RÚV
Frjálsar hendur
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: www.ruv.is
Dove ascoltare?
I podcast nell'app Replaio Radio In arrivoI podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast
Episodi
Norman Lewis 3 10.12.2023 50:00
Enn er umsjónarmaður staddur í fylgd breska dátans Norman Lewis í Napólí haustið 1943. Þótt Þjóðverjar hafi verið hraktir burt frá borginni eftir innrás Bandamanna á Ítalíu eru flugumenn þýskra nasista og/eða ítalskra fasista enn sagðir vera á kreiki og Lewis og menn hans halda niður í katakomburnar undir borginni í leit að þeim. En uppi á yfirborðinu leitar til hans kona út af líki í garði hennar...
Þórbergur og Lifnaðarhættir í Reykjavík 03.12.2023 52:00
Árið 1937 birtist merkileg ritgerð Þórbergs Þórðarsonar um Lifnaðarhætti í Reykjavík á seinni hluta 19. aldar. Hér verða lesin valin brot úr þeim, um þrifnað, þvotta, áfengisnautn, drauga- og álfatrú, útfararsiði og veislugleði. Frásögn Þórbergs er bæði fróðleg og skemmtileg og stundum - til dæmis í kafla um óttann við dauðann - gæti enginn annar haldið á penna en hann. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Norman Lewis og árás bandamanna á Napólí 2 26.11.2023 50:03
Í fyrri frásögn höfðu Bandamenn lagt undir sig Napólí og meðal setuliðsmanna þar er breski dátinn Norman Lewis. Í þessum þætti er tekið saman efni úr æviminningum hans þar sem hann lýsir ástandinu í Napólí eftir að borgin hefur verið leyst úr viðjum fasista, en íbúarnir þurfa að glíma við hungur, skort og alveg nýjan veruleika. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Norman Lewis og árás bandamanna á Napólí 1 19.11.2023 52:00
Norman Lewis hét breskur dáti sem tók þátt í innrás Bandamanna á Ítalíu í september 1943 og síðan árás þeirra á Napólí. Hann skrifaði æviminningar sínar sem eru næsta einstæðar í sinni því þær lýsa stríðinu frá sjónarhóli hins óbreytta dáta sem oft veit ekkert hvað er á seyði í stríðinu en reynir að halda velli og gera sitt besta. Lewis dregur heldur ekki dul á að hans eigin menn frömdu líka oft v...

Þorfinnur Kristjánsson - Reykjavík í upphafi 20. aldar 12.11.2023 50:00
Nú verður lesið úr æviminningum Þorfinns Kristjánssonar sem var prentari og bjó reyndar síðari hluta ævinnar í Kaupmannahöfn. Hann ólst upp í Reykjavík og segir á skemmtilegan hátt frá uppvexti sínum, fótboltafélagi sem hann og fleiri strákar stofnuðu, hlutskipti fátæks fólks og geðsjúklinga, vist á Vífilstöðum og mörgu fleiru. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Þorfinnur Kristjánsson - Reykjavík í upphafi 20. aldar 12.11.2023 52:00
Nú verður lesið úr æviminningum Þorfinns Kristjánssonar sem var prentari og bjó reyndar síðari hluta ævinnar í Kaupmannahöfn. Hann ólst upp í Reykjavík og segir á skemmtilegan hátt frá uppvexti sínum, fótboltafélagi sem hann og fleiri strákar stofnuðu, hlutskipti fátæks fólks og geðsjúklinga, vist á Vífilstöðum og mörgu fleiru. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Þrjátíu ára stríðið 4 05.11.2023 52:00
Í þessum fjórða þætti um 30 ára stríðið og þeim síðasta í bili er fjallað um herferð „ljóns norðursins“ Gustavs Adolfs Svíakóngs suður til Þýskalands til stuðnings mótmælendum, þegar keisaraherir Wallensteins og Tillys virtust þess albúnir að knésetja mótmælendur. Svíakonungur þótti glæsimenn mikið og fær herstjórnandi en jafnvel hann átti stt skapadægur í þessu blóðuga stríði. Umsjón: Illugi Jöku...
Þrjátíu ára stríðið 3 29.10.2023 52:00
Þriðji þátturinn um sögu þrjátíu ára stríðsins. Hér koma Frakkar til sögunnar og koma mótmælendum til bjargar á örlagastundu, þótt sjálfir séu þeir kaþólskir. Stríðsrþeyta fer að segja til sín og Kristín Svíadrottning á sér þann draum að semja um frið. Og þegar upp var staðið, til hvers var þetta allt saman? Umsjón: Illugi Jökulsson.
Þrjátíu ára stríðið 3 29.10.2023 50:00
Þriðji þátturinn um sögu þrjátíu ára stríðsins. Hér koma Frakkar til sögunnar og koma mótmælendum til bjargar á örlagastundu, þótt sjálfir séu þeir kaþólskir. Stríðsrþeyta fer að segja til sín og Kristín Svíadrottning á sér þann draum að semja um frið. Og þegar upp var staðið, til hvers var þetta allt saman? Umsjón: Illugi Jökulsson.
Þrjátíu ára stríðið 2 22.10.2023 52:03
Áfram verður sögð saga hins grimmilega 30 ára stríðs og hér kemur Svíakóngurinn Gustaf Adolf til sögunnar og sýnist þess albúinn að verða herra Norður-Evrópu. En hann fellur á örlagastundu og áfram er barist af skefjalausri grimmd en tilgangsleysið verður æ meira áberandi. Þegar stríðinu lýkur loks er Þýskaland lamað eftir, en til hvers var þetta allt saman? Umsjón: Illugi Jökulsson.
Þrjátíu ára stríðið 1 15.10.2023 52:00
Í tilefni þess að Þjóðleikhúsið frumsýnir brátt hið fræga leikrit Bertholts Brechts og Margarete Steffin, Mutter Courage und Ihre Kinder, sem gerist í 30 ára stríðinu í Þýskalandi verður hér rakin þessa grimmilega stríðs sem geisaði í hjarta Evrópu 1618-1648. Blóðþyrstir málaliðaherir fóru um Þýskalandi í upphafi stríðsins og eirðu engu og talið er að villimennska stríðsins hafi verið meiri og and...
Marco Polo - konungurinn og konurnar 08.10.2023 52:00
Öðru hvoru síðustu árin hefur verið lesið úr frásögnum Marco Polos um ferð sína til Kína við lok miðalda. Hér segir Marco Polo frá merkilegu ríki sem hann kom til í Kína og hafði kóng svo friðsaman að þar í ríkinu voru engir hermenn, og kóngurinn undi sér við nautnir og gleði með þúsund konum sem voru í fylgdarliði hans. En hvað gerist í slíku ríki þegar óvígur her Mongóla og Kínverja stendur á la...
Æskuminningar Þorvalds Thoroddsen 01.10.2023 52:00
Lesið er úr æskuminningum Þorvalds Thoroddsen og framan af þætti mest um þjóðhátíðina 1874 þegar Kristján IX konungur kom til Íslands. Þorvaldur lýsir konungskomunni hispurslaust og án hátíðleika og hann og Matthías Jochumsson segja frá sérkennilegum gestum sem hingað komu vegna hátíðarinnar. Lýst er heldur hráslagalegu lífi í Reykjavík en síðan vikið til Kaupmannahafnar þar sem Jón Sigurðsson ber...
Sveinn Pálsson, ferðir og rannsóknir 1 24.09.2023 50:00
Sveinn Pálsson var landlæknir í byrjun 19. aldar og vann ómetanlegt starf sem slíkur en eftir á eru rannsóknarferðir hans um Ísland þó sennilega það merkasta sem eftir hann liggur. Í þessum þætti tekur umsjónarmaður saman margt gott og fróðlegt bæði úr ferðabókum hans og dagbókum, og er óhætt að segja að bæði glöggt og bráðskemmtilegt er Sveins augað þegar hann rannsakar bæði náttúruna og mannfólk...
Sveinn Pálsson, ferðir og rannsóknir 1 24.09.2023 52:00
Sveinn Pálsson var landlæknir í byrjun 19. aldar og vann ómetanlegt starf sem slíkur en eftir á eru rannsóknarferðir hans um Ísland þó sennilega það merkasta sem eftir hann liggur. Í þessum þætti tekur umsjónarmaður saman margt gott og fróðlegt bæði úr ferðabókum hans og dagbókum, og er óhætt að segja að bæði glöggt og bráðskemmtilegt er Sveins augað þegar hann rannsakar bæði náttúruna og mannfólk...
Sveinn Pálsson, ævi og uppvöxtur 17.09.2023 52:00
Sveinn Pálsson var einn merkasti vísindamaður og læknir Íslands um aldamótin 1800. Í þessum þætti verður fjallað um ævi hans framan af og stuðst við stórmerkilega sjálfsævisögu sem hann skrifaði. Hann segir frá uppvexti sínum fyrir norðan, skólagöngu fyrir sunnan og svo dvöl sinni í Kaupmannahöfn þar sem hann veit í fyrstu ekki nákvæmlega hvað hann ætlar að læra en fær loks tækifæri til að fara í...

Kravténko og hreinsanir 2 10.09.2023 50:00
Hreinsanir í Sovétríkjunum færast í aukana í frásögn Úkraínumannsins Viktors Kravténko (1905-1966) og nú er hann sjálfur í stórhættu. Vinur hans og samstarfsmaður er tekinn fyrir á opinberum fundi og Kravténko veit að þessi vinur hans getur orðið þess valdandi að hann sjálfur falli í ónáð, sem svo endar ævinlega með ósköpunum. Í síðari hluta þáttarins segir Kravténko svo frá morðinu á kommúnistale...

Kvavténko og hreinsanir 1 03.09.2023 52:00
Í samantekt umsjónarmanns á liðinum misserum úr stórmerkum æviminningum Úkraínumannsins Viktors Kravténkos (1905-1966) var sögunni þar komið að eftir hrylling hungursneyðarinnar miklu í Úkraínu var Stalín einræðisherra Sovétríkja fullur tortryggni í garð raunverulegra og ímyndaðra andstæðinga. Hreinsanir voru að hefjast og í þessum þætti segir Kravténko frá fundum þar grunaðir stjórnarandstæðingar...

Marco Polo í rannsóknarleiðangri í Kína 27.08.2023 52:00
Hér segir frá ferðalagi Ítalans Marco Polos frá Evrópu til Kína á ofanverðri 13. öld. Marco er nú kominn til hirðar hins mikla keisara Kublai Kahn og vinnur trúnað hans með þeim árangri að keisarinn sendir hann út í rannsóknarferð um lítt kunnar slóðir inni í víðáttum Kína þar sem eru ríki og þjóðir sem Evrópumenn höfðu aldrei kynnst. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Marco Polo í rannsóknarleiðangri í Kína 27.08.2023 50:00
Hér segir frá ferðalagi Ítalans Marco Polos frá Evrópu til Kína á ofanverðri 13. öld. Marco er nú kominn til hirðar hins mikla keisara Kublai Kahn og vinnur trúnað hans með þeim árangri að keisarinn sendir hann út í rannsóknarferð um lítt kunnar slóðir inni í víðáttum Kína þar sem eru ríki og þjóðir sem Evrópumenn höfðu aldrei kynnst. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Jóhann Kúld selveiðimaður í íshafinu 20.08.2023 52:00
Jóhann Kúld var sjómaður sem var við störf á norskum skipum á árunum upp úr 1920 eins og þegar hefur verið lýst í einum þætti af Frjálsum höndum. Hér er svo lýst vist hans á norsku selveiðiskipi sem sigldi inn í hafísinn og athafnaði sig þar vikum saman. Í þá daga efaðist enginn um réttmæti selveiða og lýsingin á veiðum og hættum inni í hafísbreiðum er litrík. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Podcast simili
Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici