fr

Samstöðin

Samstöðin

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : samstodin.simplecast.com

Auteur

Samstöðin

Catégorie

News

Site du podcast

samstodin.simplecast.com

Dernier épisode

24 oct. 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android près de 10 M de téléchargements · note de 4,8 iOS bientôt

Épisodes

Rauða borðið 27. febrúar Öryggi, her, hugvíkkun, skipulag, bækur og ljóð 27.02.2025

Fimmtudagur 27. febrúar Öryggi, her, hugvíkkun, skipulag, bækur og ljóð Helen Ólafsdóttir ráðgjafi í öryggismálum ræðir við Gunnar Smára um öryggismál Evrópu og Íslands eftir stefnubreytingu ríkisstjórnar Trump. Bjarni Már Magnússon prófessor í lögfræði við Bifröst og Kristján Þór Sigurðsson, doktor í mannfræði takast á undir stjórn Maríu Lilju um hugmynd Bjarna um að kominn sé tími til að Íslendi...

Rauða borðið 26. feb - Rannsóknablaðamennska, karlmennska, Ragnar Þór, reynsluboltar og Öskjuhlíð 26.02.2025

Miðvikudagur 26. febrúar Rannsóknablaðamennska, karlmennska, Ragnar Þór, reynsluboltar og Öskjuhlíð Við hefjum leik á umræðu um spillingu og skyldum fjölmiðla að sporna gegn spillingu í stað þess að strjúka henni. Hefur fallið á trúverðugleika Fjórða valdsins með flokkadráttum? Sigurjón Magnússon Egilsson og Björn Þorláks ræða málin auk þess sem Sigurjón segir frá erfiðasta fréttamáli sem hann hef...

Sósíalísk stjórnarandstaða - 6. þáttur: Fordómar í fjölmiðlum 26.02.2025

Miðvikudagur 26. febrúar Sósíalísk stjórnarandstaða - 6. þáttur Gestur þáttarins er María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp blaðamaður á Samstöðinni. Í þættinum ræðum við almennt og vítt um fordóma, fáfræði, menningu í íslensku samfélagi og birtingarmyndir áróðurs sem er oft á tíðum dulinn.

Rauða borðið 25. feb - Lögregluofbeldi, þýsk stjórnmál, kvikmynd um flóttafólk og landbúnaður 25.02.2025

Þriðjudagur 25. febrúar Lögregluofbeldi, þýsk stjórnmál, kvikmynd um flóttafólk og íslenskur landbúnaður Daníel Thor Bjarnason, Pétur Eggerz, mótmælendur og Oddur Ástráðsson lögmaður ræða við okkur um Mótmælin í skuggasundinu, afleiðingar þess og málaferlin við ríkið. Við spyrjum almenning og heyrum skoðanir fólks á valdbeitingu lögreglumanna. Halldór Guðmundsson bókaútgefandi með meiru rýnir í úr...

Rauða borðið 24. febrúar: Langtíma-covid, femínismi, Bændablaðið, brennivín og sósíalismi 24.02.2025

Rauða borðið 24. febrúar: Langtíma-covid, femínismi, Bændablaðið, brennivín og sósíalismi Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfari ríður á vaðið í dagskránni með áhrifaríku viðtali við Björn Þorláks. Gunnar segir þúsundir langveikra Íslendinga hafa fallið milli skips og bryggju hjá heilbrigðisyfirvöldum. Gunnar er sjálfur í hópi þeirra sem þjást af ,,longcovid." Hann lýsir persónulegum áskorunum sem fel...

Synir Egils 23. feb - Verkföll, meirihluti, átök og upplausn í Evrópu eftir Trump 23.02.2025

Sunnudagurinn 23. febrúar Synir Egils: Verkföll, meirihluti, átök og upplausn í Evrópu eftir Trump Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir verkefnastjóri, Katrín Júlíusdóttir almannatengill, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Sanna Magdalena Mörtudó...

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 8 21.02.2025

Föstudagur 21. febrúar Vikuskammtur: Vika 8 Grín á Alþingi, heimur á heljarþröm, nýr borgarmeirihluti, landsfundur sjalla, hrútspungafýla og fleiri spennandi umræðuefni verða krufin með gestum Rauða borðsins í dag klukkan 16 í Vikuskammti af fréttum. Í beina útsendingu mæta Snorri Ásmundsson listamaður, Kristín Erna Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Karl Héðinn Kristjánsson fræðslufulltrúi og Lenya...

Rauða borðið 20. feb - Trump, hjúkrun, próf, sjálfshatur, trans og tengslabylting 20.02.2025

Fimmtudagur 20. febrúar Trump, hjúkrun, próf, sjálfshatur, trans og tengslabylting Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur ræðir um áhrif Trump á Evrópu og alþjóðastjórnmálin við Gunnar Smára. Hann ræðir síðan við þær sem vilja verða formenn Félags hjúkrunarfræðinga um kjaramál, starfsaðstæður og heilbrigðiskerfið. Helga Rósa Másdóttir, Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen og Hulda Björg Óladóttir koma...

Sjávarútvegsspjallið - 40. þáttur 20.02.2025

Fimmtudagur 20. febrúar Sjávarútvegsspjallið - 40. þáttur Grétar Mar fær til sín Ólaf Ragnar Sigurðsson, skipsstjóra, útgerðarmann og bónda.

Rauða borðið 19. feb - Úkraína, reynsluboltar, spilling, ópera, uppskera og kvóti 19.02.2025

Miðvikudagur 19. febrúar Úkraína, reynsluboltar, spilling, ópera, uppskera og kvóti Tjörvi Schiöth doktorsnemi greinir breytta stöðu í Úkraínu og Evrópu eftir stefnubreytingu ríkisstjórnar Trump í samtali við Gunnar Smára. Karl Garðarsson, Guðmundur Þ. Ragnarsson og Steingerður Steinarsdóttir ræða málin við Sigurjón Magnúsi. Víða var komið við, í Úkraínu, hér og þar í Evrópu, í Hvíta húsi Trump, í...

Sósíalísk stjórnarandstaða - 5. þáttur: Samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks 19.02.2025

Miðvikudagur 19. febrúar Sósíalísk stjórnarandstaða - 5. þáttur Í þætti kvöldsins er María Pétursdóttir, myndlistarkona, aðgerðarsinni og baráttukona um réttindi fatlaðs fólks. Í þættinum munum við fara yfir samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. í ljósi þess að loksins eigi að leggja samninginn fyrir sem frumvarp til laga á Alþingi í mars.

Rauða borðið 18.feb - Nató í neyð, Dylan, kjaramál, kvennasögur, nýr þingmaður og landnámsþorskurinn 18.02.2025

Þriðjudagur 18. febrúar Nató í neyð, Bubbi um Dylan, kjaramál, femínísk sagnfræð, nýr þingmaður og landnámsþorskurinn Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur og Kristinn Hrafnsson blaðamaður ræða um upplausn í Nató og öryggishagsmuni Íslands og Evrópu í samtali við Gunnar Smára. Hann fær síðan Bubba Morthens til að segja okkur frá áhrifum Bob Dylan á sig sem tónlistarmanns, skálds, manneskju og...

Rauða borðið 17. febrúar: Ræstingar, fjölmiðlar misbeiting valds, Heim og pólitík 17.02.2025

Mánudagur 17. febrúar Ræstingar, fjölmiðlar misbeiting valds, Heim og pólitík Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar lýsir fyrir Gunnar Smára hvernig ræstingarfyrirtæki hafa grafið undan lífskjörum ræstingakvenna og í ofan á lag haft af þeim umsamdar kjarabætur. Hiti varð í umræðunni við Rauða borðið vegna Moggans og innflytjendamála í dag þegar Valur Grettisson Heimildinni, María Lilja Ingveld...

Synir Egils 16. febrúar: Samdráttur og sundrung, pólitíkin og Sjálfstæðisflokkurinn 16.02.2025

Sunnudagurinn 16. febrúar Synir Egils: Samdráttur og sundrung, pólitíkin og Sjálfstæðisflokkurinn Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helgi Seljan blaðamaður, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Karen Kjartansdóttir upplýsingafulltrúi og fara yfir skrautlegar fréttir vikunnar, átök og áre...

Heimsmyndir - Valur Arnarson 15.02.2025

Laugardagur 15. febrúar Heimsmyndir - Valur Arnarson Valur Arnarson verkfræðingur og net-aktívisti kom í þáttinn að spjalla um umræðumenninguna í netheimum og vókið. Þeir Kristinn reyndu að segja allskyns hættulega hluti og verða argir og rífast, en þetta varð ósköp vinalegt spjall.

Sjávarútvegsspjallið - 39. þáttur - Aflafréttir 15.02.2025

Fimmtudagur 13. febrúar Sjávarútvegsspjallið - 39. þáttur Grétar Mar og Ólafur Jónsson (Óli ufsi) fá til sín Gísla Reynisson sem heflur úti vefnum aflafrettir.is

Sósíalísk stjórnarandstaða - 4. þáttur: Glundroðinn í borginni 15.02.2025

Miðvikudagur 12. febrúar Sósíalísk stjórnarandstaða - 4. þáttur Í þættinum í kvöld er gestur þáttarins Atli Þór Fanndal, verkefnastjóri Háskólans á Bifröst. Við stikluðum á stóru um glundroðann í borginni og fórum meðal annars yfir sögu Framsóknar í borginni, viðræður oddvita flokkanna sem leggja allt kapp á að mynda nýjan meirihluta og vonina á bættu ástandi í borginni með velferð borgarbúa í fyr...

Grimmi og Snar #34 - Kassinn þarf hjálp 📦 15.02.2025

Fimmtudagur 13. febrúar Grimmi og Snar #34 - Kassinn þarf hjálp 📦 Heiða Vigdís Sigfúsdóttir kom í Grimma og Snar og master multitaskaði á skrifstofunni 🥷💻

Helgi-spjall 15. febrúar: Þórhildur Þorleifsdóttir 15.02.2025

Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og fyrrum þingkona ræðir um lífið og leikhúsið, uppvöxt og þroska, feminisma, pólitík, átök og sigra.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 7 14.02.2025

Föstudagur 14. febrúar Vikuskammtur: Vika 7 Efnistök að þessu sinni verða, á meðal annars, sviptingar í borginni, ofbeldi í barnaskóla, brim við Þorlákshöfn, Guðrún Hafsteinsdóttir, Trump, Pútín, Úkraína, vopnahlé á Gaza, Kendrick Lamar og Superbowl ofl. Til leiks mæta þau Daníel Thor Bjarnason þroskaþjálfi, Anita DaSilva, úr ungliðahreyfingu sósíalista, Laufey Líndal, tæknimaður og Valgerður Árna...

Rauða borðið 13. feb - Breiðholt, harka í íþróttum, Hafró, ljóð, karlmennska og breytingarskeiðið 14.02.2025

Fimmtudagur 13. febrúar Breiðholt, harka í íþróttum, Hafró, ljóð, karlmennska og breytingarskeiðið Hermann Austmar, faðir stúlku í Breiðholtsskóla, segir frá ógnarástandi í skólanum, en margir nemendur treysta sér ekki til að mæta í skólann. Darina Andreys, Hanna Þráinsdóttir og Dzana Crnac spila körfubolta með Aþenu, íþróttafélagi sem Brynjar Karl Sigurðsson veitir forstöðu, þjálfari sem er gagnr...

Rauða borðið 12. feb - Spilling, öryggi, pólitík, jaðarljóð, klassík, brúarsmíði og heilnæmi 12.02.2025

Miðvikudagur 12. febrúar Spilling, öryggi, pólitík, jaðarljóð, klassík, brúarsmíði og heilnæmi Þorvaldur Logason stjórnarformaður Transparency, Jóhann Hauksson blaðamaður og Þorvaldur Gylfason hagfræðingur eru sammála um að mæliskekkja hafi verið gerð varðandi spillingu á Íslandi fremur en að spilling sé á undanhaldi. Valur Ingimundarson prófessor ræðir öryggismál Evrópu í ljósi ummæla og stefnu D...

Rauða borðið 11. feb - Stjórnmálaátök, karlmennska, íslenskan, list, píanókeppni og Marmarabörn 12.02.2025

Þriðjudagur 11. febrúar Stjórnmálaátök, karlmennska, íslenskan, réttindi fatlaðra, píanókeppni og Marmarabörn Við ræðum um stjórnmálaátökin á þinginu og í borgarstjórn, Ágúst Bjarni Garðarsson, fráfarandi þingmaður, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, prófessor, Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og Gunnar Smári Egilsson, blaðamaður spjalla við Sigurjón Magnús. María Lilja veltir fyrir sér karlmensk...

Rauða borðið: Borgarpólitík, stefnuræða, voðaverk, fjölmiðlar, Þorsteinn Pálsson og raddir fólks 10.02.2025

Fimmtudagur 10. febrúar Borgarpólitíkin, stefnuræða Kristrúnar, voðaverk í Svíþjóð, fjölmiðlar, Þorsteinn Pálsson og raddir almennings Við hefjum leik á greiningu á stefnuræðu hins unga forsætisráðherra á Alþingi, Kristrúnar Frostadóttur. Fjallað verður um síðustu vendingar í stöðu borgarmálanna eftir að Einar Þorsteinsson framdi valdarán gegn sjálfum sér eins og einhver orðaði það. Munu sósíalist...

Synir Egils 9. feb - Upplausn, plott, átök og óöryggi 09.02.2025

Sunnudagurinn 9. febrúar Synir Egils: Upplausn, plott, átök og óöryggi Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Finnbjörn A. Hermannsson forseti Alþýðusambandsins, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi og Svandís Svavarsdóttir formaður Vg og fara yfir viðburðaríka fréttaviku og ræða stöðu...

Écoute le podcast Samstöðin sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics