Hugleikur Dagsson og Sandra Barilli
VÍDJÓ
Hugleikur Dagsson og Sandra Barilli horfa á mikilvægustu myndir allra tíma. Hver þáttur er tileinkaður einni mynd af ótæmandi lista bíómynda sem Sandra hefur ekki séð áður. Þau skeggræða hverja mynd fyrir sig og allt það sem henni við kemur og það sem þeim dettur í hug líka.
Szerző
Hugleikur Dagsson og Sandra Barilli
Kategória
A podcast weboldala
Legutóbbi epizód
2024. dec. 24.
Hol hallgathatod?
Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio HamarosanA podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz
Epizódok
096 Vonlaust viðhald (Fatal Attraction) 05.09.2023 1:09:06
Þegar heimilisfaðir, sem þykir hjónaband sitt farið að súrna, ákveður að halda framhjá eiginkonu sinni með tælandi samstarfskonu, kemst hann fljótt að því að hann hefði betur haldið upp um sig brókinni.
095 Bella Dýramær (Beauty and the Beast) 27.06.2023 1:27:07
Fríða er ungur bókaormur sem þyrstir í ævintýri og þegar föður hennar er rænt af dýrslegri skepnu í álögum, ákveður hún að hún skuli bjóða sjálfa sig fram sem fanga í stað föður síns. Hún dvelur í kastala þar sem allt heimilisfólk er einnig undir álögum og reynir að gera gott úr dvölinni þar.
094 Hlaupastingur (Blade Runner) 20.06.2023 1:06:15
Í dystópískri framtíð eru löggur sem veiða vélmenni sem eru svo raunveruleg að það sést ekki munur á þeim og venjulegu fólki.
093 Bleikir mávar (Pink Flamingos) 13.06.2023 1:29:13
Dragdrottningin og glæpakvendið Divine býr í hjólhýsi ásamt fjölskyldu og vinum og stærir sig af því að vera sú óhugnalegasta í bransanum. Þegar hjónakorn nokkur í bænum fá veður af því langar þau að storka þeim titli hjá Divine með því að gera þeim ógeðis-grikki.
092 Flóttamannabúðir (The Great Escape) 06.06.2023 1:14:23
Stríðsföngum sem hafa verið iðnir við að reyna að strjúka úr fangabúðum nasista er safnað saman í einar fangabúðir sem er mjög erfitt að strjúka úr. Þeir eru hins vegar mjög skipulagðir og búa yfir ýmsum og fjölbreyttum hæfileikum sem verður til þess að þeir leggja saman á ráðin að reyna enn og aftur á stroku, sem skal vera sú stærsta hingað til.
091 Flottur Jackie (Police Story) 30.05.2023 1:12:03
Jackie Chan leikur lögreglumann sem þarf að vernda mikilvægt vitni í mafíumáli, og lendir í ýmsum ógöngum meðan að á því stendur. Það eru óþokkar á hverju strái sem bíða þess að berja úr honum líftóruna en þeim tekst illa til í því ætlunarverki.
090 Í bláum skugga (Blue Velvet) 23.05.2023 1:24:54
Þegar ungur drengur finnur afskorið eyra í grasinu er ekkert sem fær hann stöðvað til að komast til botns í málinu, hvort manneskjan sem eyrað tilheyrði sé á lífi og hver skar eyrað af. Hann kynnist fljótlega undirheimum smábæjar síns á meðan að á spæjaraleiknum hans stendur.
089 Í harðbakkann slær (A Hard Day’s Night) 16.05.2023 1:19:41
Bítlarnir eru orðnir heimsfrægir og geta hvergi vel við unað án þess að aðdáendur elti þá uppi öskrandi og æpandi. Á einu tónleikaferðalagi þeirra er afi Paul McCartney dreginn með og hann ætlar svo sannarlega að græða á tá og fingri af barnabarninu og hæfileikaríku vinum hans.
088 Dragbjört (Tootsie) 09.05.2023 1:16:51
Þegar óvinsæll en hæfileikaríkur leikari fær hvergi vinnu tekur hann upp á því að klæða sig sem kona og reyna fyrir sér í hlutverki í vinsælli sápuóperu. Hann kemst þó fljótt að því að það er ekki leikur einn að leika tveimur skjöldum.
087 Víðis saga (Willow) 02.05.2023 2:05:10
Tveggja barna faðir finnur unga prinsessu í polli og þarf að leggja á sig heljarinnar leiðangur til að koma henni í skjól frá illa innrættum yfirvöldum sem vilja ráða hana af dögum. Hann hefur fengist við kukl og smágaldra og þarf núna að nýta sér þá kunnáttu í ævintýraförinni.
Brot af því besta – Þættir 001-005 25.04.2023 1:29:07
Smakkseðill úr þáttum 1 til 5, þessi brot er að finna í umfjöllun um myndirnar Þetta reddast, (A New Hope), Aktu Taktu (Bonnie & Clyde), Brúðarbrölt (The Princess Bride), Jarmsaga (Silence of the Lambs) og loks Upp, upp mín sál (Up).
086 Pútter Haraldur (Happy Gilmore) 18.04.2023 1:18:40
Þegar amma hans Happy missir húsið sitt út af skattsvikum og þarf hann að leita allra ráða til að borga það upp svo hún þurfi ekki að búa á elliheimili þar sem starfsfólkið beitir andlegu ofbeldi. Hann kemst óvart að því að hann er góður í golfi, og byrjar að keppa á mótum og slær heldur betur í gegn.
085 Skák og lát (Sjunde inseglet/The Seventh Seal) 04.04.2023 1:14:17
Svíþjóð á miðöldum var ekkert dýrðarríki, en þar geisaði plága sem hirti öll þau sem gættu sín ekki á henni. Hin ljóðræna mynd Ingmars Bergman segir frá hópi fólks sem reynir að forðast dauðann og pláguna í leit að betra lífi, en dauðinn fylgir alltaf fast á hæla þeirra.
084 Steinsmuga (The Rock) 28.03.2023 1:33:57
Þegar gamall hermaður ákveður að setja saman hryðjuverkateymi og halda ferðalöngum föngnum í þekktasta fangelsi allra tíma, gegn því að fá ríkisstjórn Bandaríkjanna til að viðurkenna mistök og endurgreiða gamlar skuldir, þarf að leita til góðkunningja lögreglunnar til að stoppa þá. Hryðjuverkateymið hótar árás á San Fransisco með hræðilegustu efnavopnum sem fundin hafa verið upp og sem setur alla...
083 Mættastur (Being There) 21.03.2023 1:28:33
Maður á besta aldri sem hefur aldrei farið út fyrir hússins dyr, né setið í bíl eða talað við fleiri en tvær manneskjur, fær loksins að upplifa það sem er að gerast í heiminum utan heimilis hans. Honum er annt um garðyrkju og sjónvarpsgláp, og fær að láta reyna á það sem hann hefur lært af því tvennu í samskiptum sínum við fólk sem verður á vegi hans.
082 Grýlurnar (The Craft) 14.03.2023 1:26:29
Þegar ung og fjölkunnug stúlka byrjar í nýjum skóla, kynnist hún fljótlega þremur vinkonum sem hafa einnig verið að gæla við galdra. Þær ákalla almættið og beita miskunnarlaust álögum á fyrrum kvalara sína.
081 Látnir skrifa ljóð (Dead Poets Society) 07.03.2023 1:24:14
Robin Williams leikur kennara sem kennir í helst til hefðbundum skóla þar sem reglur um samskipti og kennsluhætti eru af gamla mátanum. Hann lætur það ekki á sig fá og kynnir nemendur sína fyrir nýjum aðferðafræðum og lífsins lists, sem fellur ekki vel í kramið hjá hinum kennurunum.
080 Öðruvísitölufjölskyldan (The Incredibles) 28.02.2023 1:09:49
Við fylgjumst með úthverfafjölskyldu þar sem allir fjölskyldumeðlimir búa yfir ofurkröftum, en þeim er gert að fela og bæla þá niður samkvæmt lögum. Þeim tekst þó ekki lengi að fara huldu höfði í nútímasamfélagi þar sem þau berjast fyrir réttlætinu og freistast til að nýta krafta sína í baráttunni við illa innrætta hrotta.
079 Hvolpasveitin (Reservoir Dogs) 21.02.2023 1:29:47
Nokkrir krimmar eru komnir saman til að framkvæma bankarán fyrir sameiginlegan vin, en þar sem þeir þekkjast lítið sem ekkert áður en ránið á sér stað, vita þeir ekki að einn þeirra er leynilögregla sem ætlar að koma þeim öllum fyrir kattarnef.
078 Lítill í sér (Big) 14.02.2023 1:33:09
Tom Hanks leikur smádreng sem fær óvænt fullorðinslíkama til afnota um óákveðinn tíma. Hann nýtir tækifærið og kynnir sér bæjarlífið í borginni og byrjar í vinnu þar sem hann sér um framleiðslu á leikföngum.
077 Babb í bátinn (Titanic) 27.12.2022 2:02:28
Stærsta skip sem smíðað hafði verið lagði af stað í sína jómfrúarferð yfir Atlantshafið árið 1912. Á skipinu var fjöldi fólks úr öllum þjóðfélagsstigum og segir sagan frá ungum elskendum sem kynnast um borð í fleyinu og örlögum þeirra og hinna farþeganna þegar það sigldi á ógnarhraða og lenti á ísjaka og sökk stuttu síðar, öllum að óvörum því skipið var sagt ósökkvanlegt.
076 Vopnum búinn og viti rúinn (Lethal Weapon) 20.12.2022 1:25:29
Tvær löggur kynnast náið og vel þegar þær eru látnar vinna saman við rannsókn á dauðsfalli ungar konu. Í fyrstu er ekki talið að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti en annað kemur í ljós þegar lögreglan hefur rannsókn sína. Hún ku vera dóttir þekkts auðjöfurs sem að er sjálfur viðriðinn vafasöm viðskipti í undirheimunum.
075 Líf, ertu að grínast? (It’s a Wonderful Life) 13.12.2022 1:41:02
Lánadrottinn í litlum bæ dreymir um að komast til útlanda og skoða heiminn en líf hans dregur hann alltaf strax til baka í að byggja upp smábæinn sinn með lánum til samborgara sinna. Hann kaupir hús í niðurníðslu sem konan hans gerir upp, og búa þau saman þar ásamt sínum fjórum börnum.
074 Rokklingarnir (Gremlins) 06.12.2022 1:21:57
Uppfinningafaðir gefur syni sínum lítið dýr að gjöf sem þarf einungis að passa að þrennu leyti; að það blotni ekki, sé ekki í mikilli birtu eða sólarljósi, og að það borði ekki eftir miðnætti. Sonurinn reynir eftir fremsta megni að hlýða þeim reglum og passa upp á nýja gæludýrið sitt en þegar vinur hans rekst í vatnsglas tekur við atburðarás sem erfitt er að halda í við.
073 Í guðanna bænum (Cidade de Deus) 29.11.2022 1:14:41
Í fátæku hverfi í Rio de Janeiro eru ung börn í glæpagengjum, sem stýrð eru af aðeins eldri börnum. Aðal söguhetjan okkar segir frá lífinu í hverfinu og hvernig hann náði á ótrúlegan hátt að flýja fátæktina með því að taka myndir af glæpamönnum og selja til blaðanna.
Hasonló podcastok
A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.