Karfan
Karfan
Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.
Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: www.karfan.is
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
Undir Körfunni - 1/2 - Þröstur um leikinn stóra gegn Njarðvík, um tímann sinn með Tindastól og Þór Akureyri sem og vonir og eftirsjár af ferli sínum „Ég er mikill kex kall“ 29.12.2021 53:52
Þröstur Leó Jóhannsson, leikmaður Keflavíkur, er gestur í áttunda þætti af Undir Körfunni. Áttundi þætti er skipt upp í tvo hluta og í fyrri hluta fer Þröstur vel og ítarlega yfir körfuboltaferill sinn til þessa og segir sögur frá tímanum sínum með Tindastól og Þór Akureyri sem og allskonar sögur úr Keflavík. Þröstur ræðir vonir og eftirsjár af ferli sínum og hvers vegna honum tókst aldrei að koma...
Aukasendingin - Áramótabomba: Verðlaun fyrir almanaksárið 2021 í öllum flokkum 27.12.2021 1:02:19
Aukasendingin fékk til sín Snáða 1 Ísak Wium og Þann Hundtrygga Hraunar Karl til þess að gera upp árið 2021 í sannkallaðri áramótabombu. Veitt eru verðlaun fyrir bestu leikmenn, valið í úrvalslið, besti ungi leikmaður, besti þjálfari, besti landsliðsmaður og margt, margt fleira. Þá eru einnig til umræðu stærstu fréttir og félagaskipti ársins, sem og hver staðan í annarri og fyrstu deildinni hefur...
Undir Körfunni: Katla Rún um ferilinn sinn til þessa, ótrúlega yngri flokka í Keflavík og stórleikinn gegn Njarðvík í næstu umferð „Þau hafa montréttinn núna en það breytist þann 29. des“ 26.12.2021 1:13:00
Katla Rún Garðarsdóttir, leikmaður Keflavíkur, mætti í sjöunda þátt af Undir Körfunni. Katla fer yfir körfubolta feril sinn til þessa, bestu og verstu augnablikin og uppáhalds hluti. Katla hefur alla tíð leikið með Keflavík en hún fer meðal annars yfir ótrúlegt gengi Keflavíkur í yngri flokkunum og eftirminnanlegan fyrsta tapleik á ferlinum. Fraumundan hjá Kötlu er stórleikur þegar Keflavík tekur...
Social Chameleon #14 - Everage um ferðalagið frá Brooklyn til Breiðabliks, 42 stig að meðaltali í Þýskalandi og hvernig það er að leiða Subway deildina í framlagi 35 ára að aldri 22.12.2021 1:10:07
Dominykas Milka ræðir við leikmann Breiðabliks Everage Richardson um bernskuna í New York, háskóla boltann í Suður Karólínu og hvernig það hafi verið að vera atvinnumaður í Þýskalandi og Lúxemborg. Þá ræða þeir komu hans til Íslands og hvernig hann hefur á síðustu árum verið einn besti leikmaðurinn í nokkrum deildum hér á landi. Everage kom upphaflega til Íslands 2017 og lék fyrir Gnúpverja. Tímab...
The Uncoachables: Holiday cheer and more report cards 18.12.2021 1:28:47
Helgi and David finished up their report cards before Christmas and discussed the Icelandic national team games plus their predictions and some news stories that have come up. Enjoy and happy holidays! Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson and David Patchell Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú Körfuna
The Uncoachables: Report cards and Rúnar Ingi 17.12.2021 2:09:31
Helgi and David had a great guest from Njarðvík for this episode, Rúnar Ingi Erlingsson. Rúnar Ingi is head coach of the Njarðvík women's team that just got promoted to the Subway league and are currently in the top spot on the table. We talked to Rúnar about his team, their identity, transitioning from playing to coaching and where he sees his team going. Later (00:42:00) we did report card...
Undir Körfunni - Hilmar Pétursson um brottför Bilic, tímann undir Israel Martin, framtíðarplön sín og vonir Breiðabliks „Sætasti sigurinn á enn þá eftir að koma“ 16.12.2021 54:24
Hilmar Pétursson, leikmaður Breiðabliks, er til tals í sjötta þætti af Undir Körfunni. Hilmar ræðir um feril sinn, bestu og verstu augnablik. Hilmar kemur af mikilli körfuboltafjölskyldu, í Breiðablik leikur hann með bróðir sínum, Sigurði Péturssyni, undir stjórn föður þeirra, Pétri Ingvarssyni. Næstu leikir Hilmars með Breiðablik eru gegn frænda hans, Kára Jónssyni, hjá Val og besta vini hans, Hi...
Fókus: Bras í Borgarfirðinum, sigling á Njarðvík og Fjölni og næsta umferð Subway deildarinnar 15.12.2021 52:48
Fókus kom saman og fór yfir síðustu umferð Subway deildar kvenna, spáði fyrir um þá næstu og velti fyrir sér vandræðum Skallagríms, sem á dögunum dró lið sitt úr keppni í Subway deildinni. Umsjónarmaður Fókus er fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Ólöf Helga Pálsdóttir Woods, en henni til halds og trausts í dag var ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur. Fókus er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstar...
Aukasendingin – Njósnir í Grindavík, uppgjöf í Borgarnesi og hverjir eru bestu erlendu leikmenn deildarinnar 14.12.2021 1:12:45
Aukasendingin fékk til sín Hrafn Kristjánsson og Guðmund Auðunn til þess að ræða fréttir vikunnar, Subway deild karla og VÍS bikarkeppnina. Þá er í lokin valið í tvö byrjunarlið. Það fyrra af bestu bandarísku leikmönnum deildarinnar, en það seinna bestu evrópsku leikmenn deildarinnar. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Krista...
Social Chameleon #13 - Khalil Ahmad um árið á Íslandi, Drew sumardeildina og hvernig það hafi verið spila við Ball bræður í yngri flokkum 13.12.2021 1:26:13
Dominykas Milka ræðir við fyrrum leikmann Keflavíkur Khalil Ahmad um ferðalag hans frá Kaliforníu til atvinnumennsku á Íslandi og í Danmörku. Þá ræðir hann einnig hvernig það er að æfa með NBA leikmönnum á sumrin, en hann hefur síðustu ár leikið í Drew sumardeildinni þar sem margar af skærustu stjörnum boltans láta sjá sig. Khalil kom upphaflega til Íslands árið 2019, en á sínu fyrsta tímabili í a...
Aukasendingin - Keflvíkingar komnir á toppinn, fallbaráttan að harðna og íslenskir leikmenn sem valdið hafa vonbrigðum 07.12.2021 1:30:16
Aukasendingin fékk til sín Þann Hundtrygga Hraunar Karl og Þann loftslagskvíðna Guðmund Auðunn til þess að ræða fréttir vikunnar, Subway deild karla og fyrstu deildina. Þá er í lokin farið yfir hvaða íslensku leikmenn hafa verið bestu viðbæturnar við sín lið í Subway deildinni og hvaða leikmenn hafa ekki skilað því sem til var ætlast. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstarfsa...
Undir Körfunni - Embla Kristínardóttir um erfið meiðsli sín, dólgslegan leikstíl, barneigna tilkynningar og erjur við þjálfara á ferlinum „Ég setti fótinn niður og sagði hingað og ekki lengra“ 06.12.2021 1:14:49
Embla Kristínardóttir, leikmaður Skallagríms, er viðmælandi í fimmta þætti Undir Körfunni. Embla ræðir um feril sinn hingað til, helstu ástæður vegna félagaskipta og tilveruna í Borgarnesi. Embla tilkynnti á dögunum að hún ætti von á sínu öðru barni og mun ekki spila meira á tímabilinu með Skallagrím. Embla svarar slúðursögum sem hafa gengið á varðandi tilkynningar hennar til félagsins og Embla ræ...
Social Chameleon #12 – Callum Lawson um líf atvinnumannsins, breskan körfubolta og hvað hann ætli að gera eftir ferilinn 05.12.2021 1:01:47
Dominykas Milka ræðir við leikmann Vals Callum Lawson um breskan körfubolta, erfiða byrjun á atvinnumannaferil og hvað hann ætli að gera eftir að körfuboltaferil hans lýkur. Callum kom upphaflega til Íslands tímabilið 2019-20, en frá því hann kom hefur hann leikið með Keflavík, Íslandsmeisturum Þórs og nú Val. Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas ræða við áhugaver...
Fókus: Njarðvík rígheldur í efsta sætið, Fjölnir á siglingu og hverjir eru efnilegustu leikmenn Íslands? 03.12.2021 1:11:54
Fókus kom saman og fór yfir síðustu umferð Subway deildar kvenna, spáði fyrir um þá næstu og velti fyrir sér hverjir væru efnilegustu leikmenn landsins. Umsjónarmaður Fókus er fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Ólöf Helga Pálsdóttir Woods, en henni til halds og trausts í dag var ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur. Fókus er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactic...
Undir Körfunni – Dúi Þór um lífið á Akureyri, körfubolta áhugann sem og viðureignir við og með Þór Akureyri. „Það eru fáir í deildinni sem geta unnið mig í 100 metra spretthlaupi“ 29.11.2021 43:48
Dúi Þór Jónsson, leikmaður Þórs Akureyri, er viðmælandi í fjórða þætti Undir Körfunni. Dúi fer yfir feril sinn til þessa, yngri flokkana og þá sérstaklega hörð einvígi Stjörnunnar við Þór Akureyri og svo skipti Dúa yfir til Þórs. Dúi ræðir fyrstu skref sín inn í meistaraflokk, hans helstu fyrirmyndir og fjölskyldumeðlimi, ásamt því hverjum hann myndi helst vilja syngja með í dúett. Dúi gefur upp d...
Social Chameleon #11 - Jaka Brodnik um erfiðleika í byrjun ferilsins, að spila með Jokic og Nurkić í NBA sumardeildinni og ferðalagið til Íslands “Deildin á Íslandi er vanmetin” 28.11.2021 53:01
Dominykas Milka ræðir við leikmann Keflavíkur Jaka Brodnik um hvernig það hafi verið að alast upp í slóvenskum körfubolta, erfiðleika á fyrstu árum atvinnumennsku, ferðalag vestur um haf í sumardeild NBA deildarinnar, hvernig hann hafi endað á Íslandi og margt fleira. Jaka kom upphaflega til Íslands til Þórs í nóvember 2018. Þaðan fór hann til Tindastóls og var með þeim frá 2019 til 2021 áður en h...
Fókus: Sterkur sigur Njarðvíkur og vandræði í Kópavogi 26.11.2021 40:18
Fókus kom saman og fór yfir fyrstu leiki eftir landsleikjahlé, mikilvægan sigur Grindavíkur á Breiðablik, vafaatriði í Dalhúsum, erfitt gengi Skallagríms og margt fleira. Umsjónarmaður Fókus er fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Ólöf Helga Pálsdóttir Woods, en henni til halds og trausts í dag var ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur. Fókus er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstarfsaðilar Körfunnar...
Social Chameleon #10 - Logi Gunnarsson um Njarðvík, árin í Evrópu, landsliðsævintýrin og hvernig það sé að eldast sem körfuboltamaður “Vill ekki hætta fyrr en ég er tilbúinn til þess” 24.11.2021 1:04:47
Dominykas Milka ræðir við leikmann Njarðvíkur og fyrrum leikmann íslenska landsliðsins Loga Gunnarsson um ferilinn með Njarðvík, liðum víðsvegar í Evrópu, landsliðsævintýrin og hvernig það sé að eldast sem körfuboltamaður. Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas ræða við áhugavert fólk bæði um hin ýmsu málefni sem snerta körfuknattleik, sem og málefni líðandi stundar...
Aukasendingin - Máté rýfur þögnina, verðlaun fyrir fyrstu sjö í Subway og umræða um landsliðsvalið 22.11.2021 1:34:56
Aukasendingin fékk til sín Þann Hundtrygga Hraunar Karl og Snáða 2 Máté Dalmay til þess að ræða fréttir vikunnar, landsliðsvalið og fyrstu deildina. Þá eru veitt verðlaun fyrir fyrstu sjö umferðir Subway deildar karla, þar sem besti leikmaður, mestu framfarir, besti þjálfari, fimma manna úrvalslið og magt fleira er valið. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstarfsaðilar Körfunn...
Undir Körfunni - Raggi Braga um erfiðan viðskilnað í Breiðholtinu, bleika hárið og Íslandsmeistaratitilinn í Þorlákshöfn „Við höfum trú á því að við getum unnið alla“ 22.11.2021 1:18:11
Ragnar Örn Bragason, leikmaður Þórs Þorlákshafnar, er þriðji viðmælandinn Undir Körfunni. Ragnar ræðir ferilinn sinn, lífið sem Íslandsmeistari og hvernig það er að spila undir stjórn Lárusar Jónssonar. Ragnar fer yfir hörð einvígi á parketinu við fyrirmynd sína í körfuboltanum, Brynjar Þór Björnsson, ásamt því að segja sögu af Kinu Rochford, útskýra mismunandi hárliti sína, fara yfir stemninguna...
The Uncoachables: National team and trade windows 19.11.2021 1:22:52
Helgi and David sat down to talk about trade windows and what teams changed up their rosters. They also discussed the women's national team games and the men's national team roster. Enjoy! Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson and David Patchell Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú Körfuna
Aukasendingin - Ægir Þór um lífið á Spáni, Subway deildina og landsleikina sem framundan eru 17.11.2021 40:20
Aukasendingin ræddi við leikmann íslenska landsliðsins og Acunsa GBC á Spáni um hvernig það hafi verið að flytja með fjölskylduna til Spánar nú í haust, hverjar væntingar fyrir tímabilið séu í San Sebastian, hvernig honum lítist á gengi liða í Subway deildinni á þessu tímabili og hvernig hann sjái landsliðsgluggann sem framundan er fyrir sér. Þá spáir Ægir í restina fyrir um leiki 7. umferðar Subw...
Undir Körfunni - Helena og nýliðar Njarðvíkur stefna á þann stóra "Við getum farið alla leið" 17.11.2021 35:39
Í öðrum þætti mætir Helena Rafnsdóttir, leikmaður Njarðvíkur, undir körfuna og ræðir uppgang Njarðvíkur liðsins og væntingar liðsins fyrir tímabilið 2021/22. Helena fer yfir gengi hins umtalaða 2003 árgangs og velur úrvalslið sitt í Subway deildinni. Undir Körfunni er í boði Lykils, Kristalls og Subway. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú K...
Undir Körfunni - Styttist í endurkomu Hauks Helga Pálssonar á parketið. „Ökklinn minn hefur ekki verið í lagi síðan 2014“ 11.11.2021 51:13
Í fyrsta þætti undir körfunni mætir Haukur Helgi Pálsson, leikmaður Njarðvíkur, og ræðir um ferilinn sinn til þessa. Haukur ræðir sína löngu sögu meiðsla og aðgerðina sem hann fór í nýlega til að koma sér aftur í stand. Rætt er um bestu og verstu leiki Hauks og Haukur gefur upp draumalið sitt af leikmönnum sem hann hefur spilað með ásamt því að stilla upp það sem er að hans mati, bestu leikmenn S...
Aukasendingin - Nýtt blóð í Breiðholtið og hvaða lið þurfa mest að breyta til? - Styrmir Snær í viðtali frá Davidson “Þú verður að vera harður víkingur eins og Jón Axel” 09.11.2021 1:26:11
Aukasendingin fékk Þann Hundtrygga og Siggeir Ævarsson til að ræða fréttir vikunnar, síðustu og næstu umferð í Subway deild karla og margt fleira. Þá er í lokin viðtal við fyrrum leikmann Íslandsmeistara Þórs, Styrmi Snær Þrastarson um nýtt upphaf hans með Davidson í bandaríska háskólaboltanum, en deildarkeppni þeirra er að rúlla af stað þessa vikuna. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og...
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet