mordskurinn
Morðskúrinn
Þú finnur okkur á samfélagsmiðlum @mordskurinn.
Husk at besøge podcastens hjemmeside og støtte skaberen: mordskurinn.podbean.com
Forfatter
mordskurinn
Kategori
Podcastens hjemmeside
Seneste episode
14. okt. 2026
Hvor kan du lytte?
Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snartPodcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts
Episoder
Óupplýst: Kenzie Houk 29.11.2023 55:44
Kenzie Houk átti von á sínu þriðja barni með manni sínum, Chris Brown. Hún var langt komin og gátu þau ekki beðið eftir að verða sex manna fjölskylda en Kenzie hafði komið sér út úr ofbeldissambandi og var í fyrsta sinn hamingjusöm. Hún fékk hinsvegar aldrei að hitta ófædda son sinn því dag einn mættu garðyrkjumenn heim til hennar og fundu fjögurra ára dóttur hennar standandi fyrir utan. Þeir urðu...
Manndráp: Samantha Josephson 22.11.2023 54:02
Elsku Samantha átti allt lífið framundan, laganámið sem hún hafði verið svo hörð á að hefja og klára og nýta til góðs í framtíðinni, lífið með dásamlega kærasta sínum og alls sem hún hafði hlakkað svo til að upplifa. Samantha fór út eitt kvöld í mars, ákvað að taka sér smá pásu frá bókunum til að skemmta sér aðeins með vinkonunum. Kvöldið átti að vera í styttra lagi enda átti Samantha að mæta til...
Sakamál: Natasha Ryan 14.11.2023 32:25
Natasha Ryan var 14 ára gömul þegar hún hvarf sporlaust frá heimili sínu árið 1998. Ótal leitir voru gerðar og ætlaði fjölskylda hennar ekki að gefast upp, enda þráðu þau ekkert heitar en að fá dóttur sína aftur heim. Það var svo nokkrum árum síðar sem raðmorðingi játaði morðið á sig og á meðan hann beið réttarhalda fékk lögreglan ábendingu, ábendingu sem átti eftir að gera fleiri spurningar heldu...
Manndráp: Arlis Perry 08.11.2023 48:41
Arlis Perry var 19 ára gömul, nýlega flutt til Kaliforníu og var að koma sér þar vel fyrir með sínum manni þegar hún var myrt á hrottalegan máta. Hún hafði rétt ætlað að skreppa inn í kirkju til að biðja eftir að hafa verði í einum af mörgum göngutúrm sínum. Málið átti eftir að reynast erfitt að leysa og var það ekki fyrr en áratugum síðar sem að pússlin fóru að passa ÁSKRIFT www.pardus.is/mord...
Sakamál: Erika Murray 01.11.2023 46:53
Erika var ung þegar hún varð ólétt eftir kærastann sinn Ramon og í kjölfarið flutti hann inn á heimili foreldra hennar til þess að ala upp barnið með henni. Þegar Erika varð ólétt á ný ákváðu þau að nú væri kominn tími til þess að sjá um sig sjálf, svo þau fluttu út og hlutir breyttust verulega í kjölfarið. Eitt skilyrði sem Ramon setti var að honum langaði ekki í fleiri börn, en hvað gerðist þá þ...
Manndráp: Nicole ”Nikki” VanderHeyden 25.10.2023 51:18
Nikki VanderHeyden var ung kona í blóma lífsins, þriggja barna móðir, vel liðin allsstaðar sem hún fór en í erfiðum aðstæðum Yngsti sonur hennar var 6 mánaða gamall þegar hún var myrt á hrottalegan máta eftir kvöldstund út á lífinu. Samband hennar við sambýlismann sinn og föður yngsta sonarins hafði verið stormasamt, en var hann líklegur til að verða henni að bana? ÁSKRIFT www.pardus.is/mordsku...
Manndráp: Melissa Norby 18.10.2023 38:32
Aðfaranótt 22. júlí 2016 fékk slökkviliðið í Bemidji útkall þar sem eldur hafði kviknað á heimili. Þegar þangað var komið var eldurinn að mestu farinn, en inni í húsinu fannst lík hinnar 35 ára Melissu. Í ljós kom að hún hafði verið að passa 5 ára dóttur vinkonu sinnar og því hófst leit að henni, en án árangurs. Hvað kom eiginlega fyrir 5 ára Brittany? www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/m...
Manndráp: Doug Benefield 11.10.2023 43:20
Doug Benefield var ekkill og einstæður faðir þegar hann kynntist hinni glæsilegu 24 ára gömlu Ashely. Það sem var ekki glæsilegt hinsvegar voru komandi tímar. En innan tveggja vikna voru þau gift, farin að huga að því að stofan fyrirtæki og stutt var í vandræðin. ÁSKRIFT: www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn
Raðmorðingi: Hollywood Ripper 03.10.2023 55:22
Árið 2001 fannst Ashley Ellerin myrt á heimili sínu en hún hafði gert plön um að hitta deitið sitt, Ashton Kutcher það kvöld. Við tók rannsókn lögreglu en engar vísbendingar voru til staðar til að finna út hver hefði drepið hana. Það var svo loksins sem rannsóknarteymið fékk símtal um annað morð sem hafði átt sér stað árið 1993 sem boltinn byrjaði að rúlla, en ekkert var gert í málinu og áttu aðra...
Fjöldamorð: Luby’s Massacre 27.09.2023 46:23
Í hádeginu þann 16 október árið 1991 sátu um 80 manns inn á Luby's þegar pallbíll kom keyrandi inn um glugga. Það kom fljótt í ljós að um væri ekki að ræða neitt óhapp né slys þegar maður steig út úr bílnum vopnaður tvem byssum. 23 áttu eftir að deyja þennan dag, á örfáum mínútum - mannskæðasta skotárás Bandaríkjanna árið 1991 og hélt þeim titli í nokkur ár. ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn ...
Mannshvarf: Claudia Lawrence 20.09.2023 42:02
Árið 2009 mætti Claudia heim eftir vinnu, hringdi í foreldra sína og fór að sofa. Daginn eftir átti hún svo að mæta á ný til vinnu en lét aldrei sjá sig og eftir tvo daga fóru áhyggjur að myndast meðal vina og fjölskyldu hennar. www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn
Manndráp: Pravin Varughese 13.09.2023 1:01:06
Pravin var 19 ára gamall nemandi við Southern Illinois háskólann þar sem hann ætlaði sér að klára gráðu til að geta starfað síðar sem lögreglumaður. Eitt febrúar kvöld var hann viðstaddur partý þaðan sem hann fékk síðar meir far heim - hann átti ekki eftir að sjást aftur á lífi eftir það. Fjölskylda Pravins þurfti að berjast fyrir réttlætinu og því miður hefur það ekki fengist í gegn ennþá daginn...
Mannshvarf: Jason Landry 07.09.2023 54:40
Þann 13. desember árið 2020 spjallaði Jason við vin sinn á facetime rétt áður en hann gekk út úr húsinu sínu til þess að fara í þriggja tíma ferðalag heim til foreldra sinna. Hann komst þó ekki á áfangastað, þar sem á miðri leið fannst bíllinn hans allur klesstur en engin merki um Jason sjálfan. Hlutir sem fundust á vettvangi voru verulega skrítnir og margir hafa sett spurningarmerki við það hvað...
Manndráp: Eurydice Dixon 30.08.2023 43:20
Eurydice Dixon var ein hæfileikarík kona og átti sérlega auðvelt með að fá fólk til að hlæja, svo mikið svo að hún starfaði við það. Fyrir utan það, þá var hún mögnuð kona, átti góðan kærasta, góða fjölskyldu og vini og framtíðina fyrir sér í uppistandsheiminum. Hún fékk því miður ekki að lifa til að sjá þá framtíð. Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt a...
Manndráp: Judy Malinowski 23.08.2023 33:33
Judy var komin á gott ról eftir að hafa strögglað lengi í gegnum tíðina, en svo kynntist hún Michael. Hann var alls ekki góður við hana og þegar hún ákvað loksins að nú væri tíminn til þess að fara í meðferð, koma sér á gott ról á ný og losa sig við hann þá lét hann til skarar skríða. Afleiðingarnar voru hræðilegar og barðist Judy eins og hetja til þess að fá réttlætinu framgengt. Þátturinn er í...
Mannshvarf: Siriyakorn ”Bung” Siriboon 16.08.2023 45:52
Bung var 13 ára lífsglöð, dugleg stelpa og átti framtíðina svo sannarlega fyrir sér. Hún gekk út heiman frá sér þann 2. júní árið 2011 og sást aldrei aftur. Hún hefði átt að mæta í skólann þennan morgun en sást hvorki þar né neinstaðar annarsstaðar það sem eftir var. Hnökrar áttu eftir að koma upp í rannsókn málsins sem erfitt er að sætta sig við, en það er nokkuð ljóst að dýrmætum tíma var eytt...
Óupplýst: Blair Adams 09.08.2023 50:12
Þann 4. júlí 1996 byrjaði Blair að haga sér mjög furðulega en það kviknuðu svosem engar viðvörunarbjöllur hjá fjölskyldunni hans strax. Hann reyndi m.a. nokkrum sinnum að fara yfir til Bandaríkjanna frá Kanada en var stoppaður á landamærunum vegna gruns um að hann væri að smygla einhverju þar á milli, en að lokum tókst það og hélt þetta spontant ferðalag hans áfram alla leiðina til Knoxville í Ten...
Manndráp: Shao Tong 02.08.2023 39:14
Shao Tong var kínversk, aðflutt til Bandaríkjanna og nemandi í Iowa State University með áætlanir um að verða efnaverkfræðingur. Til Bandaríkjanna fylgdi henni kærasti og var hún með honum í helgarferð þegar hún hvarf sporlaust. Ekki kom í ljós strax að Shao væri raunverulega horfin fyrr en um tvem vikum seinna en þá fór lögreglan á fullt. Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskú...
Manndráp: Bobbie Jo og Annette 26.07.2023 41:17
Árið 1982 hurfu tvær konur sama dag í Breckenridge í Colarado. Lík annarar þeirra fannst daginn eftir en hitt átti ekki eftir að finnast fyrr en um 6 mánuðum síðar. Það var hlutur sem fannst á vettvangi sem tengdi þær saman og var lögreglan handviss um að þetta væri einn og sami morðinginn. Augu beindust strax að aðila sem stóð Bobbie næst og það var ekki talin vera tilviljun þegar hlutur fannst...
Mannshvarf: Jodi Huisentruit 19.07.2023 39:53
Jodi Huisentruit var 27 ára farsæl og ofboðslega dugleg kona, sem vann hart að því að komast þangað sem hana langaði í lífinu. Hún var samviskusöm og mætti ávalt á réttum tíma til vinnu þar til einn daginn að hún mætti alls ekki. Í ljós kom ljótur raunveruleiki, og flókin atburðarrás tók við. Enn í dag er ekki vitað hvað varð að Jodi, en nokkrar kenningar eru til staðar og þar á meðal hvort að...
Manndráp: House of Blood morðin 12.07.2023 45:54
Edith var einstæð móðir að ala upp son sinn John en sökum fjárhagsvandræða þá bjó hún í athvörfum hér og þar. Það var þar sem hún kynntist ástinni á ný, manni að nafni David. Þau ákváðu að taka sig saman í lífinu og reyndu eftir fremsta megni að stofna gott og stöðugt líf fyrir sig, en það gekk ekki alveg eins og ætlað var þar sem Edith fékk 9 mánaða fangelsisdóm. Eftir afplánun ákvað hún að fagna...
Mannshvarf: Danny Barter 05.07.2023 37:13
Danny Barter var fjögurra ára gamall í útilegu með fjölskyldu sinni við Perdido flóann þegar hann hvarf sporlaust. Grunu vaknaði strax um að hann hafi orðið fyrir krókódílaárás en þegar afar umfangsmiklar aðgerðir sönnuðu að svo væri ekki, þá þurfti aðeins að kafa dýpra. Í ljós kom að röð fremur grunsamlegra atvika höfðu átt sér stað bara skömmu áður en að Danny hvarf - en gat það varpað ljósi á m...
Manndráp: Teresita Basa 28.06.2023 38:02
Teresita var ósköp venjuleg 48 ára kona sem hafði alla sína ævi dreymt um að vinna í tónlistarbransanum. Það hinsvegar gekk ekki eftir og fór hún að vinna á spítala sem henni líkaði vel við. Hún átti enga óvini, öllum líkaði vel við hana og kom það því fólki í opna skjöldu þegar hún fannst látin einn daginn. Lögreglan átti í erfiðleikum með að finna vísbendingar um hvað kom fyrir hana þar til að e...
Manndráp: Karen Styles 21.06.2023 32:30
Karen Styles var 22 ára gömul þegar hún ákvað í sakleysi sínu að fara út að hlaupa eins og hún var vön. Munurinn þennan daginn var sá að vinkona hennar sem fór alltaf með henni, komst ekki. Karen hvarf þennan dag og átti ekki eftir að finnast fyrr en mánuði síðar, látin og illa farin. Með góðum vinnubrögðum lögreglu fannst morðingi hennar og var dreginn fyrir dóm og þar dæmdur sekur en þar endaði...
Mannshvarf: Diane Augat 14.06.2023 43:10
Diane Augat hafði lengi strítt við geðsjúkdóma og ekki alltaf verið tilbúin til að taka lyfin sem til þurfti til að halda niðri einkennum hennar. Hún hafði misst flest sem henni þótti vænt um í kjölfar veikindanna og ekki skánaði ástandið þegar hún leiddist út í áfengis og fíkniefnaneyslu Fjölskylda hennar gafst þó aldrei upp á henni og tóku alltaf á móti henni með opnum örmum og hringdu allar að...
Lignende podcasts
Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.