Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

Hlaðvarp

Husk at besøge podcastens hjemmeside og støtte skaberen: www.spreaker.com

Forfatter

Thorarinn Hjartarson

Kategori

Society

Podcastens hjemmeside

www.spreaker.com

Seneste episode

8. nov. 2026

Hvor kan du lytte?

Podcasts i appen Replaio Radio Kommer snart

Podcasts kommer snart til appen. Installer nu, og vær den første til at se en helt ny tilgang til podcasts

Hent den på Google Play Installer gratis Android næsten 10 mio. downloads · 4,7+ i bedømmelse iOS snart

Episoder

#531 Jón Gnarr - Meðferðin á Guðbrandi var mannvonska 01.03.2026

Þórarinn ræðir við Jón Gnarr, grínista og starfandi Alþingismann fyrir Viðreisn. Jón telur neyðarástand ríkja í málefnum drengja og að mikilvægt sé að grípa í taumana. Það kemur honum spánskt fyrir sjónir að mannréttindabarátta hafi ekki látið þessi mál sig varða og að vandamál drengja sé jafnvel rætt með hjákátlegum tón. Hann telur að meðferðin á Guðbrandi Einarssyni, fyrrum alþingismanni fyrir s...

#530 Hanna Björg Vilhjálmsdóttir - Má ljótt fólk kaupa vændi? 28.02.2026

Þórarinn ræðir við Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur um bakslagið, vændi, femíniska leikjafræði, forréttindapýramídann, kulnun, kynferðisafbrot og fleira. Nýverið hætti Guðbrandur Einarsson á Alþingi eftir að hafa gerst uppvís að hugsanaglæp en hann íhugaði vændiskaup fyrir 12 árum. Um þetta er rætt og margt fleira. - Er hamingjusama hóran til? - Væri skárra ef Guðbrandur hefði verið ljótur? - Afhverju...

#112 19. febrúar - Hvað er að taka "raunverulega" ábyrgð? 26.02.2026

Þórarinn ræðir stöðu mála í vændiskaupum. Guðbrandur Einarsson sagði sig frá störfum sem þingmaður fyrir skömmu fyrir hugsanaglæp og skiptar skoðanir eru hvort að það hafi verið rétt hjá honum. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling  eða  Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270     Samstarfsaðilar...

#529 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson - Vókið er inngróið inn í íslenskar stofnanir 25.02.2026

Þórarinn ræðir við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins. Í upphafi þáttar er rætt um heimspekileg sjónarmið gagnvart rétttrúnaðinum og hvernig stofnanir hins opinbera séu enn rótgrónar í woke-inu. Í því samhengi er rætt um sjálfsritskoðun, ESB, vandamálabransann, raunveruleikarof og fleira. Í kjölfarið er rætt um áhuga Samfylkingarinnar á komandi atkvæðagreiðslu vegna aðildarviðræðna v...

#111 17. febrúar - Ríkisstjórnarflokkarnir á sitthvorri bylgjulengdinni 24.02.2026

Þórarinn ræðir um almannatryggingar, ósamstíga ríkisstjórn, verkalýðsmál, heimsmálin og íslenska menningu. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling  eða  Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270     Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  Fiskhúsið Palssonfasteigna...

#528 Jón Magnús Kristjánsson - Bráðamóttakan, DRG-kerfið og framleiðni 23.02.2026

Þórarinn ræðir við Jón Magnús Kristinsson, starfandi aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, en hann hefur einnig mikla reynslu af heilbrigðiskerfinu og starfaði sem yfirlæknir bráðamóttökunnar áður en hann hóf störf í ráðuneytinu. Rætt er um stöðu Landspítalans í samhengi við einkarekstur og opinberan rekstur. Fjallað er um hugmyndafræði, greiðsluþátttöku, nýtingu, hagræðingu, framleiðni og skort. Jón...

#527 Kristrún Frostadóttir - Við stöndum við planið 17.02.2026

Þórarinn ræðir við Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formann Samfylkingarinnar. Rætt er um umdeilt mál sem nú er rætt á þinginu um tengingu almannatrygginga við vísitölu neysluverðs, vinnusiðferði ungs fólks, öryrkja, kjarasamninga, verðbólgu, vextina, sleggjuna, nýju stjórnarskránna og aðildaviðræður við Evrópusambandið. Kristrún segir að plani haldi þrátt fyrir verðbólgumælingar. Hún s...

#526 Sólveig Anna og Villi Birgis - Við viljum ekki "gated community" fyrir Kardashian pakk 15.02.2026

Þórarinn ræðir við Sólveigu Önnu og Villa Birgis um stöðu íslensk verkafólks. Í upphafi þáttar er rætt um leikskólamál og mótmæli leikskólastjóra. Sólveig segir spikfeita millistétt vera þeir einu sem að tali gegn því að fyrirkomulaginu sé breytt og að ef nýtt kerfi yrði tekið upp í Reykjavík myndi fólk aðlaga sig að því. Því næst er rætt um jöfnuð og verkafólk. Villi og Sólveig telja bæði að miki...

#525 Ari Edwald - Oddviti Miðflokksins í Reykjavík 13.02.2026

Þórarinn ræðir við Ara Edwald, fyrrum forstjóra Mjólkursamsölunnar og 365 miðla. Ari hefur farið mikinn í atvinnulífinu en auk þess að sinna starfi forstjóra var hann áður framkvæmdarstjóri Samtaka Atvinnulífsins. En nú hyggst Ari snúa sér að stjórnmálum en hann verður oddviti Miðflokksins í Reykjavík í næstu borgarstjórnarkosningum. Í upphafi þáttar er rætt um borgarlínuna en hann telur hugmyndaf...

#524 Einar Baldvin - Gervigreindin er skurðgoð 11.02.2026

Þórarinn ræðir við Einar Baldvin, sjálfstætt starfandi listamann og háskólakennara.  Einar skrifar greinar þar sem hann ræðir vanhelgun Kristinnar trúar og færir rök fyrir því að stanslaus framfarahyggja sé í raun spírall í átt að botninum. Hann spyr hvað það sé að vera raunverulega frjáls og að listsköpun miðalda geti kennt okkur mikið um söguna og að nýta eigi reynsluspeki fyrri ára til að takas...

#523 Sölvi Tryggva - Heilbrigt fólk er ekki líklegt til að vera í vókinu 08.02.2026

Þórarinn ræðir við kollega sinn, Sölva Tryggvason um heilsu, óhollustu, stjórnlyndi, ríkið, sundrungu og stjórnmálamenn. Sölvi telur að vókið sé tilkomið vegna óheilbrigðis. Hann segir að það sé ólíklegt að fólk sé vók sé það heilbrigt. Hann setur þetta í samhengi við faraldurinn og segir að fólk sem hafði sig mest frammi í því að viðhalda aðgerðum stjórnvalda var fólk sem var ólíklegt til þess að...

#522 Jakob Bjarnar - Eru Temufjölmiðlar framtíðin? 05.02.2026

Þórarinn ræðir við Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamann með meiru, um stjórnmálin, fjölmiðla, rétttrúnaðinn, menntamál og andverðleikasamfélagið. Jakob telur hugmynd almennings um einkenni og hlutverk fjölmiðla vera brenglað. Hann segir að hlaðvörp séu að sjálfsögðu ekki fjölmiðlar og það að endurtaka fréttir annarra geri menn ekki að blaðamönnum. Þá sé það sérstaklega einkennilegt þegar slíkir ein...

#521 Emmsjé Gauti - Þurfa listamenn að ritskoða sig? 04.02.2026

Þórarinn ræðir við Emmsjé Gauta, tónlistarmann með meiru, um ýmislegt. Í upphafi er rætt um samstarfsaðila hlaðvarpa og tónlistarmanna í samhengi við siðferði, veðmálasíður, áfengi og nikótín. Þá er því velt upp hvort að listamenn sæti takmörkunum vegna samstarfsaðila og hvort að þeir hagi sínum skoðunum í samræmi við það. Að því loknu er rætt um samfélagsumræðu, útlendingamál, Gísla Martein, skað...

#520 Þorleifur Örn Arnarson - Ólík sjónarmið verða að takast á 02.02.2026

Þórarinn ræðir við Þorfleif Örn Arnarson, leikstjóra og hugsuð. Rætt er um ýmis mál en aðallega umræðuhefð og hvernig hún hefur breyst Vestanhafs og í Evrópu á undanförnum árum. Rætt er um áhrif samfélagsmiðla á fjölmiðla og velt vöngum yfir því afhverju það virðist ganga illa að eiga samræður. Þorleifur hefur reynslu af því að búa í Þýskalandi og lýsir hann því þegar hann ræðir við fólk sem er á...

#519 Helgi Hrafn Gunnarsson - Almenningur hefur ekki hundsvit á útlendingamálum 31.01.2026

Þórarinn ræðir við Helga Hrafn Gunnarsson, gamla Píratann sem allir elska. Farið er um víðan völl en í stuttu máli rætt um þrjá hluti, uppgang fasisma, útlendingamál og vændi. Helgi er gagnrýninn á slaufunarmenningu og setur það í samhengi við frönsku byltinguna og hvaða félagslegu afleiðingar hlýst af múgæsingi. Spurt er hvaða áhrif það hefði haft ef samfélagsmiðlar hefðu verið til á tímum frönsk...

#518 Brynjar Níelsson - Gæti Brynjar hugsað sér að fara í Miðflokkinn? 27.01.2026

Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson, stórvin þáttarins. Líkt og svo oft áður er farið um víðan völl. Rætt er um stöðu Sjálfstæðisflokksins í samhengi við stöðu Miðflokksins. Brynjar telur Miðflokkinn tala tæpitungulaust um raunveruleg vandamál í íslensku samfélagi og að það sé ástæðan fyrir uppgangi Miðflokksins. Þórarinn spyr Brynjar um það hvort að hann gæti betur átt heima í Miðflokknum og hvor...

#517 Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir - Heimavinnandi karlar, skóli án aðgreiningar og þriðja vaktin 25.01.2026

Þórarinn ræðir við Kristínu Kolbrúnu Kolbeinsdóttur um foreldramál en hún er einmitt foreldrafræðingur. Hún telur að þau gildi sem hafa verið hvað hæst í umræðunni undanfarin ár stríða gegn barnvænu samfélagi. Hún telur að skóli án aðgreiningar hafi boðið skipbrot og að yfirbygging menntakerfisins hafi ekki skilað betri árangri. Hún segir skólafólk þurfa að bera ábyrgð en ekki síður foreldrar, kyn...

#516 Sigríður Mogensen - Lífskjör á Íslandi standa og falla með forgangsröðun stjórnvalda um samkeppnishæfni 24.01.2026

Þórarinn ræðir við Sigríði Mogensen, sviðstjóra iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins um lífskjör á Íslandi, samkeppnishæfni, orkuöflun, gagnaver og menntakerfið. Sigríður segir óvissu einkenna þá tíma sem við nú lifum. Þá telur hún umræðu um orkuöflun hafa verið stýrt af háværum minnihluta sem hafi geta gengið fram með offorsi og séð til þess að halda sjónarmiðum annarra í gíslingu. Þá seg...

#515 Guðlaugur Þór Þórðarson - Íslendingar þeir einu sem gæta hagsmuna Íslands 23.01.2026

Þórarinn ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson, fyrrum ráðherra, um alþjóðastjórnmálin. Fjallað er um hagsmunagæslu Íslendinga í nýjum veruleika, varnarmál, fágætismálma, hagsmunir Íslands í samhengi við hagsmuni til Vesturs og Austurs, skuggabann og margt fleira. Upptaka 15. janúar 2026. Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus...

#514 Pétur Marteinsson - Nýja Samfylkingin, woke-ið og prófkjör 21.01.2026

Þórarinn ræðir við Pétur Marteinsson, frumkvöðul og kaffihúsaeiganda, en hann stefnir nú á að demba sér í stjórnmál og ætlar sér í prófkjör þar sem hann stefnir á að verða oddvit Samfylkingarinnar í næstkomandi borgarstjórnarkosningum. Þar mun hann etja kappi við Heiðu Björg Hilmisdóttur, núverandi borgarstjóra. Spjallið fer um víðan völl en auk þess að ræða það sem hann telur að betur megi fara í...

#513 Agnar Tómas Möller og Björn Jón Bragason - Alþjóðastjórnmál valda kerfisvillu hjá vinstrimönnum 20.01.2026

Þórarinn ræðir við Agnas Tómar Möller og Björn Jón Bragason um alþjóðastjórnmál og menningu. Rætt er um samfélagslega lofttæmið sem lengi hefur verið við lýði og hvaða áskoranir muni leita á okkar borð á næstunni. Fjallað er um Grænland, Bandaríkin, sögulegt samhengi og hvort að lífskjör á Íslandi séu afleiðing handahófskenndra atburða. Þá er einnig farið yfir það hvað áhrif lestur og nám hefur áh...

#512 Kolbeinn H. Stefánsson og Jökull Sólberg - Verður framtíðin duct-tape-uð? 18.01.2026

Þórarinn ræðir við Kolbein H. Stefánsson, kennara við félagsfræðideild háskóla Íslands, og Jökul Sólberg, frumkvöðul og sósíalista. Kastljósinu er beint að alþjóðastjórnmálunum og er rætt um það hvaðan uppspretta nýju strauma heimsvaldastefnunnar er að finna. Fjallað er um Venezuela, þjóðernishyggju, peningastefnu Evrópu, Þorgerði Katrínu, Rússland og Úkraínu. - Eru til jákvæðar hliðar þjóðernishy...

#511 Guðmundur Fylkisson - Rauði krossinn vann gegn störfum Guðmundar 16.01.2026

Þórarinn ræðir við Guðmund Fylkisson, lögreglumann sem hefur gerst frægur við einstaklega gott lag á því að aðstoða börn í neyslu. Hann telur skaðaminnkandi úrræði vera skaðræðisfyrirbæri og segir Rauða krossinn hafa staðið í vegi fyrir því að hann gæti aðstoðað börn í neyð. Hann segir að skaðaminnkandi úrræði í samfloti við eiturlyfjabílinn sé ekki farsæl lausn fyrir börn í neyslu.  Guðmundur tel...

#510 Omar Rondon - Allir ættu að samgleðjast Venezuelabúum 13.01.2026

Þórarinn ræðir við Omar Rondon en hann er flóttamaður frá Venezuela.  Omar telur að allir ættu að samgleðjast Venezuelabúum nú þegar Nicolás Maduro hefur verið steypt af stóli og situr nú í bandarísku fangelsi í New York. Hann segir að Venezuelabúum sé sama um það hvernig olíunni verði ráðstafað nú þegar Bandaríkjamenn segjast vilja stýra landinu einfaldlega vegna þess að um langt skeið hafi íbúar...

#509 Hilmar Freyr Gunnarsson - Afhverju getur maður ekki byggt eigið heimili? 08.01.2026

Þórarinn ræðir við Hilmar Frey Gunnarsson, húsasmíðameistara, um húsnæðismál, stjórnsýsluna, Grindavík og fleira. Hilmar telur að kerfið sporni við því að fólk geti byggt eigið heimili og að það sé nær ómögulegt miðað við áherslur stjórnvalda. Fjallað er um þetta í samhengi við aðgerðir stjórnvalda í Grindavík og hugmyndafræðilegan ágreining sem fylgir náttúruhamförum og frelsi íbúa til þess að sn...

Lyt til podcasten Ein Pæling i Replaio

Radio og podcasts i én app - gratis og uden tilmelding. Installer i dag, og gå ikke glip af lanceringen

Hent den på Google Play

Replaio er ikke podcastudgiver; programmernes navne, coverbilleder og lyd tilhører deres ophavsmænd og distribueres via offentlige RSS-feeds.