fr

Samstöðin

Samstöðin

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : samstodin.simplecast.com

Auteur

Samstöðin

Catégorie

News

Site du podcast

samstodin.simplecast.com

Dernier épisode

17 oct. 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android près de 10 M de téléchargements · note de 4,8 iOS bientôt

Épisodes

Synir Egils 10. maí - Borgin, kosningamál, hneyksli og alvörumál 10.05.2026

Sunnudagurinn 10. maí Synir Egils: Borgin, kosningamál, hneyksli og alvörumál Við byrjum á samtali við oddvita framboðanna sem njóta mest stuðnings í Reykjavík og flestir vilja sjá sem næsta borgarstjóra: Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks, Pétur H. Marteinsson oddviti Samfylkingar og Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti Vinstrisins ræða kosningarnar á laugardaginn og segja okkur hvað þa...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Sigmundur Ernir 09.05.2026

Laugardagur 9. maí Helgi-spjall: Sigmundur Ernir Sigmundur Ernir Rúnarsson er skáld, blaðamaður, pabbi, eiginmaður, útvistarmaður, þingmaður og er þá ekki allt upp talið. Hann ræðir líf sitt og feril í ítarlegu helgi-spjalli við Björn Þorláks.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 19 08.05.2026

Föstudagur 8. maí Vikuskammtur: Vika 19 Eins og venja er á föstudögum kemur saman gott fólk að ræða fréttir vikunnar í Vikuskammti við Rauða borðið. Að þessu sinni mæta þau Guðmundur Auðunsson, María Hjálmtýsdóttir, Margrét Lísa Gunnarsdóttir og Unnar Þór Sæmundsson til að ræða sveitarstjórnarkosningar, mótmæli, gömul og ný þrætuepli og ýmsar furðufréttir með Laufeyju Líndal. Þátturinn er tekinn u...

Rauða borðið 7. maí - Niðursveifla, rógsherferð, leigjendur og göngugarpur 07.05.2026

Fimmtudagur 7. maí Niðursveifla, rógsherferð, leigjendur og göngugarpur Stefán Ólafsson prófessor og sérfræðingur hjá Eflingu ræðir niðursveiflu í efnahagskerfinu, skaðlega peningamálastefnu og skort á virkri hagsstjórn við Gunnar Smára. Reynsluboltarnir Stefán Pálsson sagnfræðingur, Björk Vilhelmsdóttir félagsráðgjafi og Hallur Magnússon atvinnurekandi ræða rógsherferðir, harðnandi slag um borgin...

Rauða borðið 6. maí - Kjarasamningar, strandeldi, skólar, mengun, viðsnúningur og bekkurinn 06.05.2026

Miðvikudagur 6. maí Kjarasamningar, strandeldi, skólar, mengun, viðsnúningur og bekkurinn Gunnar Smári ræðir við Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra um kjarasamningana, verðlagsákvæði þeirra og hvað ríkisstjórnin getur gert svo samningunum verði ekki sagt upp í haust. Katrín Oddsdóttir lögmaður og náttúrusinni mætti til Sigurjóns. Saman töluðu um skuggahliðar laxeldis í sjó. Bæði...

Rauða borðið 5. maí - Heimurinn, fjölskyldustefna, snýr aldrei aftur, gervigreind og kónguló 05.05.2026

Þriðjudagur 5. maí Heimurinn, fjölskyldustefna, snýr aldrei aftur, gervigreind og kónguló Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræðir við Maríu Lilju um stöðu heimsmála. Guðný Eydal, prófessor í félagsráðgjöf og Ásdís Arnalds, lektor í félagsráðgjöf ræða fjölskyldustefnur á Íslandi og hverju er ábótavant í framfylgd hennar og framkvæmd við Laufeyju Líndal. Jón Óðinn Waage sem flutti til...

Rauða borðið 4. maí - Ritlaun, heiðursborgari, umhverfissálfræði og urriðaveiði 04.05.2026

Mánudagur 4. maí Ritlaun, heiðursborgari, umhverfissálfræði og urriðaveiði Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, bregst við gagnrýni Vals Gunnarssonar sagnfræðings og rithöfundar á úthlutun ritlauna. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur og rithöfundur er heiðursborgari Reykjavíkur. Gunnar Smári ræðir við hann. Ásdís Ólsen ræðir við Pál Jakob Líndal...

Synir Egils 3. maí - Fréttamaður, formaður, framkvæmdastjóri og forsætisráðherra 03.05.2026

Sunnudagurinn 3. maí Synir Egils: Fréttamaður, formaður, framkvæmdastjóri og forsætisráðherra Þrjár konur mæta í Vettvang dagsins að þessu sinni. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður VG og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir framkvæmdastjóri BSRB. Af nógu er að taka. Til að mynda fagnar Rósa Björk því að VG, flokkurinn hennar, mælist loks með þingmenn. Það ko...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Baldvin Snær 02.05.2026

Laugardagur 2. maí Helgi-spjall: Baldvin Snær Baldvin Snær Hlynsson tónlistarmaður býr til stjörnur úr góðum efnivið. Hann er það sem kallað er Artist Developer og leitar nú að íslenskum vonarstjörnum sem vilja slá í gegn! Hann er kallaður til Hollywood eða London til að semja tónlist fyrir kvikmyndir eða pródúsera nýja tónlistarmenn. Ferilskráin er stjörnum prídd en núna er hann heima á Íslandi a...

Fólkið í borginni - Íþróttir eru límið í samfélaginu 01.05.2026

Fimmtudagur 30. apríl Fólkið í borginni: Íþróttir eru límið í samfélaginu Herra Fram – Daði Guðmundsson, starfsmaður Knattspyrnufélagsins Fram ræðir um störf íþróttafulltrúa borgarinnar og hvernig íþróttastarf getur gagnast til inngildingar. Hvernig var að taka þátt í uppbyggingu nýs borgarhverfis og hvernig geta íþróttafélögin okkar hjálpað til við að skapa hverfisanda? Erum við að gefa börnunum...

Fólkið í borginni - Hinsegin félagsmiðstöðin 01.05.2026

Miðvikudagur 29. apríl Fólkið í borginni: Hinsegin félagsmiðstöðin Í þessum þætti fræðir Snæ Humadóttir, framhaldsskólanemi þáttastjórnandann Ástu Þórdísi Skjalddal um hinsegin félagsmiðstöðina og hvaða máli hún skiptir unga fólkið okkar.

Rauða borðið 30. apríl - Stríðsástand, líf í hjólastól, reynsluboltar, borgarmálin og fyrirmyndir 30.04.2026

Fimmtudagur 30. apríl Stríðsástand, líf í hjólastól, reynsluboltar, borgarmálin og fyrirmyndir Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir fyrst óöryggið í heiminum, alvarlegar afleiðingar Íransstríðsins, krísu Trump og fleira í samtali við Björn Þorláks. Víðir Þorsteinsson hefur verið í hjólastól frá 1980. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við hann og eiginkonu hans, Sigríði Sóle...

Rauða borðið 29. apríl - Húsnæðispakki, fasteignasala, gervigreind, lágkúra og rauða hverfið 29.04.2026

Miðvikudagur 29. apríl Húsnæðispakki, fasteignasala, gervigreind, lágkúra, rauða hverfið. Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður leigjendasamtakanna ræðir húsnæðispakka tvö við Maríu Lilju og möguleg áhrif aðgerðanna á kjör leigjenda. Hvaða áhrif skyldi sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar hafa á fasteignamarkaðinn að byggja 1400 íbúðir á ríkislóðum? Páll A. Pálsson fasteignasali svarar því. Björn Þorláks ræði...

Rauða borðið 28. apríl - Rótin, menguð jörð, spilling, vakning og verðhækkanir 28.04.2026

Þriðjudagur 28. apríl Rótin, menguð jörð, spilling, vakning og verðhækkanir Rótin hefur sent kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna synjunar Sjúkratrygginga á aðgangi að upplýsingum í samningi stofnunarinnar við SÁÁ. Kristín I Pálsdóttir ræðir við Maríu Ragnheiður Þorgrímsdóttir, íbúi í Hvalfirði, segir að mengun frá stóriðjusvæðinu á Grundartanga sé orðin að dragbít sem hamli framþróun...

Fólkið í borginni - Fátækt í Reykjavík 28.04.2026

Þriðjudagur 28. apríl Fólkið í borginni: Fátækt í Reykjavík Í þessum þætti af Fólkið í borginni ræðir Finnur Ricart Andrason við þau Elísabetu Hauksdóttur íbúa í Fellahverfi og Kolbein H. Stefánsson íbúa í Laugardalnum um fátækt í Reykjavík. Umræðan þeirra á milli er afslöppuð, einlæg og jarðbundin; hún er bæði persónuleg og fræðileg og til þessa fallin að fræða áhorfendur um hinar ýmsu hliðar fát...

Fólkið í borginni - Lifir listin í borginni? 28.04.2026

Mánudagur 27. apríl Fólkið í borginni: Lifir listin í borginni? Árni Már Þórdísar Viðarsson, einn stofnenda Gallerýs Ports, segir frá menningarlífi borgarinnar og þróun listarýma á undanförnum árum. Við ræðum hvað þarf til þess að listarými geti dafnað í borgarumhverfi og hvernig rými móta upplifun okkar af list. Um leið veltum við fyrir okkur hversu miklu tómlegra borgarlífið væri án listar og hv...

Rauða borðið 27. apríl - Kosningar, ritskoðun, tantra og rödd ársins 27.04.2026

Mánudagur 27. apríl Kosningar, ritskoðun, tantra og rödd ársins Regína Ásvaldsdóttir, Pétur Marteinsson og Steinunn Gyðu og Guðjónsdóttir af lista Samfylkingarinnar í RVK ræða við Maríu Lilju um áherslumálin. Valur Gunnarsson rithöfundur og sagnfræðingur leggur spilin á borðið og segir frá því hvernig það er að fá sjaldnast ritlaun, sem byggi á geðþóttaákvörðun. Björn Þorláks ræðir við Val. Matild...

Synir Egils 26. apríl - Ráðherrar, kennarar, kosningar og ESB 26.04.2026

Sunnudagurinn 26. apríl Synir Egils: Ráðherrar, kennarar, kosningar og ESB Í Vettvang dagsins komu þau Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona Miðflokksins og Sigurður Örn Hilmarsson, Sjálfstæðisflokki og varaþingmaður fyrir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur. Margt ber á góma í fyrri hlutanum. Mest þó um stjórnmál og samband ráðherra og kennara. Áran...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Karl Ágúst 25.04.2026

Laugardagur 25. apríl Helgi-spjall: Karl Ágúst Ásdís Olsen ræðir við fyrrum eiginmann sinn, Spaugstofumanninn, leikskáldið og leikarann Karl Ágúst í persónulegu og einlægu viðtali.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 17 24.04.2026

Föstudagur 24. apríl Vikuskammtur: Vika 17 María Lilja tekur á móti gestum Vikuskammtsins á öðrum degi sumars, en að þessu sinni mæta að borðinu þau Katla Ásgeirsdóttir, Silja Sóley Birgisdóttir, Margrét Rós Sigurjónsdóttir og Freyr Rögnvaldsson.

Sjávarútvegsspjallið 81. þáttur - Spilling í sjávarútvegi 23.04.2026

Fimmtudagur 22. apríl Sjávarútvegsspjallið 81. þáttur Gestir Grétars að þessu sinni eru þeir Björn Ólafsson og Jón Baldvin Hannibalsson.

Rauða borðið 22. apríl - Heimskreppa, innsæi, Bieber og kórsöngur 22.04.2026

Miðvikudagur 22. apríl Heimskreppa, innsæi, Bieber og kórsöngur Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir ýmis utanríkismál, pattstöðu í Íransstríðinu, líkur á alvarlegri heimskreppu, skuldir Bandaríkjanna og fleira í samtali við Björn Þorláks. Ásdís Olsen ræðir við Hrund Gunnsteinsdóttur um innsæi. Helga Þórey Jónsdóttir og Arnar Eggert Thoroddsen ræða um Bieber á coachella...

Græna borðið 11. þáttur - Græna gangan 22.04.2026

Miðvikudagur 22. apríl Græna borðið 11. þáttur - Græna gangan Græna borðið er tileinkað grænu göngunni að þessu sinni. Fulltrúar náttúruverndarsamtaka hringinn í kring um landið ræða um hvaðan samtökin eru sprottin og hvaða viðfangsefni eru brýnust í dag. Rakel Hinriksdóttir, formaður Samtaka Um Náttúruvernd á Norðurlandi (SUNN) stýrir þættinum. Gestir eru Guðrún Óskarsdóttir, formaður Náttúruvern...

Rauða borðið 21. apríl - Nauðgunarmenning, móðir, sveitastjórnarkosningar, hugvíkkandi, tónleikar 21.04.2026

Þriðjudagur 21. apríl Nauðgunarmenning, móðir, sveitastjórnarkosningar, hugvíkkandi, tónleikar Fregnir bárust um liðna helgi af vefsíðu þar sem karlar skiptust á ráðum og myndefni af nauðgunum sofandi kvenna, í flestum tilfellum eiginkvenna eða kærasta. Drífa Snædal og Guðný S Bjarnadóttir ræða við Maríu Lilju um þetta samfélagsmein. Alma Hrönn Hrannardóttir er reið. En hvers vegna? Jú, vegna þess...

Rauða borðið 20. apríl - Kynferðisofbeldi, mannréttindi, útgerðarspilling, RÚV og píanóleikur 20.04.2026

Mánudagur 20. apríl Kynferðisofbeldi, mannréttindi, útgerðarspilling, Ríkisútvarpið og píanóleikur Steinun Ólína Þorsteinasdóttir leikkona hefur gefið út Ólínuskjölin þar sem hún segir frá hlutum sem legið hafa í þagnargildi, kynferðisofbeldi gegn henni sjálfri. Hún ræðir við Björn Þorláks um mein íslenska samfélags. Viðar Eggertsson leikstjóri og Sigríður Nanna Heimisdóttir, aðstoðarskólastjóri H...

Écoute le podcast Samstöðin sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics