Handkastið

Handkastið

Podcast by Handkastið

Husk at besøge podcastens hjemmeside og støtte skaberen: soundcloud.com

Forfatter

Handkastið

Kategori

Sports

Podcastens hjemmeside

soundcloud.com

Seneste episode

23. nov. 2026

Hvor kan du lytte?

Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snart

Podcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts

Hent den på Google Play Installer gratis Android 10 mio.+ downloads · 4,7+ i bedømmelse iOS snart

Episoder

Missir Ómar Ingi af HM og óvænt nafn skilið eftir heima 23.11.2026

Stymmi Klippari, Einar Ingi og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastins og gerðu upp helgina í handboltanum hérlendis og erlendis. Snorri Steinn valdi 35 manna hóp og óvænt nafn var skilið eftir heima. Ómar Ingi meiddist í vikunni og spilar ekki meira á árinu. Staðan a´ Viggó er ekki góð fyrir stórmótið í janúar. Haukar voru í kröppum dansi í Evrópu um helgina. Vinnur Valur Danina aftur? Búið að...

Erfið vika í Eyjum og Akureyrarslagur framundan 19.11.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Grátlegt tap hjá Val í Evrópu. FH gáfu Portúgölunum alvöru slag en máttu þola tap. Nýja HSÍ appið er komið í loftið. Haukar eru óstöðvand og Fram gerði góða fer til Eyja. Stjarnan kom öllum á óvart og sló ÍBV út úr bikarkeppninni. Meistaradeildin í handbolta er komin á fullt. Akurey...

Mætt á völlinn 15 dögum eftir fæðingu og leikhléið sem gerði allt vitlaust 16.11.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi og erlendis. Stiven Tobar farinn að æfa með Valsmönnum en fær hann samning? Valur farnir til Evrópu og FH einnig í eldlínunni í vikunni. Bræðurnir skildu jafnir og fóru heim með sitthvort stigið. ÍR eru svo gott sem komnir upp úr Grill 66 deildinni eins og Afturelding kvenna megin. Mu...

Verður samstarfinu slitið fyrir norðan og einvígi landsliðsmarkmannanna 12.11.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Geiri Gunn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins í kvöld og gerðu upp vikuna í handboltanum. Fyrsta skóflustunga var tekin af nýrri þjóðarhöll í dag. Enn einn Íslendingurinn er á leið til Þýskalands. FH unnu stórleikinn við Val. Einvígi landsliðsmarkmannanna var á allra vörum eftir leik kvöldsins. Haukar orðnir deildarmeistarar? Munu KA/Þór einnig slíta samstarfinu...

Gönguferð í Tallinn og hverjir ákveða búningana fyrir leiki? 08.11.2026

Stymmi Klippari, Davíð Már og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó-ið og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Þægilegur sigur landsliðsins í Tallinn. Bjarki Már var frábær í þessu verkefni. Reynir Þór að stimpla sig inn í landsliðið. Bjöggi kominn í 300 leiki. Kvennalið Hauka með stórsigur í Evrópu. "Nýliðar" Selfoss safna stigum í Olís deildinni. Olís deildin fer aftur af stað í vik...

Nýtt vopn í Reyni Þór og þróun handboltans 06.11.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp landsins Íslands og Úkraínu á miðvikudaginn. Ísland setti markamet í Laugardagshöllinni. Ómar Ingi kominn í 400 marka klúbbinn. Reynir Þór með frábæra innkomu og gæti verið nýtt vopn fyrir Snorra Stein. Leikgleðin lak af Jóni Bjarna í hans fyrsta heimaleik með landsliðinu. Haukar eru á toppi Olís deildinna...

Landsleikjavika og línur farnar að skýrast í Olís deildinni 02.11.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í Rapyd stúdíó Handkastins og gerðu upp handboltahelgina hér heima og erlendis. Strákarnir Okkar spila í vikunni í Laugardagshöllinni og eru örfáir miðar ennþá til sölu. Arnar Pétursson vonast eftir að fá að halda vegferðinni áfram með kvenna landsliðið. Landsliðsstrákar orðaðir við hin og þessi félög í Evrópu. Haukar fóru illa með KA í toppslagnum....

Arnar Pétursson ræðir EM hópinn - vegferðina og framtíð sína sem landsliðsþjálfari Íslands 30.10.2026

Ítarlegt viðtal við Arnar Pétursson þjálfara íslenska kvennalandsliðsins en í hádeginu í dag kynnti hann 17 manna EM hóp sinn fyrir komandi stórmót. Arnar Pétursson tók við íslenska kvennalandsliðinu í ágúst árið 2019 og er því á sínu sjötti ári með liðið. Hann er á leið á sitt fjórða stórmót í röð en samningur hans við HSÍ rennur út eftir mótið. Hann ræddi EM hópinn, framtíðina, stöðuna á leikmön...

Besta byrjun Hauka síðan 2000 og Selfoss á síðasta séns 29.10.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Benni Grétars mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp heila umferð í Olís deild karla sem fram fór í vikunni. Haukarnir geta ekki hætt að vinna leiki og stefna á bestu byrjun síðan árið 2000. KA fór í Kaplakrika og rassskellti FH. Selfoss eru á síðasta séns hjá Séffanum. ÍBV fóru fáliðaðir í Virkið og tóku bæðin stigin með sér til Eyja. Gunnar Róberts hafði hægt um...

Sérveitin verður heima og Haukar ætla ekki að tapa leik 26.10.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Gunnar Róbertsson heldur áfram að vera allt í öllu þegar Valur vann ÍBV. Guðjón Valur var fyrstur til að vinna Flensburg í þ´ýsku úrvalsdeildinni. Haukar ætla sér langt í Evrópu þetta árið. Línur eru farnar að skýrast í Olís deild karla. Tvær umferðir framunda...

18 ára á meðal markahæstu leikmanna Evrópu og hverjir hafa komið mest á óvart? 23.10.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Gunnar Róbertsson er 5. markahæsti leikmaður Evrópudeildarinnar. Íslenska kvennalandsliðið vann Pólland í leik sem fór fram í kyrrþey í Póllandi. Línur farnar að skýrast í Meistaradeild Evrópu. Afturelding missti 2 leikmenn í meiðsli gegn KA. Markvarsla neðstu l...

Yfirvinna í Eyjum og allt undir á Selfossi 19.10.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hérlendis og erlendis. Var eitthvað óvænt í landsliðshóp Snorra Steins? Þarf að breyta félagsskiptaglugganum í Evrópu? Þórsarar náðu 50% árangri í Eyjum um helgina en það var nóg að gera hjá dómaraparinu. Stjarnan er að koma öllum á óvart í upphafi tímabilsins. Hafdís mætti aftur í m...

Valur með svarta beltið í Evrópu og fimm mestu harðhausar Olís-deildanna 15.10.2026

Sérfræðingurinn fékk Sigurjón Friðbjörn og Gunnar Val beint af grillinu í Rapyd-stúdíóið. Farið var yfir fyrstu tvo leikina í 6.umferð Olís-deildar karla og spáð í spilin í næstu leiki auk þess sem spa´ð var í spilin í 6.umferð í Olís-deild kvenna. Farið var yfir frammistöðu Vals og FH í Evrópudeildinni. Í lokin var farið yfir fimm mestu harðhausana í Olís-deildum karla og kvenna og var Sérfræðing...

Facebook færslur og hvað er í gangi hjá Fram? 12.10.2026

Sérfræðingurinn, Einar Ingi og Ásgeir Jónsson settust í Rapyd-stúdíó-ið og fóru yfir Facebook færslur, Olís-deild kvenna, Powerade-bikar karla, spáðu í spilin fyrir næstu umferð í Olís-deild karla og sitthvað fleira í þessum þætti. Erlingur Richardsson er ósigraður í Þýskalandi og óskum við honum til hamingju með það að hætti Maggi Stef. Valur og FH verða í eldlínunni í Evrópudeildinni þar sem Val...

Þjálfarinn ræður og hvað er að fæðast í Mosfellsbænum? 08.10.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Arnar Pétursson er búinn að velja landsliðshópinn og hann ræður. Haukar og Afturelding eru mættir í 8 liða úrslit Powerade bikarsins. Fáum við óvænt úrslit í hinum leikjum 16 liða úrslitanna? Gidsel jafnaði markametið og Emil Nilsen er allt önnur skepna hjá Veszprém. Heil umferð í Ol...

Evrópa truflaði ekki og markaskor nær nýjum hæðum í Olís deildinni 05.10.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó´ Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Valur og FH létu ekki Evrópuleikina trufla sig og unnu sigra í Olís deildinni. HK vann sigur á Stjörnunni í svokölluðum fjögurra stiga leik. Þrjú lið eru á toppi Olís deildar kvenna með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir. Botnbaráttan mun vera æsispennandi...

Fjárhagsvandamál hjá Val og voru menn sviknir í Eyjum? 02.10.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum hérlendis og erlendis. Orri Freyr er á leiðinni til Guðjóns Vals. Veszprem eru heimsmeistarar félgasliða. Mönnum var heitt í hamsi fyrir Vestan. Sissi kveður Val með 13 titla í farteskinu. Fram eru í mikilli brekku eftir 18 marka tap gegn UMFA. KA og Haukar með góða sigra í 5.umferði...

Þjálfaraskipti og krísufundur í Olís deild karla 28.09.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Ásgeir Jónsson mættu í Rapyd stúdíó-ið og gerðu upp handbolta helgina hér heima og erlendis. Valur og FH byrja Evrópuævintýrið í vikunni. Mikið um óvænt úrslit í Olís deild karla. Hvernig eru liðin í Olís deild karla að hefja tímabilið? Erlingur Richardsson hefur tekið við þjálfun hjá Minden í Þýskalandi og fengum við þær upplýsingar í miðjum þættinum. Olís deil...

307 daga bið Stjörnunnar á enda og nennir enginn að spila vörn lengur? 24.09.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Sigurjón Friðbjörn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Haukar unnu FH en gerðu sitt besta til að kasta leiknum frá sér. Stjarnan vann loksins í Olís deildinni eftir 307 daga bið. Einar Jónsson var virkilega ósáttur með sína menn. Afturelding fór illa með Selfyssinga. HK fór til Eyja og stal báðum stigunum....

Jóhanna í hefndarhug og það styttist alltaf í sigurleik 21.09.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Magdeburg tapaði óvænt gegn Melsungen. Elítuhópurinn æfði um helgina. Haukar vinnu stórleikinn í kvennaboltanum um helgina. Meiðsli herja á leikmenn og þjálfarateymi KA/Þórs. Fram tapaði niður 9 marka forskoti. FH og Haukar mætast í st´órleik á fimmtudaginn. Þe...

Þór með montréttinn og kveður Gunnar Róbertsson okkur í janúar? 16.09.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp 3.umferð í Olís deild karla. Gunnar Róbertsson er á góðri leið með að taka yfir þessa deild. Siggi Dan bjargaði stigi fyrir Stjörnuna fyrir austan fjall. Þórsarar unnu KA á útivelli í kvöld og eru með montréttinn fyrir norðan næstu dagana. Haukar eru á toppi deildinnar með fullt hús stiga. Heil umferð fer...

Markametið slegið og undarlegustu félagsskipti síðustu ára 14.09.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi. Víkingar verða byrja leikina. Hvað var KA að spá að reyna ekki að halda í Magnús Dag? Markametið slegið á Hlíðarenda? Verður Einar Jónsson að fara að róa sig? Valskonur svöruðu eftir slæma byrjun með þægilegum sigri á ÍBV. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkas...

Aron til bjargar og Eyjamenn með veskið á lofti 10.09.2026

Stymmi Klippari, Geiri Gunn og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp vikuna í handboltanum hér á Íslandi og erlendis. Aron reddar Íslendingum og mætir til landsins í janúar. Arnar Pétursson hefur valið æfingarhóp fyrir landsliðið. Danskir dagar í Þorpinu þegar Þórsarar unnu sinn fyrsta leik í vetur. FH kastaði frá sér sigri í Mosfellsbænum. Nóg af handbolta alla helgina bæði í karla og kve...

Óvæntustu úrslit síðari ára og 2010 árgangurinn er mættur til leiks 07.09.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Haukar mættu til leiks með látum. Það tók 2 sólarhringa að klára leik Aftureldingar og Víkings. Selfoss kom öllum á óvart og unnu Íslandsmeistaranna. Stelpurnar voru með skotleyfi um helgina. Lið umferðanna opinberuð. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Valur slapp með skrekkinn og ný nöfn í deild þeirra bestu 04.09.2026

Olís-deild karla er farin af stað og hinar deildirnar hefjast um helgina. Boltinn er farinn að rúlla í Evrópu. Óvænt félagaskipti síðustu daga og nýtt félag í Grill66-deildinni. Sérfræðingurinn, Einar Ingi og Kiddi Bomba fóru yfir allt það helsta í Rapyd stúdíóinu.

Lyt til podcasten Handkastið i Replaio

Radio og podcasts i én app - gratis og uden tilmelding. Installer i dag, og gå ikke glip af lanceringen

Hent den på Google Play

Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.