á bakvið hvernig það er að vera á plöntufæði og hvernig maður getur fært sig nær því að borða meiri plöntufæði. Hildur talar einnig hreinskilið um hvernig grunnskólaárin hafa áhrif á hver hún er í dag og hvernig maður lærir af mistök...
Þáttur 19 - Helgaspjallið 2.0 - Guðrún Sørtveit 18.02.2019 1:15:59
Hin yndislega og ljúfa Guðrún Sørtveit er gestur þáttarins. Við ræðum meðal annars body positivity, hvernig hún fór frá því að vera fangi sjálfsniðurbrots yfir í að læra að elska sjálfa sig, ásamt því að við spjöllum um hvernig hún fór á því að vera feimin og labbandi meðfram veggjum yfir í að vera ein vinsælasta á Íslandi á samfélagsmiðlunum. Við ræðum tólin og leiðirnar til að sigrast á púkanum...
Þáttur 18 - Helgaspjallið 2.0 - Apríl Harpa / Rvk Gypsy - Part ll 10.02.2019 1:16:04
Í þessum seinni hluta af spjallinu við Apríl Hörpu, einnig þekkt sem Rvk Gypsy ræðum við meðal annars hvað jóga er í raun og veru og hvernig hún byrjaði, einnig förum við útí átakanlega reynslu hennar varðandi kynferislega misnotkun og áhrif hennar. Við tölum um hvernig við finnum blissið okkar og hvað það er, ástarsorg og hverju henni fylgir. Einnig segir Apríl frá óvæntri tveggja og hálfs vikna...
Þáttur 17 - Helgaspjallið 2.0 - Apríl Harpa / Rvk Gypsy - Part l 02.02.2019 1:13:15
Gestur þáttarins er Apríl Harpa Smáradóttir betur þekkt sem Rvk Gypsy. Hún segir frá magnaðari sögu sinni og fer yfir æskuna, tenginguna og tilfinningarnar. Baksagan á bakvið þann stað sem hún er á í dag ásamt því hvernig hún endaði á Bali í mörg ár og hvernig það ferðalag átti sér stað. Þetta er þáttur af tveimur, en í seinna þætti förum við enn dýpra í sögu Aprílar.
Þáttur 16 - Helgaspjallið 2.0 - Helgi Ómars 21.01.2019 1:14:49
Í þessum þætti snúum við hlutunum örlítið við, en Ragga Nagli tekur viðtal við mig. Ég fer t.d yfir æskuna, byrjunina á sjálfsvinnunni, ofbeldisatvik sem setti strik í reikninginn, hvernig ég komst í gegnum afbrýðissemi og það sem ég hef lært í gegnum tíðina ásamt mörgu öðru.
Þáttur 15 - Helgaspjallið 2.0 - Arnhildur Anna 26.12.2018 1:18:44
Arnhildur Anna Árnadóttir er einstaklega einlæg fyrirmynd. Við setjumst niður og ræðum kraftlyftingarsportið, hvað liggur á baki og hvað hún fór í gegnum til að komast á þann stað sem hún er í dag. Einnig ræðum við meðal annars meðvirkni og hvernig hún heldur andlegu hliðinni sinni í jafnvægi og hvaða verkfærum hún beitir til þess ásamt svo mörgu öðru.
Þáttur 14 - Helgaspjallid 2.0 - Björt Sigfinns 16.12.2018 1:17:37
Björt hefur áður komið til sögu í Helgaspjallinu, en hún er minn umtalaði Life Coach sem tók mig að sér á sínum tíma og lét mig hefja ferðalagið mitt í sjálfsvinnu. Hún er einnig einn af mastermindum á bak við LungA Festival ásamt því að hafa afrekað svo margt meira. Við kynnumst Björt og ræðum ýmislegt, meðal annars tungumál ástarinnar sem er einstaklega áhugavert
Þáttur 13 - Helgaspjallið 2.0 - Edda Falak 08.12.2018 58:34
Gestur þátturins er hin sterka og magnaða Edda Falak. Við förum yfir móðurmissi Eddu og að vera alin upp af Líbönskum föður á Íslandi. Við förum einnig yfir Crossfittið, sjálfsagan og mataræði þar sem pizza með döðlum og rjómaosti kemur við sögu.
Þáttur 12 - Helgaspjallið 2.0 - Ragga Nagli snýr aftur 01.12.2018 1:22:08
Við Ragga förum meira útí sálfræði hliðina á hinu daglega hamsi. Hvernig höldum við okkur í jafnvægi og hvaða hugrænu verkfærum eigum við að beita. Ásamt því að tala um allt frá kláða á skrýtnum stöðum og að missa tvisvar.
Þáttur 11 - Helgaspjallið: Eva Dögg Rúnarsdóttir 24.09.2018 1:04:32
Gestur þáttarins er yoga og hollustu drollan Eva Dögg Rúnarsdóttir. Við spjöllum um hið andlega og hið slæma og góða sem býr innra með okkur ásamt líf og tilveru Evu. Við tölum um sjúkdóma sem hafa sett strik í lífið og um allt hið andlega og líkamlega sem hægt er að græða á við að stunda jóga og hugleiðslu, ásamt svo mörgu öðru milli himins og jarðar.
Þáttur 10 - Helgaspjallið: Brynja Dan 05.09.2018 1:16:12
Hin heilsteypta og gullfallega Brynja Dan er gestur þáttarins. Við ræðum um æskuárin, foreldrahlutverkið, tilfinningalífið, erfiðan foreldramissi og hið ótrúlega ættleiðingar ævintýri og tenging við blóðfjölskyldu sína. Ásamt því ræðum við um allt milli himins og jarðar.
Þáttur 9 - Helgaspjallið: Fanney Ingvars 19.08.2018 1:19:01
Gestur þáttarins er hin ljúfa og yndislega Fanney Ingvars. Hún ræður Ungfrú Ísland ævintýrið og áhrif keppninnar á lífið hennar. Móðurhlutverkið, andlegu hliðina og lífið eins og það leggur sig.
Þáttur 8 - Helgaspjallið: Svala Björgvins 05.08.2018 1:24:13
Gestur þáttarins er hin eina sanna Svala Björgvins. Við ræðum æskuna, unglingsárin, poppstjörnu ævintýrið í LA, bílslysið sem breytti lífi hennar ásamt því að við ræðum hvernig hún dílar við kvíða og almennt andlegu hliðina, tilfinningalífið þá og í dag.
Þáttur 7 - Helgaspjallið: Binni Löve 01.08.2018 1:26:27
Gestur þáttarins er snapkóngurinn Binni Löve. Við ræðum allt milli himins og jarðar. Þyngdartapið, andlegu hliðina, snaplífið og snapævintýrið, æskuna og unglingsárin ásamt allt annað þar á milli.
Þáttur 6 - Helgaspjallið: Sara María Forynja 29.07.2018 1:11:16
Sara María Forynja er gestur þáttarins. Hún er þekkt fyrir að hafa startað Nakta Apanum ásamt því hafa startað öðrum merkjum með prenti í aðalhlutverki. Við kíkjum inná við í hinn gullfallega andlega hugarheim Söru og ræðum hvernig henni hún komst í gegnum fósturmissi, hvernig hún fyrirgaf árásamanni sínum, hvernig hún lærði að elska sjálfa sig ásamt því að fara í gegnum sögu þessarar mögnuðu nátt...
Þáttur 5 - Helgaspjallið: Sólrún Diego 22.07.2018 1:30:52
Ein áhrifaríkasta manneskja Íslands Sólrún Diego er gestur þáttarins. Hún ræður upphaf Snapchat ævintýrsins, Frans, slúðursögurnar, sjálfsþekkingu, tilfinningalífið, fjölskyldulífið og opinberar mjög áhrifaríka staðreynd sem gæti komið hlustendum á óvart. Þátturinn er í lengri kantinum enda nóg af viðfangsefnum að ræða.
Þáttur 4 - Helgaspjallið: Elín Kristjáns 01.07.2018 1:17:38
Elín Kristjáns er gestur þáttarins. Hún er eignandi Gekkó.is og mikill ferðalangur og hugsuður. Við tölum um föðurmissi, tælenska menningu, ferðalög, bílferð til Mosó með glæpamanni, slagsmál á Seyðisfirði og hvernig við lærum að elska sjálf okkur.
Podcast simili
Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici