Kop.is

Gullkastið

Sports IS ↓ 412 Folgen

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: www.kop.is

Autor

Kop.is

Kategorie

Sports

Podcast-Website

www.kop.is

Neueste Folge

12. Okt 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Gullkastið - Húkkaraballið byrjað í boltanum 18.07.2019

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Æfingatímabilið er farið að stað og spurning hvort við lærðum eitthvað í fyrstu tveimur æfingaleikjunum? Coutinho hefur verið fyrirferðarmikill í slúðrinu í vikunni, er líklegt að Liverpool kaupi hann og viljum við hann yfirhöfuð? Hvað eru hin liðin að gera í sumar og hvaða væntingar geta þau haft til næsta tímabils? Veltum þessum spurningum...

Gullkastið - Hvar og hvernig er hægt að styrkja liðið? 27.06.2019

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Greindum Liverpool liðið stöðu fyrir stöðu til að reyna finna út hvar og hvernig væri hægt að styrkja Liverpool liðið með hliðsjón af misalvarlegum orðrómum tengdum félaginu það sem af er sumri. Tókum einnig aðrar fréttir úr enska boltanum og horfðum til fyrstu umferðar í ágúst.

Gullkastið - Þjálfaraklám! 12.06.2019

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn  Létt uppgjör á tímabilinu, úrslitaleikurinn, Silly Season o.m.fl. 

Gullkastið: EVRÓPUMEISTARAR 03.06.2019

Það mun taka einhverja daga að melta þennan geggjaða sigur í Meistaradeildinni. Leiðin hefur verið svo mikið lengri en bara þetta tímabil. Bara við hæfi að Liverpool færi til Madríd og næði í helvítis bikarinn sem við áttum svo skilið í fyrra.  Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi, Maggi Beardsley, Daníel, Ingimar og Óli Haukur

Gullkastið - Forsætisráðherra á lokaorðið 31.05.2019

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Maggi og SSteinn Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar er í Madríd annað kvöld, það er loksins komið að þessu. Til að  reka endahnútinn í upphitun Kop.is fyrir þennan risaviðburð héldum við félagarnir í Stjórnarráðið á fund Forsætisráðherra sem er að sjálfsögðu stuðningsmaður Liverpool. 

Gullkastið - Lokaleikurinn! 28.05.2019

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi, SSteinn og Birgir Ólafsson formaður Tottenham klúbbsins á Íslandi. Fókusinn var á Tottenham í fyrri þætti vikunnar samanburð á liðunum. Formaður Tottenhamklúbbsins var með okkur til að ræða sína menn. 

Gullkastið - Lognið á undan storminum 21.05.2019

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi  Það eru ennþá heilir 11 dagar í veisluna í Mddríd sem verða góða 48 daga að líða. Fókusinn var því ekki á Madríd í þessum þætti heldur meira hvað sé næst hjá okkar mönnum á leikmannamarkaðnum. Eins snertum við aðeins á vandamálum Man City utanvallar, þrumuskitu UEFA þegar kemur að úrslitaleikjunum í báðum Evrópukeppnunum og enduðum á því að...

Gullkastið - Hatrið hefur sigrað 16.05.2019

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Liverpool setti nýtt og áður óþekkt viðmið í að vanta bara herslumuninn til að vinna deildina á mögnuðu tímabili. Gríðarleg vonbrigði en það er eitt stórt verkefni framundan og núna ljóst hverjir andstæðingarnir verða í Madríd. 

Gullkastið - "We must turn from doubters to believers" 07.05.2019

Vorum við að horfa á besta kvöld sem Anfield Road hefur séð? Ef að Liverpool klárar dæmið í Madríd verður þetta ekki spurning. Meira er ekki hægt að fara fram á frá þessu liði, ótrúlegir. Það var ekki hægt annað en að taka upp þátt strax eftir leik.  Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og Istanbul-Steini

Gullkastið - Fari það í kolbölvað! 01.05.2019

Hlóðum í þátt strax í kjölfarið á þessum hræðilegu úrslitum í Barcelona.

Gullkastið - Gamla skólanum lokað 23.04.2019

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn, Maggi og Maggi Þórarins (Beardsley) Stórundarleg vika þar sem flestir stuðningsmenn Liverpool halda meira með Man Utd en flestir stuðningsmenn djöflanna. Cardiff var afgreitt um helgina og Huddersfied bíður á föstudaginn og Barcelona í næstu viku. Það er allt galopið ennþá. 

Gullkastið - Yfir til ykkar Man City 16.04.2019

Stærstu hindruninni á pappír var rutt úr vegi um helgina og pressan færð yfir á Man City í bili. Barcelona bíður í undanúrslitum fyrir það lið sem vinnur einvígið annað kvöld og ljóst að Meistaradeildin verður engin aukabrúgrein áfram komist Liverpool þangað. Cardiff með alla sína Neil Warnock-a bíður svo næstu helgi. Þetta og mun fleira í þætti vikunnar en með okkur að þessu sinni var meistari Jó...

Gullkastið - Mörk frá miðjunni! 11.04.2019

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn, Maggi og Ívar Örn Reynis. Miðjumenn Liverpool með fyrirliðann í fararbroddi sáu til þess að Árshátíðarhelgi Liverpool klúbbsins var stórvel heppnuð með Liverpool á toppnum. Liverpool nýtti svo gærdaginn í að útbúa nesti fyrir ferðalagið til Porto í næstu viku en áður en þeir fara þangað mætir óstöðugt og undarlegt lið Chelsea á Anfield.

Gullkastið - LOLris 02.04.2019

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Titilbaráttan hékk á bláþræði gegn Tottenham en allt fór vel að lokum. Næst er rosalegur apríl mánuður með Liverpool í bullandi séns í tveimur keppnum. 

Gullkastið - München 20.03.2019

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn, Maggi og Áskell Heiðar Ásgeirsson Mættir aftur heldur betur ferskir eftir góða ferð til München í síðustu viku, helst á dagskrá var auðvitað München og leikurinn gegn Bayern, torveldur sigur á Fulham og næstu mótherjar í Meistaradeildinni. Heiðar Bræðslustjóri kom með okkur út og var að sjálfsögðu líka með okkur í þætti vikunnar.

Gullkastið - Hatrið hafði betur 07.03.2019

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi  Liverpool gaf eftir toppsætið eftir ákaflega pirrandi 0-0 jafntefli á Goodison Park og ljóst að Man City ætlar ekkert að gefa eftir í þessum slag. Watford var tekið í kennslustund nokkrum dögum áður og vonandi gefur sá leikur meira fyrirheit um það sem koma skal hjá Liverpool á lokakaflanum en leikurinn um helgina. Næst er það Burnley og fe...

Gullkastið - Toppsætið endurheimt á Old Trafford 26.02.2019

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælandi: SSteinn, Maggi og Maggi Þórarins  Andi Mourinho sveif ennþá yfir Man Utd á Old Trafford um helgina í hrútleiðinlegum leik. Rétt eins og Bayern pakkaði United í vörn og komst allt of léttilega upp með það. Það var nóg annað að frétta í þessari viku, Kepa bjargaði deildarbikarnum, Rodgers er mættur aftur í Úrvalsdeildina og Tottenham tapaði stigum. Liverpool sv...

Gullkastið - Þýska stálið sterkt 20.02.2019

Stjórnandi:  Einar Viðmælendur:  SSteinn og Maggi. FC Bayern sýndi afhverju þeir eru langstærsta lið Þýskalands en um leið gaf upplegg þeirra á Anfield til kynna þá virðingu sem borin er fyrir Liverpool um þessar mundir. Þeim fækkar hratt liðunum sem þora að mæta á Anfield og leggja upp með að spila sinn leik. Næstu helgi er svo enn stærri leikur, stærsti leikur Liverpool og Man United í langan tí...

Gullkastið - Aftur á sigurbraut 12.02.2019

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Kjartan Guðmundsson útvarpsmaður 00:00  – Bournemouth leikurinn 28:20  – Vinnur Man City rest? 37:55  – Sæti Sarri Sjóðandi? 42:50  – Spurs eru eins og kakkalakkar 49:00  – Bestu byrjunarlið Liverpool sem við höfum séð live

Gullkastið - Bullandi mótvindur 05.02.2019

Stjórnandi:  Einar Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Erfið byrjun á árinu og vond vika á dagskrá í þætti vikunnar. 

Gullkastið – RAFA BENITEZ 29.01.2019

Stjórnandi:  Einar Viðmælendur:  SSteinn, Maggi og Skúli Brynjólfsson stuðningsmaður United (og bróðir Steina). Ef að Ölgerðin hannaði fótboltakvöld þar sem Liverpool á ekki leik… Rafa Benitez gerði sér lítið fyrir og vann Manchester City fyrir okkur og það eftir að hafa lent undir. Skítt með leikmenn Newcastle, við skrifum þennan fullkomlega á okkar mann. Liverpool hefur ekki spilað leik síðan vi...

Gullkastið - Skrautlegur sigur og Arsenal umræða 24.01.2019

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Einar Guðna (Arsenal)  Crystal Palace gerði sitt allra besta til að eyðileggja partýið og þyrfti hin heilaga þrenning í framlínu Liverpool að bjarga félögum sínum í vörninni til að landa öllum þremur stigunum. Toppbaráttan er því áfram í algleymingi en baráttan um síðasta Meistaradeildarsætið er ennþá jafnari og vert að skoða betur á þessum tímapu...

Gullkastið - Fyrsti sigur ársins 15.01.2019

Brighton hefur verið það lið í vetur sem hvað erfiðast var að brjóta niður og því gott að taka öll sex stigin úr viðureignum liðanna. Hver/hvor verður stjóri United í ágúst? Roy Hodgson er með 1% betri árgangur hjá Palace en vanalega. Miðamál á Liverpool leikjum. Þetta er það helsta á dagskrá í þætti vikunnar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn

Gullkastið - Hvar er Clean Sheet Klavan? 11.01.2019

Það er Kop.is hittingur í kvöld þannig að við settum Magga og Steina í eldhúsið á meðan rest tók upp Gullkast þátt vikunnar. 2019 hefur alls ekki byrjað vel en það stendur til bóta.

Gullkastið - Rock & Roll 02.01.2019

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn Það var boðið upp á rokk og ról gegn Arsenal en það var auðvitað bara upphitun fyrir aðra og stærri tónleika gegn Man City. Biðjumst velvirðingar á slæmu sambandi við Magga, hann var staddur í Stockport og þeir eru bara nýkomnir með internetið.

Höre den Podcast Gullkastið in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet