Karfan

Karfan

Sports IS ↓ 688 Folgen

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: www.karfan.is

Autor

Karfan

Kategorie

Sports

Podcast-Website

www.karfan.is

Neueste Folge

12. Okt 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

(Endurútgefið - Apríl 2020) Boltinn Lýgur Ekki: Haukur Helgi í ítarlegu spjalli um ferilinn og framtíðina “Þú tekur þínar eigin ákvarðanir” 06.06.2020

Haukur Helgi Pálson Briem, leikmaður íslenska landsliðsins og Unics Kazan, var gestur í upptöku af Boltinn Lýgur Ekki. Í þættinum fór hann yfir ferilinn til þessa, stöðuna í dag, framtíðina og margt fleira. Haukur var spurður út í þau kynslóðaskipti sem hafa verið að eiga sér stað í landsliðinu og hvernig honum lítist á framtíð liðsins. Þrátt fyrir að vera aðeins 27 ára gamall í dag, þá hefur Hauk...

Podcast Körfunnar: Stefán Karel í spjalli - Fjórir heilahristingar á fjórum árum bundu enda á ferilinn 04.06.2020

Podcast Körfunnar fékk í heimsókn Stefán Karel Torfason. Í þættinum er rætt um íþróttauppeldið, Þór, frábært umhverfi hjá Snæfelli, KR og eina leikinn með ÍR. Þrátt fyrir að vera aðeins 26 ára gamall í dag, þurfti Stefán að hætta í körfubolta fyrir fjórum árum vegna tíðra höfuðhögga. Síðan þá hefur hann helgað sig aflraunum.  Þrátt fyrir að hafa verið ungur að árum þegar hann lagði körfuboltaskóna...

Boltinn Lýgur Ekki: NBA fer af stað í Júlí, Bestu titlalausu lið sögunnar og tímabilin 1992 og 2004 04.06.2020

Véfréttin fékk góðann vin þáttarins, Hörð Unnsteinsson í heimsókn í Vesturbæinn til þess að fara yfir fregnir þess að NBA deildin sé að fara af stað aftur. Rætt var um endurkomu NBA deildarinnar, 8 bestu lið sögunnar sem unnu ekki titil, tímabilið 1991-1992 og tímabilið 2003-2004. Breytti Rasheed Wallave treidið sögunni? Hvað þurftu Knicks á 10unda áratugnum? Hversu góður var Kevin Garnett raunver...

Boltinn Lýgur Ekki: Sibbaspjall færir sig á Sportveituna - Sigurbjörn Daði í ítarlegu spjalli 25.05.2020

Boltinn Lýgur Ekki fékk Sigurbjörn Daða Dagbjartsson í heimsókn og ræddi við hann um Sportveituna, útvarp og podcastveitu sem fer af stað innan skamms, þar sem hann mun sjá um körfuboltaumræðu. Þá er einnig snert á nokkrum hitamálum frá síðasta tímabili í Dominos deild karla. Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Do...

Boltinn Lýgur Ekki: Slúðrað án ábyrgðar - Heiðursmannasamkomulag fyrir suma, Siggi Þorsteins í Hauka og ætlar enginn að þjálfa á Akureyri? 21.05.2020

Boltinn Lýgur Ekki mætir aftur í sumarskapi. Véfréttin og Davíð Eldur fengu Þann Raunverulega, Tómas Steindórsson í kaffispjall í Vesturbæinn.  Tókum fyrir öll liðin í Dominos-deild karla, einhver lið í Dominosdeild Kvenna og nokkur í 1. Deild karla.  Hreyfir Kiddi Páls nálina í Grindavík, verður Dabbi Kóngur gamechanger í Þorlákshöfn, hver tekur við kvennaliði KR, hvert fer Siggi Þorsteins og mar...

Boltinn Lýgur Ekki: Topp 10 hringjalausir í sögunni, Dirk tjókar 2007 og var tímabilið 1994-1995 spilað? 10.05.2020

Vefréttin fékk þá Hörð Unnsteinsson, NBA grúskara og Andra Frey Arnarsson, Hjartaknúsara til sín í stúdíóið í hljómskálanum.  Strákarnir fóru yfir nýjustu vendingar í Last Dance og nýjustu NBA fregnir vikunnar. Svo smíðuðu þeir lista yfir 10 bestu hringjalausu leikmenn sögunnar. Tóku svo fyrir tímabilin 1994-1995 og 2006-2007. Hetjur, skúrkar, nýliðar og meistarar. Boltinn lýgur ekki er í boði Dom...

Boltinn Lýgur Ekki: Vesen í Vesturbæ, lame duck þjálfari í Grindavík og slúðrað án ábyrgðar 09.05.2020

Boltinn lýgur ekki þurfti nauðsynlega að bregðast við fregnum undanfarinna daga, til þess fékk Véfréttin góðan gest, Guðmund Auðun í neyðar og slúðurupptöku.  Litríkur leikmaður vikunnar er Emil Barja. Fórum yfir vesenið í vesturbænum, skrýtna stöðu Daníels í Grindavík og svona hvað er að gerast í leikmannaslúðrinu.  Fórum yfir alls kyns slúður, fullkomlega ábyrgðarlaust þar sem næstum öll lið dei...

Boltinn Lýgur Ekki: Pavel Ermolinskij “Alinn upp til þess að verða körfuboltamaður” 30.04.2020

Pavel Ermolinskij leikmaður Vals og íslenska landsliðsins var gestur í síðustu upptöku af Boltinn Lýgur Ekki. Í þættinum fór hann yfir hina ýmsu hluti. Ræðir hann muninn á íþróttauppeldi samfélaga, útlendingamál á Íslandi, þjálfun yngri leikmanna, hlutverk fjölmiðla, nýjar áskoranir hjá Val og margt fleira. Pavel að sjálfsögðu verið einn besti, ef ekki sá besti leikmaður sem efsta deild á Íslandi...

Boltinn Lýgur Ekki: Hörður ræðir The Last Dance, rífur í sig hið vonlausa 1998-99 tímabil og margt fleira 26.04.2020

Véfréttin fékk Hörð Unnsteinsson, körfuboltaþjálfara og grúskara til sín í NBA spjall.  Saman fóru þeir yfir The Last Dance og það sem er að frétta í NBA heiminum síðustu daga og vikur. Til umræðu voru svo tvö vafasöm tímabil 1998-99 og 2008-09.  Var 1998-99 tímabilið það versta í sögunni? Er úrslitakeppnisrönn Spurs 1999 eitt það besta? Hversu ofmetinn er Alonzo Mourning? Hversu góður var Carmelo...

(Endurútgefið - Mars 2020) BLE: Verðlaunaafhending fyrir tímabilið 2019-20 í Dominos deild karla og NBA 25.04.2020

Í mars komu þær fréttir að Dominos og fyrstu deildum á Íslandi hafi verið aflýst. Þá hafði leik verið frestað í NBA deildinni í Bandaríkjunum og verður það að teljast ólíklegt að hún haldi áfram næstu mánuðina.  Boltinn Lýgur Ekki fór vel yfir stöðu beggja deildar í þessari upptöku. Þá gera þeir einnig ráð fyrir að öllum tímabilum sé lokið og fara því í alsherjar verðlaunaafhendingar fyrir bæði Do...

(Endurútgefið - Júní 2019) Finnur Freyr yfirþjálfari yngri landsliða: Markmiðið að skapa A landsliðs leikmenn 25.04.2020

Karfan var stödd í Kisakallio í Finnlandi síðasta sumar þar sem að Norðurlandamót yngri 16 og 18 ára landsliða fór fram.  Mikið af þjálfurum fylgdi liðunum fjórum, en ásamt þeim þremur sem fylgja hverju liði var þar einnig yfirþjálfarinn Finnur Freyr Stefánsson. Við hann ræddi podcast Körfunnar á meðan hann fylgdist með æfingu undir 18 ára drengja í Susi 1 æfingasalnum á svæðinu. Finnur fer yfir v...

Helena Sverrisdóttir í ítarlegu spjalli um ferilinn og framtíðina “Mér finnst körfubolti ennþá ógeðslega skemmtilegur” 23.04.2020

Helena Sverrisdóttir leikmaður Vals og íslenska landsliðsins var gestur í síðustu upptöku af Boltinn Lýgur Ekki. Í þættinum fór hún yfir ferilinn til þessa, stöðuna í dag, framtíðina og margt fleira. Helena hóf unga að leika bæði með meistaraflokki og landsliði. Var aðeins 12 ára þegar hún hefur feril sinn með Haukum og tveimur árum seinna, er hún 14 ára þegar hún er komin í A landslið Íslands. Sí...

(Endurútgefið - Febrúar 2018) Jón Arnór Stefánsson fer yfir upphafið og farsælan feril 19.04.2020

Í febrúar 2018 ræddi Karfan við Jón Arnór Stefánsson um upphafið og glæstan feril. Farið er yfir víðan völl, þar sem byrjað er á æskuárunum í KR, síðan miðskólann í Bandaríkjunum, NBA árið, ferilinn í Evrópu og margt, margt fleira. Þá er einnig tekin staða á landsliðinu og Dominos deildinni. Undir lokin er svo farið yfir hvar hann sér sjálfan sig á næstu árum.  Gestur: Jón Arnór Stefánsson  Umsjón...

Podquiz Körfunnar: Þrjátíu spurningar um Michael Jordan 18.04.2020

Til þess að skemmta hlustendum Körfunnar höfum við hent í spurningakeppni í samkomubanninu sem er tilvalin fyrir vini, vinahópa og pör.  Podquiz er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram. 30 s...

Podquiz Körfunnar: Þriðji þáttur – 30 spurningar um körfuboltamenn utan vallar 17.04.2020

Til þess að skemmta hlustendum Körfunnar höfum við hent í spurningakeppni í samkomubanninu sem er tilvalin fyrir vini, vinahópa og pör.  Podquiz er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram. 30 s...

Boltinn Lýgur Ekki: Haukur Helgi í ítarlegu spjalli um ferilinn og framtíðina “Þú tekur þínar eigin ákvarðanir” 16.04.2020

Haukur Helgi Pálson Briem, leikmaður íslenska landsliðsins og Unics Kazan, var gestur í síðustu upptöku af Boltinn Lýgur Ekki. Í þættinum fór hann yfir ferilinn til þessa, stöðuna í dag, framtíðina og margt fleira. Haukur var spurður út í þau kynslóðaskipti sem hafa verið að eiga sér stað í landsliðinu og hvernig honum lítist á framtíð liðsins. Þrátt fyrir að vera aðeins 27 ára gamall í dag, þá he...

Aukasendingin - Símaútgáfa: Trausti, Baldur Þór og Jóhann Árni um stöðuna í samkomubanni 14.04.2020

Ný þáttur af aukasendingunni er mættur, en það er sérstök útgáfa í þetta sinn. Við tókum upp símtólið og hringdum í nokkra aðila tengda körfuboltanum. Sjáum hvernig staðan er á liðunum í samkomubanni. Á næstu vikum ætlum við okkur að hringja um hvippinn og hvappinn, ræða við allskonar fólk tengt körfuboltanum, leikmenn, þjálfara, stjórnarmenn, stuðningsmenn eða bara hvað sem er.  Fyrstu gestirnir...

(Endurútgefið - Ágúst 2018) 1 á 1: Kristófer Acox í einlægu spjalli 11.04.2020

Í þessum fyrsta þætti af 1 á 1 hjá Körfunni frá ágúst 2018 er gesturinn Kristófer Acox. Kristófer var þá nýjasti atvinnumaður Íslendinga í körfubolta. Í þættinum er rætt um agann í Bandaríkjunum, titlana hjá KR, landsliðið, ævintýrin í Filipseyjum og B5 svo einhver dæmi séu tekin. Umsjón: Ólafur Þór Jónsson Efnisyfirlit: 1:45 - Uppeldið í Vesturbænum - Upprennandi framherji í fótbolta 8:30 - Miðsk...

(Endurútgefið - Maí 2018) Raggi Nat í spjalli - Stóri bekkjartrúðurinn frá Hveragerði 11.04.2020

Ragnar Nathanaelsson var gestur vikunnar í Podcasti Körfunnar í Maí 2018, þar sem hann gerði upp ferilinn, en hann hefur komið víða við. Það eru margar stórskemmtilegar sögur sem Raggi segir frá í þessum þætti auk þess sem 2017-18 tímabilið er gert upp. Umsjón: Ólafur Þór Jónsson og Davíð Eldur 11:45 - Nýjustu fréttir - Danero í Tindastól 16:50 - Ágúst dregur Ragga á æfingar í Hveragerði 13:30 - V...

Boltinn Lýgur Ekki: Martin Hermannsson “Maður er í þessu til þess að sjá hvað maður getur náð langt" 09.04.2020

Körfuknattleiksmaður ársins, leikmaður íslenska landsliðsins og Alba Berlin í Þýskalandi, Martin Hermannsson gerði sér ferð vestur í bæ og sat fyrir svörum í síðustu upptöku af Boltinn Lýgur Ekki. Fór Martin yfir ferilinn til þessa, rýndi í framtíðina og svaraði spurningum hlustenda. Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað e...

(Endurútgefið - Janúar 2020) Boltinn Lýgur Ekki: Kobe Bryant 1978-2020 04.04.2020

Þær sorgarfréttir bárust í janúar að körfuboltagoðsögnin Kobe Bryant sem lék sinn feril með Los Angeles Lakers hefði látist í þyrsluslysi. Í þessari upptöku af Boltinn Lýgur Ekki er farið yfir feril leikmannsins og hvaða áhrif hann hafði á íþróttina, bæði sem leikmaður, sem og eftir að hann hætti að spila. Gestur þáttarins er Hrafn Kristjánsson, þjálfari Álftnesinga í fyrstu deildinni og aðdáandi...

(Endurútgefið - Júlí 2019) Off-season: Siggi Hjörleifs "Við eigum ekki að vera brjóta reglur" 04.04.2020

Nú fyrst að körfuboltatímabilið er í pásu ætlum við hjá Körfunni að taka fyrir nokkra stólpa innan körfuboltahreyfingarinnar. Þessir aðilar munu koma úr öllum áttum; þetta verða leikmenn, þjálfarar, stuðningsmenn, sjálfboðaliðar og fleiri sem munu ræða hvernig þeir koma að og þrífast í þessari móður allra íþrótta. Viðmælandi dagsins er Sigurðu Hjörleifsson, yfirleitt kallaður Siggi Hjörleifs. Sigg...

Podquiz Körfunnar: Annar þáttur – 30 spurningar um íslenskan körfubolta 24.03.2020

Véfréttin, eins og aðrir í samkomubanni saknar Dominos deildarinnar mikið.  Til þess að skemmta hlustendum Körfunnar hefur hún því hent í spurningakeppni sem er tilvalin fyrir vini, vinahópa og pör.  Podquiz er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina s...

Boltinn Lýgur Ekki: Mate og Hraunar í heimsókn, ákvarðanir, útlendingamál og framtíðin 23.03.2020

Véfréttin fékk reiðustu menn körfuboltafjölskyldunnar í heimsókn í Boltinn Lýgur Ekki. Þá Mate Dalmay og Hraunar Guðmundsson. Þeir fóru yfir nýjustu vendingar varðandi ákvörðun KKÍ, hvernig fyrsta deildin spilaðist í vetur, hvernig útlendingamál muni þróast á næsta ári og margt fleira. Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað...

The Uncoachables: Game Over, Man. Game Over 22.03.2020

The season has ended prematurely in the Icelandic leagues in light of the global pandemic of the Corona virus, Covid-19. The Icelandic Basketball Federation announced last Wednesday (18th of March) that all basketball in Iceland is over until next season. Although we are sad about this unprecedented turn of events we understand that a difficult decision had to be made. This is our wrap-up episode...

Höre den Podcast Karfan in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet