433.is

433.is

Sports IS ↓ 271 Folgen

Hlaðvarpsveita 433.is

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: www.433.is

Autor

433.is

Kategorie

Sports

Podcast-Website

www.433.is

Neueste Folge

23. Okt 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Íþróttavikan: Benni Bó og Jóhann Alfreð eru brattir fyrir sumrinu á Hlíðarenda 20.03.2026

Benedikt Bóas Hinriksson og Jóhann Alfreð Kristinsson eru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni þennan föstudaginn. Þeir fara yfir fréttavikuna, ræða komandi fótboltasumar, enska boltann og miklu fleira til.

Íþróttavikan: Höskuldur Gunnlaugs og Ívar Örn 13.03.2026

Höskuldur Gunnlaugsson og Ívar Örn Árnason, leikmenn Breiðabliks, eru gestir Helga Fannars í þættinum.

Íþróttavikan: Kjartan Atli og Nablinn fara yfir allt íþróttasviðið 06.03.2026

Kjartan Atli Kjartansson og Andri Már Eggertsson, Nablinn, eru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni þennan föstudaginn. Það er farið vítt og breytt um sviðið í þætti dagsins, þar sem fótbolti, handbolti og körfubolti koma við sögu.

Íþróttavikan: Staðan tekin með Bjössa Hreiðars og Jóa Má þegar 6 vikur eru í þá Bestu 27.02.2026

Sigurbjörn Hreiðarsson og Jóhann Már Helgason eru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni þennan föstudaginn. Það eru sléttar sex vikur í að Besta deild karla fari af stað og eftirvæntingin er orðin mikil. Deildin fær sviðið í þætti dagsins, þar sem staðan er tekin á öllum liðunum. Félagaskiptamarkaðurinn, undirbúningstímabil þeirra og miklu fleira er skoðað. Þátturinn er einnig í mynd...

Íþróttavikan: Hiti á fréttamannafundi og skjálfti í Norður-London 20.02.2026

Helgi Fannar og Hörður Snævar gera upp þétta fréttaviku, ræða boltann út í heimi og miklu meira.

Íþróttavikan: Daníel Hafsteinsson - Landslið og Víkingur 13.02.2026

Daníel Hafsteinsson, lykilmaður Íslandsmeistara Víkings, er gestur Helga Fannars í þætti vikunnar. Daníel er í hópi íslenska landsliðsins sem mætir Mexíkó síðar í mánuðinum og eru þau mál rædd í þættinum, auk síðasta tímabils, þess sem framundan er og auðvitað miklu fleira.

Íþróttavikan: Hjálmar Örn og Helgi Jean (Hæhæ) 06.02.2026

Hjálmar Örn og Helgi Jean, sem halda úti hinu geysivinsæla hlaðvarpi HæHæ, voru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni.

Íþróttavikan: Ísland í undanúrslitum og augu heimsins eru á Framaranum unga 29.01.2026

Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamenn á RÚV, eru gestir Helga Fannars í þættinum. Ísland er komið í undanúrslit á EM karla í handbolta og fær handboltinn sviðið í fyrri hluta þáttar, áður en fótboltinn tekur við.

Íþróttavikan: Gummi Tóta gerir upp viðburðaríkan atvinnumannaferil og ræðir komandi tíma uppi á Skaga 23.01.2026

Guðmundur Þórarinsson, nýjasti leikmaður ÍA, á sviðið í þætti vikunnar. Guðmundur ræðir skref sitt upp á Akranes og sumarið framundan og fer ítarlega yfir atvinnumannaferilinn, þar sem kappinn upplifði ýmislegt í fjölmörgum löndum.

Íþróttavikan: Jökull Andrésson og Hörður Snævar 16.01.2026

Jökull Andrésson, nýr markvörður FH, er gestur þáttarins að þessu sinni og situr í setti með Herði Snævari og Helga Fannari. Hann fer yfir félagaskiptin frá Aftureldingu, viðskilnaðinn, fyrstu vikurnar hjá FH og svo miklu meira, auk þess að þeir félagar fara yfir fótboltann almennt og rýna í EM í handbolta sem framundan er.

Íþróttavikan x Handkastið - Stóri upphitunarþátturinn fyrir EM 09.01.2026

Þeir Arnar Daði og Styrmir Sigurðsson mættu til Helga Fannars og hituðu upp fyrir EM í handbolta. Einnig er farið yfir helstu fréttir vikunnar úr fótboltanum.

Íþróttavikan: Áramótaþáttur með Kristjáni Óla 26.12.2025

Helgi Fannar og Kristján Óli gera upp íþróttaárið 2025.

Íþróttavikan: Sævar Þór ræðir sports business og Hörður Snævar gerir upp vikuna 19.12.2025

Þáttur dagsins er að mestu helgaður viðskiptahlið íþróttanna og til að ræða þau mál mætir Sævar Þór Sveinsson, sem heldur úti síðunni Utanvallar.is. Í lok þáttar er Hörður Snævar Jónsson þá á línunni og fer hann yfir helstu fréttir úr vikunni sem er að líð.

Íþróttavikan: Stefán Pálsson fer um víðan völl 12.12.2025

Stefán Pálsson, sagnfræðingur og knattspyrnuáhugamaður með meiru, er gestur Helga Fannars í Íþróttavikunni þennan föstudaginn. Mohamed Salah, fjaðrafok í kringum Hlíðarenda og hrun Luton á skömmum tíma. Þetta og fleira í þættinum.

Íþróttavikan: Steve Dagskrá gerir upp vikuna og Maggi Már fer yfir sviðið 05.12.2025

Það er þétt dagskrá í Íþróttavikunni þennan föstudaginn. Í fyrri hluta þáttar fær Helgi þá Andra Geir Gunnarsson og Vilhjálm Frey Hallsson, þáttastjórnendur hins geysivinsæla hlaðvarps Steve Dagskrá, í heimsókn. Þeir ræða helstu fréttir úr vikunni, leikina í enska boltanum og fleira til. Síðasta hálftímann eða svo er Magnús Már Einarsson, þjálfari karlaliðs Aftureldingar, í setti. Hann fer yfir tí...

Íþróttavikan: Halldór Árnason 28.11.2025

Halldór Árnason er gestur Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni þennan föstudaginn. Halldór ræðir tíma sinn hjá Breiðabliki og endanlokin þar, en fer einnig yfir helstu leiki og fréttir í vikunni. Hörður Snævar Jónsson er þá á línunni í lok þáttar. Hann var staddur á Old Trafford í upphafi vikunnar þegar Manchester United sýndi sína verstu frammistöðu í langan tíma.

Íþróttavikan: Landsleikirnir gerðir upp með Kjartani Henry og horft til Englands fyrir þétta helgi 21.11.2025

Gestur Helga Fannars Sigurðssonar í þættinum er Kjartan Henry Finnbogason. Karlalandsliðið, Heimir Hallgrímsson, enski boltinn og fleira er á dagskrá.

Íþróttavikan: Keli og Viktor Unnar gera upp landsleikinn - Fínasta frammistaða en á sunnudaginn er allt undir 13.11.2025

Hrafnkell Freyr Ágústsson og Viktor Unnar Illugason eru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni í þetta skiptið. Landsleikurinn gegn Aserbaísjan er ítarlega gerður upp og horft er í komandi leik gegn Úkraínu. Þá er farið í helstu fréttir liðinnar viku.

Íþróttavikan: Bjarni Helga og Elvar Geir - Landsliðsval og dramatík á bak við tjöldin í íslenska boltanum 07.11.2025

Bjarni Helgason, íþróttablaðamaður á Morgunblaðinu, og Elvar Geir Magnússon, ritstjóri Fótbolta.net, fóru yfir viðburðaríka fréttaviku.

Íþróttavikan: Rúnar Kristins gerir upp tímabilið og skorar á KSÍ 31.10.2025

Rúnar Kristinsson, þjálfari karlaliðs Fram, er gestur Helga Fannars þessa vikuna. Gerir hann upp tímabilið og horfir fram veginn. Hörður Snævar Jónsson fer þá yfir helstu fréttir vikunnar í síðari hluta þáttarins.

Íþróttvikan: Edda Sif og Gunni Birgis gera upp þétta fréttaviku - Matti Villa fer yfir ákvörðun sína 24.10.2025

Edda Sif Pálsdóttir og Gunnar Birgisson, íþróttafréttamenn á RÚV, eru gestir Helga Fannars þessa vikuna, sem var ansi þétt er íþróttafréttir varðar. Þá er Matthías Vilhjálmsson í viðtali í síðasta hluta þáttarins, en hann er að leggja skóna á hilluna eftir leik Víkings við Val á morgun.

Íþróttavikan: Adda Baldurs í heimsókn og Freysi á línunni frá Bergen 17.10.2025

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir er gestur Helga Fannars í fyrri hluta þáttarins. Þar er farið yfir íslensku landsliðin, Bestu deildirnar og fleira til. Í seinni hlutanum er Freyr Alexandersson, þjálfari SK Brann, í ítarlegu viðtali frá Noregi.

Íþróttavikan: Gylfi Þór ræðir um landsliðið og Íslandsmeistara Víkings 13.10.2025

Gylfi Þór Sigurðsson, besti landsliðsmaður í sögu Íslands, varð Íslandsmeistari með Víking fyrir rúmri viku síðan. Hann segir pressuna sem hann setti á sjálfan sig hafa verið þess virði og að síðustu dagar hafi verið ótrúlega skemmtilegir. Gylfi yfirgaf Val í febrúar með nokkrum látum, hann vildi burt og Víkingar voru reiðubúnir að borga metfé fyrir Gylfa. Hann stendur nú uppi sem Íslandsmeistari...

Íþróttavikan: Chess After Dark 10.10.2025

Gestir Helga Fannars þessa vikuna eru Birkir Karl Sigurðsson og Leifur Þorsteinsson, stjórnendur hins geysivinsæla hlaðvarps Chess After Dark. Það er hitað upp fyrir mikilvæga leiki íslenska karlalandsliðsins, íslenska boltann, helstu fréttir og margt fleira.

Íþróttavikan: Tommi Steindórs gerir upp viðburðaríka viku og Arnar Gunnlaugs ræðir val sitt 02.10.2025

Útvarpsmaðurinn Tómas Steindórsson er gestur Helga Fannars. Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson er á línunni í lok þáttar.

Höre den Podcast 433.is in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet