fr

Samstöðin

Samstöðin

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : samstodin.simplecast.com

Auteur

Samstöðin

Catégorie

News

Site du podcast

samstodin.simplecast.com

Dernier épisode

16 oct. 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android près de 10 M de téléchargements · note de 4,8 iOS bientôt

Épisodes

Rauða borðið 9. sept - Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir 09.09.2026

Miðvikudagur 9. september Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg munu án efa skerða viðkvæma þjónustu við börn og ungmenni og auka hættu á ójöfnuði. Þetta segir Árni Gunnarsson forvarnafulltrúi í samtali við Björn Þorláks. Kristján Sigurjónsson ritstjóri FF7 ræðir við Gunnar Smára um kosningarnar í Svíþjóð, sem verða um helgina. Verða stjórnarskipti? Ól...

Græna borðið 19. þáttur - Er Ísland frekur krakki í alþjóðastarfi? 09.09.2026

Miðvikudagur 9. september Græna borðið 19. þáttur - Er Ísland frekur krakki í alþjóðastarfi? Ísland er frekur krakki í alþjóðastarfi sem vill undanþágur frekar en ábyrgð í loftslagsmálum. Ríkisstjórnin gæti hafa misst atkvæði í eigin þjóðaratkvæðagreiðslu, með því að vera í PR-kór hagsmunaafla sem sleppa sem léttast frá loftslagsaðgerðum. Loftslagið bar hæst í fyrsta Græna borði haustsins. Gestir:...

Rauða borðið 8. sept - PISA, Trumptíminn, fjárlög, sjónvarpsfréttir og hvalveiðar 08.09.2026

Þriðjudagur 8. september PISA, Trumptíminn, fjárlög, sjónvarpsfréttir og hvalveiðar Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, og Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, koma til okkar til að ræða nýjustu PISA-könnunina. Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Ólafur Þ. Harðarson prófessor velta fyrir sér í spjalli við Gunnar Smára hvað Trump er að hugsa og hvað hann ætli...

Rauða borðið 7. sept - Gulur september, Bretland, kynjafræði, Skattland og Jónsi 07.09.2026

Mánudagur 7. september Gulur september, Bretland, kynjafræði, Skattland og Jónsi Margt bendir til að hefðbundin nálgun heilbrigðiskerfisins dugi ekki í öllum tilvikum gagnvart þeim sem líður illa andlega. Of mikil áhersla er á lyfjagjöf. Sjálfsvíg eru þjóðarmein. Auður Axelsdóttir hjá Hugarafli ræðir við Björn Þorláksson. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur fer yfir helstu fréttir í Bretlandi með Gun...

Synir Egils 6. sept - Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi 06.09.2026

Sunnudagurinn 6. september Synir Egils: Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi Drífa Snædal talskona Stígamóta, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar mæta á vettvang dagsins og ræða fréttir og stöðu samfélagsins. Síðan kemur Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og þingmennirnir Grímur Grímsson, Arna Lára Jónsdóttir og Ólafu...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Guðrún Ágústa 05.09.2026

Laugardagur 5. september Helgi-spjall: Guðrún Ágústa Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar, hefur frá mörgu að segja. Hún trúir á Jesús og er skírð í Fíladelfíu. Hún hefur víða komið við. Sat i bæjarstjórn Hafnarfjarðar og varð fyrsta konan til að vera bæjarstjóri þar. Sem framkvæmdastjóri Samhjálpar hefur hún mætt miklu andstreymi vegna kaffistofu Samhjálpar sem átti að verða...

Talaðu við mig 9. þáttur 04.09.2026
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 36 04.09.2026

Föstudagur 4. september Vikuskammtur: Vika 36 Eva Halldóra Guðmundsdóttir sviðslistakona, Magnús Scheving frumkvöðull, Rakel Garðarsdóttir framkvæmdastýra Vesturports og Sigurlaug Didda Jónsdóttir skáldkona ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkendust af sigrum og svekkelsi, verðbólgu og hækkandi vöxtum, slysum, rannsóknarheimildum, listum og menningu.

Rauða borðið 3. sept - Vald hinna veiku, drengirnir, áfallameðferð og Þýskaland 03.09.2026

Fimmtudagur 3. september Vald hinna veiku, drengirnir, áfallameðferð og Þýskaland Guðni Th. Jóhannesson prófessor ræðir við Gunnar Smára um þorskastríðin í tilefni að útgáfu bókar hans um útfærslu landhelginnar í 50 mílur. Tryggvi Hjaltason hefur gert sig gildandi í umræðu um æsku og skólamál. Hann lýsir afstöðu sinni í samtali við Gunnar Smára. Nú er í boði sérhæfð tíu vikna áfallameðferð fyrir k...

Sjávarútvegsspjallið - 89. þáttur: Sjávarútvegur og Evrópa 03.09.2026

Fimmtudagur 3. september Sjávarútvegsspjallið - 89. þáttur: Sjávarútvegur og Evrópa Grétar Mar fær til sín þá Ólaf "ufsa" Jónsson og Úlfar Hauksson, skipstjóra og stjórnmálafræðing

Rauða borðið 2. sept - Reynsluboltar, uppsagnir, Eiríkur, utanríkisstefna, bekkurinn og hrós 02.09.2026

Miðvikudagur 2. september Reynsluboltar, uppsagnir, Eiríkur, utanríkisstefna, bekkurinn og hrós Þórunn Sigurðardóttir, Þröstur Ólafsson og Guðmundur Þ. Ragnarsson ræða helstu mál samfélagsins við Sigurjón Magnús. Kári Sigurðsson formaður Sameykis ræðir uppsagnir hjá Reykjavíkurborg og stöðu kjarasamninga við Gunnar Smára. Jón Kalman rithöfundur ræðir bók, Maríuklefann, sem er að koma út eftir Eirí...

Rauða borðið 1. sept - Gengisfelling, sjónvarpsfréttafall, tíðindi dagsins, þunglyndi og Sinfó 01.09.2026

Þriðjudagur 1. september Gengisfelling, sjónvarpsfréttafall, tíðindi dagsins, þunglyndi og Sinfó Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, segir að fram undan sé stór gengisfelling. Krónan sé allt of sterk. Hann ráðleggur fólki að flytja peningana sína yfir í aðra mynt. Hann ræðir þetta mál og úrslit Evrópukosningarinnar í samtali við Sigurjón Magnús Heimir Már Pétursson og Lára Ómarsdóttir, fyr...

Talaðu við mig 8. þáttur: AK Rizz 01.09.2026

Föstudagur 28. ágúst Talaðu við mig 8. þáttur: AK Rizz Í þættinum í dag ræða Álfheiður og Emilía við við engann annan en Aron Kristinn, AK Rizz. Þvílíkur heiður sem það var að fá að spjalla við hann og fá innlit inn í líf hans og starf. Við mælum með að HLUSTA á þennan þátt.

Rauða borðið 31. ágúst - Eftir kosningar, Stuðlagil, Trump, Landhelgisgæsla og uppsagnir 31.08.2026

Mánudagur 31. ágúst Eftir kosningar, Stuðlagil, Trump, Landhelgisgæsla og uppsagnir Gunnar Smári ræðir við fólk með víðtæka reynslu úr stjórnmálum og fjölmiðlum um stöðu stjórnmála og samfélags eftir niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið. Páll Ásgeir Ásgeirsson leiðsögumaður ræðir öryggismál í Stuðlagili. Hann segir samspil nokkurra þátta kunna að skýra banaslys við náttúruperlur. B...

Bridgeþátturinn 30. ágúst - Bermúda 30.08.2026

Sunnudagurinn 30. ágúst Bridgeþátturinn - Bermúda Jón Hersir Elíasson læknir og landsliðseinvaldur ræðir heimsmeistaramótið í bridds næsta ár en Íslendingar taka þá í þriðja skipti þátt í keppninni um hina víðfrægu Bermúdaskál. En hvernig verður landsliðið í opna flokknum skipað? Breytingar verða frá EM. Björn Þorláks sér um þáttastjórn.

Synir Egils 30. ágúst - Dagurinn eftir þjóðaratkvæði 30.08.2026

Sunnudagurinn 30. ágúst Synir Egils: Dagurinn eftir þjóðaratkvæði Við förum yfir stöðu samfélagsins daginn eftir þjóðaratkvæði um Evrópusambandið. Fyrst með þeim Kristján Kristjánssyni fyrrum umsjónarmanns Sprengisands, nú umsjónarmanns Kastljóss, Aðalsteini Kjartanssyni aðstoðarritstjóra Heimildarinnar og Sirrý Hallgríms fyrrverandi aðstoðarkonu ráðherra. Síðan koma þingkonurnar Nanna Margrét Gun...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Guðrún Karls Helgu 29.08.2026

Laugardagur 29. ágúst Helgi-spjall: Guðrún Karls Helgu Guðrún Karls Helgudóttir biskup ræðir lífið, trúna, samfélagið, sjálfa sig, kirkjuna og fleiri andans mál í helgispjalli við Björn Þorláks.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 35 28.08.2026

Föstudagur 28. ágúst Vikuskammtur: Vika 35 Við förum yfir fréttir vikunnar með góðum hópi fólks; Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari, Hlédís Maren Guðmundsdóttir varaborgarfulltrúi, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri og Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir sviðslistakona ræða við Gunnar Smára um fréttir sem einkennast af spennu, átökum og von um góða niðurstöðu.

Rauða borðið - 27. ágúst Reynsluboltar, vinnueftirlit, lagahorn og sagnfræði 27.08.2026

Fimmtudagur 27. ágúst Reynsluboltar, vinnueftirlit, lagahorn og sagnfræði Kristín Ástgeirsdóttir, fyrrum þingkona, Sigurður Már Jónsson blaðamaður og Sigurður Þór Salvarsson blaðamaður eru gestir Sigurjóns Magnúsar. Evrópumál, uppsagnir hjá borginni og önnur fréttamál ber á góma. Steinar Harðarson, fyrrum svæðisstjóri vinnueftirlits, ræðir sögu vinnuverndar í samtali við Björn Þorláks. Hann segir...

Sjávarútvegsspjallið 88. þáttur - Staða strandveiðanna 27.08.2026

Fimmtudagur 27. ágúst Sjávarútvegsspjallið 88. þáttur - Staða strandveiðanna Grétar Mar ræðir við smábátaeigendurna Guðlaug Jónasson og Atla Hermannsson sem segja frá strandveiðunum í ár.

Rauða borðið 26. ágúst - ESB, samvinna, Múlakaffi, samræðusiðfræði og kennarar 26.08.2026

Miðvikudagur 26. ágúst ESB, samvinna,, Múlakaffi, samræðusiðfræði og kennarar Svandís Svavarsdóttir fyrrum ráðherra, þingmaður, borgarfulltrúi og formaður VG segir Gunnari Smára hvers vegna hún ætlar að segja nei á laugardaginn. Þóroddur Ingvarsson svæfingalæknir á Akureyri ræðir mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu í tengslum við björgun sjúklinga og tengir við þjóðaratkvæðagreiðsluna fram undan. Björ...

Rauða borðið 25. ágúst - Fréttir dagsins, heilbrigðismál, sakhæfisaldur og vending 25.08.2026

Þriðjudagur 25. ágúst Fréttir dagsins, heilbrigðismál, sakhæfisaldur og vending Nei eða já í Evrópukosningunni, uppsagnir í borginni, menntamál og fleira verður krufið í fréttaspjalli Björns Þorlákssonar við Jón Trausta Reynisson blaðamann, Lárus Guðmundsson athafnamann og Margréti Tryggvadóttur rithöfund. Brýn þörf er á að auka við hjúkrunarrými og legupláss. En hvaða fólk á að starfa þar? Steinu...

Rauða borðið 24. ágúst - ESB, já eða nei, evra, króna og allt það 24.08.2026

Mánudagur 24. ágúst ESB, já eða nei, evra, króna og allt það Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar útskýrir fyrir Gunnari Smára hvers vegna hún ætlar að segja nei á laugardaginn. Er ESB bandalag hnignunar eða á minni hagvöxtur sér eðlilegar skýringar? Jean-Rémi Chareyre, sjálfstætt starfandi blaðamaður, ræðir við Björn Þorláksson. Ólafur Margeirsson hagfræðingur í Sviss ræðir ESB við Gunnar Sm...

Synir Egils 23. ágúst - Ísland og Evrópusambandið, staða og horfur 23.08.2026

Sunnudagurinn 23. ágúst Synir Egils: Ísland og Evrópusambandið, staða og horfur Við ræðum fréttir og stöðu samfélagsins við Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur og þrjá prófessora: Sigrún Ólafsdóttur félagsfræðing og stjórnmálafræðingana Evu H. Önnudóttur og Eiríki Bergmann. Síðan reyna þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pawel Bartoszek að sannfæra okkur að segja nei eða já í þjóðaratkvæðagreiðslunni...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Óttar Guðmunds 22.08.2026

Laugardagur 22. ágúst Helgi-spjall: Óttar Guðmunds Óttar Guðmundsson geðlæknir kemur í Helgi-spjall og segir okkur frá æsku sinni og uppruna, mótunarárum og því ýtti undir þroska hans og hefti hann.

Écoute le podcast Samstöðin sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics