Landsvirkjun

Grænvarpið

Hlaðvarp Landsvirkjunar um grænar lausnir.

Autor

Landsvirkjun

Kategorie

Technology

Podcast-Website

landsvirkjun.buzzsprout.com

Neueste Folge

29. Mai 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android 5 Mio.+ Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Hvammsvirkjun - Ólöf Rós Káradóttir 26.01.2024

Ólöf Rós Káradóttir er verkefnisstjóri Hvammsvirkjunar, þess virkjunarkostar Landsvirkjunar sem er einna lengst kominn í undirbúningi. Hún segir okkur frá verkefninu í nýjasta þætti Grænvarpsins. Þátturinn á YouTube

Nýsköpun - Dóra Björk Þrándardóttir 20.12.2023

Dóra Björk Þrándardóttir, nýsköpunarstjóri hjá Landsvirkjun segir okkur frá samstarfsverkefnum Landsvirkjunar á sviði nýsköpunar. Þátturinn á YouTube

Vatnafarsrannsóknir - Andri Gunnarsson 28.11.2023

Andri Gunnarsson, verkefnisstjóri vatnafars segist vera í skemmtilegasta starfi landsins. Það hefur til að mynda leitt hann á staði á hálendinu sem nærri enginn fer á og sér. Andri fer yfir hvað er gert í jöklamælingaferðum og ýmislegt fleira. Þátturinn á YouTube

Upprunaábyrgðir - Stefán Gíslason 30.10.2023

Þóra Arnórsdóttir ræðir við Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðing um eðli og tilgang upprunaábyrgða. Til hvers var kerfið búið til og hver er ávinningurinn af því fyrir íslensk orkufyrirtæki og almenning? Hverjir kaupa þessi grænu skírteini og hvers vegna? Virkar kerfið eins og lagt var upp með? Getur Ísland sleppt því að taka þátt? Hvaða áhrif hefði það? Þátturinn á YouTube

Raforkuöryggi – Tinna Traustadóttir og Gunnar Guðni Tómasson 27.09.2023

Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu og Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri Vatnsafls, ræða um raforkuöryggi frá ýmsum hliðum. Þau útskýra m.a. muninn á afli og orku, hættuna á því að stærri fyrirtæki yfirbjóði heimili og smærri fyrirtæki í kaupum á rafmagni og hvað gerist þegar keypt rafmagn fer yfir tiltækt afl í raforkukerfinu. Þátturinn á YouTube

Úrgangsmál – Ragnheiður Ólafsdóttir og Laufey Lilja Ágústsdóttir 11.10.2021

Ragnheiður Ólafsdóttir umhverfisstjóri hjá Landsvirkjun og Laufey Lilja Ágústsdóttir, sérfræðingur hjá Loftslagi og umhverfi hjá Landsvirkjun, segja okkur frá fyrirkomulagi úrgangsmála hjá fyrirtækinu.

Plastlaus september – Þórdís Þórhallsdóttir 01.09.2021

Þórdís Þórhallsdóttir fræðir okkur um Plastlausan september, en átakið leit fyrst dagsins ljós árið 2017.

Algalíf – Orri Björnsson 18.06.2021

Í þættinum er rætt við Orra Björnsson, framkvæmdastjóra Algalífs, en Algalíf framleiðir fæðubótarefni úr örþörungum. Framleiðsla fyrirtækisins er kolefnisneikvæð, þ.e. hún bindur meira kolefni en hún losar.

Pure North Recycling – Sigurður Halldórsson 21.05.2021

Sigurður Halldórsson er framkvæmdastjóri plastendurvinnslufyrirtækisins Pure North Recycling. Við spjöllum við hann um starfsemi fyrirtækisins og þann vanda sem felst í plastmengun í heiminum.

Orkuskipti – Sigurður Friðleifsson 27.04.2021

Sigurður Friðleifsson hjá Orkusetri fræðir okkur um orkuskipti: hvar við Íslendingar stöndum í þeim efnum og hvaða vörður eru á leiðinni að kolefnishlutlausu Íslandi.

Sjálfbærnisjóður hjá Eyri Venture Management – Stefanía Guðrún Halldórsdóttir 12.03.2021

Í þessum þætti Grænvarpsins segir Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Eyri Venture Management, frá sjálfbærnisjóð sem hún stýrir.

Grænvangur – Eggert Benedikt Guðmundsson 15.02.2021

Eggert Benedikt Guðmundsson, forstöðumaður Grænvangs, samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir, mætir í Grænvarpið. Hann leiðir okkur í allan sannleika um samstarfsvettvanginn, hlutverk hans og starfsemi.

Kolefnishlutleysi 2025 – Jóhanna Hlín Auðunsdóttir 25.01.2021

Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, verkefnisstjóri aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum, segir okkur frá áætluninni, sem gerir ráð fyrir að Landsvirkjun verði kolefnishlutlaus árið 2025.

Græn fjármögnun – Signý Sif Sigurðardóttir 04.01.2021

Signý Sif Sigurðardóttir, forstöðumaður fjárstýringar, segir okkur frá grænni fjármögnun Landsvirkjunar undanfarin ár.

Votlendissjóður – Einar Bárðarson 14.12.2020

Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Votlendissjóðs, fræðir okkur um starfsemi sjóðsins.

Loftslagsmál og orkumál – Hörður Arnarson 24.11.2020

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, ræðir um hvernig orkumál gegna lykilhlutverki í baráttunni við loftslagsbreytingar.

Sjálfbær þróun – Kristín Linda Árnadóttir 10.11.2020

Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar spjallar við okkur um hugtakið sjálfbæra þróun.

Fjölnýting í Mývatnssveit – Bjarni Pálsson 26.10.2020

Bjarni Pálsson segir okkur frá fjölnýtingu í Mývatnssveit, en fjölnýting er nýting á þeim efnum og varmaorku sem falla til við raforkuvinnslu úr jarðvarma.

Orkídea – Sigurður H. Markússon 12.10.2020

Sigurður H. Markússon fræðir okkur um Orkídeu, nýsköpunarverkefni sem snýst um uppbyggingu orkutengdra tækifæra framtíðarinnar á Suðurlandi, til dæmis við matvælaframleiðslu og líftækni, sjálfbæra nýtingu auðlinda og sprotastarfsemi.

Grænt vetni – Auður Nanna Baldvinsdóttir 29.09.2020

Auður Nanna Baldvinsdóttir viðskiptaþróunarstjóri ræðir fyrirætlanir Landsvirkjunar um að hefja framleiðslu á grænu vetni við Ljósafossstöð, en grænt vetni er talið munu leika lykilhlutverk í orkuskiptum í Evrópu og víðar.

Höre den Podcast Grænvarpið in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet