RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 1467 episoder

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Husk at besøge podcastens hjemmeside og støtte skaberen: www.ruv.is

Forfatter

RÚV

Kategori

News

Podcastens hjemmeside

www.ruv.is

Seneste episode

2. okt. 2026

Hvor kan du lytte?

Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snart

Podcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts

Hent den på Google Play Installer gratis Android næsten 10 mio. downloads · 4,8 i bedømmelse iOS snart

Episoder

Konur í fengelsi, lestrarkunnátta og -nám, óviss framtíð X/Twitter 06.12.2023

6. desember 2023. Staða kvenna í fangelsum landsins er á meðal þess sem alvarlegustu athugasemdirnar eru gerðar við í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar á Fangelsismálastofnun. Þær athugasemdir bætast við alvarlegar athugasemdir sem umboðsmaður Alþingis gerði við aðbúnað kvenfanga í íslenskum fangelsum fyrr á árinu. Það liggur sem sagt alveg skýrt fyrir, að aðstaða kvenfanga hér á landi er óboðleg í...

Vatn og brauð á Gaza, fangelsismál, hælisleitendur til Rúanda 05.12.2023

Íbúar á Gaza nærast aðallega á vatni og brauði, segir Gréta Gunnarsdóttir yfirmaður sendiskrifstofu Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna - UNWRA í New York. Horfur eru á UNWRA geti héðan í frá aðeins dreift einum lítra af vatni til hvers flóttamanns á Gaza. 80 prósent íbúanna eru á vergangi. Í úttekt Ríkisendurskoðunar um Fangelsismálastofnun voru gerðar alvarlegar athugasemdir við illa...

Gaza, fangelsi landsins og norsk barnavernd í vanda 04.12.2023

Ísraelsher herti í dag sókn sína gegn Hamas í suðurhluta Gazasvæðisins, en þangað hefur fólk verið hvatt til að fara til að forðast árásir Ísraela á norðurhlutann. Íbúum nokkurra hverfa í borginni Khan Yunis hefur verið skipað að flýja suður á bóginn. Ásgeir Tómasson segir frá. Margar brotalamir eru í rekstri fangelsa landsins og sumar þeirra býsna alvarlegar, samkvæmt stjórnsýsluúttekt Ríkisendur...

Barist á Gaza, Norðmenn fúlsa við eldislaxi, nám í framhaldsskólum 01.12.2023

1. desember 2023 Á annað hundrað Palestínumenn hafa látið lífið frá því að vopnahlé Ísraelshers og Hamas samtakanna rann út í sandinn í morgun. Reynt er að fá stríðandi fylkingar til að fallast á að leggja niður vopn af mannúðarástæðum. Ásgeir Tómasson tók saman. Það stefnir í metár hjá laxeldismönnum i Noregi. Verð er í hæstum hæðum og fleiri laxar í kvíunum en nokkru sinni fyrr. En eldisfyrirtæk...

Löggjöf um sjávarútveg, aldinn utanríkisáðherra allur og slúður 30.11.2023

30. nóvember 2023 Drög að sjávarútvegsstefnu og frumvarpi að lögum um sjávarútveg hafa verið birt og hægt að senda inn umsagnir til 22. desember. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir stefnt að jafnvægi og samfélagssátt um greinina - ekki endilega sátt við alla í henni. Jón Björn Hákonarson formaður Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga telur að kominn sé tími á breytingar á almennum byggðakvóta...

Löggjöf um sjávarútveg, aldinn utanríkisáðherra allur og slúður 30.11.2023

30. nóvember 2023 Drög að sjávarútvegsstefnu og frumvarpi að lögum um sjávarútveg hafa verið birt og hægt að senda inn umsagnir til 22. desember. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir stefnt að jafnvægi og samfélagssátt um greinina - ekki endilega sátt við alla í henni. Jón Björn Hákonarson formaður Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga telur að kominn sé tími á breytingar á almennum byggðakvóta...

Stuðningur vegna launagreiðslna í Grindavík, Gaza og COP28 29.11.2023

29. nóvember 2023 Í vikunni samþykkti Alþingi einróma frumvarp stuðning vegna launa fólks sem starfar í Grindavík. Stuðningurinn getur numið allt að 633 þúsund krónum á mánuði auk framlags í lífeyrissjóð og gildir út febrúar. Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur segir töluvert um að fólk hringi á skrifstofuna í leit að svörum. Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar se...

NATO vill lengra vopnahlé, tryggja þarf almenningi orku, tóbakslög 28.11.2023

Leiðtogar og utanríkisráðherrar NATO-ríkjanna hafa kallað eftir að hlé á átökum á Gaza verði framlengt og fleiri gíslar leystir úr haldi. Fundur utanríkisráðherra NATO hófst í Brussel í morgun og óþreyja er meðal marga vegna aðildarumsóknar Svía. Rætt er við Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra. Eftirspurn eftir raforku er meiri en framboðið og lagabreytinga er þörf til að tryggja að almenningur...

Þvingaðar ófrjósemisaðgerðir, landarmæri Finna og Rússa og popúlismi 27.11.2023

27. nóvember 2023 Í bandaríska blaðinu New York Times birtist um helgina grein um ófrjósemisaðgerðir á fötluðum konum - þar fullyrt að enn væru gerðar slíkar aðgerðir í undantekingartilvikum, meðal annars á Íslandi, þrátt fyrir bann. Réttargæslumönnum fatlaðra berast árlega að jafnaði þrjár til fjórar frásagnir af þvinguðum ófrjósemisaðgerðum fatlaðra kvenna segir Eiríkur Smith réttargæslumaður. F...

Íbúðakaup fyrir Grindvíkinga, ungir afbrotamenn, föstudagurinn svarti 24.11.2023

Stjórnvöld ætla að kaupa allt að 210 íbúðir til að útvega Grindvíkingum húsnæði og styðja þá tímabundið vegna kostnaðar við leigu. Þrátt fyrir að staða á húsnæðismarkaði hafi verið þröng eru þessar íbúðir til og endurmeta verður svo hvort þörf sé á frekari stuðningi. Kári Friðriksson, hagfræðingur hjá Arionbanka, telur að kaupin hafi ekki áhrif á fasteignaverð, að minnsta kosti ekki fyrst um sinn....

COP28 byrjar senn og bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla 23.11.2023

Þúsundir stjórnmála- og embættismanna, vísindamanna, fulltrúa hagsmunaaðila, umhverfissamtaka að ógleymdum herskara fjölmiðlafólks flykkjast brátt á 28.loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem hefst í Sameinuðu arabísku furstadæmunum um mánaðamótin. Finnur Ricart Andrason, forseti ungra umhverfissinna segir þetta mikilvægan vettvang en bara eitt tól af mörgum. VR stóð í dag fyrir fundi um leiksk...

Vopnahlé á Gaza og óbreyttir stýrivextir 22.11.2023

22. nóvember 2023 Samkomulag náðist í nótt milli ísraelskra stjórnvalda og Hamas samtakanna um fjögurra sólarhringa vopnahlé . Það á að ganga í gildi klukkan tíu í fyrramálið að staðartíma. Þrjátíu til þrjátíu og fimm börn, helmingurinn um og undir tíu ára aldri, verða látin laus þegar Hamas samtökin á Gaza sleppa fimmtíu gíslum á morgun og næstu daga. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að mögu...

21.11.2023
21.11.2023
Flókin atburðarás við Svartsengi og samið um gísla Hamas 20.11.2023

20. nóvember 2023 Atburðurinn í og við Svartsengi er mjög flókinn að sögn Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings. Tjónið sé vegna sprungna, ekki jarðskjálfta. Taka þurfi mið af sprungum við mannvirkjagerð og hefði átt að gera af meiri alvöru fyrir löngu. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Pál. Bandaríkjaforseti er vongóður um að senn semjist um að gíslar Hamas samtakanna á Gaza verði látnir lausir. Ásgei...

Flókin atburðarás við Svartsengi og samið um gísla Hamas 20.11.2023

20. nóvember 2023 Atburðurinn í og við Svartsengi er mjög flókinn að sögn Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings. Tjónið sé vegna sprungna, ekki jarðskjálfta. Taka þurfi mið af sprungum við mannvirkjagerð og hefði átt að gera af meiri alvöru fyrir löngu. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Pál. Bandaríkjaforseti er vongóður um að senn semjist um að gíslar Hamas samtakanna á Gaza verði látnir lausir. Ásgei...

Launagreiðslur til Grindvíkinga, þjónustumiðstöð, Úkraína 17.11.2023

17. nóvember 2023 Á ríkisstjórnarfundi í dag var samþykkt að leggja fram frumvarp um tímabundnar launagreiðslur til Grindvíkinga. Gert er ráð fyrir að heildargreiðslur geti numið allt frá einum að einum og hálfum milljarði á mánuði. Reiknað er með greiðslunum út febrúar. Linda Blöndal ræddi við Lilju Alfreðsdóttur viðskiptaráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Reykjfjörð Gylfadóttur fjármáalráðherra og Guðmu...

Íslensk tunga, ljósleiðari sem jarðskjálftamælir, stórveldafundur 16.11.2023

16. nóvember 2023 Íslenska er mál málanna á Íslandi í dag eins og alla aðra daga - en alveg sérstaklega í dag, á degi íslenskrar tungu, sem hefur verið haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar síðan 1996. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Sigurrós Eiðsdóttur, formann Félags íslenskukennara, um íslenskukennslu og -áhuga skólabarna og stöðu íslenskunnar. Ljósleiðari er nú líkega í fyrsta...

Tilfinningar og kaffi í Tollhúsi, búið ofan á kvikugangi í Kelduhverfi 15.11.2023

Það eru allar tilfinningar eðlilegar á þessum tímapunkti að sögn Aðalheiðar Jónsdóttir hjá Rauða krossinum. Hún segir að fólk bregðist misjafnlega við áföllum eins og því sem Grindvíkingar ganga í gegnum núna. Sumir verða reiðir, aðrir verða dofnir, svo dæmi séu tekin. Í þjónustumiðstöð fyrir Grindvíkinga, sem var opnuð í gamla Tollhúsinu í Tryggvagötu í Reykjavík í dag, verður bæði hægt að fá sér...

Sprungur í Grindavík og víðar, samkomustaður fyrir Grindvíkinga 14.11.2023

Víða má finna sprungur á Reykjanesskaga og á austasta hluta höfuðborgarsvæðisins. Sprungur gætu leynst undir húsum á fleiri stöðum en í Grindavík. Ásta Rut Hjartardóttir jarðeðlisfræðingur hefur kortlagt sprungur. Hún segir að sprungan sem liggur i gegnum Grindavík hafi verið þekkt og telur að gliðnunin geti haldið áfram í nokkrar vikur. Stjórnsýsla Grindavíkur hefur fengið aðstöðu í Ráðhúsi Reykj...

Jarðhræringar, bresk stjórnmál og íslensk sumargotssíld 13.11.2023

Spegillinn 13. nóvember 2023 Landsmenn - og þá sérstaklega Grindvíkingar auðvitað - hafa fylgst náið með atburðarásinni suður með sjó, þar sem allt hefur leikið á reiðiskjálfi undanfarnar vikur og sjaldan eða aldrei meira en allra síðustu daga, þótt dagurinn í dag hafi verið með rólegria móti. Gos hefur verið talið yfirvofandi á hverri stundu síðan föstudagskvöld og enn eru taldar meiri líkur en m...

Aðstæður á Gaza, stytt nám til stúdentsprófs, Taylor Swift 10.11.2023

Föstudagur 10. nóvember 2023 Aðstæður á Gaza eru hryllilegar og eiga eftir að versna áður en þær skána, segir Jan Egeland framkvæmdastjóri norska flóttamannaráðsins. Egeland, sem eitt sinn stýrði hjálparstarfi Sameinuðu þjóðanna, gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að tíma ekki að aðstoða fólk í neyð. Dagný Hulda Erlendsdóttir talaði við hann. Ragnhildur Thorlacius tók saman. Er þriggja ára framhal...

Áhyggjur af stigmögnun hefndaraðgerða, stress út af málvillum 09.11.2023

Reglulegar hnífstungur, bensínsprengjur og skotárásir. Á undanförnum misserum hefur alvarlegum ofbeldisverkum fjölgað hérlendis. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir að upp undir 15 skipulögð glæpasamtök starfi hér á landi Hún vill ekki tala um gengi eða gengjastríð í sambandi við skotárásina í Úlfársárdal á dögunum, heldur að hópar séu í átökum og svo stigmagnist átökin og hefnd...

Stækkun ESB, líforkuver á Dysnesi, Rafah landamærastöðin 08.11.2023

Miðvikudagur 8. nóvember 2023 Úkraína og Moldóva gætu orðið næstu aðildarríki Evrópusambandsins, samkvæmt tillögum sem framkvæmdastjórn ESB lagði fram í dag. Björn Malmquist sagði frá. Hægt væri að taka á móti dýraleifum af öllu landinu til förgunar í líforkuveri sem fyrirhugað er að byggja norður í Eyjafirði. Kristín Helga Schiöth, talsmaður verkefnisins, segir að á Íslandi skorti innviði til að...

Stækkun ESB, líforkuver á Dysnesi, Rafah landamærastöðin 08.11.2023

Miðvikudagur 8. nóvember 2023 Úkraína og Moldóva gætu orðið næstu aðildarríki Evrópusambandsins, samkvæmt tillögum sem framkvæmdastjórn ESB lagði fram í dag. Björn Malmquist sagði frá. Hægt væri að taka á móti dýraleifum af öllu landinu til förgunar í líforkuveri sem fyrirhugað er að byggja norður í Eyjafirði. Kristín Helga Schiöth, talsmaður verkefnisins, segir að á Íslandi skorti innviði til að...

Lyt til podcasten Spegillinn i Replaio

Radio og podcasts i én app - gratis og uden tilmelding. Installer i dag, og gå ikke glip af lanceringen

Hent den på Google Play

Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.