RÚV Hlaðvörp
Meining
Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Husk at besøge podcastens hjemmeside og støtte skaberen: feeds.acast.com
Forfatter
RÚV Hlaðvörp
Kategori
Podcastens hjemmeside
Seneste episode
2. nov. 2026
Hvor kan du lytte?
Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snartPodcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts
Episoder
Arnarhreiður Hitlers 02.11.2026 58:09
„Hann lét mig alveg vita af því að hann hefði komið í þessa ferð til að komast upp í Arnarhreiðrið,“ segir Hólmfríður Bjarnadóttir, leiðsögukona hjá Bændaferðum, um íslenskan ferðamann sem deildi því með henni að hann aðhylltist nasisma og sóttist eftir ferð upp í Arnarhreiðrið á tíunda áratugnum í eins konar pílagrímstilgangi. Hún segir sömuleiðis frá ferðamönnum sem vildu ekki heimsækja svæðið....
Bakslagið VIII. 26.10.2026 30:41
Síðasta þætti Bakslagsins lýkur með ráðum til valdeflingar og eldri viðtalsbrotum. Við sögu kemur gagnræða, lúmskir fordómar, stjörnufræði og ýmislegt fleira. Rætt er við móður þáttastjórnanda, Sigrúnu Eggertsdóttur kirkjuvörð í Grafarvogskirkju, Esjar Smára Gunnarsson, menntaskólanema, Bjarndísi Tómasdóttur formann Samtakanna 78 og Kára Garðarsson framkvæmdastjóra Samtakanna 78. Þetta er seinni þ...
Bakslagið VII. 19.10.2026 55:32
Í þættinum heyrum við í ungu fólki og menntakerfinu og skoðum hugmyndir úr nýjustu bók Judith Butler, Who’s Afraid of Gender? Í bókinni rýnir hán í kyn og kynvitund frá líffræðilegu og félagslegu sjónarmiði og skoðar þann samfélagslega ótta sem hefur orðið til í tengslum við kynjahugmyndafræði eða „gender ideology“. Esjar Smári Blær Gunnarsson menntaskólanemi segir frá reynslu sinni af því að koma...
Bakslagið VI. 12.10.2026 59:08
Í þættinum er haldið áfram að fjalla um hatursorðræðu og inntak slíkrar tjáningar skoðað nánar með hjálp lögfróðra. Velt er upp tilvikum þar sem ólík réttindi mætast, það er tjáningarfrelsi annars vegar og friðhelgi einkalífs, persónu og heimilis hins vegar. Er markvissu eftirliti með hatursorðræðu sinnt? Rætt er við Gyðu Stefánsdóttur, aðstoðarsaksóknara hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu...
Bakslagið V. 28.09.2026 58:26
Í fyrra var rannsókn birt sem greindi frá því að tíunda hver athugasemd sem látin er falla um hinseginleika í athugasemdakerfum íslenskra síðna er hatursfull. Í þættinum er leitað til fræðafólks og baráttufólks í von um að skilja betur hatursorðræðu, sem og áhrif hennar. Rýnt er í félagsfræðilegar rannsóknir sem benda til þess að fordómafull tjáning á netinu geti haft slæm áhrif í raunheimum. „Hva...
Bakslagið IV. 21.09.2026 58:22
Í þættinum heyrum við af stöðu mála meðal yngri kynslóðarinnar. Hrefna Þórarinsdóttir, forstöðukona hinsegin félagsmiðstöðvarinnar, segir frá líðan þeirra ungmenna sem leita til þeirra í hverri viku. „Ég hef aldrei upplifað ástandið eins krefjandi og erfitt og einmitt núna,“ segir hún. Í kjölfar óvæginnar umræðu, sem hefur blossað upp annað slagið í umræddu bakslagi, hefur málum tengdum sjálfsskað...
Bakslagið III. 14.09.2026 58:37
„Viðbrögðin voru þau, að þegar þessi þáttur var sýndur þá skildist mér að það hefði mátt heyra saumnál detta. Fólk vissi ekkert af þessu. Þetta var nýtt fyrir þeim,“ segir Anna Kristjánsdóttir um viðtal sem var tekið við hana stuttu eftir að hún kom út sem trans árið 1994. Við rifjum upp sögu Önnu í þætti dagsins, og merkilegan þátt hennar í réttindabaráttu trans fólks hér á landi enda var hún fyr...
Bakslagið II. 07.09.2026 1:00:53
,,Það sem er sárast er að horfa upp á það hatur, þann fjandskap og þá heimsku sem beinist að trans fólki á Íslandi,’’ segir Þorvaldur Kristinsson, rithöfundur og fyrrverandi formaður Samtakanna 78. Þorvaldur er einn þeirra sem tóku slaginn á fyrstu árum réttindabaráttu hinsegin fólks á Íslandi. Í þættinum er ferðast aftur í tímann. Spiluð eru brot úr útvarpsþætti frá 1983 þar sem hlustendum gafst...
Bakslagið I. 02.08.2026 56:23
„Á endanum er það fólkið sem kýs að gera ekki neitt sem veitir öfgaöflum brautargengi,“ segir Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, sem er meðal viðmælenda í fyrsta þætti nýrrar stuttþáttaraðar um bakslagið í málefnum hinsegin fólks hér á landi. Í fyrra kom út rannsóknarskýrsla, kortlagning á stöðu líðan og réttindum hinsegin fólks á Íslandi, þar sem í ljós kemur að líða...
Hryggsúlan IV. 13.07.2026 42:11
Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólk sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind. Við sögu kemur raförvun útlima, spelkur, krónískir verkir,...
Hryggsúlan III. 06.07.2026 42:42
Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólk sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind. Við sögu kemur orðasifjafræði, skartgripir úr hryggjaliðum...
Hryggsúlan II. 29.06.2026 43:23
Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólk sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind. Í þessum þætti snúum við okkur að lasleika sem hrjáir marg...
Hryggsúlan I. 22.06.2026 41:13
Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólks sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind. Í fyrsta þætti skoðum við líffærafræði og þróunarsögu hry...
Skammtafræði IV. 15.06.2026 50:41
Stærðfræðijöfnur og samspil trúar og vísinda er efniviður þáttarins. Hugleiðingar um fyrirbæri og tungumál stærðfræðinnar leiða okkur nefnilega með óvæntum hætti inn í tengsl trúar og vísinda, sem og jú andstæður og aðskilnað þessara tveggja heima. „Grundvallarspurningin er mögulega; Getum við afsannað ákveðnar trúarlegar kenningar með vísindalegri þekkingu? Þetta er eitthvað sem ég hef rann...
Skammtafræði III. 08.06.2026 55:24
„Hver spurning sem skammtafræðin svarar leiðir einfaldlega til annarrar spurningar því við köfum stanslaust dýpra og dýpra og dýpra og dýpra,“ sagði Rob Sutherland, sagnfræðingur við Niels Bohr Institute, í síðasta þætti. Haldið er áfram að kafa ofan í fjarlægan, og þó afar nálægan, og hulinn heim skammtafræðinnar í þætti dagsins. Við sögu kemur köttur Schrödingers, superposition, vangaveltu...
Skammtafræði II. 01.06.2026 52:07
Við höldum áfram að fikra okkur í gegnum heim hins smáa, heim skammtafræðinnar sem hefur leitt af sér fleiri uppfinningar í nútímasamfélagi en aðrar kenningar. Skammtafræðin á sér yfir hundrað ára sögu. Í þessum þætti víkjum við aftur í söguna og skoðum hvenær og hvernig þetta byrjaði allt saman. Upprunann má rekja til borgar sem Íslendingar þekkja vel, höfuðborgar fyrrum nýlenduh...
Skammtafræði I. 25.05.2026 51:03
„Það sem er miklu merkilegra, og þú ættir frekar að spyrja, er hvernig stendur á því að við getum yfirhöfuð skilið þetta? Það er ekkert fyrir fram gefið að heimurinn sé skiljanlegur,“ segir einn viðmælandinn, en flókinn heimur skammtafræðinnar er til skoðunar í næstu fjórum þáttum. „Skammtafræðin er afskaplega hagnýt. Margt í okkar daglega lífi er hægt að rekja beint til þessa aukna skilning...
Mölturiddarar 18.05.2026 1:00:44
„Þetta er elsta riddararegla í heimi,“ segir Hreinn Líndal, einn íslensku Mölturiddaranna en þeir eru átta talsins, sjö karlmenn og ein kona. Þau tilheyra hinni kaþólsku Möltureglu, sem er frábrugðin flestum öðrum kaþólskum trúarreglum að því leyti að hún er alþjóðlegur lögaðili, gefur út sín eigin vegabréf, frímerki, númeraplötur og mynt. Möltureglan er með sendiráð í 115 ríkjum, sendiherra...
Íslenskar nunnur III. 11.05.2026 56:19
Áfram er fjallað um þær íslensku konur sem gerðust kaþólskar nunnur á síðustu öld. Þáttastjórnanda bárust forvitnilegar ábendingar um systur Stanislaus (f. Guðrún Una Gísladóttir, 1912-1956). Líf hennar er því til skoðunar í þætti dagsins. „Sumir segja að hún hafi verið dálítið þung á bárunni, erfið í viðkynningu, jafnvel skapstór,“ segir í sögu Jósefssystra eftir Ólaf H. Torfason. Rætt er við þrj...
Íslenskar nunnur II. 27.04.2026 58:05
Seinni þáttur um íslenskar nunnur eftir siðaskipti. Clementia yngri (Svanlaug Guðmundsdóttir) var kennari við Landakotsskóla í 35 ár, vann náið með séra Georg og Margréti M ü ller og Riftún, sumarbúðir kaþólsku kirkjunnar, voru sérstakt hugðarefni hennar. „Þegar þú ert í kristinfræði þá er verið að tala um þetta góða og þetta fallega. Mér fannst hún akkúrat vera þetta fallega, af því ég var auðvit...
Íslenskar nunnur I. 20.04.2026 59:35
Frá siðaskiptum hafa fjórar íslenskar konur gerst kaþólskar nunnur. „Fleiri íslenskar stúlkur íhuguðu klausturlífið en höfðu ekki þá trúarlegu hugsjón eða köllun sem klausturvistin krefst,“ segir í endurminningum Sigurveigar Guðmundsdóttur sem hugsaði um að gerast nunna en hætti við vegna heilsubrests. Í þættinum er sagt frá Steinunni Björnsdóttur (Systur Mary Hildu), Halldóru Marteinsdóttur (Syst...
Jósefssystur 13.04.2026 59:57
Árið 1896 komu til landsins fjórar nunnur úr reglu St. Jósefs. „Þetta eru neyðarsveitir, svipað og ýmsar Rauða kross eða hjálparsveitir sem eru sendar til þróunarlanda í dag,“ eins og Ólafur H. Torfason orðaði það. Hann skráði á sínum tíma hundrað ára sögu systranna á Íslandi. Í þættinum heyrum við úr dagbókum Systur Clementiu eldri sem var í hópi þeirra fyrstu sem komu til landsins. St. Jósefssys...
Leikmenn 30.03.2026 58:03
„Að mínu áliti er kirkjan heilög. Þrátt fyrir að það séu til slæmir prestar, slæmir biskupar og það hafi verið mjög slæmir páfar í gegnum tíðina þá er kirkjan sjálf heilög. Ef hún væri það ekki, þá væri ég ekki í henni,’’ segir Jónas Sen, tónlistarmaður, gagnrýnandi og leikmaður í leikmannareglu Karmels í þætti dagsins. Í þættinum skoðum við leikmannareglunna nánar. Þegar talað er um leikmen...
Karmel 23.03.2026 1:00:19
„Lífið er nógu þungt og því gott að hlæja vel,“ sagði ein karmelsystra árið 1957 í útvarpsviðtali. Karmelreglan er ein fárra höfuðreglna kaþólskrar trúar sem finnst hér á landi í dag. Á Karmelfjalli forðum hófst búseta einsetumanna sem bjuggu hver í sínum litla helli en komu daglega saman til bæna. Árið 1209 hafði hópurinn komið sér saman um að lifa samkvæmt skipulagðri reglu sem fékk heitið Karme...
Pentecostés 09.03.2026 59:29
„Við erum eins og eiginkonur Guðs,“ segir systir María de Pentecostés og bendir á gullhring á baugfingri vinstri handar. „Okkur langar að gefa Guði allt okkar líf.“ Við kynnumst systur Pentecostés í þættinum en hún er postulleg Maríusystir við St. Jósefskirkju sem tilheyrir reglunni Þernur drottins og Maríu meyjar frá Matará. Systurnar eru rúmlega 1200 í meira en 35 löndum víðs vegar um heiminn. Þ...
Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.