RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 Folgen

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Autor

RÚV

Kategorie

News

Podcast-Website

www.ruv.is

Neueste Folge

10. Jul 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android 5 Mio.+ Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Spegillinn 4. júní 2026 04.06.2026
Verðbólguviðmið í kjarasamningum og ný ríkisstjórn í Danmörku 03.06.2026

Það eru nokkrar blikur á lofti í efnahagsmálum og flest bendir til þess að verðbólga, sem mældist 5,1% í síðustu mælingu, verði ekki komin undir 4,95% í haust en það var viðmið sem var sett í kjarasamningana í hitteðfyrra. Samningarnir gilda út janúar 2028 og tvisvar á þeim tíma skal leggja formlegt mat á hvort forsendur haldi. Í fyrsta sinn í sögu Danmerkur eru konur í meirihluta ríkisstjórnar. R...

Geðheilsa Íslendingar, ný stjórn í Danmörku og símabann og boð í Svíþjóð 02.06.2026

Ný og viðamikil fjölþjóðleg rannsókn sýnir að þess að um 1,2 milljarðar karla, kvenna og barna séu með geðsjúkdóma eða geðraskanir af einhverju tagi nær tvöfalt fleiri en 1990. Geðræn vandamál eru algengari meðal kvenna en karla og þau leggist þungt á ungmenni. Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir ekkert af þessu koma á óvart og ríma ágætlega við þróunina hér. Það tók næstum sjötíu dag...

Breytt meðferð við brjóstakrabbameini, geðheilsu hrakar og bresk pólitík 01.06.2026

Brjóstakrabbamein er algengasta tegund krabbameins hjá íslenskum konum og er nærri þriðjungur af öllum meinum sem greinast. Niðurstöður nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar gefa til kynna að með erfðaprófum sé hægt að meta líkurnar á gagnsemi lyfjameðferðar. Slík erfðapóf eru notuð hér og Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins segir að íslenskir sjúklingar njóti góðs af. Um 1.2 millj...

29.05.2026
Þjóðaratkvæðagreiðsla samþykkt - hvað nú? Og Ebóla virðir engin landamæri 28.05.2026

Þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný var samþykkt a Alþingi í dag. Það er því ljóst að atkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst. Þangað til eru þrír mánuðir - við hverju getum við búist á þeim tíma? Yfirveguðum umræðum um það sem greiða á atkvæði um eða áframhaldandi skotgrafahernaður um kosti og galla ESB og aðildar að því? Ævar Örn Jóseps...

Ný borgarstjórn í Reykjavík og sjálfbærniverkefni á Austurlandi 27.05.2026

Oddvitum Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks var tíðrætt um traustið sem ríkir milli þeirra þegar þau kynntu nýjan meirihluta í borgarstjórn í Viðey í morgun. Hildur Björnsdóttir, sem fer fyrir Sjálfstæðismönnum, verður borgarstjóri, Björg Magnúsdóttir Viðreisn verður forseti borgarstjórnar fyrsta árið og Einar Þorsteinsson Framsóknarflokki formaður borgarráðs. Þau skipta svo um hlut...

Viðkvæmar upplýsingar í rangar hendur, sveitastjórnarkosningar og fækkun barna í Kína 26.05.2026

Embætti landlæknis afhenti karlmanni viðkvæmar upplýsingar um fjóra aðra þegar hann óskaði eftir afriti af eigin sjúkraskrá. Upplýsingarnar höfðu verið svertar en reyndust samt auðlesanlegar. Sveitarstjórnarkosningar snúast um nærsamfélagið og hefðbundin flokkapólitík stýrir ekki öllu, engu síður hefur verið talað um hægri bylgju og hana má tengja svipuðum hræringum í öðrum löndum. Kínversk stjórn...

Eignir útgerðarinnar, hriktir í stoðum NATO og erfið stjórnarmyndun í Danmörku 22.05.2026

Stærstu útgerðarfyrirtæki landsins hafa safnað stóru eignasafni samkvæmt úttekt Hagfræðistofnunar fyrir Atvinnuvegaráðuneytið. Helgi Seljan skoðar gögnin. Það hriktir í stoðum NATO og þungt var í utanríkisráðherrum bandalagsins á fundi í Svíþjóð í dag, þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, var stödd. Spegillinn ræddi við hana. Stjórnarmyndun í Danaveldi er í hnút. Lars Lökke R...

Farsóttir og viðbrögð, loftslagsmál og staða Pútíns í sínu föðurlandi 21.05.2026

Skelfing vegna ebólu hefur gripið um sig í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó þar sem smituðum fjölgar og menn óttast að veiran dreifist hraðar en talið var í fyrstu fyrir tæpum mánuði. Í vor bárust fréttir af hópsýkingu af völdum hantaveiru sem valdið hefur dauðsföllum. Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir skilur að eftir covid-faraldurinn vakni meiri áhyggjur hjá fólki hér af farsóttum úti í h...

Stýrivextir og millilandaflug frá Akureyri 20.05.2026

Seðlabankinn hækkaði stýrivexti en dugir það vopn í baráttunni þegar lykilástæður eru utan landssteinanna? Rætt við Katrínu Ólafsdóttur, lektor í hagfræði, Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins og Höllu Gunnarsdóttur, formann VR. Mælanleg áhrif eru á lífsgæði og atvinnulíf á Norðurlandi eftir að reglubundið flug til útlanda frá Akureyri festi sig í sessi. Rætt við Þórodd Bja...

Lækkandi fæðingartíðni og eilítið vaxandi fjölmiðlafrelsi á Íslandi 19.05.2026

Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar hefur fæðingartíðni aldrei mælst lægri hér á landi. Árið 2025 fæddust að meðaltali 1,56 börn á hverja konu. Fyrir aðeins rúmum áratug hafði sú tala aldrei farið niður fyrir 1,93 börn. Að óbreyttu þýðir þessi fæðingartíðni fólksfækkun. Ingólfur Bjarni Sigfússon fjallar um þetta og talar við Ara Klæng Jónsson ogSigríði Ingibjörgu Ingadóttur. Blikur eru á lofti í h...

Skautun kjósenda og orðalag spurningar í atkvæðagreiðslu um Evrópusambandsviðræður 18.05.2026

Sjálfstæðisflokkurinn er ótvíræður sigurvegari sveitarstjórnarkosninganna um helgina og í dag hefur ítrekað verið talað um að Hildur Björnsdóttir, oddiviti í Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, sé með öll spil á hendi þar. En aðrir flokkar geta víða vel við unað, meðal annars flokkar sem eru lengra til hægri eða vinstri en verið hefur um langa hríð. Gengi flokka í höfuðborginni virtist skiptast mjög...

Kosið á morgun og ný könnun á fylgi í Reykjavík 15.05.2026

Frambjóðendur hafa flengst um í viðtölum og á fundum undanfarið og sérstaklega hert á allra síðustu daga, legið í símanum og jafnvel bankað upp á hjá fólki til að vinna það á sitt band fyrir kosningarnar á morgun. Hvernig hefur baráttan verið og hvað er líklegt að komi upp úr kössunum í sveitarstjórnarkosningunum á morgun? Ný könnun í Reykjavík sýnir vaxandi gengi Sjálfstæðisflokksins. Rætt við Ev...

Viðbrögð við hamförum, strandveiðar 13.05.2026

Skortur á áhættumati, skriflegu verklagi og skýrum áætlunum þegar almannavarnastigi er lýst yfir er meðal þess sem starfshópur dómsmálaráðherra um viðbrögð vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga setur út á í áliti sínu, sem birt var í morgun. Viðbragðsaðilar eru þó sagðir hafa unnið þrekvirki og tekið fram að það sé þeim að þakka að ekki fór verr. Alma Ómarsdóttir ræðir niðurstöður nefndarinnar og...

Sveitarstjórnarkosningar og dvínandi fjölmiðlafrelsi 11.05.2026

Hart er sótt að frelsi og sjálfstæði fjölmiðla í heiminum. Stjórnvöld og stórfyrirtæki, auðkýfingar og einvaldar, glæpagengi og löggæslustofnanir víða um heim taka þátt í þessari aðför og sækist hún giska vel. Þannig reiknast sérfræðingum alþjóðlegu V-Dem - rannsóknastofnunarinnar í lýðræðismálum, sem er með höfuðstöðvar sínar í Gautaborgarháskóla, svo til að fjölmiðlafrelsi hafi minnkað um tíu pr...

Eldri atvinnuleytendur, hanta-veiran og skemmtiferðaskip 07.05.2026

Eldri atvinnuleytendur telja sig verða fyrir fordómum vegna aldurs en vinnumiðlanir og rannsakendur segjast ekki kannast við aldursfordóma. Atvinnumarkaðurinn sé flókinn og atvinnuleit krefjist vinnu. Hanta-veiran dreifist allt öðru vísi en Covid og inflúensa, og smitast ekki nema við náið samneyti um lengri tíma. Þetta eru skilaboð Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar sem vill slá á ótta við heimsfar...

