Selfoss Hlaðvarpið
Selfoss Hlaðvarpið
Podcast by Selfoss Hlaðvarpið
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
Selfoss hlaðvarpið #044 - Bikarvika! 08.03.2022 1:01:19
Smiðjuhljóðverið var stútfullt af gæðum þegar Arnar Helgi hitaði upp fyrir bikarvikuna. Foringi strákanna, Halldór Jóhann Sigfússon mætti ásamt Einari Sverrisssyni. Hjörtur Leó Guðjónsson var þeim svo til halds og traust. Í lok þáttar fékk Arnar svo Gísla Felix Bjarnason til að rifja upp eina skiptið sem Selfyssingar léku til úrslita í bikarnum, en 1993 mættu Selfyssingar Val í troðfullri Laugarda...
Selfoss hlaðvarpið #043 - Þrekvirki Á Hellisheiði 03.03.2022 57:24
Smiðjustúdíóið var stútfullt af gæðum þegar Arnar Helgi ýtti á rec, íþróttastjórinn Örn Þrastarson var vitanlega mættur og með honum tveir vinstri hornamenn og yngri flokka þjálfarar, þeir Richard Sæþór Sigurðsson og Hannes Höskuldsson. Þeir fóru yfir helstu atriði sem á daga Selfoss handbolta hefur drifið síðustu vikur. Fóru yfir ótímabærar sögur um dauða handboltans á Selfossi og svo átakanleg s...
Selfoss hlaðvarpið #042 - Ómar bestur í heimi? 04.02.2022 1:10:13
EM lokið, stelpurnar á flugi og Olís að taka á flug á ný. Þetta og fleira fer Arnar Helgi yfir með þeim Þóri Ólafs og Erni Þrastar. Einnig var hrært í símtal til Þýskalands. Þar náði Arnar í Janus Daða Smárason, leikmann þýska úrvalsdeildarliðs Göppingen og leikmann íslenska landsliðsins. Allt þetta og meira til í boði Smiðjunnar sem eru ekki bara að bjóða upp á nokkra af bestu íslensku handverksb...
Selfoss hlaðvarpið #041 - Ísak fær átta 21.12.2021 1:03:04
Smiðju-hljóðverið var í jólabúning, jólakúlur og notalegheit. Arnar Helgi fékk Örn Þrastar íþróttastjóra og fastagest, örvhenta undrið Ísak Gústafsson og galdramanninn í rammanum, Jón Þórarinn Þorsteinsson. Farið var yfir síðustu vikur, spáð lauslega í spilin fyrir EM. Það eru búnar að vera grænar tölur á hlutabréfum í öllum Selfossliðum síðastliðinn mánuð. Auðvitað er farið sérstaklega í U-liða v...
Selfoss hlaðvarpið #040 - Íþróttastjórinn & Eurogan 18.10.2021 1:01:18
Enn kallar Evrópa og nú fékk Arnar Helgi til sín Örn Þrastarson íþróttastjóra Selfoss handbolta sem og aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla. Með þeim mætti Alexander Már Egan leikmaður meistaraflokks karla til margra ára þrátt fyrir ungan aldur. Já Smiðju-hljóðverið var vel mannað enda fullt til að tala um. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Ko so lipe cvetele, Orlek
Selfoss hlaðvarpið #039 - Handboltaveislan er hafin 05.10.2021 1:06:32
Loksins aftur! Selfosshlaðvarpið snýr aftur með stútfullann handboltaklukkutíma. Arnar Helgi Magnússon, Þórir Ólafsson og Hjörtur Leó Guðjónsson mættu í hljóðverið og hituðu upp fyrir veturinn með léttri yfirferð yfir það sem af hausti. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Innan í mér, Skítamórall
Selfoss hlaðvarpið #038 - Sumarið er tíminn! 05.05.2021 1:34:33
Fótboltasumarið er að hefjast og til að fagna því fékk Már Ingólfur góða gesti með sér að hljóðnemunum. Þá Ingimar Helga Finnsson, betur þekktur sem Litla Flugvél og Einar Karl Þórhallsson sem hefur verið í kringum fótboltan á Selfossi frá barnsaldri. Í Kaffi Krúsar stúdíóinu hituðu menn upp fyrir fótboltasumarið bæði hjá stelpunum og strákunum. Hverjir eru farnir, hverjir eru komnir og hverjir er...
Selfoss hlaðvarpið #037 - Þótt ég fari um dimman dal 22.03.2021 1:08:33
Það er búin að vera mikil keyrsla en við náðum að pinna niður góða gesti til að renna yfir það sem á hefur gengið síðustu vikur. Arnar Helgi fékk þá Guðmund Hólmar, Hólmar Höskulds og Þóri Ólafs til að tækla þetta með sér. Þeir gátu ekki annað en tekið samtalið um meiðslaölduna sem gegnið hefur yfir Selfyssinga. Einnig reyndu þeir að lesa í hvað hefur ekki gengið vel og finna lausnir á því. Einnig...
Selfoss hlaðvarpið #036 - Í Auga Stormsins! Hitað upp fyrir Haukar Selfoss 17.02.2021 24:03
Í miðri febrúartörninni náði Arnar Helgi að lokka Halldór Jóhann í Kaffi Krúsarstúdíóið í stutt spjall. Megintilgangurinn var vitanlega að hita upp fyrir stórleikinn sem verður leikinn undir föstudagsljósunum, Haukar Selfoss. Við heyrum hvernig menn eru að vinna úr þessu gríðarlega leikjaálagi sem febrúar er að færa okkur og hvað klikkaði hjá okkar mönnum gegn Fram. Selfoss hlaðvarpið hvetur handb...
Selfoss hlaðvarpið #035 - Guðmundar saga Guðmundssonar 04.02.2021 1:29:42
HM er búið og the boys are back in town. Arnar Helgi fékk Þóri Ólafs og Helga Hlyns með sér í Kaffi Krúsarstúdíóið eftir leik Selfoss og Vals í endurkoma strákanna okkar í Olísdeildina eftir 125 daga hlé. Arnar lét ekki þar við sitja og henti í símaviðtöl við atvinn- og landsliðsmennina Elvar Örn Jónsson og Bjarka Má Elísson sem og landsliðsþjálfara Íslands, Guðmund Guðmundsson. Þeir fóru eðlilega...
Selfoss hlaðvarpið #034 - Halldór Jóhann talar frá Bahrain 11.01.2021 22:16
Nú er HM alveg að skella á og Selfoss hlaðvarpið ákvað í tilefni af því að slá á þráðinn til Bahrain og fá stutt viðtal við landsliðsþjálfara þeirra, en það er enginn annar en Halldór Jóhann Sigfússon. Hann er jafnframt þjálfari handbolta strákanna okkar á Selfossi. Þeir Halldór og Arnar Helgi spjölluðu um lífið í Bahrain, handboltann og undirbúninginn í Bahrain fyrir HM og auðvitað komu þeir aðei...
Selfoss hlaðvarpið #033 - Hitað upp fyrir HM 08.01.2021 1:11:09
Eftir mjög langt ár er 2021 farið af stað og jólin halda áfram út janúar hjá handboltaáhugafólki. Nú er HM í handbolta að hefjast og fékk Arnar Helgi alvöru fallbyssur í Kaffi Krúsar hljóðverið til að hræara í þátt. Landsliðsmanninn fyrrverandi og góðvin hlaðvarpsins Þóri Ólafsson, núverandi ladsliðsmanninn Hauk Þrastarson ásamt bróður hans og þjálfari í öllum fullorðinsflokkum á Selfossi, Örn Þra...
Selfoss hlaðvarpið #032 - Fótboltasumarið gert upp 17.12.2020 1:05:32
Fótboltasumarið er löngu liðið og undirbúningur fyrir það næsta hafinn. Í tilefni af því fékk Már Ingólfur góða gesti. Arnar Helgi brá sér í gestahlutverkið, en hann er liðsstjóri hjá meistaraflokki karla. Einnig mættu fyrirliðar meistaraflokksliðanna tveggja, Þorsteinn Daníel og Anna María. Þau fóru yfir sumarið, sem varði óvenjulega lengi þetta árið eins og fólk þekkir. Hæðir og lægðir ræddar og...
