HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

Health IS ↓ Επεισόδια: 177

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

Μην παραλείψεις να επισκεφτείς τη σελίδα του podcast και να στηρίξεις τον δημιουργό: www.heilsuerla.is

Δημιουργός

HeilsuErla

Κατηγορία

Health

Ιστοσελίδα του podcast

www.heilsuerla.is

Τελευταίο επεισόδιο

25 Σεπ 2026

Πού να ακούσεις;

Podcast στην εφαρμογή Replaio Radio Έρχεται σύντομα

Τα podcast έρχονται σύντομα στην εφαρμογή. Εγκατάστησέ την τώρα και δες πρώτος μια εντελώς νέα προσέγγιση στα podcast

Κατέβασέ το από το Google Play Δωρεάν εγκατάσταση Android σχεδόν 10 εκατ. λήψεις · βαθμολογία 4,8 iOS σύντομα

Επεισόδια

85. Það er svo gaman að vera sterkur! (Agi, þolinmæði, vinnusemi, þyngdarflokkar, lífsstíll og Ólympíuleikar). Eygló Fanndal Sturludóttir 05.04.2025

Í þættinum ræðir Erla við Eygló Fanndal Sturludóttur, unga og efnilega íþróttakonu og læknisfræðinema um hvað þarf til þess að ná góðum árangri, þyngdarflokka, jafnvægi, heilbrigðan lífsstíl, imposter syndrome og hvernig það er að vera afreksíþróttakona á Íslandi og fleira.  Eygló er afrekskona í Ólympískum lyftingum sem hefur verið á þvílíkri „siglingu" undanfarið. Hún fékk nýverið tilnefnin...

84. Alkóhólismi og heilsa. (Fíknisjúkdómar, afneitun, að taka ábyrgð, þakklæti, að sleppa fortíðinni og hætta að óttast framtíðina.) Kristján B. 22.03.2025

Í þættinum ræðir Erla við Kristján um alkóhólisma, fíknisjúkdóma, afneitun, að taka ábyrgð, þakklæti, erfiðar tilfinningar, hvað það er mikilvægt að sleppa fortíðinni og hætta að óttast framtíðina og nýtt upphaf. Ég bauð honum til mín eftir að hafa lesið falleg skrif hans á FaceBook í byrjun árs. Hann sagði þá frá því að eftir 17 ár edrú hafi sjúkdómurinn náð að komast inn fyrir varnir hans því ha...

Hundraðasti þátturinn! (Heilsumoli 17) 17.03.2025

Heil og sæl kæru hlustendur, í tilefni þess að þessi þáttur er sá hundraðasti sem ég gef út þá langar mig að koma með smá samantekt af því hvað ég hef lært á þessu ferli og smá vangaveltur um heilsu.  Ég hef sem sagt gefið út 83 viðtöl og þetta er 17. Heilsumolinn sem gerir samtals 100 þætti, hvorki meira né minna. Það sem ég upplifi þegar ég tek þetta saman er Stolt og þakklæti.  Ég er virkilega...

83. Lífsstílslækningar. (6 grunnstoðir heilsu, samfélagssjúkdóma, ME- sjúkdómurinn, blóðsykurstjórnun og lífsstílsbreytingar.) Kjartan Hrafn og Tekla Hrund 08.03.2025

Í þættinum ræðir Erla við hjónin og læknana, Kjartan Hrafn Loftsson og Teklu Hrund Karlsdóttur um Lífsstílslækningar, 6 grunnstoðir heilsu, þróun í læknavísindum, samfélagssjúkdóma, ME-sjúkdóminn, blóðsykurstjórnun og fleira auk þess hversu áhrifaríkar lífsstílsbreytingar geta verið til að fyrirbyggja eða bæta ástand flestra langvinna sjúkdóma og auka lífsgæði.  Tekla og Kjartan eru stofnendur fyr...

82. „Skipulag í óreiðunni" (Félagskvíði, átröskun, ófrjósemi, frestunarárátta, þakklæti og heilbrigðar venjur.) Katrín Edda Þorsteinsdóttir 22.02.2025

Í þættinum ræðir Erla við Katrínu Eddu Þorsteinsdóttur, tveggja barna móður og vélaverkfræðing um lífið og tilveruna, ófrjósemi, foreldrahlutverkið, heilbrigðar venjur, andlega heilsu, félagskvíða, átröskun, heilbrigt samband við mat, þakklæti, frestunaráráttu, ADHD, ofbeldissamband, samfélagsmiðla og fleira.  Katrín Edda sem búsett er í Þýskalandi hefur vakið mikla athygli á Instagram þar sem hún...

81. Náttúran kallar. (Að gista í hellum, sofa undir berum himni, elda mat á hverum og baða sig á leyndum baðstöðum.) Úlfar Jón Andrésson 08.02.2025

Í þessu áhugaverða spjalli kynnumst við Úlfari Jóni Andréssyni sem fer ekki hefðbundnar leiðir í lífinu. Hann er fæddur og uppalinn í Hveragerði og býr þar ásamt eiginkonu sinni og tveimur litlum börnum. Við ræðum um uppeldið og lífsstíl hans sem felst mikið í útivist, t.d. að gista í hellum, sofa undir berum himni og jafnvel í snjóstormi, elda mat á hverum, skauta á gígjum og baða sig á leyndum b...

Hvað er Lífshlaupið? (Heilsumoli 16) 03.02.2025

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa. Í Lífshlaupinu eru landsmenn allir hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, vinnu, í skóla og við val á ferðamáta. ÍSÍ styðst við ráðleggingar Embætti landlæknis um hreyfingu. Nánari upplýsingar um ráðleggingar um hreyfingu má f...

80. Heilsueflandi vinnustaðir og fyrirbyggjandi læknisfræði. (Hamingja, menning, kulnun og uppbyggingarleyfi). Hilda Hrönn Guðmundsdóttir 01.02.2025

Í þætti vikunnar ræðir Erla við Hildu Hrönn Guðmundsóttur sérnámslæknir í heimilislækningum um heilsueflandi vinnustaði, vellíðan, hamingju, viðhorf, menningu, kulnun, uppbyggingarleyfi, tækifæri á Íslandi og fleira.    Hilda Hrönn starfar á Heilsugæslunni á Akureyri og brennur fyrir fyrirbyggjandi læknisfræði og lýðheilsu og hefur sérstakan áhuga á heilsu lækna og heilbrigðisstarfsfólks almennt....

79. Í alvöru talað! (Streita, kulnun, áföll, veikindaleyfi og sjálfsvinna). Gulla og Lydía Ósk 25.01.2025

Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum, spjallar Erla við stórskemmtilegu vinkonurnar, Gullu og Lydíu Ósk sem halda úti hlaðvarpinu Í alvöru talað!  Í þættinum ræða þær meðal annars um áföll, erfiða æsku, kulnun, streitu, veikindaleyfi, skömm, nauðsynlegar samfélagslegar breytingar og sjálfsvinnu. Þær stöllur eru að eigin sögn miðaldra mæður að láta móðan mása. Lydía er sálfræðingur og j...

Djúpslökun- 35 mínútur. (Heilsumoli 15) 20.01.2025

Í amstri dagsins er nauðsynlegt að gefa sér tíma til þess að ,,hlaða batteríin" okkar reglulega, bæði andlega og líkamlega. Við pössum flest að ræftæki okkar séu hlaðin fyrir daginn enn munum við eftir því að hlaða okkur sjálf? Til eru margar leiðir til þess að ,,hlaða" sig en djúpslökun er afar áhrifarík leið til þess að öðlast innri ró og losa um spennu og eða streitu sem situr í líkam...

78. Með heilsuna í vasanum. (Næringarlæsi, næringarþéttni og kostir og gallar þess að telja macros). Ingi Torfi og Linda Rakel. 18.01.2025

Í þættinum ræðir Erla við hjónin Inga Torfa Sverrisson og Lindu Rakel Jónsdóttur. Þau hjónin hafa á síðust árum hjálpað ótal einstaklingum að bæta heilsu sína og hafa hannað og komið á laggirnar smáforritinu Life Track sem getur stutt við heilsuferðalag fólks á margvíslegan hátt.   VIð ræddum um hugmyndafræðina á bakvið appið, hvernig það kom til að fasteignasali og bankastarfsmaður hættu í vinnun...

77. „Standið í lappirnar!" Heilsa og velferð barna og ungmenna. Þorgrímur Þráinsson 11.01.2025

Í þættinum ræðir Erla við Þorgrím Þráinsson rithöfund, fyrirlesara og talsmann heilsu, mannúðar og réttlætis um heilsu, kvíðakynslóðina, skólakerfið, skjánotkun, samfélagsmiðla, tengslamyndun og fleira. Þorgrímur þorir að segja það sem margir hugsa. Hann brennur fyrir það að bæta líðan ungmenna i landinu og hefur um áraraðir haldið fyrirlestra í grunnskólum landsins til þess að aðstoða ungmenni vi...

76. Styrkur er valdeflandi. (Móðurhlutverkið, atvinnumennska, æfingar tengdar tíðahring, meðgöngu og breytingarskeiði kvenna). Anníe Mist Þórisdóttir 04.01.2025

Í fyrsta þætti ársins ræðir Erla við Anníe Mist Þórisdóttur sem er flestum Íslendingum kunnug og reyndar víðs vegar um heiminn líka og er með 1,4 milljón fylgendur á Instagram. Hún er alveg mögnuð íþróttakona sem hefur verið á hæsta leveli í Crossfit síðan árið 2009.  Við ræddum um móðurhlutverkið, atvinnumennsku, CrossFit íþróttina og muninn á því að keppa sem einstaklingur eða með liði og hvað þ...

75. Liðleiki, hreyfigeta og lífsgæði. (Styrkur, andleg og líkamleg heilsa, ADHD og að setja sér mörk). Lilja Sigurgeirsdóttir. 19.12.2024

Í þættinum ræðir Erla við Lilju Sigurgeirsdóttur um liðleika, hreyfigetu, lífsgæði, styrk, andlega og líkamlega heilsu, ADHD, að setja sér mörk og margt fleira. Lilja sem er oft kölluð Liðleika Lilja er með alls konar námskeið. Hún þjálfar bæði börn og fullorðna, almenning og íþróttafólk og hjálpar einstaklingum að ná árangri og bæta heilsu sína með aukinni hreyfigetu og styrk. Í lok þáttarins kem...

74. Ungur nemur gamall temur. (Hreyfing heilsunnar vegna, breytingar á íþróttakennslu á 40 árum, knattspyrnuþjálfun og starfslok). Logi Ólafsson 12.12.2024

Í þættinum ræðir Erla við Loga Ólafsson, íþróttakennara, húmorista og knattspyrnuþjálfara um starfsferil Loga sem er langur og viðburðaríkur. Þau ræða um hvað heilsa er mikilvæg, breytingar á 40 árum í íþróttakennslu, knattspyrnuþjálfun, áhugamál, starfslok og fleira.  Logi er mörgum kunnugur sem knattspyrnuþjálfari og lýsandi í sjónvarpi. Hann hefur þjálfað mörg knattspyrnulið í gegnum tíðina og...

73. Að finna taktinn. (Húmor, burnout, meðferð, breytingaskeið kvenna og sjálfsmildi). Sóley Kristjánsdóttir 05.12.2024

Í þættinum ræðir Erla við Sóleyju Kristjánsdóttur uppistandara, markþjálfa og stjórnendaþjálfa um mannlega hegðun, húmor, venjur, burnout, meðferð, breytingaskeið kvenna, gæfuspor, sjálfsmildi, mikilvægi þess að taka ábyrgð á sjálfum sér og hvað það getur verið erfitt að vera öðruvísi eða sigla á móti straumnum. Sóley segist stundum fá þráhyggjur fyrir hlutum og fara þá all-in í að grúska um það m...

72. Að vera betri í dag en í gær. (Áhrif meiðsla á andlega líðan og heilsu íþróttafólks). Haraldur Holgersson 28.11.2024

Í þættinum ræðir Erla við Harald Holgersson eða Halla eins og hann er alltaf kallaður. Halli er ekki bara frábær þjálfari heldur einnig magnaður íþróttamaður sem hugsar vel um heilsuna. Halli stefnir á að verða hraustasti maður heims einn daginn. Hann keppti árið 2016 í unglingaflokki á heimsleikunum í Crossfit og svo ári síðar með liði CrossFit XY en svo settu meiðsli smá strik í reikninginn næst...

71. Þyngdarstjórnunarkerfi líkamans og heilsa. (Sjúkdómurinn offita, efnaskiptaaðgerðir, þyngdarstjórnunarlyf, fordómar, lífsstíll og umhverfisþættir). Erla Gerður Sveinsdóttir 21.11.2024

Í þættinum ræðir Erla við nöfnu sína Erlu Gerði Sveinsdóttur lækni og sérfræðing í offitusjúkdómum um sjúkdóminn offitu, efnaskiptaaðgerðir, þyngdarstjórnunarlyf, virkni og aukaverkanir þeirra, nauðsynlegar breytingar á lífstíl í kjölfar inngripa, fordóma gagnvart offitu, áhrif umhverfisþátta á heilsufar og fleira. Erla Gerður hefur unnið við offitumeðferð með einum eða öðrum hætti síðustu 15 árin...

70. Sjálfsvíg, sálgæsla og sorg. (Áhrif á aðstandendur og mikilvægi hreyfingar fyrir andlega heilsu). Auður Hallgrímsdóttir 14.11.2024

Í þætti vikunnar ræðir Erla við dásamlega vinkonu sína og gleðisprengju Auði Hallgrímsdóttur. Auður er mikil félagsvera sem elskar að hreyfa sig úti í náttúrunni. Auður missti föður sinn úr sjálfsvígi fyrir rúmum 5 árum og ákvað strax að hún myndi nýta sér þessa erfiðu lífsreynslu til þess að hjálpa öðrum. Í þessu einlæga og fallega viðtali ræðum við meðal annars um sjálfsvíg, áhrif á aðstandendur...

69. Vertu með þér í liði. (Sjálfsvinna, narsissismi, flókin áfallastreituröskun, að setja mörk, þakklæti og jólahefðir). Helgi Ómarsson 07.11.2024

Í þættinum ræðir Erla við Helga Ómarsson ljósmyndara og jáhrifavald um sjálfsvinnu, narsissisma, flókna áfallastreituröskun, að setja mörk, litla Helga, þakklæti, stolt, jólahefðir og hvernig hann vill nýta rödd sína og þekkingu ti þess að hjálpa öðrum. Helgi er með hlaðvarpið Helgaspjallið og Helgi og Erla áttu afar skemmtilegan dag saman og tóku ,,two for one" þar sem að Erla fór einnig í s...

68. Ástin er ekki takmörkuð. (Áföll, triggerar, traust, tilfinningar, kynlíf, nekt og opin sambönd). Árni Björn Kristjánsson og Guðrún Ósk Maríasdóttir 31.10.2024

Í þættinum ræðir Erla við hjónin Árna Björn og Guðrúnu Ósk um lífið og tilveruna, um áföll eins og að eignast langveikt barn, höfuðhögg og heilsuleysi, áfallastreitu, triggera og traust. Einnig ræðum við um mikilvægi þess að leyfa sér að upplifa allar tilfinningar, hvernig samskipti eru lykillinn að góðu sambandi, hvers vegna þau eru vegan, hvernig kynlíf getur orðið betra með árunum, nekt, opin s...

67. Árangur v.s heilsa. (Hámarkssúrefnisupptaka, grunnbrennsla, HRV, mjólkursýra, þjálfunarpúls, zone 1-5, hitaaðlögun, mikilvægi svefns og ofþjálfun). Sigurður Örn Ragnarsson 24.10.2024

Í þætti vikunnar ræðir Erla við Sigurð Örn Ragnarsson, verkfræðing og þríþrautakappa um það hvernig hægt sé að ná sem bestum árangri sem afreksíþróttamaður, ,,kostnað" afreka á heilsuna, hámarkssúrefnisupptöku, HRV, mjólkursýru, þjálfunarpúls, zone 1-5, hitaaðlögun, mikilvægi svefns, ofþjálfun, grunnbrennslu og margt fleira. Sigurður Örn er magnaður íþróttamaður sem nýtir þekkingu sína og rey...

66. Hvað eru grasalækningar? (Lýðheilsa, melting, þarmaflóran, streita, hormónaójafnvægi, tíðarhringur kvenna og rushing womans syndrome). Ásdís Ragna Einarsdóttir 17.10.2024

Í þættinum ræðir Erla við Ásdísi grasa um náttúrulækningar, lýðheilsu, meltingu, þarmaflóruna, streitu, hormónaójafnvægi, tíðarhring kvenna, rushing womans syndrome ofl.  Ásdís Ragna er Lýðheilsufræðingur og grasalæknir. Áhugi hennar á virkni lækningajurta og hæfni þeirra til að bæta heilsu fólks kviknaði snemma á lífsleiðinni.  Hún hefur lengi haft brennandi áhuga á því hvernig við getum haft áhr...

65. Æfinga- og hreyfifíkn. 2737 hreyfidagar í röð! Steinn Jóhannsson 10.10.2024

Í þættinum ræðir Erla við Stein Jóhannsson rektor Menntaskólans við Hamrahlíð um mjög áhugavert tímabil í lífi hans þar sem hann tók ekkert hvíldartímabil í 7,5 ár! Sem sagt hreyfði sig 30 mínútur á dag í 2737 daga og taldi ekki göngutúra og lyfingar með.  Þó að hann æfi ekki á hverjum degi lengur er hann þó eintaklega hreyfiglaður maður og er nammigrís sem elskar tölur og tölfræði, sérstaklega í...

64. Hvað þarftu ástin mín? (Jóga, hugleiðsla og heilun eftir áföll). Ágústa Kolbrún Roberts 03.10.2024

Í þætti vikunnar spjallar Erla við  Ágústu Kolbrúnu Roberts jógakennara og heilara. Ágústa byrjaði sína andlegu vegferð snemma eftir að hafa verið á flótta frá erfiðri æsku. Þær stöllur ræða á einlæglega um það hvernig æskan hefur mótað hana, hvernig jóga tók yfir líf hennar, hugleiðslu, áföll, heilun og hvernig við þurfum að taka ábyrgð á okkur sjálfum.  Hún hefur stundað jóga í 28 ára og kennt f...

Άκου το podcast Með lífið í lúkunum στο Replaio

Ραδιόφωνο και podcast σε μία εφαρμογή - δωρεάν, χωρίς εγγραφή. Εγκατάστησέ την σήμερα και μη χάσεις την πρεμιέρα

Κατέβασέ το από το Google Play

Το Replaio δεν είναι εκδότης podcast - τα ονόματα των εκπομπών, τα εξώφυλλα και ο ήχος ανήκουν στους δημιουργούς τους και διανέμονται μέσω δημόσιων ροών RSS