Undirmannaðar

Undirmannaðar

Kids IS ↓ Επεισόδια: 166

Þrjár tvíburamæður með munnræpu. Deilum reynslu okkar á tvíburum ásamt því að fá til okkar frábæra viðmælendur sem allir eiga það sameiginlegt að vera foreldrar.

Μην παραλείψεις να επισκεφτείς τη σελίδα του podcast και να στηρίξεις τον δημιουργό: podcasters.spotify.com

Δημιουργός

Undirmannaðar

Κατηγορία

Kids

Ιστοσελίδα του podcast

podcasters.spotify.com

Τελευταίο επεισόδιο

22 Οκτ 2026

Πού να ακούσεις;

Podcast στην εφαρμογή Replaio Radio Έρχεται σύντομα

Τα podcast έρχονται σύντομα στην εφαρμογή. Εγκατάστησέ την τώρα και δες πρώτος μια εντελώς νέα προσέγγιση στα podcast

Κατέβασέ το από το Google Play Δωρεάν εγκατάσταση Android σχεδόν 10 εκατ. λήψεις · βαθμολογία 4,8 iOS σύντομα

Επεισόδια

15. Fjölburar - Arndís Anna & Au pair spjall 09.11.2023

Við fengum til okkar Arndísi Önnu en hún er sjálfstæð tveggja barna móðir, lögfræðingur og þingmaður. Arndís hefur mikla reynslu af því að vera með Au pair og fræddi okkur um ferlið ásamt því að deila góðum ráðum. Þátturinn er í boði Yrjaverslun.is & í samstarfi við Netto.is, Maikai.is & Wnoise.is

14. Fjölburar - Halldóra Fanney 02.11.2023

Halldóra Fanney kom til okkar í áhugavert spjall en hún og Andri maðurinn hennar eiga saman þrjá stráka, Tryggva Stein 5 ára og eineggja tvíbura, Breka Stein og Sindra Stein. Þátturinn er í boði Yrjaverslun.is og í samstarfi við Netto.is, Maikai.is & Wnoise.is

13. Fjölburar - Hugi Halldórsson 26.10.2023

Þá er loksins komið að því að fá að heyra hlið fjölbura föðurs, en hann Hugi Halldórsson kom í skemmtilegt spjall til okkar og ræddi við okkur um föðurhlutverkið og allt sem því tengist. Hugi er fjögra barna faðir sem finnst ekkert skemmtilegra en að eyða tíma með börnunum sínum. Þátturinn er í boði Yrjaverslun.is og í samstarfi við Netto.is, Maikai.is & Wnoise.is

12. Fjölburar - Kamilla & DNA niðurstöður 19.10.2023

Kamilla, 31. árs tvíburamamma mætti til okkar í létt spjall. Kamilla á Hörpu Eir og Kolbrúnu Leu, 5 ára tvíeggja tvíbura. Í þættinum leynast einnig niðurstöður úr DNA prófinu, hvort eru tvíburar Rakelar eineggja eða tvíeggja? Þátturinn er í boði Yrjaverslun.is og í samstarfi við Netto.is, Maikai.is og Wnoise.is

11. Fjölburar - Valgerður 12.10.2023

Farið yfir upplifun Valgerðar ásamt því að ræða hreyfingu eftir meðgöngu. Valgerður er sjúkraþjálfari og einn eigenda æfingastöðvarinnar VIVUS, en þar leggja þau áherslu á að finna leiðir fyrir fólk að sinna þeirri hreyfingu sem þau elska. Valgerður á níu ára tvíbura og tveggja ára stelpu með manninum sínum Sigurjóni. Þátturinn er í boði Yrjaverslun.is og í samstarfi við Netto.is, Maikai.is &...

10. Fjölburar - Eva Ruza 05.10.2023

Hin eina sanna Eva Ruza kom til okkar í mjög skemmtilegt spjall! Hún er tvíburamamma, eiginkona, skemmtikraftur, fjölmiðlakona, stjörnufréttakona og alvöru múltítasker sem er alltaf á milljón um allar trissur. Þátturinn er í boði Yrjaverslun.is og í samstarfi við Maikai.is, Netto.is & Wnoise.is

9. Fjölburar - Ragnhildur Steinunn 28.09.2023

Ragnhildur Steinunn kom til okkar í spjall um lífið og tilveruna en hún hefur starfað sem sjónvarpskona og framleiðandi á RÚV um árabil. Hún birtist reglulega á skjám landsmanna t.d. í Söngvakeppninni og nú síðast í þáttunum TVÍBURAR sem vöktu mikla athygli. Hún og eiginmaður hennar Haukur Ingi Guðnason eignuðust eineggja tvíbura árið 2019 og voru það þriðju og fjórðu börn hjónanna. Þátturinn er í...

8. Fjölburar - Þríeykið er sameinað 24.09.2023

Aukaþáttur þar sem við ræðum meðal annars aðgerðina sem Andrea fór í og utanlandsferðir með börnin. Þátturinn er í boði Yrjaverslun.is og í samstarfi við Netto.is

7. Fjölburar - Ragnhildur Eik 21.09.2023

Ragnhildur Eik kom til okkar í spjall en hún á eineggja tvíburastelpurnar Móey Mörtu og Lilju Kristbjörgu, sem eru 1 árs gamlar. Ragnhildur starfar sem lögmaður og er búsett í Danmörku ásamt Arnari manninum sínum. Þátturinn er í boði Yrjaverslun.is og í samstarfi við Netto.is og Wnoise.is

6. Fjölburar - Hvernig eigum við að fara að þessu? / Q&A 14.09.2023

Við ræðum bugunina þegar mennirnir okkar fóru aftur að vinna og svörum skemmtilegum spurningum frá hlustendum. Þátturinn er í boði Yrjaverslun.is og í samstarfi við Netto.is

5. Fjölburar - Fyrstu dagarnir og brjóstagjöf 10.09.2023

Í þessum þætti spjöllum við um fyrstu dagana okkar heima sem fimm manna fjölskylda og brjóstagjöf. Þátturinn er í boði yrjaverslun.is og í samstarfi við Netto.is & Wnoise.is **Brjóstagjafaráðgjafinn sem við tölum um heitir Hulda Sigurlína (Hulda Lína) og mælum við með henni.

4. Fjölburar - Fæðingar 07.09.2023

Förum yfir fæðingarsögurnar okkar, en við áttum allar mjög ólíkar tvíburafæðingar. Þátturinn er í boði Yrjaverslun.is og í samstarfi við Netto.is

3. Fjölburar - Undirbúningur 03.09.2023

Aukaþáttur þar sem við ræðum það helsta hvað varðar undirbúning við komu tvíbura/fjölbura. Förum yfir það sem virkaði fyrir okkur og þær vörur sem við mælum með. Þátturinn er í boði Yrjaverslun.is og í samstarfi við Wnoise.is

2. Fjölburar - Tvíburameðganga 30.08.2023

Förum yfir það helsta tengt tvíburameðgöngum og segjum frá okkar reynslu. Þátturinn er í boði yrjaverslun.is

1. Fjölburar - Litla sjokkið 27.08.2023

Fyrsti þáttur í fjölburaseríunni.

Kynning 26.08.2023

Hæ, við erum Undirmannaðar 👋🏼

Άκου το podcast Undirmannaðar στο Replaio

Ραδιόφωνο και podcast σε μία εφαρμογή - δωρεάν, χωρίς εγγραφή. Εγκατάστησέ την σήμερα και μη χάσεις την πρεμιέρα

Κατέβασέ το από το Google Play

Το Replaio δεν είναι εκδότης podcast - τα ονόματα των εκπομπών, τα εξώφυλλα και ο ήχος ανήκουν στους δημιουργούς τους και διανέμονται μέσω δημόσιων ροών RSS