Selfoss hlaðvarpið #031 - Samherji Samherja 23.10.2020 1:18:30
Handboltinn er í pásu, en það eru þó blikur á lofti um að hann gæti farið af stað um miðjan nóvember. Arnar Helgi fékk til sín hornamanninn knáa Þóri Ólafsson, Hólmar "H2" Höskuldsson og Guðmund Hólmar Helgason leikmann meistaraflokks karla og nýjasta stjarnan á Selfossi. Nýja Kaffi krúsarstúdíóið er að taka á sig mynd og þar er ekkert verið að slaka á. Á Krúsinni minnum við svo á California Club...
Selfoss hlaðvarpið #030 - Tár, bros og lakkskór 14.10.2020 1:21:28
Fótboltasumarið er í besta falli á lokametrunum og ekki útilokað að því sé lokið. Már Ingólfur Máson hélt um stjórnartaumana þegar tveir af stærstu leikmönnum Selfoss mættu í Kaffi Krúsar stúdíóið. Sævar Þór Gíslason þarf varla að kynna fyrir knattspyrnuáhugafólki á Íslandi, en hann var grimmur fyrir framan mörk andstæðinganna. Í dag er hann öflugri utanvallar og er meðal annars í stjórn knattspyr...
Selfoss hlaðvarpið #029 - Hitað upp fyrir handboltaveturinn 10.09.2020 1:19:56
Það er komið að því, handboltaveturinn er að fara í gang og í tilefni af því fékk Arnar Helgi til sín góða gesti. Þórir Ólafsson handboltagoðsögn á Selfossi, Örn Þrastarson þjálfari nánast allra iðkenda og Halldór Jóhann Sigfússon þjálfara meistaraflokks karla. Halldór Jóhann er kannski nýr á Selfossi, en hann er nú þegar búinn að kynnast Kaffi Krús og sundlauginni. Ekki skrýtið að hann kunni vel...
Selfoss hlaðvarpið #028 - Sáu Skítamóral ekki fyrr en í comebackinu 27.08.2020 1:00:36
Fótboltinn er aftur farinn af stað...aftur! Már Ingólfur setti græjurnar í Kaffi Krúsar-stúdíóinu í gang og fékk góða gesti, tveir fyrrverandi leikmenn Selfoss. Annars vegar Svava Svavarsdóttir sem meðal annars er í stjórn knattspyrnudeildarinnar og leikur fótbolta með Hamri. Hins vegar Ingimar Helga Finnsson leikmann Árborgar og annar þáttastjórnenda í einu vinsælasta fótboltahlaðvarpi Íslands, F...
Selfoss hlaðvarpið #027 - Allir tilbúnir að slást í 2. deildinni 09.07.2020 1:04:21
Fótboltasumarið er komið vel af stað og ekki seinna vænna en að fara yfir veturinn og upphaf tímabilsins hjá strákunum. Már Ingólfur Másson tók til sín stjórnartaumana í þætti dagsins og fékk tvo þrælgóða gesti, en þeir Ingi Rafn Ingibergsson nýorðinn fyrrverandi leikmann Selfossliðsins og Einar Ottó Antonsson aðstoðarþjálfari strákanna. Við rétt eins og gestir okkar höldum áfram að gleðjast yfir...
Selfoss hlaðvarpið #026 - Þriðja sætið yrði vonbrigði 11.06.2020 48:45
Nú er fótboltinn að fara á fulla ferð og tími til kominn að hita upp fyrir spennandi fótboltasumar. Gestir Arnars Helga í Kaffi Krúsarstúdíóinu voru rándýrir að vanda, en þær Anna Björk Kristjánsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir leikmenn meistaraflokks kvenna mættu ásamt þjálfara sínum, Alfreð Elíasi Jóhannssyni. Hálfur matseðillinn á Kaffi Krús fékk shoutout frá stelpunum og óhætt að segja að gleði...
Selfoss hlaðvarpið #025 - Spurningakeppni Selfoss hlaðvarpsins, stúlkur 06.05.2020 53:58
Þá er komið að seinni þætti spurningakeppni Selfoss hlaðvarpsins þar sem mætast fulltrúar meistaraflokka Selfoss í fót- og handbolta. Í þessum seinni þætti mætast fulltrúar meistaraflokka kvenna. Arnar Helgi er að vanda við stjórnvölinn og til leiks mættu fótboltakonan Þóra Jónsdóttir og handboltakonan Agnes Sigurðardóttir. Kaffi krúsar stúdíóið var ögn rykfallið, enda miklar framkvæmdir á Krúsinn...
Selfoss hlaðvarpið #024 - Spurningakeppni Selfoss hlaðvarpsins, drengir 17.04.2020 58:29
Selfoss hlaðvarpið ákvað að hræra í létta spurningakeppni á milli meistaraflokka Selfoss í fót- og handbolta. Í þessum fyrri þætti af tveim mætast fulltrúar meistaraflokka karla. Arnar Helgi er að vanda við stjórnvölinn og til leiks mættu fótboltamaðurinn Þorkell Ingi Sigurðsson og handboltamaðurinn Alexander Már Egan. Líf og fjör í Kaffi krúsar stúdíóinu eins og fyrri daginn, en þetta snýst auðvi...
Selfoss hlaðvarpið #023 – Handboltatímabilið blásið af 07.04.2020 51:08
Ritstjórn Selfoss hlaðvarpsins kallaði til krísufundar eftir að tilkynnt var að handboltatímabilinu hefði verið slaufað og ljóst hvernig leyst yrði úr öllum deildum. Tveggja metra reglan var tekin skrefi lengra og dró Arnar Helgi fram rauða símann í Kaffi Krúsarstúdíóinu og hringdi um borg og bí. Fyrsti viðmælandinn var Þórir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar Selfoss, annar var Örn Þrasta...
Selfoss hlaðvarpið #022 - Atvinnumennirnir okkar í Danaveldi 27.03.2020 1:07:24
Það voru engar smá fallbyssur sem Arnar helgi fékk í Kaffi Krúsar stúdíóið. Tveir lykilmenn í toppliðum dönsku úrvalsdeildarinnar sem og íslenska landsliðsins, Selfyssingarnir Janus Daði Smárason sem leikur með Álaborg og Elvar Örn Jónsson sem leikur með Skern. Strákarnir dásömuðu pizzurnar á Krúsinni og það er óhætt að taka undir það. Þessa dagana er verið að bjóða upp á heimsendingu frá kl. 17-2...
Selfoss hlaðvarpið #021 - Erfiðast að þjálfa þessa 20 cm á milli eyrnanna 13.03.2020 1:14:22
Kveikt var á kertum og ný sending af gestum tekin upp í Kaffikrúsarstúdíóinu strax eftir stórleik Selfoss og Hauka sem endaði ekkert allt of vel fyrir okkar menn. Arnar Helgi tók á móti Gísla Rúnari Guðmundssyni, markmannsþjálfara Selfoss, Einari Sverrissyni stórskyttu og Gísla Felix Bjarnasyni, goðsögn í lifandi lífi. Þeir töluðu vitanlega um leikinn sem þá var nýlokið, fóru yfir sýn markmannsþjá...
Selfoss hlaðvarpið #020 - Halldór Jóhann kynntur til leiks 23.02.2020 27:32
Strákunum var hleypt út úr Kaffi Krúsar stúdíóinu og yfir Hellisheiðina. Þar sem Halldór Jóhann Sigfússon verðandi þjálfari Íslandsmeistara Selfoss var tekinn húsi. Arnar Helgi spjallaði við hann um nýja starfið, Selfoss og handboltann. Selfoss hlaðvarpið óskar Halldóri til hamingju! Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Stopp nr. 7, 200.000 naglbítar
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet