grisirnirthrir

Grísirnir þrír

Comedy EN ↓ 59 Folgen

Grísirnir þrír er grínpodcast þar sem spunaleikararnir og vinirnir Gummi Fel, Geinar og Pálmi ræða allt milli himins og jarðar. Óskrifaðar reglur, eftirhermur, spurningakeppnir og framtíðin eru meðal efnis. Þeir eru allir með bakgrunn í spuna með Improv Ísland auk þess að vera meðlimir í sketsahópnum Kanarí.

Autor

grisirnirthrir

Kategorie

Comedy

Podcast-Website

grisirnirthrir.podbean.com

Neueste Folge

1. Sep 2024

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

#34 Grísir um víða veröld 11.01.2024

Fyrsti þáttur 2024 og fyrsti fjarþátturinn. Mikilvæg málefni rædd eins og Borgartún, nærbuxur og barnabílstólar. Hvað gera grísir á nýju ári.  

#33 - Ekki treystandi fyrir framan míkrófón (ásamt Steiney) 04.01.2024

Gestagrís vikunnar er hin óviðjafnanlega Steiney Skúladóttir. Við biðjumst velvirðingar á lélegum hljóðgæðum í þættinum, við kunnum ekki að stilla græjurnar á RÚV rétt. Steiney fer á trúnó með strákunum og sýnir í eitt skipti fyrir öll hvað hún er fáránlega góð eftirherma! Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

#32 - Áramótaspecial (ásamt Arnaldi Snæ, 3 ára) 28.12.2023

Lokaþáttur ársins og gestur vikunnar er enginn annar en Arnaldur sonur Gumma! Hvað er betra en að fá gest í podcastið sem er þriggja ára, hefur ekki áhuga á að taka þátt í samræðunum, leiðist mjög mikið og gerir óþarfa læti í stúdíóinu? Fókusleysið er allsráðandi en Grísirnir reyna að komast yfir spurningar og svo er eftirhermukeppni. Og að sjálfsögðu tveir brandarar frá Arnaldi! Hefðum við getað...

#31 - Jólaspecial 21.12.2023

Gleðilega hátíð kæru grísir! Í jólagjöf fáið þið return of the king. Já, Geinar er kominn aftur og það er fantagír í honum þrátt fyrir vandræðalegt bílamóment fyrir nokkrum vikum. Við ræðum óskrifaðar reglur á jólunum, fegurðina í ljótleika ógeðslegra jólasería og tökum spurningar frá hlustendum á hundavaði. Æsispennandi spurningakeppni grallaranna með jólaþema, og í takt við anda jólanna þá bætti...

#30 - Óskrifaðar reglur í ræktinni 14.12.2023

Það eru bara tveir grisir í grísabæ þessa vikuna. En strákarnir fá hjálp frá hlustendum og búa til óskrifaðar reglur i ræktinni. En fara svo í erfiðasta leik í heimi. Að herma eftir dýrum á eins sannfærandi hátt og hægt er. Fylgdu okkur á Instagram! @grisirnirthrir

#29 - Stór bragðarefur í hádeginu 07.12.2023

Grisirnir eru ennþá vængbrotnir þar sem Geinar er ennþá fjarri góðu gamni. En gestagrís þáttarins er Stefán Ingvar uppistandari úr uppistandshópnum VHS. Strákarnir fara yfir borðspilsreglur og fullt af öðru gerist líka sko. Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

#28 - Pálmi fær gjöf 30.11.2023

Komdu með okkur í gauralegasta podcastið hingað til. Stefán Gunnlaugur úr Improv Ísland er gestagrís vikunnar og þátturinn er svo sannarlega all over the place. Skemmtilegar spurningar frá hlustendum, nýtt stef og jólakraftaverk! Umræður um TED fyrirlestra, holur í garðinum og hvað við öfundum fíla því þeir þurfa ekki að small-talka. Gaurar elska að lyfta og hlusta á power ballöður. Gaurar elska a...

#27 - Einn einmana grís 23.11.2023

Pálmi þarf að gera þátt einn. Hvernig fer það?

#26 - Sósu- og kynlífsstellingajóladagatal 16.11.2023

Grísirnir fara um víðan völl í þætti dagsins. Pálmi montar sig af djúpum eyrum og kærustu sem er eins og klunnalegur hundur. Strákarnir eru orðnir galmir og irrelevant og þessvegna vilja þeir bara jóladagatal með mismunandi tei.  Fylgið okkur á Instagram! @grisirnirthrir

#25 - He he he... 02.11.2023

Gestagrísinn Hákon Örn Helgason mætir í heimsókn. Hann er spunaleikari, Pabbastrákur og körfuboltakvikmyndaáhugamaður. Strákarnir ræða Hrekkjavökuna, Vídeólegur og venjur í tölvupóstsamskiptum. Hver er munurinn á haha, hahah og hahaha? Hvað gerir maður þegar maður sónar út í samtali og þarf að láta eins og ekkert hafi í skorist? He he he… Fylgdu okkur á Instagram! @grisirnirthrir

#24 - Improv Grísland 26.10.2023

Grísirnir Þrír og Hlaðvarp Improv Íslands sameina krafta sína í dag til að skapa þennan einstaka mashup þátt. Rebekka Magnúsdóttir og Stefán Gunnlaugur Jónsson spunaleikarar slást í för með Geinari og Gumma og saman tæklar fjóreykið erfiðar aðstæður tengdar afmælisdögum, apótekum og njálg. Við endum að sjálfsögðu þáttinn á hinum geysivinsæla en smá óbærilega leik Gestastælar.  Fylgið okkur á Insta...

#23 - Stóra hatta- og kotasælumálið 19.10.2023

Tveir af grisunum eru alltaf með höfuðföt, en geta þeir verið með hatta? Er eðlilegt að borða eintóma kotasælu? Er það jafnvel siðlaust? Stórt er spurt og mikið um svör. Sérfræðingur þáttarins í iðnaðarmönnum (aka iðnaðarmaður) ræðir félagslegar aðstæður frá stjónarhorni iðnaðarmanna. Misheppnaður liður með frábæru þemalagi, fimma, spurningakeppni og fleira og fleira.

#22 - Sendum mömmu á keramiknámskeið 12.10.2023

Grísirnir fara í hinn sívinsæla Tiktok-leik sem er fullkominn leikur til að spila á hljóðrænum miðli. Auðveldasta leiðin til að smyrja brauð með köldu smjöri er að senda mömmu sína á keramiknámskeið. Vandræðalegar minningar rifjaðar upp og æsispennandi keppni af Educated guess - world record edition! Erfiðar aðstæður eru á sínum stað og líklega þær óþægilegustu hingað til. Fylgið okkur á Instagram...

#21 - Tipp topp smalltalk 05.10.2023

Grísirnir þrír eru loksins sameinaðir á ný eftir back to back tveggja grísa þætti. Er besta lausnin á öllum félagslegum klemmum bara að ljúga? Strákarnir reyna að leika erfiðar aðstæður en eru bara óvart of góðir í að gera grínraddir. Fimman og Spurningakeppni Grallaranna eru á sínum stað og alls konar skemmtilegt grín og gaman flipp. Gleðilegan hrekkjavökumánuð! 

#20 - Snudduálfurinn 28.09.2023

Gummi fór í zipline og Pálmi er byrjaður á Tiktok. Pálmi kennir okkur memory palace aðferðina. Þurfa hestar að nota snuddur? Hvaða landvættur myndi vinna í slag? Hvað eru landvættirnir eiginlega stórir? Mikið spjall um landvætti og líka óþarflega mikið spjall um hegðun í umferðinni. Þátturinn er í boði Caves of Hella! Skemtilegasta afþreyingin á suðurlandi! Ef þið kíkið þangað endilega heilsið upp...

#19 - Foreldrafrí 21.09.2023

Pabbi grísanna, Gummi Fel, komst ekki í þáttinn í dag svo litlu grísirnir tveir taka bara algjöran flippþátt. Remix af þemalaginu, spurningar frá hlustendum, tik tok & fleira.

#18 - Stóra showið 14.09.2023

Grísirnir ráðleggja gríslingunum hvað skal gera ef maður móðgar óvart gym kennarann sinn eða ef maður hættir við að kaupa hlut eftir að fá mikla þjónustu. Auk þess fer fram ein epískasta eftirhermukeppnin til þessa.   Grísirnir ræða líka um sýningu Kanarí hópsins í Tjarnarbíó sem beðið er með mikilli eftirvæntingu.

#17 - Grísalestin 07.09.2023

Hvernig bjargar maður vini sínum úr samtali? Elvis var með skothelt plan fyrir slíkar aðstæður. Góðvinur þáttarins, Hröðvar, kíkir í heimsókn og grísirnir ræða kúr fyrir svefn, óskrifaðar reglur í framsæti og hvernig þeir myndu spjara sig í fortíðinni. Gætu grísirnir þrír búið til vindmyllu árið 5000 fyrir krist? Nei. En gætu þeir útskýrt hvernig vindmylla virkar? Nei.   Fylgið okkur á Instagram o...

#16 - Flubberheimer 31.08.2023

Grísirnir ræða hvað Flubber væri skemmtileg viðbót við allar bíómyndir sem gerðar hafa verið. Hlustendur sem hafa ekki séð Flubber eru vinsamlegast beðnir um að horfa á hana strax. Eftirhermukeppnin er á sínum stað og inniheldur meðal annars óbærilegt samtal milli Mikka mús og Mikka mús. Geta karlmenn feikað fullnægingar? Afhverju var grísinn Baddi ekki með typpi? Og þarf suðurríkja-Geinar kannski...

#15 - Roast samlokan 24.08.2023

Master of social skills snýr aftur og fer yfir óskrifaðar reglur í giftingum. Mega allir biðja DJinn um óskalag? Hvað gerir maður ef maður er of fínn? Og síðast en ekki síst hvað eru margar fimm mínútur í einni veislu? Gríslingarnir hafa verið gríðarlega duglegir að senda inn spurningar og meðal umræðuefna eru landvættirnir, Disney prinsessur, Bítlarnir og afhverju Geinar er svona huggulegur. Hann...

#14 - Lubbi Morthens 17.08.2023

Grísirnir ræða hræðslu sína við unglinga og setja sjálfa sig í erfiðar aðstæður, ímynda sér að gera podcast í kjarnorkubyrgi í 10 ár og að sjálfsögðu mæta hinir góðkunnu Lubbi Morthens og Adolf Bitler í heimsókn.

#13-Three proper pigs 10.08.2023

Strákarnir bjóða frægum í matarboð, tala ensku sannfærandi og reyna að skilja hvað má og hvað má ekki í flugvélum.

#12 - Stóri Collab hrekkurinn 03.08.2023

Fyrir þáttinn laumast strákarnir til að hella collab úr dósinni hans Gumma og fylla hana svo af sódavatni. Glöggir hlustendur heyra þegar Gummi uppgötvar hrekkinn Í BEINNI ÚTSENDINGU! Grísirnir svara svo spurningum um feimnar blöðrur, gömul deit og brutal frænkur í matarboðum. Þeir deila líka erfiðri reynslu af sveittum knúsum og blautum handaböndum og Gummi Fel á stefnumót við sjálfan sig úr fyrr...

#11 - Barbenheimer special 27.07.2023

Það eru allir að tala um Barbenheimer og grísirnir eru engin undantekning.

#10 - Kurteisisleg bílflauta 20.07.2023

Hann er kominn! Þáttur númer 10! Sem við héldum reyndar að væri þáttur númer 8. En hvað um það. Óskrifaðar reglur í umferðinni, spurningar frá hlustendum og ótrúlega spennandi eftirhermukeppni! Ef þú hefur heyrt um óskrifuðu regluna að blikka hazard-ljósunum til að segja takk í umferðinni, endilega sendu okkur línu á Instagram, @grisirnirthrir 

Höre den Podcast Grísirnir þrír in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet