RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 1456 episoder

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Husk at besøge podcastens hjemmeside og støtte skaberen: www.ruv.is

Forfatter

RÚV

Kategori

News

Podcastens hjemmeside

www.ruv.is

Seneste episode

1. okt. 2026

Hvor kan du lytte?

Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snart

Podcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts

Hent den på Google Play Installer gratis Android næsten 10 mio. downloads · 4,8 i bedømmelse iOS snart

Episoder

Önnur eldkerfi á Reykjanesi í biðstöðu og Össur áberandi á Ólympíumóti fatlaðra 23.08.2024

Ármann Höskuldsson ræðir við Spegilinn um stöðuna á Reykjanesskaga eftir að sjötta eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni hófst í gærkvöld. Verulega hefur dregið úr krafti gossins en Ármann telur tímabært að skoða varnir fyrir Reykjanesbraut og Voga. Bjarnaveiðitímabilið byrjaði í Svíþjóð á miðvikudag. Samkvæmt vefsíðu Sænsku rándýrasamtakanna, sem láta sig velferð, viðgang og afkomu rándýra landsins var...

Verðbólga og vextir, innrás Úkraínumanna í Rússland 22.08.2024

Ákvörðun Seðlabankans í gær um að halda stýrivöxtum óbreyttum hefur verið gagnrýnd og hagfræðingar hafa lýst efasemdum um að hátt vaxtastig skili lengur árangri í baráttunni við verðbólguna. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka sagði í hádegisfréttum RÚV að trúverðugleiki Seðlabankans væri laskaður. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Ágúst Bjarna Garðarsson, þingmann Framsóknarflokksins, og Ásthildi Lóu Þó...

Stýrivextir, enskir óeirðaseggir og orlofsgreiðslur sveitarstjóra 21.08.2024

Seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum, í 9,25 prósentum. Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ segir það vonbrigði að Seðlabankinn skuli ekki hafa þorað að stíga inn í þann spíral sem við erum í. Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir marga krafta halda verðbólgunni uppi. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við þau um tíðindi dagsins. Búið er...

Gosið gæti hafist með krafti, sveifluríkin sex, bakteríuveirur í stað sýklalyfja 20.08.2024

Kristín Jónsdóttir jarðeðlisfræðingur segir að vísindamenn búist við að eldgosið sem vofir yfir hefjist með miklum krafti. Opnist gosrásin sunnarlega gæti hraun runnið út í sjó á nokkrum klukkustundum. Það er hægt að nota bakteríuveirur sem valkost við sýklalyf, segir nýdoktor í örveruerfðafræði. Sýklalyfjaónæmi er ein mesta ógn sem heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir. Spáð er í sveifluríkin sv...

Skeytasendingar hjá ráðherrum ríkisstjórnarinnar og öldrun 19.08.2024

Það hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgist með stjórnmálum að það hafa verið skeytasendingar milli stjórnarflokkanna síðustu daga og vikur; þær hófust með umræðu um ókeypis skólagögn, fóru svo yfir í umræðuna um orkumál og þá sérstaklega vindorkuna, síðan útlendingamálin og náðu eiginlega hámarki þegar flokksráð VG ákvað að samþykkja ályktun þar sem ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að frysta...

Bág staða láglaunakvenna, orlof og orðræða Trumps 16.08.2024

Heimsk, brjáluð, kommmúnísk og stórkostlega vanhæf kona sem hlær furðulega. Þetta er meðal þess sem Donald Trump hefur sagt um Kamölu Harris, mótherja sinn í forsetakosningunum vestanhafs. Við ætlum að rýna í talsmáta Trumps og þær áhyggjur sem samflokksmenn hans hafa af orðfæri hans. Við fjöllum líka orlof hjá æðstu embættismönnum eins og sveitastjórum, borgarstjóra og fyrrverandi forsætisráðherr...

Vindorka, skemmdarverk á gasleiðslu og norska konungsfjölskyldan 15.08.2024

Frumvarp umhverfis- og orkumálaráðherra um breytingar á rammaáætlun vegna vindorkuvera náði ekki fram að ganga í vor, og vakti raunar nokkrar deilur og gagnrýni, innan þings sem utan. Ráðherra vísar allri gagnrýni um samráðsleysi á bug og segir að nú sé að hrökkva eða stökkva - ef fólk vill græna orku, þá þurfi að virkja vindinn. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson. Þýsk yfirvöl...

Ofbeldi í nánum samböndum, hitametaregn og kvikmynd um leiðtogafundinn 14.08.2024

Nauðungarstjórnun getur best spáð fyrir um alvarlegt ofbeldi eða manndráp í nánum samböndum, samkvæmt rannsókn breska afbrotafræðingsins Jane Monckton-Smith. Hún kortlagði hegðun geranda og útbjó líkan; tímalínu til að meta hættuna á manndrápi. Lögregla hér á landi hefur tímalínuna til hliðsjónar við hættumat og vinnur nú að innleiðingu nýs áhættumats Hitamet hafa verið slegin á tugum þúsunda veðu...

Ráðuneyti gerði ekki athugasemd við áminninguna, Rússar í vanda, Normenn ofbeldisfullir en Danir í bissnes 13.08.2024

Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, var í samskiptum við dómsmálaráðuneytið í aðdraganda þess að Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, var áminntur fyrir ummæli sín um hælisleitendur og homma sumarið 2022. Ráðuneytið gerði aldrei neinar athugasemdir við áminninguna. Rússar hafa áttt í stökustu vandræðum með að stöðva sókn innrásarhers Úrkaínumanna - innrásin kom Rússum í opna skjöldu...

Bóluefnin björguðu mannslífum í COVID og hver eru áhrif gervigreindar á tónlist? 12.08.2024

Fjallað verður um nýja rannsókn sem rennir enn frekari stoðum um hversu mikilvæg bóluefnin voru í baráttunni gegn COVID-19 - sóttvarnalæknir telur neikvæða umræðu um þau ekki hafa átt rétt á sér, hún hafi ekki verið byggð á gögnum eða góðum rökum. Síðar í þættinum verður sagt frá gervigreind í tónlist og hvaða áhrif hefur hún haft. Tónlistarfólk, útgefendur og samtök höfundarréttarhafa víða um hei...

Kaldur blettur í hitnandi heimi, tímamótadómur yfir Google 09.08.2024

Kuldapollur, eða blár blettur, sem myndast hefur í hafinu suður af landinu er ein helsta ástæða þess að þau methlýindi sem geisað hafa á Jörðinni að undanförnu hafa að mestu sneitt hjá Íslandi í sumar. Kuldapollurinn er afleiðing óstöðugleika í svokallaðri veltihringrás hafstrauma, eða AMOC, einskonar blöndunartækjum hafsins sem blanda heitum yfirborðssjó við kaldandjúpsjó. Halldór Björnsson fagst...

Kaldur blettur í hitnandi heimi, Puigdemont snýr aftur til Barcelona 08.08.2024

Samkvæmt evrópsku loftslagsþjónustunni Kópernikus var 22. júlí síðastliðinn heitasti dagur á Jörðinni frá upphafi mælinga, og sló þar með fyrra hitamet - sem var frá deginum áður. Hlýnun Jarðar er staðreynd, og það á jafnt við um andrúmsloftið sem hafið - nema á stöku stað. Einn þessara stöku staða er heljarinnar kuldapollur eða blár blettur í hafinu suðvestur af Íslandi, sem hefur mikil áhrif á v...

Óeirðir í Bretlandi, ásókn suðrænna ferðamanna í kuldann og ódýru krónuna í Noregi 07.08.2024

Á fimmta hundrað manns hafa verið handtekin og yfir eitt hundrað ákærð í tengslum við óeirðir sem brotist hafa út í Bretlandi í kjölfar morðs á þremur telpum í borginni Southport í fyrri viku. Óeirðaseggirnir beina reiði sinni einkum að innflytjendum, löglegum jafnt sem ólöglegum, þrátt fyrir að fyrir liggi að ódæðismaðurinn sé fæddur í Bretlandi. Hallgrímur Indriðason ræðir við Sigrúnu Davíðsdótt...

Breytt hlutverk gagnavera, Tim Walz, varaforsetaefni Kamölu Harris 06.08.2024

Þrjú fyrirtæki, Borealis Data Center, atNorth og Verne Global, reka sjö gagnver hér á landi. Vern rekur eitt, atNorth þrjú og Borealis þrjú. Miklar breytingar eru að verða á starfsemi gagnaveranna - þau eru að færa sig úr hinum umdeilda rafmyntagreftri. Ragnhildur Thorlacius ræðir þessa þróun við Bergþóru Halldórsdóttur, einn stjórnenda Borealis, sem rekur gagnaver við Korputorg, Fitjar og Blönduó...

Hungursneyð í Súdan og strandveiðar við Ísland 02.08.2024

Hungursneyð ríkir í Zamzam-flóttamannabúðunum í Norður-Darfurhéraði í Súdan, þar sem áætlað er að um 600.000 manns hafist við. Þetta kemur fram í tilkynningu Sameinuðu þjóðanna og greiningarstofnunarinnar IPC, en IPC er samvinnuvettvangur Sameinuðu þjóðanna og nokkurra alþjóðlegra hjálparsamtaka, sérhæfir sig í greiningu á fæðuöryggi í heiminum og skorti á því, samkvæmt samnefndum, alþjóðlega viðu...

Lyt til podcasten Spegillinn i Replaio

Radio og podcasts i én app - gratis og uden tilmelding. Installer i dag, og gå ikke glip af lanceringen

Hent den på Google Play

Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.