Íransstríðið og flugið, lokasprettur kosningabaráttunnar og ný leyniþjónusta Svía 05.05.2026

Flugfélög víða um heim eru farin að bregðast við ört hækkandi eldsneytisverði og búa sig undir að það hækki jafnvel enn frekar, dragist stríðsátökin við Persaflóa á langinn. Verðhækkunina má nefnilega fyrst og fremst rekja til árásarstríðs Bandaríkjamanna og Ísraela við Íran, og viðbrögð flugfélaganna eru meira og minna öll á einn veg: Fækkun flugferða, hækkun fargjalda og lækkun kostnaðar. Kosnin...

Hantaveiran, Eistar vígbúast og hlýindaárið mikla 2025 04.05.2026

Tiltölulega fágæt en iðulega banvæn veira, Hantan-veiran, dró að líkindum þrjár manneskjur til dauða í hollensku skemmtiferðaskipi, sem væntanlegt er hingað til lands síðar í maí. Hvaða veira er þetta, hversu skæð er hún og er einhver hætta á ferðum ef skipið kemur hingað? Grétar Þór Sigurðsson ræddi við Magnús Gottfreðsson prófessor í smitsjúkdómum. Ævar Örn Jósepsson tók saman. Eina leiðin til a...

Neyðarbirgðir, kosningar og mannréttindi 28.04.2026

Íslendingar eiga vasaljós og rafhlöður og telja sig almennt vel undir það búna að takast á við hamfarir, samkvæmt nýrri könnun hugveitunnar Vörðu. Hins vegar virðist vanta töluvert upp á raunverulegan undirbúning og mat á því hvaða hamfarir gætu orðið og hvers konar undirbúning þær gætu kallað á. Ingólfur Bjarni Sigfússon fjallar um þetta og ræðir við þá Kristin Hrobjartsson og Runólf Þórhallsson....

Samdráttur í ráðningum, hnignandi mannréttindi og þátttaka í bólusetningum. 27.04.2026

Einn fylgifiskur Covid-19 var aukin umræða um andstöðu gegn bólusetningum, sem var þó ekki alveg nýtt fyrirbæri. Kannanir erlendis hafa bent til að traust á bóluefnum hafi farið minnkandi frá 2015. Ný samantekt Council for Foreign Relations sýnir glögglega að nánast hvert sem litið er hafa efasemdir farið vaxandi og þátttaka þverrandi á liðnum árum. Ein afleiðingin er að sjúkdómar sem nánast hafði...

21.04.2026

Grindavík og Hveragerði teljast í mesta hættuflokki í nýju mati Veðurstofu Íslands á hraunavá á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu sem birt var síðdegis. Hættumatinu er ætlað að kortleggja hvar hættur geta skapast í ljósi gossögu svæðisins. Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, Veðurstofustjóri, og Sigrún Karlsdóttir, skrifstofustjóri náttúruvár, greindu frá úttektinni og næstu skrefum. Ósigur Viktors...

Nýjar ratsjár gegn smygli og skuggaflota, Finnafjörður og innflytjendamál 20.04.2026

Hvað eiga smyglarar og skuggaflotinn sameiginlegt? Að vilja ekki sjást, til dæmis á ratsjám, og að vera meðal þess sem nýjum tæknibúnaði Landhelgisgæslunnar verður beint gegn. Í sumar verða teknar í notkun fjórar ratsjár sem verða á völdum stöðum þar sem fylgjast á betur með skipaumferð í kringum landið. Ingólfur Bjarni Sigfússon ræðir við Finnboga Jónasson, yfirmann greiningardeildar ríkislögregl...

Heimskreppa, einkunnir grunnskólanema og vöktun Landhelgisgæslu 16.04.2026

Árásarstríð Bandaríkjamanna og Ísraela við Íran hefur skilað helstu olíurisum heimsins sem svarar 90 milljörðum króna aukahagnaði á degi hverjum frá því að það hófst, um 2.700 milljörðum á mánuði. Ástæðan er mikil hækkun á heimsmarkaðsverði olíu vegna lokunar Hormússunds og óvissu í olíuframleiðslu og -flutningum, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar við alheimskreppu að óbreyttu, það er, ef ekki teks...

Veðurfyrirbærið El Niño og framkvæmdaráðstefna Vegagerðarinnar 14.04.2026

Vegagerðin tekst jafnan á við miklar áskoranir í vegakerfinu og fjárskortur mörg undanfarin ár hefur valdið því að viðhaldsskuldin er mikil og þar skortir milljarða. Innlendir og erlendir sérfærðingar ætla að ræða vegaframkvæmdir og viðhald á ráðstefnu sem Vegagerðin stendur fyrir á Grand Hóteli á miðvikudag. Í ár er spáð El Niño, loftslagsfyrirbærinu sem felur í sér hlýnun sjávar og breytingar í...

Höre den Podcast Spegillinn in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet